Dagblaðið Vísir - DV - 03.09.1992, Síða 32
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað
í DV, greiðast 3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
skotum allan sólarhringinn.
- A-yjý--'• .■ - DrelfM. Sirr^ ^3 &T
FIMMTUDAGUR 3. SEPTEMBER 1992.
Raf ni Geirdal
varvikiðúr
félagi nuddara
Eyjaflarðarsveit:
Fjórir slasaðir
eftirharðan
árekstur
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Mjög harður árekstur tveggja bif-
reiða varð skömmu fyrir miðnætti í
gærkvöldi við Hrafnagil í Eyjafjarð-
arsveit.
Ökumenn beggja bifreiðanna auk
eins farþega úr hvorri bifreið voru
fluttir á sjúkrahús á Akureyri og
munu hafa verið nokkuð slasaðir,
. m.a. beinbrotnir. Bifreiðamar voru
mjög mikið skemmdar ef ekki ónýtar
og voru fluttar í burtu með kranabif-
reiðum.
Akranes:
Harður skellur
Bíll og mótorhjól skullu saman í
hörðum árekstri á Akranesi í gær-
kvöldi. Bílnum var ekið eftir Skaga-
braut og ökumaður hans hugðist
beygja til vinstri inn á heimkeyrslu
þegar mótorhjóhð lenti á bílnum.
Ökumaður hjólsins hlaut minni hátt-
ar áverka á fæti. Bæði ökutækin eru
mikið skemmd. /
-bjb
LOKI
Ætli Villi hafi seilst
í atkvæðatakkann hjá
Höllustaðatröllinu?
Rafni Geirdal, skólastjóra og eig-
’ anda Nuddskóla Rafns Geirdals, hef-
ur verið vikið úr Félagi íslenskra
nuddara og fræðslunefnd félagsins.
Þetta var einróma samþykkt á fundi
félagsins í gærkvöldi. Var honum
vikiö úr félaginu samkvæmt 6. grein
félagslaga sem heimilar stjórn félags-
ins að víkja þeim félagsmönnum úr
félaginu er hafa gróflega brotið gegn
lögum félagsins eða samþykktum
eða á annan hátt unnið gegn hags-
munum þess.
Eins og DV greindi frá hafa 27 af
33 nemendum Nuddskóla Rafns
Geirdals lagt fram kæru á hendur
honum til Rannsóknarlögreglu ríkis-
ins þar sem þeir telja að þeim hafi
verið veittar rangar upplýsingar í
upphafi náms. í kærunni er m.a.
nefnt að nemendum hafi ekki verið
ljóst að Félag íslenskra nuddara við-
urkenni ekki nám þeirra í Nuddskóla
Rafns Geirdals.
Þann 20. ágúst síðastliðinn stofnaði
Rafn Geirdal Félag íslenskra nudd-
fræðinga og viðurkennir það félag
nám við Nuddskóla Rafns Geirdals.
-GHK
775 milljóna
skattur lagður á
■ ■ 0 r m ■ ■
cifoitíinóliiii
D¥Cltai lu,w8
„Tilfærsla ýmissa verkefna tíl
sveitarfélaga. Hér koma helst tíl
skoðunar eftirtaldir málaflokkar;
málefiú fatlaðra, löggæsla, heilsu-
gæsla og kirkjugarðar. Árangur
775 milljónir króna.“ Þannig hfjóö-
ar orörétt hugmynd sem sctt er
fram á vinnuskjah starfshóps um
fjárlagagerðina. Vinnukjalið er frá
því seint í júlí. Fyrirsögn þessarar
tillögu er „Verkefnatilfærsla til
sveitarfélaga".
Sveitarféiögin verða fyrir frekari ■
áfóhum ef það gengur eftír sem
starfshópurinn setti frá sér í lok
júh, þvi þar er gert ráð fyrir að
uppgjöri við sveitarfélög verði fre-
stað. Hér er um að ræða 300 millj-
óna króna spamað á árinu 1993.
Á sama stað'er gert'er ráð fyrir
að fræðsluskrifstofurnar verði
lagðar niður og verkefni þeirra
flutt til skólanna sjálfra og sveitar-
félaganna. Þetta á að spara rikinu
30 milljónir, sem að stærstum hluta
lenda á sveitarfélögunum.
! kaflanum um flármálaráöu-
neytíð kemur fram að þar er ætlun-
in að spara 10 milljónir fyrir ríkis-
sjóð - en það á að gera með aö end-
urskoöa samninga við sveitarfélög
um þóknun fyrir innheimtu stað-
greiðsluskatta.
