Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.1992, Qupperneq 20
1
20
LAUGARDAGUR 3. OKTÓBER 1992.
John Landis. Hefur gert margar vin-
sælar gamanmyndir.
Kvikmyndir
Hilmar Karlsson
Movie (einn hlutinn), Trading Plac-
es, Into the Night, Spies Like Us,
Three Amigos, Amazon Woman on
the Moon, Coming to America og
Oscar. Hann leikstýrði einnig
þekktasta tónlistarmyndbandi
allra tíma, Thriller með Michael
Jackson. Þá hefur John Landis
leikið smáhlutverk í rnörgmn kvik-
myndum.
John Landis er mikill blúsaðdá-
andi og leikstýrði hann, skrifaði
handritið og framleiddi heimildar-
myndina Keeping the Blues Alive,
sem byggðist á ævi B.B. King, og
var verðlaunaður fyrir.
-HK
Nýjasta kvikmynd John Landis, Innocent Blood:
Vampíra sem er sérlega
hrifin af ítölsku blóði
Fyrir nokkrum árum leikstýrði
John Landis hinni ágætu hryllings-
mynd An American Werewolf in
London sem er kannski minnis-
stæðust fyrir þann beitta húmor
sem var í myndinni. í sinni nýjustu
mynd, Innocent Blood, sækir Land-
is á lík miö en aðalpersóna mynd-
arinnar er ung og falleg vampíra
sem lifir í nútímanum og nærist á
blóði, sérstaklega þykir henni gott
ítalskt blóð.
í Innocent Blood er aöalpersónan
Marie (Anne Parillaud) ung og fal-
leg vampíra sem er mim betri í
eðli sínu en aðrir af hennar stofni.
En til aö halda lífi þarf hún aö fá
blóð og þegar myndin hefst beinir
hún spjótum sínum að mafiufor-
ingjanum Sal Macelli (Robert Logg-
ia) og nær ágætum árangri með
hann. Vopnin snúast þó í höndum
hennar þegar MaceUi uppgötvar að
þegar hann er sjálfur orðinn vamp-
íra verður hann ódauölegur og
nýtilkomir hæfileikar muni duga
honum vel í að ná yfirráðum yfir
öllum glæpamönnum. Hann er því
hinn ánægöasti með breytinguna á
sér. Marie ásamt lögreglumanni
einum, sem settur var til höfuðs
Macelli, snúa nú bökum saman,
þótt ólíkar ástæður Uggi að baki,
um að koma MaceUi, sem er orðinn
rpjög lystugur, fyrir kattamef.
„Innocent Blood er engin gleði-
mynd, persónumar em trakískar
en einnig rómantískar en ég vfidi
einnig hafa þær fyndnar," segir
John Landis. Landis segir að hann
hafi vaUð handritið, sem skrifað er
af Michael Wolk (fyrsta handrit),
vegna þess að það var ólíkt öUu sem
áður hefur verið skrifað um vamp-
írar. „AUir hafa séð myndir um
Annie Parillaud leikur aðalhlutverkið, hina fallegu Marie sem er hrifin af ítölsku blóði.
vampírur en engin séð vampíra-
mynd á borð við Innocent Blood.“
Aðalhlutverkið leikur franska
leikkonan Anne PariUaud sem
varð fræg fyrir leik sinn í mynd
Luc Besson, Nikita, og er Innocent
Blood fyrsta bandaríska kvik-
myndin sem hún leikur í.
John Landis segir að ástæðan
fyrir því aö hann valdi PariUaud
hafi verið leikur hennar í Nikita.
„Það hvemig hún fór að því breyta
sér úr eiturlyfianeytanda í persónu
sem áhorfandinn fann tU með
sannfærði mig um að hún væri sú
besta í hlutverk Marie. Nikita hefði
aldrei gengiö upp hefði áhorfand-
inn ekki trúað á persónuna." Aðrir
leikarar í Innocent Blood eru Ro-
bert Loggia, sem leikur MaceUi,
Anthony La Paglia og Don Rickles.
John Landis hefur oft fengið
þekkta leiksfióra til að koma fram
í myndum sínum og í Innocent
Blood sjást bregða fyrir Frank Oz,
Sam Raimi og Michael Ritchie.
Einnig sést Alfred Hitchcock en
aðeins á sjónvarpsskjá.
Misgóðar
gamanmyndir
John Landis er afkastamikiU
leiksfióri en mistækur. Meðal
mynda hans eru sumar af vinsæl-
ustu gamanmyndum aUra tíma en
hann hefur einnig leikstýrt mynd-
um sem heyra sögunni tíl.
Landis var aðeins tvítugur þegar
hann lék aðalhlutverkið og leik-
stýrði sinni fyrstu kvikmynd
Schlock, hryllingsmynd í B-flokki.
1977 leikstýrði hann tveimur gam-
anmyndum sem urðu mjög vinsæl-
ar, Kentucky Fried Movie og Natio-
nal Lampoon’s Animal House.
