Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1992, Page 16
16
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1992.
Neytendur
Nor ðmannsþinur
lækkar í verði
- sama verð og í fyrra á öðrum tegundum
Jólatréssalan er aö hefjast af full-
um krafti og á eftir að aukast þegar
á líður. Mesta athygli vekur lækkun
á norðmannsþini sem er rúm tuttugu
prósent að meðaltali. Alaska og
Blómaval hafa lækkað verðið á norð-
mannsþini miðað við í fyrra en Land-
græðslusjóður og Magnús Guð-
mundsson selja sín tré á sama verði.
Sem dæmi má nefna norðmanns-
þin af stærðinni 150-175 cm sem kost-
aði 3.325 í Blómavali í fyrra kostar
nú 2.720 krónur. Sama stærð af norð-
mannsþini kostaði 3.550 í Alaska í
Blómaval Land- græðslusj. Aiaska Magnús Guð- mundss. Fylkir
Norðmanns-
þinur
70-100 cm 1085 X 1050 1000 X
101-125cm 1605 2100 1600 1500 1490
126-150 cm 2175 2700 2160 2150 2150
151-175 cm 2720 3400 2700 2695 2690
176-200 cm 3475 4300 3460 3450 3450
Rauðgreni
0-100cm 625 620 600
101-125 cm 1020 1020 1000
126-150 cm 1435 1430 1410
151-175 cm 1905 1900 1865
176-200 cm 2525 2530 2490
Stafafura
0-100cm 875 870 870
100-125 cm 1425 1420 1400
126-150 cm 1950 1990 1980
151-175cm 2650 2660 2640
175-200 cm 3540 3550 3300
fyrra en kostar nú 2.700 krónur. í
fyrra kostaði norðmannsþinur af
stærðinni 150-175 cm 3.400 krónur
hjá Landgræðslusjóði og það sama í
dag. Magnús Guðmundsson, sem sel-
ur sín tré við Miklagarð líkt og und-
anfarin ár, verður með sama verð
og í fyrra á norðmannsþininum. Þá
kostaði stærðin 150-175 cm 2.695
krónur og einnig í ár.
Stærðin 175-200 cm af norðmanns-
þini kostaði 4245 kr. í Blómavali í
fyrra en nú 3.475 kr. Sama stærð
kostaði 4100 kr. í Alaska í fyrra en
kostar nú 3.300 krónur. Stærð
175-200 kostaði þá og nú 3.450 hjá
Magnúsi og 4.300 krónur hjá Land-
græðslusjóði líkt og síðasta ár.
Aðrar tegundir, svo sem rauðgreni
og stafafura, eru á sama verði og í
fyrra á öllum stöðum.
Norðmannsþinur barrheldinn
Norðmannsþinur er innfluttur frá
Danmörku en rauðgreni og stafafura
eru ræktuð hér. Norðmannsþinur er
dýrastur en mjög barrheldin tegund.
Stafafuran er líka barrheldin en
rauðgreniö fellir barrið mjög auð-
veldlega. íslensku trén eru rauðgreni
og stafafura og fyrir hvert eitt ís-
lenskt jólatré sem selt er eru gróður-
sett 30 ný í staðinn, segir Skógrækt
ríkisins. -jj
Verð á norðmannsþini hefur lækkað frá þvi í fyrra.
ÞEGAR MEST Á REYNIR...