Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.1992, Page 29
LAUGARDAGUR 22. ÁGÚST 1992.
Söngvari írsku hljórasveitar-
innar U2 hefur lokið upptökum á
fyrstu sóló-smáskífu sinni. Lagið-
sem söngpípan valdi til flutnings
er gömul en sigild dægurfluga
sem rokkkóngurinn sálugi Elvis
Pre&ley færði í hæstu hæðir á sin-
um tíma. Lagið er Cant Help Fail-
ing in Love (With You) en margir
hafa reynt sig við sönginn í ár-
anna rás og farist misjafnlega úr
hendi eins og gengur og gerist.
Ekki er að efa aðBonogerilaginu
góð skil eins og honum einum er
Iagið.
02, Nirvana og Red Hot Chili
Peppers eru meðal þeirra sem
troða munu upp á sérstakri hátíð
sem tónlistarstöðin MTV hefur
bíásiðtíL Þar verða veittar viðiu--
keimingar fyrir drýgðar dáðir í
tónlistarheiminum á síöasta
misseri en Wjómsveitimar þrjár
hafa allar verið útnefhdar til
verðlauna. Þá má geta þess að
söngkonan Tori Amos, sem tróð
upp á Borginni í síöasta mánuði,
hefur hlotið nokkrar útnefningar
híá MTV.
band
Út er komin myndbandsspóla
ytra þar sem sögu tónlistar-
mannsins Prince eru gerð skii.
Aðaláhersla er iögð á árin þegar
Prince var að stíga sín fyrstu spor
á tónlistarbrautinni og er m.a.
raett við nána vini kappans og
fjölskyldu.
í þessari viku kom á raarkað
smáskífa með strigabarkanum
Tom Waits. Lagið sem um er að
ræða heitir Goin Out West og er
það undanfari nýrrar breíðskífu,
Bone Machine, scm verður gefin
út í byrjun september. Sú plata
er hin fýrsta sem kemur út með
Tom Waits í fimm ár. Á plötunni
verður m.a. að finna lagið That
Feel sem Tora Waits samdi meö
Keith Richard og tekur steinninn
þátt í Qutningi þess.
Tori Amos hefur látið undan
smáskífu meö laginu SUent All
These Years sem áöur kom út á
EP plötunni Me & A Gun sem var
gefln út fyrir ári. Sú plata hefur
verið illfáanleg en téð lag hefur
notið hyUi. Á B-hlið plötunnar
flytur Tori Amos hið vinsæla lag
Nirvana, Smells Like Teen Spirit,
sem íslenskir áheyrendur heyrðu
hana taka á tónlcikunum á Borg-
Paul Weller, sem gerði garðinn
frægan með Jam og Style Counc-
aína fyrstu sólóplötu i september.
Smáskifa með Weller er þegar
komin út Hann er nú á tónleika-
ferðalagi í Japan þar sem hann
kynnir hina nýju smið sina.
41
Helgarpopp
Skagarokk
eftir mánuð
Nú styttist óðum 1 stórtónleika Jet-
hro TuU og Black Sabbath á Ara-
nesi. Tónleikamir eru hðiu' í 50 ára
afmæh Akranesskaupstaðar en þaö
eru sjö einstaklingar sem bera hit-
ann og þungann af komu hljómsveit-
anna.
Það er Jethro TuU sem treður upp
fyrri dag Skagarokksins sem er
föstudagskvöldið 25. september.
Hljómsveitarmeðlimir eru gamlir
sem á grönum má sjá enda heldur
hljómsveitin upp á 25 ára afmæli um
þessar mundir. Mannabreytingar
Umsjón
Snorri Már Skúlason
hafa veriö tíðar en kletturinn í sam-
starfinu, maðurinn sem ekkert fær
brotið á, er Ian Anderson. Jethro
TuU átti sér nokkra undanfara áður
en hljómsveitin fékk TuU-nafniö en
hljómsveitin varð til árið 1963. Fram
tíl 1967 ferðaðist hljómsveit Ander-
sons um Bretland þvert og endUangt
undir ýmsran nöfnum af ástæðu sem
Anderson skýrði síðar. „Við vorum
svo lélegir að enginn vUdi endurráöa
okkur. Því skiptum við stöðugt ran
nafn tU að vUla á okkur heimildir."
Þessi sveit leystist upp árið 1967 og
Jethro TuU varð til upp úr því. Sá
eini sem hélt áfram var Ian Ander-
son.
