Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1992, Side 25
FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1992.
33
Hjónaband
Þann 8. ágúst voru gefm saman í
hjónaband í Víðistaðakirkju af séra
Sigurði Helga Guðmundssyni Sigrún
Hauksdóttir og Gunnar Erling Vagn-
son. Heimiii þeirra er að Suðurvangi
25c, Hafnarfirði.
Ljósm. Mynd
Þann 8. ágúst voru gefm saman í
hjónaband í Bessastaðakirkju af séra
Solveigu Láru Guðmundsdóttur Ey-
dís Erna Olsen og Michael Sean
Maravich. Heimili þeirra verður í
USA.
Tapað fundið
Brandur er týndur
Hann hvarf frá heimili sínu við Laugar-
nesveg fyrir skömmu. Hann er svarbrön-
dóttur, u.þ.b. ársgamall. Þeir sem geta
gefiö upplýsingar um ferðir hans hringi
í síma 814086 eða 39987. Fundarlaun.
Fundir
Myndun og dreifing
fræja og aldina
Á rabbfundi í kvöld kl. 21 fjallar Eyþór
Einarsson grasafræðingur um myndun
og dreifmgu fræja og aldina. Fundurinn
verður í Hafnarhúsinu, fyrstu hæð, geng-
ið inn að vestanverðu. Eyþór mun taka
þátt í umræðum á eftir um þetta forvitni-
lega efni.
Tilkynningar
Listdansskóli íslands
að byrja
Fertugasta starfsár Listdansskóla íslands
hefst nú í byijun september. Á hverju
ári tekur skólinn inn nemendur í for-
skóla og verða inntökupróf 2. og 3. sept-
ember. Lágmarksaldur nemenda er 9 ár.
Strákum hefur farið fjölgandi við skólann
og í vetur verður boðið upp á sérstaka
tíma fyrir stráka sem stimda listdans-
nám. Þá verður einnig boðið upp á sér-
staka tíma fyrir gamla ballettnemendur.
Þeir tímar verða til að byrja meö tvisvar
í viku. Listdarisskólinn var stofnaður af
Þjóðleikhúsinu 1952 og heldur þvi upp á
fjörutíu ára afinæli sitt á þessu starfsári.
Veiðivon
Leikhús
Hofsá í Vopnafirði:
Veiddu 180 laxa
á þremur dögum
Þeir veiddu vel í Laxá í Dölum; Óttar Sveinibjörnsson, Sveinn Dal Sigmars-
son, Sigmar Jónsson og Ólafur Rögnvaldsson. Áin hafði gefið 880 laxa i
gærkveldi. DV-mynd RRT
„Viö fengum 180 laxa holliö og
stærsti laxiim hjá okkur var 17
punda, þetta var meiri háttar veiöi,“
sagði Eiríkur Sveinsson en hann var
að koma úr Hofsá í Vopnafirði í fyrr-
dag.
„Síðasti laxinn sem við fengum var
16 punda og þá vorum við að veiða í
Öskumelshyl. Þá hafði hlýnað aðeins
og laxinn tók í hverju kasti. Þetta var
ótrúleg taka hjá laxinum. Við feng-
um 3 laxa á flugu en 177 laxar veidd-
ust á ýmsa spóna. Við misstum hell-
ing af fiski líka, sumir tóku grannt.
Nú hefur Hofsá gefið um 2200 laxa
og þá er silungasvæðið tahð með. Þar
hefur verið hörkusilungsveiði,"
sagði Eiríkur ennfremur.
880 laxar komnir á land
í Laxá í Dölum
„Við vorum að koma úr Laxá í
Dölum og holhð veiddi 51 lax,“ sagði
Sigmar Jónsson en hann var á bökk-
um Laxár í Dölum og veiddi þann
stærsta í hohinu, 23 punda fisk.
„Áin hefur gefið 880 laxa og stærsti
laxinn er 25 pund, nokkrir af þessum
löxum, sem við veiddum, voru ný-
gengnir. Við fengum 26 laxa í tvo
daga en með mér voru þeir Sveinn
Dal Sigmarsson, Ólafur Rögnvalds-
son og Óttar Sveinbjömsson,“ sagði
Sigmar í lokin.
Stærsti laxinn
í Fáskrúð 20 punda
Fáskrúð í Dölum hefur gefið 270
laxa og síöasta hoh í ánni veiddi 32
laxa, næsta hoU á undan veiddi 19
laxa. Stærsti laxinn er 20 punda.
1200 laxar í Laxá í Kjós
„Laxá í Kjós hefur gefið 1200 laxa
og þetta er rólegt, mjög rólegt," sagði
Ámi Baldursson er við spurðum um
Kjósina.