Næst kom The Blues Brothers sem
fékk ekkert sérstakar viðtökur í
byrjun en hefur síðan verið að auka
vinsældir sínar og má segja um þá
mynd að hún eldist jafnvel og rauð-
vínið. An American Werewolf in
London varð aftur á móti mjög vin-
sæl en hún kom næst. Aðrar kvik-
myndir sem Landis hefur látið frá
sér fara eru TwUight Zone - The
Ný útgáfa af Blade Runner:
Blade Runner var fyrst
frumsýnd fyrir tíu árum hrifust
áhorfendur af þeirri áhrifamiklu
framtíðarsýn sem birtíst í mögnuö-
um sviðsetningum og einstöku út-
lití. Segja má aö Blade Runner hafi
opnaö dyr fyrir vissar gerðir fram-
tíöarspennumynda og mó nefna
Mad Max myndiraar í þvf sam-
bandi Liöu ekki nema nokkrir
mánuðir þar tíl farið var að tala
um Blade Runner sem klassíska
vísindaskáldsögumynd. Á mynd-
bandamarkaðinum hefur Blade
Runner veriö mjög vinsæl og hefur
verið gefln út lengri útgáfa af
myndinni þar sem atríðum hefur
verið bætt við, atriði sem klippt
voru burt. Vitað var aö Ridley Scott
var búinn að gera aUt aöra útgáfu
af myndinni fyrst, útgáfu sem
framleiðendum fannst of flókinfyr-
ir áhorfendur fyrir tíu árum:
„Venjulega er það svo að þegar
ég hef kláraö kvikmynd lít ég hana
ekki augum aftur i langan tíma,“
segir Ridley Scott, .nðaUega vegna
þess að ég hef horft svo lengi á
myndina. Þegar ég sá Blade Runn-
er fyrir stuttu verð ég að viður-
kenna að ég var bara ánægöur meö
það sem ég sá, sérstaklega hvað
sviðsmyndin heftír færst nær
raunveruleikanum f dag. Um leiö
rifiaðist upp fýrir mér áð ég hafði
skilað af mér öðruvísi útgáfu i byij-
un. En fyrir tíu árum voru áhorf-
endur varla öibúnir fyrir þá út-
fáerslu á söguþræðinum eins og ég
hafði hugsaö mér hann. Þaö var
Framtiðarborgin,
sem birtist (
Blade Runner, á
við oHjölgunar-
vandamál að
striða, er skilug
ogmenguðog
með skýjakljúfa
upp á 400 hæðir.
Áinnfelldu
myndinni eru
Ridiey Scottog
Harrison Ford.
eftir nokkrar prufusýningar að
ákveðiö var að Rick Deckard yröi
einnig sögumaður. Harrison Ford
var ekki frekar en ég sáttur við
þessa ákvörðun því um leið einfald-
aðist atburðarásin."
Ridley Scott heldur áfram: „Ég
held aö sú framtíðarsýn, sem kom
fram í Blade Runner á sínum tíma,
hafi verið sjokkerandi en hún er
það ekki lengur í dag og því eru
áhorfendur frekar tilbúnir til aö
taka viö þeirri útgáfu sem upp-
runalega var gerð. H5á Warner
bræörum var enn til upprunaleg
útgáfa mín af myndinni eins og ég
kiippti hana 1982 og þeir sam-
þykktu að sýna myndina aftur ná-
kvæmlega eins og ég vildi hafa
hana. Ég fór því með upprunalegu
útgáfuna og þá útgáfu sem dreift
var og klippti upp á nýtt.“
Sjálfsagt er mesta breytingin sú
að sögumaðurinn er enginn og
einnig er gert meira úr þcim efa-
semdum Ricks Deckard hvort hann
sé í raun maður eða aðeins eftirlík-
ing.
Það urðu margir frægir vegna
þess að þeir höföu tmnið við Blade
Runner. Ridley Scott, sera áður
hafði gert The Dualists og Alien,
festi sig í sessi sem einn bestí leik-
sfióri sinnar kynslóðar, sfiama
Harrison Ford hækkaði enn á
sfiörnuhimninum og fiórir nánast
óþekktír leikarar urðu á næstu
árum kvikmyndasfiömur, Rutger
Hauer, Sean Young, Edward James
Olmosog Daryll Hannah. Sá sem ó
mestan þátt í hinu einstaka útliti
mýndarinnar og tæknibrellum er
Douglas Trumbull sem örugglega
er fremstur meðal jaöiingja þegar
talað er um snillinga á þessu sviöi
en hann er maðurinn á bak við
útlit og effekta klassískra mynda á
borð viö 2001: A Space Odyssey og
Close Encounter of Third Kind, svo
að einhverjar séu nefiidar. Hin
nýja útgáfa af Blade Runnfer verður
sýnd í einu Sam-híóanna. -HK