Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1992, Page 10
10
FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1992.
GILDRAN SPILAR Á EFTIRTÖLDUM
STÖÐUM í SEPTEMBER:
Fimmtudag 3. Gaukur á Stöng
Föstudag 4. Gaukur á Stöng
Laugardag 5. Ftlégaröur, Mosfellsbæ
Fimmtudag 10. Púlsinn, útgáfutónleikar
Föstudag 11. Sjallinn, ísafiröi
Laugardag 12. Sjallinn, ísafirði
Föstudag 18. Gjáin, Selfossi
Laugardag 19. Gjáin, Selfossi
Föstudag 25. Skagarokk, Akranesi
Föstudag 25. Hótel Akranes
Laugardag 26. Vestmannaeyjar
O
DREIFING STEINAR HF.
Utlönd
Seinagangur við hjálparstarf í Sómalíu gagnrýndur:
Ríki heimsins hafa
brugðist Sómölum
Starfsmenn við neyðaraðstoð í Afr-
íkuríkinu Sómalíu hafa gagnrýnt
Sameinuðu þjóðimar og þjóðir heims
fyrir að hafa ekki skipulagt hjálpar-
starfið almennilega og fyrir að hafa
brugðist seint við viðvörunum um
að rúmlega ein milljón manna ætti á
hættu að svelta til bana. Hundruð
deyja nú þegar á degi hveijum.
„Á sama tíma og Sómalir svelta
heilu hungri tekst umheiminum ekki
að taka sig saman í andlitinu. Ríkjum
heimsins hefur ekki tekist að bregð-
ast við þörfum Sómala," sagði Mic-
hael Aronson, starfsmaður góðgerð-
arstofnunarinnar Bjargið bömun-
um, við fréttamenn eftir fund þing-
manna Evrópubandalagsins um
neyðarástandið í Sómalíu.
„Hver er að berja í borðið hjá SÞ
til að kreíjast þess að hjálparstarfið
verið skipulagt almennilega?" spurði
Aronson.
Andreas Lendorff, yfirmaður
hjálpardeildar alþjóða Rauða kross-
ins, sagði á fundinum að neyðin í
Sómahu væri sambærileg hungurs-
neyðinni í Eþíópíu á áranum 1984 og
1985, ef ekki verri. Þá lét allt að ein
miltjón manna lífið.
„Hundrað ef ekki þúsundir manna
deyja í Sómalíu í viku hverri,“ sagði
hann.
Hópar vopnaðra unghnga stela oft
matvælasendingunum og starfs-
menn hjálparstofnana telja að allt að
helmingur matarins komist aldrei í
hendur bágstaddra.
Douglas Hurd, utanríkisráðherra
Bretlands, og tveir aðrir ráðherrar
Evrópubandalagsins eru væntanleg-
ir til Sómaíu á morgun þar sem þeir
munu kynna sér ástandið.
Reuter
Ung sómölsk móðir situr með grátandi be.rn sitt tyrir utan hjálparmiðstöð
þar sem sveltandi fá að borða. Símamynd Reuter
Hár blóðþrýstingur veldur heilarýrnun
Nýjar rannsóknir á mönnum sýna
að hár blóöþrýstingur getur leitt til
rýmunar heilans.
Bandarískir vísindamenn notuðu
segulómunartæki til að mæla stærð
heilans í sjúklingum sem vorú með
of háan blóðþrýsting. Niðurstöður
rannsóknar þeirra birtast í tímariti
bandaríska hjartavemdarfélagsins
um of háan blóðþrýsting sem kemur
út í dag.
„Við komumst að þeirri niðurstöðu
að jafnvel með fullnægjandi meðferð
við háum blóðþrýstingi kæmu fram
breytingar á formgerð heilans hjá
fólki með of háan blóðþrýsting,"
sögðu Declan Murphy og Judith Sal-
emo 1 grein sem lýsir rannsókninni.
„Uppgötvaiíir okkar benda til þess
að langvarandi háþrýstingur hafi í
för með sér formbreytingar í heilan-
um,“ sagði ennfremur í greininni.
Rannsóknin leiddi til þeirrar nið-
urstöðu að langvarandi of hár blóð-
þrýstingur yki magn heilamænu-
vökva inni í hauskúpunni og minnk-
aði hvíta efnið eða það sem kallað
er taugasímar. Rannsóknin leiðir lík-
ur að því að hvíta efnið eyöist við of
háan blóðþrýsting.
Að sögn vísindamannanna getur
heilarýmunin haft áhrif á hegðun
oggetumanna. Reuter
Nikaragva:
Harður jarðskjálfti varð eitft
hundrað manns að bana
hrökklast að heiman. Þá er 150
manna saknað.
Jarðskjálftinn mældist sjö stig á
Richterskvarða. Hamfarimar era
hinar mestu sem hafa orðið í vestur-
hluta Nikaragva í áratugi.
Hálfur tugur eftirskjálfta skók
svæðið síðar á þriðjudag og í gær og
vora margir þeirra allsnarpir. Mest-
ar skemmdir urðu við strandlengj-
una og varð mikið tjón í rúmlega eitt
hundrað bæjum og borgum. Violeta
Chamorro forseti hefur lýst yfir
neyðarástandi á mestallri strand-
lengjunni.
„Við höfum aldrei séð annað eins,“
sagði Carlos Morales, íbúi í ferða-
mannabænum Pochomil sem er 55
kílómetra frá höfuðborginni Mana-
gua. „Við fundum ekki neitt en svo
kom allt í einu hræðilegur kippur og
heimili mitt fór á kaf í vatn.“
Reuter
Flóðbylgjur, sem skullu á Kyrra- eitt hundraö manns aö bana hið
hafsströnd.Nikaragva eftir öflugan minnsta og sextán þúsund manns
jarðskjálfta á þriðjudagskvöld, urðu ýmist misstu heimili sín eða urðu að
Violeta Chamorro, forsetl Nikaragva, ræðir við konu sem missti heimili sitt
f flóðbylgjum á þriðjudagskvöld. Sfmamynd Reuter