Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.1992, Page 16
FÉLÖG, FYRIRTÆKI,
SAMTÖK OG HÓPAR
MÁNUDAGUR 23. NÓVEMBER 1992.
Merming
Diddú í Litháen en þar var hluti nýrrar geislaplötu henn-
ar tekinn upp.
Gunnar Guöbjörnsson og Jónas Ingimundarson flytja
íslensk lög á nýrri geislaplötu.
Tökum að okkur að sjá um jólaböll og útvegum allt
sem til þarf á gott jólaball. Uppl. og pantanir tíman-
lega í síma 621643 alla daga vikunnar fyrir kl. 23.00.
Aukablað
Bókahandbók
9. desember nk. kemur út Bókahandbók
DV með upplýsingum um þær bækur sem
gefnar eru út fyrir jólin.
Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að
auglýsa í bókahandbókinni, vinsamlega
hafi samband við Sonju Magnúsdóttur,
auglýsingadeild DV,
hið fyrsta í sima 63 27 22.
Vinsamlegast athugið að síðasti skiladag-
ur auglýsinga er fimmtudagurinn
3. desember.
ATH.i Bréfasími okkar er 63 27 27.
ÍSLENSK
/ M
HUSGOGN
MIKIÐ ÚRVAL AF HORHSÓFUM OQ SÓFASETTUM.
SÉRSMÍÐUM HORNSÓFA EFTIR MÁLI.
Verð frá kr. 77.400 stk.
% húsgögn
FAXAFENI 5, SÍMI 674080 - 686675
Gróska í útgáfu á klassískri tónlist:
Sigrún og Selma
leika sönglög og
Diddú syngur aríur
Eins og ávallt fyrir jólin er mikið
líf í plötuútgáfu. Stóru fyrirtækin
Steinar hf. og Skífan hafa þegar sent
frá sér mestallt sitt efni og þar með
er talið klassískt efni. Steinar hf. gef-
ur út þijár klassískar geislaplötur
og ber þar fyrst að telja Ljúflingslög.
Á þeirri plötu er tuttugu og eitt söng-
lag þar sem Sigrún Eðvaldsdóttir
leikur á fiðlu og Selma Guðmunds-
dóttir á píanó. Það er Atli Heimir
Sveinsson sem hefur útsett þessi lög
sem flestir kannast við.
Hugmyndina að þessari útgáfu átti
Árni Tómas Ragnarsson og kviknaði
hún nokkru eftir aö Sigrún og Selma
gáfu út geislaplötuna Cantabile vorið
1991. Leitað var til Atla Heimis
Sveinssonar og hefur honum tekist
einkar vel upp í útfærslum sínum.
Dregur hann fram marga nýja þætti
í þessum þjóðkunnu lögum en er á
sama tíma trúr hinni upphaflegu
gerð þeirra.
Á sinni fyrstu einleiksplötu leikur
Selma Guðmundsdóttir píanóleikari
ýmis píanóverk eftir íslenska og er-
lenda höfunda. Hljóðritunin var gerð
við mjög óvenjulegar aðstæður en
Selma kaus að hljóðrita efni plötunn-
ar við kertaljós að kvöldlagi á heim-
ili sínu, Vesturgötu 36b í Reykjavík,
og leika á sinn eigin flygil. Með þessu
móti tókst henni að skapa persónu-
lega stemmningu.
Þriðja geislaplatan, sem Steinar hf.
gefur út með klassísku efni, er með
Gunnari Guðbjömssyni óperusöngv-
ara og Jónasi Ingimundarsyni píanó-
leikara þar sem þeir flytja tuttugu
og sex íslensk sönglög eftir nokkur
af þekktustu tónskáldum okkar.
Gunnar hefur verið fastráðinn við
óperuhúsið í Wiesbaden í Þýskalandi
undanfarin tvö ár og endurnýjaði
nýlega samning sinn til tveggja ára.
Hann hefur aðallega starfað erlendis
frá því hann lauk námi en komið
hingað til lands öðru hvoru og haldið
tónleika og hlotið mikið lof fyrir söng
sinn.
Skífan gefur út fyrstu sólóplötu
Sigrúnar Hjálmtýsdóttur sem heitir
einfaldlega Diddú. Eru það sjálfsagt
margir sem hafa beðið efúr þessari
geislaplötu. Áður en Sigrún hóf
óperusöngnám var hún ein vinsæl-
asta dægurlagasöngkona landsins og
hefur söngur hennar vakið mikla
athygli bæði hér heima og erlendis
þar sem hún hefur unniö til verð-
launa. Á plötunni syngur Sigrún
bæði með Sinfóníuhljómsveit ís-
lands, undir stjóm Roberts Staple-
ton, og Fílharmóníu Litháens, undir
stjóm J. Domarkas og Teije Mikkel-
sen. Þrettán lög em á plötunni, að
langmestu leyti aríur úr þekktum
óperum. Hefur Sigrún flutt sumar
aríumar á sviði.
Sinfóníuhljómsveit íslands og Sig-
rún Hjálmtýsdóttir koma einnig við
sögu á annarri plötu sem Skífan gef-
ur út, sannkallaðri jólageislaplötu
sem heitir Hvít jól. Þar leikur Sinfón-
ían lög sem em jafntengd jólunum
og jólasveinninn. Með hljómsveitinni
syngur Sigrún Ave Maria og Kór
Öldutúnsskóla syngur með hljóm-
sveitinni Nóttin var sú ágæt ein og
Bjart er yfir Betlehem þar sem Hild-
ur Guðnadóttir syngur einsöng.
Önnur lög leikur hljómsveitin. Má
þar nefna Heims um ból, White
Christmas og Holy Night. Alls eru
lögin íjórtán.
Þá er vert að vekja athygli á þeim
geislaplötum Sinfóníuhljómsveitar-
innar sem Chandos í Englandi hefur
gefið út og hafa fengið mjög góða
dóma í mörgum erlendum tónlistar-
tímaritum, meðal annars Gramo-
phone og Classic CD. Fleiri klassísk-
ar geisíaplötur eru væntanlega fyrir
'jólin og má þar nefna plötu með Kór
Langholtskirkju. -HK
Lesið upp úr bréfum Jóhanns. í bakgrunninum má sjá málverk af Jóhanni
Jónssyni.
Lesið í fyrsta
skipti opin-
berlega úr
bréfum
Jóhanns
Það ríkti stemning frá fyrstu ára-
tugum aldarinnar á kaffihúsinu Sól-
on íslandus þegar lesiö var í fyrsta
skipti opinberlega úr bréfum Jó-
hanns Jónssonar skálds enjþau eru
nú komin á bók. Bréf þessi skrifaði
skáldið til æskuvinar síns, Friðriks
A. Friðrikssonar, síðar prests á
Húsavík, en þau fimdust fyrir tilvilj-
un norður á Húsavík á liðnu vori.
Bréf þessi eru óvænt viðbót við
verk Jóhanns en honum auðnaðist
aðeins aö gefa út eina Ijóðabók áður
en hann lést úr berklum fyrir aldur
fram, árið 1932. Jóhann orti hins veg-
ar mikið og las upp á sérstökum bók-
menntavökum í Þýskalandi er hann
dvaldi þar viö nám og störf. Bókin
með bréfum Jóhanns Jónssonar ber
heitið Undarlegt er líf mitt og það er
Vaka-Helgafell sem gefur hana út.