„Veiðin í Kerlingadalsá og Vatnsá
hefur aftur á móti verið góð og em
komnir 108 laxar en 100 shungar.
Stærsti laxinn er 13 punda en stærsti
sUungurinn er 9 punda. Við vomm
að koma og fengum 24 fiska, 15 af
þeim voru laxar,“ sagði Ámi enn-
fremur.
Veiðibókinni stolið
úr veiðihúsinu við Korpu
„444 laxar eru komnir á land í
Korpu og hann er 15 punda sá
stærsti," sagði Rafn Eyfells er við
spurðum frétta.
„Ég var í fyrradag í Korpu og veiddi
12 laxa með Erhngi Guðmundssyni á
stöng. Sá stærsti hjá okkur var 12
punda. Það er verra að einhver hefur
stohð veiðibókunum úr veiðihúsinu
og skhtinu uppi við stíflu. Hvanna-
dalsá hefur gefið 150 laxa,“ sagði
Rafn í lokin
-G.Bender
Menning
Ljóðasöngur í Sigurjónssafni
Þýsk sópransöngkona, Angela Spohr, söng á tónleik-
um í Siguijónssafni í fyrrakvöld. Undirleikari á píanó
var Þóra Fríða Sæmundsdóttir. Á efnisskránni vom
verk eftir Leon Janacek, Arnold Schönberg, Benjamin
Britten og Enrique Granados.
Angela Spohr starfar sem kennari við Tónhstarhá-
skólann í Freiburg í Þýskalandi en það menntasetur
hefur getið sér orð fyrir nýja tónhst. M.a. hafa tón-
skáld á borð við Klaus Huber og Brian Femeyhough
starfað þar. Þeir sem af þessu tUefni gerðu sér vonir
um nýja tónhst á efnisskrá frú Spohr urðu fyrir von-
brigðum, en ekki er þar með sagt að verkefnavahð
hafi verið cif lakari endanum. Þjóðlagaútsetningarnar
eftir Janacek, sem þarna vom fluttar, hljómuðu vel í
eymm, án þess þó að skhja eftir neitt eftirminnhegt.
Svipað er að segja um lög Granados, sem einnig em
í þjóðlagasth. Mun meiri fengur var að Fjórum söng-
lögum Schönbergs, opus 2. Þessi lög eru í dúr og moh
og þrungin síðrómantískum tilfinningaþunga, vel gerð
og persónuleg. Meðal þeirra laga. sem hljómuðu sér-
lega vel var „Schenk mir deinen goldenen Kamm“. „On
this Island" eftir Britten er einnig vel gerð, góð tónl-
ist. Britten var íhaldssamt tónskáld en gerði samt
margt fahegt í verkum sínum og höfðu sönglög þessi
töluvert af töfrum hans.
Flutningur á þessum tónleikum var yfirleitt góður.
Frú Spohr hefur laglega rödd en ekki sérlega hljóm-
mikla. Hún syngur hins vegar af öryggi og töluverðri
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
nákvæmni. Túlkun hennar er smekkleg og látlaus og
tónhstin komst vel th skha. Þóra Fríða stóð vel undir
sínu hlutverki og samstarf þeirra beggja var gott. Það
sphlti ekki ánægjunni af þessum tónleikum, þegar út
var komið, að líta sólarlagið í vestri og glóandi hús-
gafla í Örfirisey, en rétt austan við safnhúsið lá við
akkeri 5000 tonria fraktari ahur uppljómaður eins og
hann væri í samkeppni við náttúruöfhn. Það var auð-
vitað vonlaus barátta en thraunin var góð samt.
Fastir kennarar skólans í vetur verða
Ingibjörg Bjömsdóttir, Nanna Ólafsdótt-
ir, Auður Bjamadóttir og Margrét Gísla-
dóttir. Auk þeirra kenna við skólann
Maria Gísladóttir, Ustdansstjóri íslenska
dansflokksins, Alan Howard, dansmeist-
ari dansflokksins, Sylvía von Kospoth og
fleiri. Skólastjóri Listdansskólans er
Ingibjörg Bjömsdóttir.
Félag eldri borgara
Opið hús í Risinu kl. 13-17 í dag.
Málverkauppboð
á Hótel
Sögu
Gallerí Borg heldur málsverkauppboð í
samvinnu við Listmunauppboö Sigurðar
Benediktssonar sunnudaginn 6. septemb-
er. Uppboðið fer fram á Hótel Sögu og
hefst kl. 20.30. Boðin verða um 80 verk,
nær öU eftir þekktustu Ustamenn þjóðar-
innar. Sýning uppboðsmyndanna hefst
fimmtudaginn 3. sept. og verða verkin
sýnd í GaUerí Borg við AusturvöU aUa
daga fram að uppboði frá kl. 14-18 að
uppboðsdeginum meðtöldum.
