Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1993, Síða 26
26
LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR1993
Meiming
Margrét Harðardóttir og Steve Christer:
Anægð með vandað verk
„Okkur þykir mjög vænt um
þessi verðlaun, sérstaklega þar
sem við höfum mikið álit á dóm-
nefndinni," segja Margrét Harðar-
dóttir og Steve Christer arktitektar
sem hlutu menningarverðiaun DV
fyrir hönnun hins umdeilda Ráð-
húss Reykjavíkur.
„Það kom okkur ekkert á óvart
að gerðar voru athugasemdir. Er-
lendis er það eiginlega orðin venja
að mótmæla þegar gera á eitthvað
nýtt. Við tókum þátt í samkeppn-
inni af því að við trúðum á staðinn.
Á meðan við unnum hafði fólk
tækifæri til að kynna sér verkið og
hvemig við hugðumst útfæra það
en það voru fáir af þeim sem mót-
mæltu sem höfðu áhuga.“
Tískuverslanir
og háhýsi
Steve og Margrét vora starfandi
á arkitektastofum í London þegar
þau sendu inn tillögur í samkeppn-
ina um ráðhúsið. Steve fékkst aðal-
lega við innréttingar í tískuversl-
unum auk þess sem hann gerði upp
gömul hús. Margrét tók meðal ann-
ars þátt í hönnun háhýsis og skrif-
stofuhúsnæðis.
„Úrslitin í keppninni voru til-
kynnt í júní 1987 og við hófum verk-
ið í ágúst sama ár. Tæpum fimm
árum síðar var verkinu lokið,“
segja þau en leggja áherslu á að það
hafi ekki bara verið þau sem unnu
verkið heldur einnig samstarfs-
menn þeirra.
Gotthandverk
„Það var alveg sérstakt hvað það
tókst góð samvinna milh allra hlut-
aðeigandi sem að þessu stóðu. Viö
erum einnig mjög ánægð með
hversu vel var vandað til verksins.
Það þurfti aldrei að biðja menn um
að gera betur. Þeir gerðu það sjálf-
viljugir ef þeir voru ekki ánægðir.
„Það er sjaldan sem handverksmenn fá tækifæri til að sýna jafn vönduð vinnubrögð og i ráðhúsinu. Yfirleitt mega hlutirnir ekki kosta neitt,“
segja Margrét Harðardóttir og Steve Christer.
DV-mynd GVA
Það var greinilegt að allir voru.
komnir til að gera sitt besta,“ segir
Margrét pg Steve tekur undir það.
„Hér á íslandi fá menn sjaldan
tækifæri til að sýna svona vinnu-
brögð því hlutimir mega yfirleitt
ekki kosta neitt,“ bendir Margrét á.
„Fólk leitar til dæmis oftar til
annarra en arkitekta til að láta
teikna fyrir sig einbýlishús því það
heldur að arkitektar séu svo dýrir.
Þegar upp er staðið er það kannski
dýrara að láta smiðinn útfæra eitt-
hvað sem arkitekt hefði átt að gera.“
Margréti og Steve líst ágætlega á
tillögurnar um gerð svokahaðs Ing-
ólfstorgs í Kvosinni. Þau segja
nauðsynlegt að spinna í kringum
gamla miðbæinn, leyfa góðum
byggingum að halda sér en „taka
vel til í kringum þær“, eins og
Margrét orðar það.
Sigruðu í keppni
um einbýlishús
Keppnin um Ráðhúsið er ekki sú
eina sem Margrét og Steve hafa
sigrað í. Þau unnq til fyrstu verð-
launa í samkeppni um einbýhshús
í Þýskalandi á meðan þau unnu viö
ráðhúsiö. „Þetta var lokuð sam-
keppni sem áhugamaður um bygg-
ingarlist ákvað að efna til meðal
ungra arkitekta. Hann bað vel
þekkta arkitekta í mörgum löndum
að útnefna fólk og gamU kennarinn
okkar í London útnefndi okkur. í
rauninni höfðum við ekki tíma til
að sinna þessari keppni en geröum
það þó og það var þess virði,“ segir
Margrét.
Þau segjast hafa augun opin fyrir
samkeppnum sem þeim þykir vert
að taka þátt í. „Það eru engin önn-
ur verkefni framundan. Við erum
eiginlega á byrjunarreit aftur en
höfum engar áhyggjur af því held-
ur lítum björtum augum á framtíö-
ina.“
Á næstunni halda þau til Bret-
lands á námskeiö fyrir arkitekta.
-IBS
Petri Sakari:
Fékk fýrstu
eigin hljómsveit
á íslandi
Petri Sakari er nú aó hætta sem aöalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar
íslands. Vió tekur Osmo Vánská sem einnig er útskrifaóur frá hinni frægu
Síbelíusarakademiu.
