Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1992, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1992.
19
Merming
Barn síns
andófstíma
Silungsveiði í Ameríku hefur ferns konar merkingu
í bók Richard Brautigans (1935-1984) og breytist merk-
ingin eftir því hvemig setningin er skrifuð. Skáletruð
vísar hún til bókarinnar sjálfrar; innan gæsalappa
vísar hún til setningarinnar almennt; með litlum upp-
hafsstaf merkir hún silungsveiði og með stórum staf
er hún mannsnafn sem er myndað eins og indíána-
nöfn eru gjarnan sett saman.
Metsölubók
Brautigan lauk við silungsbók sína árið 1962 en eng-
inn fékkst til að gefa hana út fyrr en árið 1967. Tregða
útgefenda varð bókinni til happs þannig að hún kom
út á tíma sem var á mótum áhrifa beat-rithöfundanna
(Ginsberg, Kerouac) og blómapopps-hreyfingarinnar
(Dylan, Lennon). í Bandaríkjunum er ekki til hugtak-
ið 68-kynslóðin og þar kannast enginn við það. Þetta
er evrópskt hugtak og komið úr frönsku stúdentaupp-
reisninni. í Bandaríkjunum er aðeins talað um fyrri
hluta sjöunda áratugarins (early sixties) og síðari hluta
sjöunda áratugarins (late sixties). Presleyæðið og bítla-
Bókmenntir
Árni Blandon
æðið afmarka þessi hugmyndafræðilegu byltingskeið
og það var á milli þeirra sem Silungsveiði í Ameríku
tók upp á því að seljast í tveimur milljónum eintaka.
Silungsveiði
Lítil von er til þess að Silungsveiðin nái vinsældum
á íslandi þegar hún kemur loks út núna. Bæði er það
að verkið er barn síns andófstíma og svo hitt að unga
fólkið, sem nú er að uppgötva Trúbrot og Hljóma,
hefur ekki sömu þörf fyrir hinn ærslafulla frumleika
sem einkennir Silungsveiðina.
Silungsveiðin er safnverk þar sem sterkasti hlutinn
er nokkrar smásögur. En þær eru ekki það sterkar
að þær nái að halda bókinni á floti sem sígildu verki.
Verkið hefur fyrst og fremst sögulegt gildi ásamt því
að vera heimild um fyrstu „skáldsögu" höfundar sem
náði ekki að opna gáttir sínar fyrr en tveimur árum
áður en hann skaut sig. Árið 1982 kom út bók hans
Svo berist ekki burt með vindinum, og þar tókst Braut-
igan loks að lýsa óhamingju sinni sem hafði verið
undir niðri í fyrri bókum hans og gert þær svo kaldar
og ópersónulegar. Þar naut hann þess að sjálfsögðu
að geta fetað í fótspor bandarísku játingaskáldanna
(Plath, Sexton). Gyrðir Elíasson þýddi þetta verk einn-
ig á íslensku og var það vel.
Þýðing -eftirmáli
Þýðing Gyrðis er vönduð, aðeins á einum stað er
þýðingarbragur á setningu: ...fáum stundum síð-
ar... “ (146). Gyrðir ritar stuttan eftirmála sem er
\
Richard Brautigan. Lauk við Silungsveiði í Ameríku
1962 en bókin fékkst ekki útgefin fyrr en 1967.
greinargóður varðandi Brautigan. Gyrðir hefur hins
vegar ekki vandað sig eins við þann hluta sem fjallar
um þá sem höðu áhrif á Brautigan: Það er til lítils að
minnast á að „sumir“ vilji tengja Brautigan við Mark
Twain en skilja síðan ekkert í hverju það geti falist,
halda helst að það tengist skegginu á þeim. Það er líka
erfitt að trúa því að Gyrðir hafi lesið mikið af þyngstu
heimspekiritgerðum Emersons fyrst hann talar um
„laufþyt" raddar hans. Og erfitt er að fylgja Gyrði
þegar hann hugleiðir að Steingrímur Thorsteinsson
hafi ort um silung undir áhrifum frá Emerson í gegn-
um Grasblöðin sem Whitman sendi Steingrími. Skyldu
allir lesendur þessa eftirmála vita hvað Grasblöð eru?
Það er líka lítil þjónusta við lesendur að fá ekki að
vita annað um Thoreau en að hann hafi leikið á flautu
á Walden-tjörninni í litlum báti á næturþeli. Hvers
vegna skyldi þá Skinner hafa kallað eina bók sína
„Walden Two“. Og hvers vegna skyldi Brautigan þá
kalla einn kaflann í Silugsveiðinni „Walden-tjöm fyrir
púrtvínsbyttur". Og hvers vegna skyldi Brautigan
vera að minnast á Gandhi?
Það er þó góð þjónusta við lesendur að rita eftir-
mála um höfund og verk hans. En slíkar ritgerðir
þarf að vanda og þær þurfa að skrifast af sérþekk-
ingu, ekki vera útþynningar úr alfræðibókum.
Silungsveiði í Ameriku, 184 bls.
Richard Brautigan
Þýðing: Gyrðir Elíasson
Hörpuútgáfan
Sviðsljós
Jólatónleikar í Áskirkju
Kammersveit Reykjavíkur hélt sína árlegu jóiatónleika í Áskirkju um
siöustu helgi. Á efnisskránni voru verk frá barokktimanum.
DV-mynd JAK
10 STYRKLEIKASTI1
- HLJÓÐROFI.
* SÝNIR BESTA
ÁRANGUR Á SKJÁ,
• VERÐ AÐEINS
kr. 2.990,-
PÖNTUNARSÍMI: 651297
GKVILHJALMSSON
Smyrlaliraun 60, 220 Hafnarfjöröur
Akranes: Bókaskemman. Akureyri: EST og Nýja Filmuhúsíð.
Blönduós: Kaupfélagió. Búöardalur: Versl. Einars Stefánssonar.
Dalvík: Sogn. Egiisstaðir: Bókabúðin Hlööum. Eskifjörður: Rafvirk-
inn. Flateyri: Þjónustulundinn. Hafnarfjörður: Rafbúðin Álfaskeiði.
Húsavík: Öryggi. Hvammsfangi: Kaupfélagið. Hveragerði: Ritval.
Höfn: Hafnarbúðin. Reyóarfjörður: Rafnet. Reykjavík: Bókahornið,
Hjá Magna. Sauðárkrókur: Rafsjá. Siglufjörður: Aðalbúöin. Stykk-
ishólmur: Húsið.
TjkfcKTAtf
DEEP JlfVII & THE ZEP CREAMS
JET BLACKJOE
WVeiviháUar rokktóu\e\kav
i í TvmcuNU B
1 WmmtudagVnn
| TO. desember.
| Tvær bestu
I rokkh\\ómsve\t\r
\ands\ns sýna Uvah „ROKK
er í raun 09 veru.
u
M
M
IÚ S í K
FORSALA AÐCÖN
OLLUM VCRSLUNU
MUSIK & MYNDIR
MIÐAVERÐ AÐEINS
750, KR.
HÚSIÐ OPNAR
KL. 22:00
TÓNLEIKARNIR HEFJAST
KL. 22:30