Opið hús skákhreyfingarinnar
í tílefni af einvígi Fishers og Spasskys
mun Skáksamband íslands standa fyrir
opnu húsi í húsnæði skákhreyfingarinn-
ar að Faxafeni 12, Reykjavík. íslenskir
skákmeistarar munu skýra skákimar
sem berast á faxi frá Júgóslavíu. Opna
húsið hófst í gær kl. 16 og ræðst fram-
haldið af gangi mála áskákstaðog aðsókn
í Faxafeninu.
ÞJÓÐLEIKHÓSIÐ
Sími 11200
Sala aðgangskorta er hafin
Aðgangskortin gilda á eftirtalin
verk á Stóra sviðinu:
‘HAFIÐ eftir Ólaf Hauk Simonarson.
*MY FAIR LADY eftir A.J. Lerner
og F. Loewe.
‘DANSAÐ Á HUSTVÖKU
eftir Brian Friel.
•ÞRETTÁNDA KROSSFERÐIN
eftir Odd Björnsson.
‘KJAFTAGANGUR eftir Neil Simon.
Auk þess veita þau verulegan
afslátt á sýningar á Smíðaverk-
stæði og Litla sviði.
Verkefni á Smíðaverkstæöi:
STRÆTI eftir Jim Cartwright og
FERÐALOK eftir Steinunni Jóhann-
esdóttur.
Verkefni á Litla sviði: RÍTA GENG-
UR MENNTAVEGINN
eftir Willy Russell og
STUND GAUPUNNAR
eftir Per Olow Enquist.
VERÐ KR. 7.040,-
Frumsýningarkort, verð kr. 14.100,-
á sæti.
Elli- og örorkulifeyrisþegar, verð
kr. 5.800,-
Mlóasala Þjóölelkhússins er opln alla
daga frá 13-20 á meóan á kortasölu
stendur.
Mióapantanir frá kl. 10 virka daga í sima
11200.
Greiðslukortaþjónusta -
Grænalinan 996100.
LEIKHÚSLÍNAN 991015.
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Sala aðgangskorta
er hafin.
í áskrift eru sex leiksýningar, fjórar sýn-
ingar á stóra sviöi og tvær að elgin vali
á stóra eöa litla sviói.
Verkefni vetrarins eru á stóra sviði:
Dunganon eftir Björn Th. Björnsson
Heima hjá ömmu eftir Neil Simon
Ronja ræningjadóttir
eftir Astrid Lindgren
Blóðbræður eftir Willy Russell
Tartuffe eftir Moliére og á litla sviði:
Sögur úr sveitinni: Platonof og Vanja
frændi
eftir Anton Tsjékov.
Dauðinn og stúlkan eftir Ariel Dorf-
man.
Verð á aðgangskortum kr. 7.400,-
Á frumsýningar kr. 12.500,-
Elli- og örorkulífeyrisþegar, kr.
6.600,-
Miðasalan er opin alla daga frá kl.
14-20 á meðan kortasalan stendur
yfir, auk þess er tekið á móti miða-
pöntunum í sima 680680 alla virka
dagakl. 10-12.
Greiðslukortaþjónusta.
Faxnúmer 680383.
Tóiúeikar
Deep Jimi and the
Zep Creams
Ofursamspilshópurinmn Deep Jimi and
the Zep Creams kemur saman á Borginni
í kvöld, 3. september, og leikm- lög af
þremur væntanlegum plötum sveitarinn-
ar. Þeim til halds og trausts er hijóm-
sveitin Tussuli sem mun hefja leik sinn
upp úr kl. 22 og þeir Zep Creamarar taka
við upp úr kl. 23.
Landsbanka- og Visamótið
Stefnt er að því aö halda íslandsmótið í
atskák 1993 meö svipuðum hætti og síð-
ast. Undanrásir verða dagana 5. og 6.
september nk. og úrslitakeppni í ársbyrj-
un 1993. Teflt veröur í Reykjavík og á
Akureyri, 9 umferðir eftir Monrad-kerfi.
í Reykjavík verður teflt að Faxafeni 12
og hefst mótið kl. 13 laugardaginn 5. sept-
ember. Tefldar verða 5 umferöir á laugar-
dag og 4 á sunnudag.
Allt í veiðiferðina
, SEPTEMBERTILBOÐ: i
VEIÐILEYFl I VINAMÓTUM - SELTJÖRN.
LAUGAVEGI 178, SÍMAR 16770 - 814455, FAX 813751