Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1992, Page 18
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1992.
Greiösluáskorun
Tollstjórinn í Reykjavík skorar hér með á gjaldendur, sem
ekki hafa staðið skil á virðisaukaskatti fyrir 32. tímabil
1992, með eindaga 5. október 1992, gjaldföllnum og
ógreiddum virðisaukaskattshækkunum, svo og ógreiddum
og gjaldföllnum virðisaukaskatti í tolli, að greiða nú þegar
og ekki síðar en innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar
þessarar.
Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara fyrir vangoldnum
eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum
kostnaði sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða 15
dögum frá birtingu áskorunar þessarar.
Reykjavík, 7. desember 1992
Tollstjórinn I Reykjavík
MEDI-HÁR
Nýtt á Islandi.
Bæði fyrir konur og karla. Hentar best við byrj-
andi skalla og til uppfyllingar eftir hárflutning.
Meðferðin felst I isetningu á hári sem fram-
| leitt er úr náttúruefni. Rannsóknastofur i Banda-
ríkjunum (North American Associates Incorpor-
Iated) og i Brussel hafa sýnt fram á að hráefnið
er ekki á nokkurn hátt skaðlegt. Komin er 8
ára reynsla á þessa meðferð og hefur hún verið
kynnt á læknaþingum viða um heim.
Nánari upplýsingar i sfma 631000, Domus
Medica.
Medi-hár
á íslandi
Saga landsmóta
UMFÍ1909-1990
„Hjálmar hleypti
því í sig hörku,
miöaöi spjótinu á
Jón og kastaöi af
öllum kröftum. “
(Saga landsmóta
UMFÍ)
Bókin er 544 síður
í stóru broti með
hátt í 700 ljósmyndum
Fæst í
bóka-
verslunum
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu
embættisins að Aðalstræti 92,
Patreksfirði, sem hér segir, á eftir-
farandi eign:
Sölvi Bjamasþn BA-65, sk.nr. 1556,
þinglýst eign Útgerðaifélags Bflddæl-
inga hf., eftir kröfu -Garðars Briem
hdl., Ágústs S. Karlssonar lögfr., inn-
heimtumanns ríkissjóðs, Kristins
Haflgrímssonar hdl., Sigmimdar
Hannessonar hrl. og Ásgeirs Magnús-
sonar hdl., miðvikudaginn 16. desemb-
er 1992 kl. 14.15.
SÝSLUMADURINN Á PATREKSFIRDI
Uppboð
Framhald uppboð á eftirtöidum
eignum verður háð sem hér
segir:
Dalbraut 40, Bfldudal, þinglýst eign
Óskars Bjömssonar, eftir kröfii As-
geirs Thoroddsen hrl., miðvikudaginn
16. desember 1992 kl. 13.00 á eigninni
sjálfri.
Mb. Þorfari BA-114, sk.nr. 7072, þing-
lýst eígn Jóhannesar Kristinssonar,
eftir kröfu Gaiðars Briem hdl. og
Tryggva Bjamasonar hdl., miðviku-
daginn 16. desember 1992 kl. 14.30 á
sknfstofu embættisins, Aðalstræti 92,
Patreksfirði.
Neðri-Rauðsdalur, Barðastrandar-
hreppi, þinglýst eign Ragnars Guð-
mundssonar, eftir kröfu Áma Páls-
sonar hdl. og Húsnæðisstofiiunar rík-
isins, miðvikudaginn 16. desember
1992 kl. 16.00 á eigninni sjálfri.
Urðargata 20, 3. hæð, ásamt bflskúr
og útihúsi, Patreksfirði, þinglýst eign
Grétars Haraldssonar, eftir kröfu
Áma Pálssonar hdl., miðvikudaginn
16. desember 1992 kl. 18.00 á eigninni
sjálfri.
Bugatún 14, Tálknafirði, þinglýst eign
Áma Jóhannessonar, eftir kröfu As-
geirs Thoroddsen hrl., Húsnæðisstofii-
unar ríkisins og Skuldaskila hf., mið-
vikudagiim 16. desember 1992 kl. 18.30
á eigninni sjálfri.
SÝSLUMAÐURINN Á PATREKSITRÐI
Fréttir
Hækkun meðlagsgreiðslna veldur feðrum áhyggjum:
Þessar aðgerðir
lýsa mannvonsku
- bömin njóta þessa ekki, segir flögurra bama faðir
„Fyrirhuguö meðlagshækkun er
stórt fjárhagslegt áfall fyrir mig. Á
ári hækka meðlagsgreiðslumar um
180 þúsund krónur. Meðlagsgreið-
endur virðast ekki eiga neitt gott
skilið. Fyrir menn með meðallaun
er þetta mikil skerðing á ráðstöfun-
artekjum. í sjálfu sér er þetta bara
aukin skattheimta því á móti koma
stórskertar greiðslur í barnabætur
og mæðralaun. Bömin njóta þessar-
ar hækkunar á meðlagi í engu,“ seg-
ir Frímann Benediktsson, fjögurra
bama faðir í Reykjavík.
Frímann segir að gangi fyrirhuguð
hækkim á meðlagsgreiðslum fram
muni hann vart geta framfleitt sjálf-
um sér. í dag séu um 68 þúsund krón-
ur í launaumslaginu eftir skatta og
meðlagsgreiöslur. Eftir hækkun
lækki sú upphæð niöur í 53 þúsund
krónur. Af þeirri upphæð þurfi hann
aö greiða húsaleigu og fleira.
