Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1993, Side 2
2
LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1993
Fréttir
Stuttarfréttir
Bætt nýting sjávarafla við Island:
Gæti skilað rúmum
fjórum milljörðum
- vannýttartegundirgætuskilaðmllliarði
„Þetta er mjög gróf áætlun sér-
fræðinga Rannsóknastofnunar fisk-
iðnaöarins um þaö hvar sé hægt að
bæta nýtingu með raunhæfum og
arðbærum hætti. Það er auövitað
hægt að ímynda sér eitthvað meira,
en þetta er það sem við teljum vera
raunhæft," segir Grímur Valdimars-
son, forstjóri Rannsóknastofnunar
fiskiðnaðarins.
Grímur telur að með bættri nýt-
ingu hefðbundins sjávarafla við ís-
land megi auka útflutningsverðmæt-
ið um 4,3 milljarða króna og með því
að efla veiðar á vannýttum tegund-
um eins og langhala, tindabikkju,
ígulkerum, kúfiski, búra, djúpkarfa
og beitukóngi megi auka útflutnings-
verðmætið um milijarð til viðbótar.
Áætlunin gengur út á það að með
aukinni flakanýtingu megi auka út-
flutningsverðmætið um 2.576 millj-
ónir, klumbumamingur á að skila
477 milljónum, hryggja- og hausa-
mamingur gæti skilað 690 milljón-
um, kinnar og gellur eiga að skila 80
milljónum, fés 20 milljónum, hersla
377 milljónum og fiskiípjöl 119 milij-
ónum.
Bætt hagnýting sjávarafla
— áætlað útflutningsverðmæti í milljónum króna —
Alls 4339
milljónir króna
•f-/^ j/ j *
&
Sumar atvinnu-
greinar steindauðar
Grímur vildi ekki viöurkenna að
íslendingar hefðu beinlinis verið á
villigötum varðandi nýtingu sjávar-
afla. Það sem geri gæfumuninn nú
varðandi nýtingu sé tæknin og stór-
aukinn áhugi á gæðastýringu. Tækn-
in sé að vísu frekar dýr en nú sé
grundvöllur til aðgerða.
„Ég hef haldið því fram að þær
stofnanir, sem eiga að þjóna atvinnu-
vegunum, hafi á undanfömum árum
lagað mikið til innanhúss hjá sér og
komið sínum málum í lag, þannig að
við erum mjög vel í stakk búnir til
að hjálpa atvinnuvegunum. Það sem
vantar er að atvinnulífið sinni þró-
unarmálum betur, vakni af dvala.
Við enun alltaf að sannfæra menn
um gildi rannsókna og þróunar og
gengur mjög misjafnlega. Sumar
greinar em gjörsamlega steindauðar
og gera ekkert. Það er alþekkt að ef
atvinnugreinar sinna ektó þróunar-
starfi þá dragast þær aftur úr,“ segir
Grímur.
-Ari
leiðtogar í Reykjavik?
Reykjavík er ein fjögurra borga
í Évrópu sem koma til greina sem
fundarstaður á leiðtogafundi
Clintons og Jeltsíns sem fram fer
4, apríl. Helsinki, Vín og Genf
koma einnig til greina.
Rotturnar á Eskififdj
Eskfirðingar hafa ráðið rottu-
bana til tímabundinna starfa á
öskuhaugum staðarins. íbúum
þar hefur staöið stuggur af rott-
unum, sem sótt hafa í fiskúrgang,
og því ákváðu bæjaryfirvöld að
grípa í taumana.
Stríðutantaftborðs
Kasparov og Short hafa sagt sig
úr lögum við Ffl)E og neita að
tefla heimsmeistaraeinvígiö í
Manchester. Bylgjan hafði eftir
Friðriki Ólafssyni í gær að stríð
væri í uppsiglingu milli atvinnu-
skákmeistara og FIDE.
Kórarmeðvarðskipi
Varðskipið Óðinn sigldi til Vest-
mannaeyja meö 12 kirkjukóra í
gær. Þar fer fram kóramót um
helgina. Herjólfsdeilan er enn í
hnút en stýrimenn kreflast þess
að fá hátt á Jöórða hundrað þús-
und krónur í laun.
Deilur haía risið á Suðurnesj-
um um tengiveg milli Reykjanes-
brautar og Garðsvegar við Keíla-
vík. Bylgjan segir þijár undir-
skriftasafhanir í gangi í Garði og
Keflavík gegn veginum.
Metár hjá siðanefnd
Siðanefiid blaðamanna tók alls
13 mál fyrir á síðasta ári. Nefnd-
inni hafa aldrei fyrr borist jafii
margar kærur.
Menntamálaráðherra samþykkur stórframkvæmdum við Þjóðminjasafhið:
Megum ekki gefast upp þrátt fyrir þrengingar
- Ólafur G. Einarsson segir menningararflnn í ófullnægjandi húsi
„Við getum ekki unaö því aö hafa
Þjóðminjasafiúð í þessari kreppu.
