Dagblaðið Vísir - DV - 09.12.1992, Side 40
*
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn-
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
í DV, greiðast 3.000 krónur. skotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 63 27 00
MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 1992.
Eldurííbúð:
Konuog
6 ára barni
bjargað
Lögreglan í Reykjavík bjargaði
konu og sex ára bami hennar út úr
brennandi íbúð í Skipholti í nótt.
Kona nokkur hafði hringt í leigu-
bílastöðina Hreyfil og sagt frá grun-
semdum sínum um eld í þessari íbúð.
Lögreglan var látin vita og þegar hún
kom á vettvang um klukkan hálftvö
sá hún mikinn reyk inn um glugga
á íbúð á fyrstu hæð.
Greiðlega gekk að vekja aðra íbúa
í húsinu sem hleyptu lögreglunni inn
í stigaganginn. Opið var inn í íbúðina
og fóru lögreglumennirnir inn og
björguðu sofandi konunni og bam-
inu út. Grunur lék á að 18 ára sonur
konunnar væri einnig heima en
hann fannst hvergi.
Slökkviliðið kom fljótt á vettvang
og sendi inn reykkafara til að leita
af sér allan gmn í íbúðinni. Þá fund-
ust tvær kisur sem bjargað var út
en staðfest þótti að pilturinn hefði
ekki verið heima.
Kviknað hafði í út frá myndlykli
og hafði eldurinn læst sig í nærhggj-
andi rafmagnstæki sem vom mynd-
bandstæki og sjónvarpstæki. Mikinn
og svartan reyk lagöi um aUa íbúðina
og er hún Ula farin af sóti og reyk.
Hvorki íbúum né lögreglu varð hins
vegar meint af.
-ból
Ólafsúörður:
Vilja Hálfdán
sem bæjarstjóra
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Bæjarstjórn Ólafsfjarðar sam-
þykkti á fundi sínum í gær að ganga
tíl viðræðna við Háifdán Kristjáns-
son frá Súðavík um að hann taki við
starfi bæjarstjóra um áramótin.
Hálfdán var einn 13 umsækjenda
um stöðuna og óskuðu aliir umsækj-
endur nafnleyndar. Hálfdán er fyrr-
verandi sparisjóðsstjóri í Súðavík og
núverandi oddviti þar auk þess sem
hann stundar eigin rekstur.
Á fundinum í gær sagði Sigurður
Bjömsson af sér sem bæjarfuUtrúi
þar sem hann hefur setið sem einn
af meirihlutamönnum Sjálfstæðis-
flokksins. Það gerir hann til aö skapa
frið í flokknum eftir mikil átök að
undanfomu sem m.a. leiddu til upp-
sagnar Bjama Grímssonar bæjar-
sljóra.
Enn þarf að slccHra
nlðw 1,8 milljarða
„Það er alveg Ijóst að gera þarf 6 milljarðar króna. Nú er staðan skera niður um 650 milijónir króna. þetta náist, Niöurskurður heil-
miklu betur en tfl þessa varðandi sú að hann er tæpir 8 milljarðar Þaðtekstekkiþvíniðurskurðurimt brigðisráðuneytisins er því ekki
niðurskurð ríkisfjármála ef sú nið- ogþvíljóstaöskeraþarfenn meira varðandi faíðingarorlof og tekju- nema um 250 milljónir.
urstaöa, sem stefnt er að í fjárlög- niður,eðauml,8milljarðakróna. tryggingu lífeyrisbóta verður ekki Það verður ekki fyrr en við 3.
