Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1993, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1993, Síða 25
LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR1993 25 Menning „Þurfum að efla hug- sjónina og sköpunina' - segir Kolbrún Björgólfsdóttir, menningarverðlaunahafl í listhönnun „Ég hef rekið mitt eigið galleríi í átta ár hér á Vesturgötunni. Þegar ég opnaði það á sínum tíma þótti það mjög nýstárlegt enda hafði ekkert slíkt gaUerí verið starfrækt áður. Þetta hefur gengið ágætlega þó maður verði ekki ríkur af þess- um rekstri. Það er svo mikil vinna bak við hvem hlut,“ segir Kolbrún Björgólfsdóttir sem hlaut menning- arverðlaun DV í listhönnun. Kol- brún fær verðlaunin fyrir hönnun sína sem þykir bera með sér þrosk- aðan og persónuiegan stíl. Kolbrún segist aUs ekki búa tíl tískugripi. „Ég fer mína eigin leið,“ segir hún. „Maður þarf einhvem veginn að vinna sínum hlutum sess. Annaðhvort gengur það eða gerir það ekki. Ef ég væri að fylgja tískustraumum hveiju sinni þá hefði það ekkert með Ust að gera,“ segir hún. „Maður fer í Usthönnun og vinnur þetta starf eingöngu af hugsjón. Auðvitað vUl maður lifa af Ustinni en það er ekki hægt að ganga að því vísu að það gangi upp. Lífið hjá manni stendur og fellur með starfinu." Kolbrún var í MyndUsta- og handíðaskólanum í fjögur ár og fór síðan í Skolen for bmgskunst í Danmörku í tvö ár og útskrifaðist árið 1975. Síðan hefur Kogga, eins og Kolbrún er köUuð, verið með verkstæði. „Fyrstu árin vann ég ýmiss konar vinnu með Usthönn- uninni, kenndi t.d. í MyndUstaskól- anum, en hin síöari ár hef ég helg- aö mig þessu.“ Óskynsamlegt að velja listina Kogga er fædd og uppalin á Stöðv- arfirði. Þegar hún fór í MyndUsta- og handíðaskólann árið 1969 þótti hún hálfskrítin að velja sér slíkt nám. Hún segist hafa ákveðið sem barn að fara Ustabrautina. „í fyrstu ætlaði ég að verða Ustmálari en það breyttist í skólanum. Ég vissi í fyrstunni í raun ekkert hvað ég var að fara út í enda hafði ég aldrei séð orginal myndUst. Þar sem ég hafði verið góð á bókina þótti fóUdnu mjög óskynsamlegt af mér að velja þennan skóla. Faöir minn var ný- látinn á þessum tíma en móðir mín reyndi alls ekki að letja mig heldur miklu frekar utanaðkomandi fólk,“ segir Kogga. „Skólamönnum þótti það vera að kasta námshæfUeikum á glæ að fara þessa braut.“ Kogga bendir á og leggur áherslu á að sama viðkvæðið sé enn við lýði hér á landi. „Það er svo röng hugsun á íslandi að námshæfileik- ar fari til spilUs ef ekki er farið í bóklegt nám. Þetta er einmitt það sem er að tröUríða landinu í dag, eilíft bóknám. AUt verk og Ustnám, sem sagt sköpunin og handverkið, er íagt á hUluna og virðist vera aukagrein. Strax í grunnskólanum er troðið inn í bömin að verk- menntakennsla sé aukafag sem sett er í stundatöflu upp á skraut. Hins vegar gagnast þessi eilífi reikning- ur, sem er verið að kenna bömun- um, ekki nema broti af þeim þegar út í lífið er komið,“ segir Kogga. Tíska að læra bisness „Ég er óskaplega leið yfir að þetta skuU vera svona. Mér finnst eins og þetta sé að koma niður á þjóð- inni. Manni hefur fundist að meiri áhersla hafi verið lögð á bókhaldið í fyrirtækjmn heldur en sköpun- Kolbrún Björgölfsdóttir, menningarverðlaunahafi í listhönnun, hefur ákveðnar skoðanir á hvað betur megi fara í fyrirtækjum landsins enda sé sköpunin að því er virðist aukaatriði i rekstri margra þeirra. DV-mynd GVA ina. Svo virðist vera sem fram- leiðslan sé aukaatriði. Það er í tísku að fara í verslunarskóla að læra bisness. Unga fólkið viU ekki læra að skapa verömæti og búa til hluti. Ráðamenn hafa einnig komið þessu inn hjá fólki með því að vilja ekki viðurkenna verknám. Það er svo sérkennilegt að þeir virðast ekki gera sér grein fyrir hvað felast núkil verðmæti í sköpuninni. Bæði ítaUr og Finnar em þekktir fyrir gæðavöm og faUega hönnun enda er það grundvöUur aUrar góðrar framleiðslu að hönnunin sé fagleg og vel úr garði gerð. Það á ekki að stofnsetja fyrirtæki og ákveða síð- an hvað eigi að búa tíl,“ segir Kol- brún. Hún telur aö einblína eigi á Util fyrirtæki þar sem haldið er utan um hvert einasta atriði í rekstrin- um og ekki síst hönnunina. „Mér finnst ótrúleg þröngsýni að ein- bUna eingöngu á stóriðjuver og risaverksmiðjur. Það er alltaf verið að búa til eitthvað utanum ekki neitt og reyna að finna tilganginn á eftir. Við erum svo lítil að við eigum ekki einu sinni að láta okkur dreyma á þennan hátt.