Fjöldi feðra hefur haft samband við
DV og lýst óánægju sinni með fyrir-
hugaðar aðgerðir ríkisstjómarinnar
í ríkisfjármálum. Samkvæmt þeim
eiga meðlög aö hækka um 3.749 krón-
ur með hveiju bami. í dag er með-
lagsgreiðsla með hverju bami 7.551
króna. Nái tillögur ríkisstjórnarinn-
ar fram að ganga mun tveggja bama
faðir greiða 22.600 krónur á mánuði
Frímann Benediktsson, fjögurra-
barna faðir, segir að börnin njóti
ekki þessarar hækkunar á meðlagi.
DV-mynd BG
með bömum sínum. Fyrir fjögurra
bama fóöur er upphæðin 45.200.
„Nái þetta fram að ganga munu
möguleikar mínir til að sinna börn-
unum skerðast verulega. Fjárhags-
lega verð ég ekki einu sinni í stakk
búinn til að sjá um sjálfan mig. Þess-
ar aðgerðir munu því bitna á bömum
mínum, ekki einungis fjárhagslega
heldur einnig tilfinningalega. Sam-
skiptin munu óhjákvæmilega skerð-
ast neyðist ég til segja upp íbúðinni
og flytjast í eitthvert kvistherbergið.
Þessar aðgerðir ríkisstjómarinnar
lýsa mannvonsku,“ sagði þriggja
barna faðir í samtali við DV.
Umtalsverð skeröing verður á
bamabótum ásamt mæðra- og feðra-
launum um áramótin samkvæmt til-
lögum ríkisstjórnarinnar. Að teknu
tilliti til hækkaðs meðlags er ekki
óalgengt að ráðstöfunartekjur ein-
stæðs foreldris og meðlagsgreiðanda
minnki samtals um á annað hundrað
þúsund krónur á næsta ári. Alls er
reiknað með að þessar aðgerðir geti
sparað ríldssjóð um hálfan milljarð
krónur.
Samkvæmt tillögum ríkisstjómar-
innar eiga bamabætur með fyrsta
bami hjá einstæðu foreldri að lækka
úr 66.725 í 46.710. Með bömum um-
fram eitt lækka bætumar úr 70.960
í 49.660 en úr 99.855 í 69.900 sé bamið
yngra en sjö ára. Þá falla mæöra- og
feðralaun niður með fyrsta bami en
þau em nú 4.732 krónur á mánuöi.
Mæðralaun með tveimur börnum
lækka úr 12.398 í í 3.000 og með þrem-
ur börnum eða fleiri úr 21.991 í 7.750
krónur. -Ari
Kringlukaup-
menn ókátir
Kaupmenn í Kringlunni eru heldur
óánægðir með „víggirðingu" sem
sett hefur verið á umferðareyjarnar
umhverfis verslanamiðstöðina. Það
gerðu borgarstarfsmenn til að varna
þvi að bílum yrði lagt upp á grasið,
eins og brögð hafa verið að, einkum
fyrir jólin. En sl. laugardag komu
nokkrir starfsmannanna með þessar
girðingar og settu þær niður. Það
þýðir að viðskiptavinir Kringlunnar
og fyrirtækja í nágrenni hennar
verða að láta sér nægja þau 2000
bílastæði sem eru á svæðinu.
DV-mynd GVA
íslenskur röntgentæknir til starfa í Saúdí-Arabíu:
Ævintýraþráin rek-
ur mig út í þetta
- segir Guðrún Kristín Einarsdóttir
lega haldið að ég væri frá ísrael eða
íran.“
Guðrún sagðist ekki vita mikið um
það svæði sem hún væri að fara til.
Hún vissi þó að þar væru allmargir
Vesturlandabúar við störf. Kæmi
hún til með að búa í eins konar búð-
um sem væru sérstaklega ætlaðar
þeim.
„Annars hef ég ekki haft tíma til
að grennslast fyrir um þetta enn því
það er svo stutt síðan það var á-
kveðið að ég færi. Það verður ekki
fyrr en 28. janúar, þannig að ég hef
nógan tíma til að kynna mér aðstæð-
ur. Ég verð með svona 120-130 þús-
und krónur á mánuði og þarf hvorki
aö greiða skatta né húsaleigu.“
Guðrún hefur lært nálastunguað-
ferð í Svíþjóð og Kína og ætlar sér
að vinna við það þegar hún flytur
heim, eftir veru sína í Saúdí-Arabíu.
-JSS
„Ég hlakka til að fara og held að
þetta verði mjög spennandi. Líklega
er það ævintýraþráin sem rekur mig
út í þetta," sagði Guðrún Kristín Ein-
arsdóttir röntgentæknir sem er búin
að ráða sig til starfa á hersjúkrahúsi
í Saúdí-Arabíu. Hún mun starfa í
norð-vesturhlutanum, sem heitir
Tabuk.
Guðrún hefur búið og starfað í Sví-
þjóð síðastliðin sjö ár. Þar lærði hún
röntgentækni og hefur unniö þar
nær óslitið síðan. „Svo ákvað ég að
sækja um vinnu í Saúdí-Arabíu. Ég
ætla að safna mér peningum þar áð-
ur en ég flyt heim. Eg fékk símanúm-
erið hjá virtri, enskri ráðningaskrif-
stofu, Witiker, sem sér um ráðningar
til Saúdí-Arabíu, hringdi og réð mig.
Það tók að vísu svolítinn tíma því
þeir vildu ekki ráða mig þar sem ég
var með íslenskt vegabréf. Eftir svo-
lítið stapp gekk það þó. Þeir hafa lík-
Guðrún Kristín Einarsdóttir ætlar að
starfa á hersjúkrahúsi f Saúdí-
Arabíu í a.m.k. eitt ár. DV-mynd ÞÖK