Tvö af stærri
nöfnum rokksins
Fyrsta.breiðskífa TuU, This Was,
kom út árið 1968 og vakti athygli og
þar með var hljómsveitin komin á
Hljómsveitina Jethro Tull skipa þeir Dave Mattacks, Dave Pegg, Andy Giddings, lan Anderson og Martin Barre.
kortið. Næsta plata, Stand Up, fór í rituð var fyrr í sumar. sveitin kom fram á sjónarsviðið árið
efsta sæti breska vinsældalistans og Það er hljómsveitin GUdran sem 1967. Um hana hefur Lars Ulrich,
árið 1971 kom meistarastykkið Aqu- hitar upp fýrir Jethro TuU í íþrótta- trommuleikari MetáUica, sagt: „Ef
alung á markað. Síðan hefur hljóm- húsinu á Akranesi þann 25. septem- Black Sabbath hefði ekki komið til
sveitinsentfrásérl3plötur,misjafn- - ber. sögunnar væri þungarokk nútímans
ar að gæðum. Enginn efast þó um Daginn eftir verða tónleikar Black ekki það sem það er.“
gUdisveitarinnarírokksögunni.hún Sabbath á sama stað og þá mun Samkvæmt upplýsingum tónleika-
á fáa sína líka. Síðasta plata Jethro hljómsveit Eiríks Haukssonar, haldara eru enn tíl miðar á báða tón-
TuU kom út fyrir ári og kaUaðist Artch, hita upp. Black Sabbath hefur leikana.
Catfish Rising og í haust er væntan- af mörgum veriö talin frumkvöðuU
leg tvöfóld tónleikaplata sem hljóö- kröftugs þungarokks síöan hljóm-
í
Body Count lætur
undan þrýstingi
Rapparinn lce-T er höfuð hljómsveitarinnar Body Count.
Hljómsveitin Body Coimt, sem
vakti mikla athygli síðastliðið vor
fyrir breiðskífuna Cop KiUer, hefur
ákveðið að taka titiUag plötunnar út
af lagalista vegna mótmæla og morð-
hótana sem hljómsveitarmeölimum
hafa borist. Eintök af plötunni með
upphaflegum lagaUsta hafa verið
imiköUuð og nýja útgáfa plötimnar,
sem verður með nýju umslagi, er
væntanleg í verslanir vestra seinna
í þessum mánuði. Texti lagsins er
einkar ofbeldiskenndur en í honum
er óbeint hvatt til ofbeldisaðgerða
gegn lögreglu. Lagið Cop KiUer hefur
verið túlkað sem svar hljómsveitar-
innar við Rodney King málinu sem
frægt er orðið. Það snerist rnn mis-
þyrmingu fjögurra lögreglumanna 1
Los Angeles á blökkumanninum
King voriö 1991 en lögreglumennim-
ir höfðu stöðvað aumingja manninn
fyrir of hraöan akstur. Eftirmálar
ofbeldisverksins em Qestum í fersku
minni en eför sýknudóm yfir lög-
reglumönnunum fjóram í vor brut-
ust út gífurlegar óeirðir í Los Ange-
les.
Body Count er hljómsveit skipuð
flmm einstaklingum frá South Centr-
al hverfi Lós Angelesborgar en þar
hafa árekstrar götugengja og lög-
reglu verið tíðir og þar uröu ólætin
mest í vor. Platan Cop KiUer, sem
kom út í apríl, er raunsæ lýsing á
þeirri ólgu sem kraumar undir niðri
í borginni.
Rapparinn Ice-T er höfuö hljóm-
sveitarinnar og honum hafa ítrekað
borist morðhótanir að undanfómu
vegna lagsins Cop KiUer. Meðal ann-
ars fékk hann morðhótun eftir að
hann kom fram í spjaUþætti Arsenio
HaU í júlí. Þá hefur starfsmönnum
Wamer Brothers verið hótað lífláti
vegna téðs lag. í yfirlýsingu rappar-
ans vegna þessa máls segir að þeir
sem eigi bágt með sig vegna texta
Cop KiUer eigi að beina spjótinn sín-
um að sér en ekki starfsmönnum
útgáfunnar. Ákvöröun um aö taka
lagið af plötunni tók Ice-T og hljóm
sveitin Body Count um síðustu mán-
aðamót eftir fund með forráðamönn-
um hljómplötufyrirtækisins. Þeim
þótti gamanið heldur fariö að káma.
Hljómsveitin mun þó eftir sem áður
spUa Cop KiUer á tónleikum enda
lagið eitt það vinsælasta á efnisskrá
hjj ómsveitarinnar.