um, á að nást. Þetta gengur ekki Eins og fram hefur komið stóð til eins mikill og til stóð. Þá ætlaði umræðuaðendanlega verðurtekið
svona,“ sagði Karl Steinar Guðna- að ráðherrar skæru niður um 1240 hann aö breyta Samábyrgð fiski- á þessum vanda. Ljóst er að ráð-
son, formaður fjárlaganefndar, í tnilljónir króna. Vegna deilna við skipa í hlutafélag og ná þannig inn herramir verða að skera miklu
samtali við DV í morgun. Hann félagsmálaráðherra og landbúnað- 170 milljónum. Ijögfræðiálit Jóns tneira niður en þeir hafa fengist til
viðurkeimdi aö fjárlaganefnd væri arráðherra um niðiu’skurðinn hjá Steinars Gunnlaugssonar hæsta- fram að þessu. Nú er einnig talað
i miklum hremmingum við aö þeim var sæst á 800 milljónir um réttarlögmanns var á þá leið að þaö um að skera niður vegafé. Það
koma saman íjárlagafmmvarpi síðustu helgi. Sú tala hefur ekki fyrirtæki, sem er í eigu ríkisins, mega landsbyggðarþingmenn ekki
með þeirri niðurstöðu sem stefht náðst og nemur ráðherraniður- tilheyrði Tryggingastofnun rikis- heyra nefnt. Hóta þeir aö leggja til
var að. skurðurinn ekki nema um eða inn- ins. MattMas Bjarnason hefur beð- niðurskurð til Þjóðarbókhlöðu og
Gengið hafðí verið út frá því að an við 500 milljónir króna. ið um annað lögfræðiáht sem segir að hækka sérskatta á opinberum
hallinn á fjárlögum næsta árs yrði Heilbrigðisráðherra ætlaði að allt annað, þannig að hæpiö er að byggingumíReykjavík. -S.dór
Tilhlökkunin verður enn meiri þegar ilmandi jólatré eru komin á markað. Það þykir að minnsta kosti þeim Rak-
el, Sigyn, Söru og Birnu sem Ijósmyndari DV rakst á i gær. Sjá verökönnun á jólatrjám á bls. 16 og 17.
DV-mynd GVA
íslandsbanki:
Mótmæla banka-
menn ráðningu
Ásmundar?
„Það er brot á kjarasamningi að
ráða fólk inn í banka án þess að stað-
an sé auglýst. Það eru uppsagnir í
gangi hjá íslandsbanka. Því htum við
ráðningu Ásmundar Stefánssonar
alvarlegum augum. Þetta er ekki í
fyrsta skiptið og væntanlega munum
við taka þetta fyrir á næsta stjórnar-
fundi. Þar verður ákveðið hvort til-
efni sé til að senda íslandsbanka
mótmælabréf," segir Anna G. ívars-
dóttir, formaður Sambands íslenskra
bankamanna.
Ásmundur Stefánsson, fyrrverandi
forseti ASÍ, hefur verið ráðinn til
sérfræðistarfa hjá íslandsbanka. Frá
upphafi hefur hann átt sæti í banka-
ráði íslandsbanka. Hann mun hefja
störfl.febrúar. -kaa
Slökkvitækið
olli tjóni
Eldur kviknaði í feitipotti í kjúkl-
ingastað við Suðurver um miðnætti.
Starfsfólkið greip í duftslökkvitæki
sem var á staðnum og ætlaði að
slökkva í pottinum. Þá vildi ekki bet-
ur til en svo að botninn í tækinu, sem
var orðið gamalt, var svo kolryðgað-
ur að hann féll úr við þrýstinginn.
Duftiö út tækinu dreifðist því um
allan matsölustaðinn. -ból
LOKI
Þarfengu launþegarnir
í bankanum verðugan
andstæðing!
Veðriöámorgun:
Éljagangur á
Vesturlandi
Á hádegi á morgun verður
fremur hæg vestlæg átt. Élja-
gangur um landiö vestanvert og
á annesjum norðanlands en þurrt
og léttskýjaö á Austurlandi og inn
tfl landsins á Norðurlandi.
Veðrið í dag er á bls. 60
TVÖFALDUR1 ■ vinningur
ÖRYGGI - FAGMENNSKA
LANDSSAMBAND
ÍSL. RAFVERKTAKA