“ Möppudýrin allsráðandi Kolbrún segist oft hafa verið spurð hvort hún ætU sér ekki í stjórnmál enda segist hún hafa núklar meiningar varðandi ástand- ið í þjóðfélaginu. „Það er mér hjart- ans mál að Islendingar fari aö horfa á hlutina frá nýju sjónarhomi. Við verðum að hafa hugsjón og skapa verðmæti. Það þýðir ekki að reka fyrirtæki og sitja bara við skrif- borð. Ég þekki dæmi þess að við- skiptafræðingur var ráðinn fram- kvæmdastjóri framleiðslufyrir- tækis. Hann haíði ekki hundsvit á því handverki sem var verið að framleiöa enda skipti hann sér ekki af framleiðslunni. Hann var auð- vitað ekki lengi í þessu starfi og á stuttum tíma var búið að skipta þrisvar sinnum um framkvæmda- stjóra en enginn hafði vit á þeirri vöm sem fyrirtækið var að fram- leiða. Svo eru menn hissa á að fyr- irtækin beri sig ekki.“ Kolbrún lætur ekki staðar numið og fullyrðir að aUt það fólk, sem situr í verslunarskólum og menntaskólum, sé afætur á þjóðfé- laginu. „Þetta fólk er ekki að búa tU nein verðmæti. Það ætti að setja þessa krakka í frystihús í nokkur ár og láta þá vinna við það sem þjóðin lifir á. Þetta em pabbastelp- ur og strákar sem fylla þessa skóla og þau hafa aldrei þurft að dýfa hendi í kalt vatn.“ Margar sýningar á næstunni Kogga þarf vart sjálf að kvarta undan aðgerðaleysi. Hún ætlar að halda sýningu í Munaðamesi í sumar ásamt eiginmanni sínum, Magnúsi Kjartanssyni. „Við emm að vinna á fuUu fyrir þá sýningu. Auk þess ætla ég að halda einka- sýningu í litla gallernnu mínu í haust í fyrsta skipti. Það eru vissar uppstokkanir í mér um þessar mundir." Þá hefur Kogga tekið þátt í sýn- ingunni Form Island II sem hefur verið á ferðalagi um Norðurlöndin en þar hefur hún sýnt mjög stóra hluti. Einnig tók hún þátt í Nor- rænni samsýningu í London á sl. ári. Hún er nú á ferðalagi um Eng- land. Þá ætlar Kogga að vera með í sýningu í Eistlandi sem opnar í apríl og mun síðan fara tU Lett- lands og Litháen. Hún hefur verið mest í að hanna stóra hluti undanfarið. „Ég hef mest gaman af þessum stóru og veglegu hlutum. Reyndar eru það langir og mjóir hlutir núna. Ég myndi segja aö ég væri að mýkjast upp en ég hef verið mjög hörð í formi. Annars hef ég haft mikinn áhuga á veggskreytingum þó ekki hafi ég gert þær. Ég hafði þó gaman af þegar breskur gagnrýnandi sagði í grein fyrir stuttu að hlutir mínir gætu veriö spennandi í arki- tektúr. Ég hef oft verið spurð af hverju ég vinni ekki verk á veggi. Mér hefur ekki fundist ég hugsa nógu mikið sem myndUstarmann- eskja tU þess. Ég hefkannski meira verið í „decorative art“ (skreytiUst) en þó með hluti sem fólk notar og skreytir híbýU sín með.“ Kogga hefur ekki áður fengið verðlaun en hún segist afar stolt af að fá menningarverðlaun DV. „Ég er mjög glöð vegna þess aö mér hefur fundist góður metnaöur í verðlaunaafhendingum síðustu ára. Þetta er frábært framtak og ég hef alltaf fylgst með þessu. Verð- launin eru mikils virði fyrir Usta- menn sem þurfa uppörvun ekki síður en aðrir. Þetta er mikU hvatn- ing.“ -ELA útóílí i tilómabúb GARÐSHORN $S við Fossvogskirkjugarð - sími 40500 POTTABLOM 20-50% afsláttur GJAFAVORUR 20-70% afsláttur POTTAHLÍFAR 20-75% afsláttur SJALR/OKVANDI 30-50% afslát KER tur KERTI 20-40% afsláttur TÚLÍPANABÚNT m/greinum, aóeins 245,- Opió alla daga kl. 10-19

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.