Þama erum við með menningararf
okkar í ófullnægjandi húsakynnum.
Ástandiö er þannig að þama getur
hvenær sem er átt sér stað óbætan-
legt tjón. Þó það séu efnahagslegar
þrengingar þá megum við ekki gefast
upp,“ segir Ólafur G. Einarsson
menntamálaráðherra.
Troðfullt hús var á þjóðminjaþingi
sem haldið var í Þjóöminjasafninu í
Meðal gesta á þjóðminjaþingi i gær voru þau Olafur G. Einarsson menntamáiaráðherra, Salome Þorkelsdóttir, forseti Alþingis, og Vigdís Finnbogadótt-
ir, forseti íslands, sem á myndinni sjást spjalla við Guðmund Magnússon þjóðminjavörð. í hendi Vigdísar má sjá nýtt merki Þjóðminjasafnslns sem
verðlaunað var með 250 þúsund krónum. DV-mynd GVA
gær. Á þinginu gerði Ólafur G. Ein-
arsson grein fyrir áhuga sínum á að
farið verði að tillögu nýrrar bygging-
amefndar safnsins um að byggt verði
nýtt safnhús á háskólalóðinni. Það
yrði tengt gamla safnhúsinu sem
gera á upp.
Að sögn Ólafs hefur enn ekki verið
tekin formleg ákvörðun um þessar
framkvæmdir né fjármögnun á þeim.
Hann bendir þó á að á næsta ári verði
lokið framkvæmdum við Þjóðarbók-
hlöðuna. Sú framkvæmd hafi verið
fjármögnuð með föstum tekjustofni
sem í ár gefi um 340 milljónir. Til
áhta komi aö nýta þennan tekjustofn
til framkvæmda við Þjóðminjasafn-
iö.
„Þetta era mjög stór tíðindi fyrir
safnið og við eram reiðubúin að
leggja ýmislegt á okkur í því sam-
bandi. Aðalatriðið er fá niöurstöðu í
það hvemig við ætlum okkur að
byggja safnið upp til frambúðar,"
segir Guðmundur Magnússon þjóð-
minjavörður.
-kaa
Seðlabankafrumvarpiö til nefndar án rnnræðu:
Spara má 20 milljónir með einum bankastjóra
- segir Olafur Ragnar Grímsson
„Árlega væri hægt að spara um
20 milljónir með því aö hafa ein-
ungis einn bankastjóra í Seðla-
bankanum. Auk þess væri þaö í
takt við nýja tíma. í Seðlabanka-
frumvarpinu er gert ráö fyrir
mörgum bankastjórum rétt eins og
í núverandi fýrirkomulagi. Hér er
um aö ræða úrelt kerfi, sniöið aö
þörfum pólitískra komissara," seg-
ir Ólafur Ragnar Grímsson, form-
aður Alþýöubandalagsins.
Fyrstu umræðu um Seðlabanka-
frumvarp ríkisstjómarinnar var
frestað eftir framsögu Jóns Sig-
urðssonar viöskiptaráðherra. Níu
þingmenn stjómarandstöðunnar
vísuðu í þingsköp en þar er kveðiö
á um að frumvarpi skuli visað í
nefiid óski minnst níu þingmenn
þess. Þessu ákvæöi þingskapalaga
hefur ekki veriö beitt fyrr.
Fram kom í greinargerö Halldórs
Ásgrímssonar að með þessu væra
stj ómarandstæðingar ekki aö tor-
velda framgang frumvarpsins. í
máli Ólafs Ragnars kom hins vegar
fram krafa um aö Jón gerði þing-
heimi grein fyrir því hvort hann
ætlaöi sér í bankastjórastól í Seðla-
bankanum. Grunar hann Jón um
að hafa sniöiö frumvarpiö aö eigin
þörfum.
í svari Jóns kom fram að hann
undraöist þaö að þingheimur vildi
fá frumvarpið til kynningar í efna-
hags- og viöskiptanefiid fyrir fyrstu
umræðu þar sem frumvarpið hafi
legiö frammi til kynningar um
langt skeið. Hann vildi hins vegar
ekki tjá sig um það hvort hann
ætlaöi sér bankasijórastöðu í
Seðlabankanum.
Samkvæmt heimildum DV ríkir
nokkur gremja í garð Jóns í þing-
flokki Sjálfstæðisflokks. Þykir
mönnum sem hann veiki stjómar-
samstarfiö með því að gefa ekki
yfirlýsmgu um hvort hann ætli sér
aö starfa áfram í ríkisstjóminni.
Því sé ófært að bíða eftir afjgreiöslu
Seðlabankafrumvarpsins eins og
vilji Jóns stendur til.
-kaa