Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1992, Page 20
20
Kvikmyndir__________________________
Far and away:
Rómantísk saga írskra innílytjenda
í byrjun september verður stór-
myndin Far and away frumsýnd
bæði í Laugarásbíói og Bíóborginni.
Þaö er Ron Howard sem leikstýrir
myndinni en með aðalhlutverkin
fara hjónin Tom Cruise og Nicole
Kidman. Leika þau Joseph Donnely
og Shannon Christie, tvo írska inn-
flytjendur af ólíkum uppruna sem
nema land í Bandaríkjunum í lok
fyrri aldar. Shaimon og Joseph eru
bæði fædd og uppalin á írlandi en í
írsku þjófélagi voru þau bæði stöðn-
uð þótt á ólíkan hátt væri. Joseph
var leiguliði sem aldrei hefði átt
möguleika á öðru starfi. Shannon
ólst upp í veröld þar sem engin kona,
hversu háttsett sem hún var, fékk
að ráða lífi sínu.
Ferðin til Bandaríkjanna breytti
öllu fyrir þeim. Shannon var ákveðin
í að standa sig en reynist iila undirbú-
in í þá hörðu baráttu fyrir lifibrauði
sem ríkti í Boston á þessum árum.
Joseph aftur á móti þekkti ekkert
annaö en hörku og kunnátta hans í
hnefaleikum kemur sér vel. Á þessum
árum var ekkert sem menn í Boston
dáðu jafti mikið og írskur boxari. En
þeim metnaði og sjáifstæði sem þeim
er í blóð borið er ekki fullnægt í Bos-
ton og leggja þau því leið sína sem
landnemar til Oklahoma.
Ron Howard hafði lengi'verið með
hugmynd að þessari mynd og undir-
búningur var búinn að taka átta ár.
„írland hefur alltaf átt mikil ítök í
mér,“ segir Ron Howard sem rifjar
upp fyrstu kynni sín af írlandi. „Ég
var aöeins fjögurra ára gamall og var
á fyrstu ferð minni yfir hafið til að
leika í The Joumey sem einnig var
fyrsta kvikmyndahlutverk mitt. Ég
sofnaði í flugvélinni og þegar ég
vaknaði sá ég þessa fallegu grænu
eyju sem við flugum yfir og ég man
alltaf eftir því þegar einn starfsmað-
ur flugvallarins togaði í rauða hárið
mitt og sagði: „Ég get ekki betur séð
en að þú eigir heima héma“.“
Það var síðan 1983 að Howard hitti
fyrst handritshöftmdinn Bob Dol-
Joseph (Tom Cruise) og Shannon (Nicole Kidman) við komuna til Boston.
Innfellda myndin er af leikstjóra Far and away, Ron Howard.
man. Þeir komust báðir að því að þá
langaði til að gera kvikmynd sem
væri að einhverju leyti írsk. Hug-
myndina að Far and away fékk How-
ard svo þegar hann var á hljómleik-
um með þjóðlagaflokknum írska,
The Chieftains (tónlist þeirra er í
myndinni), en þar fluttu þeir tragísk-
an ástaróð um ástfangið ungt par
sem verður viðskila þegar annað
þeirra flyst til Bandaríkjanna. Sama
kvöld ákvað Howard að gera kvik-
mynd um írska innflytjendur. Hann
fékk Dolmatt til að skrifa handritið
og unnu þeir saman að því í nær átta
ár með tíðum hléum því að á sama
tíma var Rom Howard að leikstýra
myndum sínum.
Tom Cruise kom snemma til sög-
unnar sem aðalleikarinn í myndinni.
Ron Howard segir að hann og Crnise
hafi fljótlega eftir að Cruise lék í
Risky Business komiö sér saman um
að hann léki Joseph en Howard segir
að eftir hinar miklu vinsældir Top
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
Gun hafi hann verið vonlítill um að
Cruise myndi vilja leika í epískri
mynd á borð viö Far and away en
annað kom í ljós. Það var Cruise sem
minnti hann á Joseph Connelly þeg-
ar hann heimsótti Howard þegar
hann var að leikstýra Backdraft og
þá fóru hjólin að snúast. Eins og
ætíð áður undirbjó Tom Cruise sig
mjög vel fyrir hlutverk Josephs og
þeir sem tÚ þekkja verða örugglega
undrandi á því hversu vel hann nær
írska framburðinum.