í tihögum starfshópsins er gert
ráð fyrir að rekstrarstyrkur Akra-
borgar verði afnuminn. Þá er einn-
ig gert ráð fyrir að styrkir tíl ferja
og ferjumaimvirkja fiármagnist af
mörkuðum tekjustofnum yegáá-
ætlunar. En starfshópurinn er ekki
hættur: „Skerða markaða tekju-
stofna vegaáætlunar. Skoða rekst-
ur Vegagerðar og B-hluta áhalda-
húss sérstaklega.“ Þetta á að skila
265 milljónum króna og það sem
lýtur aö feijunum á að skila 330
milljóna króna sparnaði, eða þessir
tveir höir eiga að spara ríkinu alls
595 mUljónir króna.
-sme
Aukning ferða-
manna í ágúst
Erlendir ferðamenn, sem komu til
íslands í ágúst, urðu ahs 24.909 og
er það aukning um 2,1% frá síðasta
ári. Fyrstu 8 mánuði ársins eru er-
lendir ferðamenn orðnir 116.007 -
0,6% aukning miðað við sama tima
1991.
Nokkur auknmg hefur verið á
komu ferðamanna frá Norðurlönd-
unum og Þýskalandi en um 10-20%
færri ferðamenn hafa komið frá
Sviss, Frakklandi, Bretlandi og ítal-
íu. Ef sumarmánuðirnir á þessu ári
eru bornir saman við síðasta ár þá
kom hingað 81.901 ferðamaður í sum-
ar en 80.461 í fyrrasumar og er það
aukninguml,8prósentustíg. ÍS
Gjaldþrot Hildu hf.:
Kröfurnarvoru
310milljónir
Skiptum á þrotabúi Hhdu hf. er
lokið. Kröfur í búið námu samtals
tæpum 310 mihjónum króna, auk
vaxta. Forgangskröfur voru tæpar
tvær mihjónir og greiddust þær að
fuhu.
Upp í veðkröfur greiddust tæpar
99 milljónir króna. Almennar kröfur
voru 211 milljónir. Upp í þær greidd-
ust rúmar 8 mihjónir. Hehdarkröfur
voru 310 mhljónir og upp í þær
greiddust um 106 mihjónir króna -
og því töpuðu kröfuhafar rúmum 200
mihjónumkróna,aukvaxta. -sme
Ríkisendurskoöandi:
Ákváðum að taka
tölurnar út núna
- áralöng deila - segir íjármálaráðherra
Tveir þingmenn frá Norðurlandi vestra, Páll Pétursson, Framsóknarfiokki,
og Viihjálmur Egilsson, Sjálfstæðisflokki, við vinnu sína á Alþingi i gær.
Verið var að ræða bráðabirgðalögin vegna úrskurðar Kjaradóms frá því
sumar. Vilhjálmur meiddi sig á hendi þegar hann hrasaði á Þingvöllum
fyrir skömmu. . DV-mynd GVA
„Það hefur verið ágreiningur við
fj ármálaráðuneytið í nokkur ár
hvort taka ætti þessar tölur inn í
skýrsluna. Við höfum veriö með þær
inni til þessa en vorum orðnir þreytt-
ir á þessum dehum og ákváðum að
taka tölurnar út núna. Okkur þótti
' rétt að gera þetta upp á sama grumú
og fj ármálaráðuneytið en gera grein
fyrir því sérstaklega í skýrslunni,“
sagði Sigurður Þórðarson ríkisend-
urskoðandi í samtah við DV í morg-
un um þann mun sem er á reiknings-
aðferð Ríkisendurskoðunar nú og í
aprh 1991 í spá um afkomu ríkissjóðs.
„Eftir á að hyggja sér maður að við
hefðurn átt að segja frá þessu í skýrsl-
unni þegar viö skýrðum tölurnar.
Ég fehst alveg á það að þetta hefðuin
við átt að gera. Þá hefði þetta verið
ótvírætt. Við erum ekki að leyna
neinum upplýsingum eða breyta um
vegna pólitískrar stöðu eins og Ólaf-
ur Ragnar er að gefa í skyn,“ sagði
Sigurður Þórðarson ríkisendurskoð-
andi.
„Þetta er áralöng deila við Ríkis-
endurskoðun. Það er rétt hjá Ólafi
Ragnari að Ríkisendurskoðun hefur
alltaf sett upp haha með skuldbind-
ingum. Fjármálaráðuneytið hefur
alltaf sagt að það sé ríkisreikningur
sem eigi að setja þannig upp en fjár-
lög séu aðeins sjóðsstreymi," sagöi
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra.
„Þess vegna setjum við ekki skuld-
bindingar, sem ekki eru greiddar á
árinu, sem hallatölur, en afborganir
af gömlum lánum, meðal annars af
þeim sem Ólafur Ragnar tók, setjum
við inn sem hallatölur."
S.dór/-sme
Veðriðámorgun:
Næturfrost
imn-
sveitum
Á hádegi á morgun verður
fremur hæg breytheg átt og víð-
ast þurrt framan af degi en dáht-
il rigning á Vesturlandi síðdegis.
Áfram verður kalt í veðri og víða
verður næturfrost í innsveitum.
Veðrið í dag er á bls. 36
RAFMOTORAR
í
ÞREFALDUR 1. vinningur