Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1992, Síða 9
9
FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1992.
Utlönd
Bill Cilnton er kominn í vöm i kosningabaráttunni eftir að nýjar heimildir vom dregnar fram í dagsljósið um að
hann hefði með aðstoð frænda síns komið sér hjá herþjónustu. Clinton neitar að svara ásökunum.
Sfmamynd Reuter
Nýjar heimildir um undanskot Bills Clinton frá herþjónustu:
Frændi bjargaði
frá Víetnamf ör
- þeir vitna bara í dauöa menn, segir Clinton sér til vamar
Heimilisfjármál - námskeið
Hvernig á að halda utan um fjármálin?
Hvernig er hægt að ganga frá vanskilum?
Hvernig er hægt að öðlast stöðugleika?
Hvernig er hægt að mynda afgang?
Námskeið 1. Tveggja kvölda námskeið þar sem farið
er í helstu atriði þess-að halda utan um fjármálin.
Verð kr. 5000.
Námskeið 2. Úr skuldum - Vinnunámskeið þar sem
markvisst er unnið að því að ganga frá öllum lausum
endum. Verð kr. 15.000.
Upplýsingar og innritun í síma 677323 á milli kl.
10.00 og 20.00.
Garðar Björgvinsson
TIL SÖLU SÝNINGARHÚS
Til sölu sýningarhús okkar sem er 55,8 m2 T-hús.
Verð hússins er 4,5 milljónir. Innifalið er flutningur
og uppsetning á lóð í ca 100 km fjarlægð frá Reykja-
vík, undirstöður og 20 m2 verönd með handriði.
Húsið erfullbúið, með raf- og pípulögnum, hreinlæt-
istækjum, innréttingum, eldavél með ofni, kæliskáp,
rafmagnsofnum og hitakút.
Eigum einnig til 43,6 m2 sumarhús sem er rúmlega
fokhelt.
Nánari uppl. eru veittar á skrifstofu okkar að Hjalla-
hrauni 10, Hafnarfirði.
Opið alla virka daga frá kl. 13-19,
laugardaga og sunnudaga frá kl. 13-17.
SUMARHÚS
STOFNAÐ 1975
HJALLAHRAUNI 10-220 HAFNARFIRÐI - SÍMI 51070 - FAX 654980
„Þetta eru allt nýjar fréttir fyrir
mig,“ sagði Bill Clinton þegar hann
varð í gær að svara endumýjuðum
ásökunum um að hann hefði notið
Raymonds frænda síns við að komast
hjá því að vera tekinn í herinn á tím-
um Vítenamstríðsins.
Dagblaðið Los Angeles Times vitn-
aði til nýrra heimildamanna um að
ekki hafi verið allt með felldu þegar
Cliton komst undan herþjónustu á
sjötta áratugnum þegar fjöldi ungra
Bandaríkjamanna var sendur til Ví-
etnam.
Clinton sagði aö repúþlikanar
stæðu að baki þessum söguburði og
gættu þess að vitna aðeins í dauða
menn svo ekki væri hægt að hrekja
söguna. Raymond, frændi Bills, lést
fyrr á árinu en hinn heimildarmað-
urinn er fyrrum frambjóðandi repú-
blikana til ríkisstjóraembættis í Ark-
ansas þar sem Chnton er ríkisstjóri
nú. Þessi maður er einnig látinn.
CUnton kom sér hjá að svara ásök-
unum efnislega í gær og vísaði til
fyrri svara um að allt hefði verið með
felldu þegar hann sfapp við herþjón-
ustu. Máhð er þó mjög viðkvæmt
fyrir Chnton því Bandaríkjamenn
eiga erfitt með að sætta sig við for-
seta sem ekki hefur þorað að gegna
herþjónustu. Það er tahð jafngifda
hugleysi. George Bush hefur hins
vegar af sárum að státa eför her-
mennsku sína í síðari heimsstyijöld-
inni.
Chnton hefur enn álitlegt forskot á
Bush þegar tveir mánuðir eru til
kjördags. Bush er þó sýnilega aö
heröa róðurinn. Hann kom fram í
sjónvarpi og skoraði á fólk að gefa
fé til hjálparstarfs á Flórída og í gær
lofaði hann hveitibændum í miðríkj-
unum auknum útflutningi á komi. í
flugvélaverksmiðju hét hann meiri
kaupum hersins á þotum.
Demókratar segja að forsetinn sé
að nota sér aðstöðu sína í embætti í
kosningabaráttunni nú þegar likum-
ar á endurkjöri fara minnkandi.
Reuter
Braut tvo búrhnífa við
að slátra fjjölskyldunni
Nýsjálendingurinn Raymond Rat-
ima hefur játað á sig sjö morð og auk
þess tilraun til morðs og að hafa
myrt ófætt barn þegar hann varð
óður í sumar og gekk af fjölskyld-
unni dauðri. Ratima verður dæmdur
á morgun og á yfir höfði sér lífstíðar-
fangelsi enda dauðarefsingar ekki
viðhafðar á Nýja-Sjálandi.
Ratima hefur lýst gerðum sínum
fyrir rétti í Masteron, smábæ
skammt norðan við Weliington.
Hann var nýskilinn við konu sína
og kenndi fjölskyldu hennar um að
hjónabandið fór út um þúfur.
Hann sagðist hafa læðst inn á
heimiii fólksins vopnaður hamri og
búrhníf. Áður en yfir lauk hafði hann
brotið tvo hnífa og hafði mest not af
hamrinum við að myrða fólkið.
Þegar Ratima kom á staðinn var
þar fyrir þrennt fúllorðið og böm
hans þijú. Hann beið í 30 mínútur
áður en hann hófst handa. Fyrrver-
andi eiginkona hans var ekki heima
og ekki heldur foreldrar hennar.
Fyrrum venslafólk hans var í húsinu
og stakk hann fólkið eitt af öðm eða
barði í höfuði með hamrinum.
Fyrir réttinum sagðist Ratima hafa
myrt böm sín þrjú til að koma í veg
fyrir að þau væru ahn upp í forræði
konu sinnar. Elsti sonur hans varð
vitni að ódæðisverkunum áður en
hann var myrtur. Ratima játaði að
hafa stungið þungaða mágkonu fyrr-
verandi konu sinnar í kviðinn sér-
staklega til að myröa ófætt bam
hennar áður en hann barði konuna
til ólífis.
Hann sagði að hnífurinn sem hann
kom með í húsið hefði eyðilagst við
að myrða fullorðna fólkið. Þá hefði
hann farið í eldhúsið og náð í nýjan
hníf til að ráða bömum sínum bana.
Sá hnífur brotnaði áður en ætlun-
arverkinu var lokið og var þá hamar-
inn einn eftir til taks. Tengdafaðirinn
kom heim áður en Ratima fór af vett-
vangi. Hann var barinn í höfuðið en
lifðiaf.
NT
ENOALOK!
Murder
Artie Logan er einfari
sem lendir í slæmum
málum þegarvinkona
hans er myrt á hrotta-
legan hátt og hann
grunaður um morðið.
Hann fær 24 tíma til að
ná morðingjanum, en
morðinginn erá hælum
hans og allt getur gerst.
AH-American Murder er
hörku spennumynd með
toppleikurunum Charlie
Schlatter og Christopher
Walken í aðalhlutverk-
um, en Walken sýnir
sínar bestu hliðar í
þessari pottþéttu mynd.
Reuter