Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1992, Side 3
FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1992.
S 3
Fréttir
Óánægja hjá íbúum í nýju hverfi í Garðabæ:
Enginn strætó í
hluta Hæðahverf is
4.500,-
Margar gerðir til af skrifborðsstólum
í ýmsum verðflokkum.
BÚ8gapaböIlin
BÍ LDSHÖFÐA 20 -112 REYKJAVÍK - SÍMI 91-681199
Mikil óánægja er meðai íbúa í
Hæðahverfi í Garðabæ sökum þess
að engir strætisvagnar þjóna hverf-
inu. „Við vorum búin aö hlakka til
þess að Almenningsvagnar tækju til
starfa því að við héldum að þá yrðum
við tengd við umheiminn. Það veldur
okkur því miklum vonbrigðum að fá
enga þjónustu frá þeim í þessu
hverfi,“ segir Rósa Helgadóttir, einn
íbúa við Nónhæð 1 í Hæðahverfi í
Garðabæ.
Hæðahverfi er íbúðahverfi í örri
uppbyggingu og margar barnafjöl-
skyldur búa í hverfinu. „Við búum
rétt hjá Hæðarbraut sem er stór-
hættuleg vegna umferðar stórra vö-
rubíia. Ef börnin ættu að fara með
strætó þyrftu þau í fyrsta lagi að fara
yfir þessa götu og síðan að ganga
langa leið að næstu stoppistöð. Við
neyðumst því til að keyra bömin í
skólann á hverjum degi,“ segir Rósa.
Að sögn Amar Karlssonar, fram-
kvæmdastjóra Almenningsvagna, er
verið að sníða augljósa agnúa af
leiðakerfinu. „Við erum að endur-
skoða leiðakerfið fyrir Garðabæinn
eins og það leggur sig og eitt af því
sem kemur til greina er að fara inn
í Hæðahverfið. Við höfum sett okkur
þau mörk að það eigi ekki að vera
lengra en 400 metrar frá biðstöð í
byggingar. Eins og málin standa
núna þá er ákveðinn partur af þessu
hverfi útundan," segir Örn.
Hann segir að leiðréttingar á leiða-
kerfi Almenningsvagna komi vænt-
anlega til framkvæmda í lok mánað-
arins.
-ból
Góðir landsmenn
Við íslendingar höfum búið við
það lífslán um aldir að þekkja ekki
styrjöld í landi okkar. En viö mun-
um vel sögu okkar og þeirri sögu
fylgja margar frásagnir af hungr-
uöu fólki í erfiðri lífsbaráttu. Það
fólk vom forfeður okkar og -mæð-
ur. Nú er íslensk þjóð þannig sett
að hún býr yfir tækni til að hag-
nýta sér gjafir umhverfisins. Jafn-
framt fáum viö í tæknivæddum
fjölmiölum mörgum sinnum á dag
ítarlegar fréttir af hörmungum
stríðs og hungursneyðar í fyrrver-
andi Júgóslavíu og Sómalíu. Það
er fólk eins og viö en saklaust hefur
það orðið að fórnarlömbum styij-
alda og stjómleysis. Því eru allar
bjargir bannaðar eftir að hafa verið
stökkt á flótta frá heimilum sínum.
Þar sem áður var friður og öryggi
ríkir nú ógn, skelfing, hungur og
dauði. í Sómalíu bitnar hungrið
harðast á bömum og barnadauðinn
er slikur að heilir árgangar eru að
hverfa úr hópnum.
Um allan heim bregst fólk nú við
til bjargar þessum meðbræðrum
okkar og -systrum. Hér heima hafa
Rauði krossinn og Hjálparstofnun
kirkjunnar tekið höndum saman
um söfnun til að leggja stríðsþjáð-
um líkn með þraut. Þar gefst okkur
nú öllum færi á að leggja hð okkar
undir einkunnarorðunum „hjálþ-
um þeim“. Með aðstoð hinna al-
þjóðlegu samtaka, sem þessar
stofnanir em, kemst hjálp okkar á
leiðarenda og við getum treyst því
að þeir njóti hennar sem í nauðum
em.
Góðir íslendingar - hjálpum
þeim... Með stuðningi okkar leggj-
um við sveltandi og sjúkum böm-
um Uð; með stuðningi okkar er
hægt að draga úr hörmungum
styijalda - og stuðningur okkar
sýnir að við skiljum að við eigum
að gæta bróður okkar nær og fjær,
hvar sem hann er staddur.
SIÐUSTU
DAGAR
HUNDADAGAR
VIDEÓTÖKUVÉLAR
NÚ FER HVER AÐ VERÐA SÍÐASTUR AÐ FJÁRFESTA í VJDEÓTÖKUVÉL Á HUNDA-
DÖGUNUM í JAPIS. VÉLARNAR ERU FÁANLEGAR 1 MIKLU ÚRVALI FRÁ KR. 49.900
VIDEÓTÆKI OG VIDEÓTÖKUVÉLAR Á HUNDADAGAVERÐI SVO SANNARLEGA HUNDÓDÝRT
VIDEOVELAR
F U LLT
VERÐ
Panasonic G-1 VHSc 8xzoom 73.500
Panasonic G-2 VHSc m/ljósi 84.500
Panasonic G-3 VHSc m/Uta monit. 99.700
Panasonic MS-70 S-VHSc sterio 124.900
Panasonic M-10 VHS sterio 128.600
HUNDADAGA
49.900
64.900
69.700
79.900
99.800
VERÐ
39.900
48.900
99.300
Panasonic
Panasonic
Panasonic
J-40 VHS 3.hausa
J-45 VHS NTSC 4.hausa
FS-90 SVHS HiFi 4.hausa
49.900
57.800
128.600
HAUSTÚTSALA — FRÁBÆRT VERÐ
Tvær rólur, verð aðeins.................kr. 6.100.
Róla og vegaróla (mynd), verð aðeins kr. 7.600.
Tvær rólur og vegaróla, verð aðeins... kr. 9.100.
Róla, vegaróla og tveir stigar, verð....kr. 12.400.
Busllaugar úr
sterkum plastdúk
á stálgrind.
Minni, 700 lítrar,
1,22 x 1,83 cm.,
kr. 3.900.
Stór, 1.500 lítrar,
1,22 x 2,44 cm.,
kr. 7.900.
Gúmmíbátur með mótor fyrir 1—2.
Innif. rafmótor, rafgeymir,
hleðslutæki, árar og pumpa. Verð
nú kr. 5.900, áður kr. 9
Armúla 40.
Símar 35320 - 688860
l/erslunin