Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1993, Page 11
LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR1993
11
Jon Kjell Seljeseth á leið í Eurovision-keppnina:
Norðmenn munu
reyna að eigna sér mig
„Ég flutti til íslands vegna þess að íslensk stúlka, sem fór til náms I Nor-
egi, vildi hafa minjagrip með sér heim.“ DV-mynd Brynjar Gauti
Höfundur sigurlagsins Þá veistu
svarið í Söngvakeppni Sjónvarpsins,
Jon Kjell Seljeseth, var bara nokk-
urra ára þegar í ljós kom hversu
háan sess tónlistin skipaði hjá hon-
um.
„Foreldrar mínir áttu erfitt með að
finna dagheimili sem mér leið vel á.
Það var ekki fyrr en ég kom á dag-
heimili þar sem voru hljóðfæri eins
og til dæmis tambúrínur og þríhym-
ingar handa bömunum sem ég fór
að þrífast," segir Jon.
Hann er fæddur og uppahnn í
Þrándheimi í Noregi. Sex ára gamall
var hann orðinn klarínettuleikari í
lúðrasveit. Á unglingsárunum segist
hann hafa verið að fikta við hljóm-
sveitarstjóm og útsetningar fyrir
skólaskemmtanir auk leiks í lúðra-
sveitinni sem hann var í þar til hann
var níiján ára. Jon lærði arkitektúr
í háskóla í Noregi en flutti svo til
íslands að lokinni eins árs her-
skyldu.
Kom til íslands
semminjagripur
„Það var nú vegna þess að íslensk
stúlka, sem kom til náms í iðjuþjálf-
un í Noregi, vildi hafa norskan
minjagrip með sér heim,“ segir Jon
og hlær. íslenska námsmærin var
Ehn Ebba Ásmundsdóttir og nú eiga
þau Jon tvo syni, 5 og 3 ára gamla.
Það var 1980 sem Jon og Ehn fluttu
til íslands. Hann vann sem arkitekt
í upphafi íslandsdvalarinnar en síð-
ustu sjö til átta árin hefur hann haft
tónlistina að aöalstarfi, fyrst og
fremst sem útsetjari og upptöku-
stjóri.
„Um tíma var ég bæði að teikna og
í tónhstinni. Það urðu langir vinnu-
dagar en kraftamir nýttust vel þar
sem um tvö ólík störf var að ræða.
Það kom þó að því að þetta varð of
mikið.“ Jon varð að velja og tónlistin
varð ofan á, í bili að minnsta kosti,
tekur hann fram.
Höfundur
tveggja sigurlaga
Hann segist bara hafa samið tvö lög
fyrir söngvara; Þá veistu svarið og
Eg man hverja stund. Bæði lögin
urðu sigurlög, það síðarnefnda í
Landslagskeppninni fyrr í vetur.
Framundan er hörð undirbúnings-
vinna fyrir Eurovisionsöngvakeppn-
ina sem haldin verður í maí á ír-
landi. Söngkonan Ingibjörg Stefáns-
dóttir mun syngja lagið Þá veistu
svarið á írlandi eins og hér heima.
Keppnin leggst vel í Jon sem enn
hefur ekki heyrt önnur sigurlög.
yVið erum Svo snemma á ferðinni á
íslandi. Sums staðar er mánuður í
söngvakeppnina."
Norðmenn
vilja heiðurinn
Þó svo að Jon hafi nú í fyrsta sinn
tekið þátt í Söngvakeppni sjónvarps-
ins sem lagahöfundur þá hefur hann
útsett mörg vinningslög í keppninni,
meðal annars lag Stjómarinnar Eitt
lag enn sem varð í fjórða sæti í Euro-
visionkeppninni í Zagreb fyrir
nokkram ámm og stjómaði Jon þá
hljómsveitinni í keppninni. Vel-
gengni lagsins vakti óskipta athygli
í Noregi og fannst Norðmönnum sem
þeir ættu einhvem hlut að máh.
Aðspurður hvort Norðmenn væru
búnir að frétta af sigri Jons núna
svaraði hann hlæjandi:
„Mamma veit náttúrlega af því.
Hún hringdi hingað. Ég veit ekki
hvort norskir fjölmiölar vita um
þetta en þeir munu sjálfsagt reyna
að eigna sér mig.“
Jon leggur hins vegar áherslu á að
hann hafi verið búsettur á íslandi í
þrettán ár. „Ég á heima hér og mér
hður vel héma Æth ég hafi ekki í
fyrra lífi verið einn af þeim Norð-
mönnum sem flúðu til íslands undan
harðræði Noregskonunga," segir
hann.
-IBS
I M P E X
Sterkt • auðvelt • fljótlegt
Hillukerfi
sem allir geta sett saman
rr h — -=•—
©DEXION SINDRI
-sterkur í verki
BORGARTÚNI 31 • SÍMI 62 72 22
£
o
PRIJON-KAJAKAR
YANMARIN SPORTBÁTAR
JOHNSON - UTANBORÐSMÓTORAR
CREWSAVER
AVON-GÚMMIBÁTAR
Allir velhomnir
Sýning
í verslun okkar
að Seljovegi 2, Reykjovík
helgina 27. - 28. febrúor,
klukkon 10:00-18:00.
Gerroun ó stoðnum - fjö,d/ vjnnjngQ f boði
1. Ryds-árabátur
2. Johnson-utanborðsmótor
3. Nitro-sjóskíði
... auk fjölda annarra vinninga.
UMBOÐSSALAN HF.
Seljavegi 2, 101 Reykjavík • Simi: 26488
Fax: 626488 • Pósthólf 1180, 121 Reykjavík
SEGLBRETTI
GÚMMlKANÓAR
ARABÁTAR
SJÓSKÍÐI
ÞURRBÚNINGAR
VATNABLÖÐRUR
MÓTORVÖRUR
BÁTAVÖRUR
SUMARIÐ • 1993