Ron Howard hefur veriö tengdur
kvikmyndum nær alla sína ævi.
Hann var einhver þekktasta bama-
stjama kvikmyndanna og lék í mörg-
um kvikmyndum fyrir Walt Disney
fyrirtækið. Þegar hann varð eldri lék
hann aðalhlutverkiö í hinni vinsælu
sjónvarpsseríu, Happy Days, auk
þess sem hann lék í kvikmyndunum
American Graffiti og The Shootist.
Ron Howard var aðeins 23 ára þeg-
ar hann leikstýrði fyrstu kvikmynd
sinni, Grand Theft Auto. Hefur vegur
hans farið vaxandi síðan og liggja
eftir hann meðal annars myndimar
Night Shift, Splash, Coocoon, Willow,
ParenthoodogBackdraft. -HK
Universal Soldiers:
Hinir fullkomnu hermenn
unum. Þessi hemaðaraögerð, sem
byggist á að búa til hinn fullkomna
hermann, er eingöngu framkvæm-
anleg ef það tekst að grafa allar
minningar sem gætu truflað þjálfun-
ina.“ Eitthvað fer þó úrskeiðis við
þjálfun þeirra félaga Van Damme og
Lundgrens. Þeir láta ekki almenni-
lega að stjóm og fá minnið aftur í
skömmtum.
Universal Soldiers er að öllu leyti
tekin í auðnum Arizona og var mik-
ill hiti þegar tökur fóm fram. Ein
erfiöasta sviðsetningin var að búa til
rakan frumskóg í líkingu við skóg-
ana í Víetnam. Auk þess var nokkuö
um stórar sviðsetningar sem gjaman
fylgja vísindaskáldsögumyndum á
borð við Universal Soldiers.
Leikstjórinn Roland Emmerich er
þýskur kvikmyndagerðarmaður sem
fékk strax sem nemandi áhuga á vís-
indaskáldsögum til kvikmyndagerð-
ar og það var eftir aö framleiðendur
sáu mynd hans, Moon 44, þar sem
Michael Paré og Malcolm McDowell
léku aðalhlutverkin, að þeir réðu
hann til að leikstýra Universal Soldi-
ers. Emmerick telur að sá kvik-
myndagerðarmaður sem ætii sér að
leikstýra framtíðarmyndum verði aö
vita sjálfur um alla þá tæknilegu
möguleika sem koma til greina. Leik-
stjórinn geti ekki eingöngu treyst á
tæknimenn heldur verði hann að
geta skapað þann heim sem fær
áhorfandann til að sitja sem fastast
í tvo klukkutíma. Universal Soldiers
verður sýnd í Stjömubíói í haust.
-HK
Jean-Claude Van Damme og Dolph
Lundgren hafa sérhæft sig í hasar-
myndum og hafa sumar myndir
þeirra notið talsverðra vinsælda.
Þeir eiga þó langt í land með að ná
vinsældum Amolds Schwarzenegger
sem telst ókrýndur konungur ævin-
týramyndanna í dag. En nú hafa þeir
Van Damme og Lundgren snúið bök-
um saman og leika tvo liðsmenn
hinnar illræmdu heimsherdeildar í
Universal Soldiers. Herflokkur þessi,
sem nafn myndarinnar er tekiö eftir,
er leynilegur og er tilgangurinn að
búa til hinn fullkomna hermann.
Þeir sem teknir em í herdeidina em
sviptir öllu minni um fyrri tíð og all-
ar tilfinningar, sem með þeim kunna
að bærast, máðar út. Þeir em þvi til-
búnar bardagavélar.
„Universal Soldiers er nokkurs
konar nútímaútfærsla á sögunni um
Frankenstein," segir leikstjóri
myndarinnar, Roland Emmerick.
„Hermennimir finna ekki til sárs-
auka og hafa engar tilfinxúngar. Þeir
em sálarlausir og hlýða aðeins skip-
Dolph Lundgren og Jean-Claude Van Damme í fullum herklæðum I Universal Soldiers.