„Það var alveg sérstök tilfmning
að fá eigin hljómsveit í fyrsta sinn,“
segir handhafi menningarverð-
launa DV í tónlist, Finninn Petri
Sakari, um ráðningu sína sem aðal-
stjómandi Sinfóníuhljómsveitar
íslands 1988. Hann var þá eftirsótt-
ur gestastjómandi og hafði komið
sem slíkur til íslands í nokkur
skipti. Árangur Petris Sakari í
staríi með Sinfóníuhljómsveitinni
þykir hafa verið mjög góður.
Sjálfur er hann hálffeiminn þegar
minnst er á það en nefnir þó að
viðtökumar í hljómleikaferðinni í
Skandinavíu haustiö 1990 hafi ver-
ið frábærar. Upptökusamningur-
inn við hið þekkta breska upptöku-
fyrirtæki Chandos sé einnig sönn-
un þess að hljómsveitin þyki góð.
Petri segir gagnrýnina, sem hljóm-
sveitin fékk á alþjóðavettvangi,
hafa verið mjög jákvæða. Skiptar
skoðanir vom þó hér heima um
verkefnavalið á plötumar.
„Það er augljóst aö það er ekki
hægt að byrja á því aö leika Beetho-
ven og Brahms. Samkeppnin er of
mikil og auk þess heföi upptökufyr-
irtækið ekki haft áhuga á því. Það
er mest um vert að leika verk sem
em merkileg tórúistarlega séð en
sjaldan leikin. Það voru tekin upp
norræn verk, íslenska sinfóníu-
hljómsveitin er norræn og ég er
norrænn stjómandi. Þetta var þvi
ágæt markaðssetning,“ leggur
Petri Sakari áherslu á.
Smekkur íslendinga
gamaldags
Hann bendir á að á íslandi geti
hljómsveitin hins vegar veriö með
stórt verkefnaval. „Tónlistar-
smekkur íslendinga almennt er
samt frekar gamaldags. Þegar við
leikum Tsjajkovskíj eða Brahms er
fullt hús en ekki þegar við leikum
nútímaverk eða óþekkt v.erk eftir
fræg tónskáld. Það er auðveldara
að vera með fjölbreytilegra verk-
efnaval í Evrópu,“ segir Petri sem
er tíður gestastjómandi í Svíþjóð,
Hollandi, Ungveijalandi og Rúm-
eníu.
Petri telur mögulegt að smekkur
íslendinga ráðist af fremur stuttri
tónlistarhefð. „Svo er bara ein sin-
fóníuhljómsveit á íslandi. Ef þær
væru tvær gæti verið auðveldara
að hafa fjölbreyttara verkefnaval.
Ég tel hins vegar að ómögulegt sé
að hafa tvær jafnstórar sinfóníu-
hljómsveitír á íslandi. Þessi sem
er fyrir hendi er ekki fullskipuð og
í hvert sinn sem stærri tónlistar-
verk em valin til flutnings þarf að
fá aukahljóðfæraleikara. Það væri
ódýrara fyrir ríkið þegar til lengdar
lætur að hafa fullskipaöa hljóm-
sveit.“
Hættviðtónleika-
ferð til Englands
Af fjárhagsástæðum þurfti Sinfó-
níuhljómsveit íslands að hætta við
tveggja vikna tónleikaferö til Eng-
lands í sumar sem skipulögð hafði
verið. Hljómsveitin var búin að fá
inni í mörgum frægum tónlistar-
húsum og átti meðal annars að
opna tónlistarhátíð í London. Eng-
inn styrkur fékkst frá ríkinu og þau
íslensku fyrirtæki, sem haft var
samband við, höfðu ekki áhuga á
að styrkja hljómsveitina gegn aug-
lýsingu. „Ég varð fyrir miklum
vonbrigðum. Þetta var kannski að
hluta til vegna ónógs upplýsinga-
flæðis milli hlutaðeigandi aðila
eins og stundum kemur fyrir á ís-
landi," segir Petri Sakari.
AnnarFinni
tekurvið
Hann er nú að hætta sem aðal-
stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar-
innar. Við tekur annar Finni, Osmo
Vánská, sem hefur útskrifast frá
hinni frægu Sibíelíusarakademíu
eins og Petri Sakari. Aðspurður
hvers vegna það koma svo margir
góðir hljómsveitarstjórar þaðan
segir Petri:
„Kennsla Jorma Panula prófess-
ors er mjög góð. Þegar ég var í skól-
anum voru nemendurnir frekar
fáir þannig að hver og einn fékk
nægan tíma hjá kennaranum og
með hljómsveitinni. Það er ákaf-
lega mikilvægt. í Finnlandi eru
einnig margar hfjómsveitir þannig
að tækifærin til að vinna með at-
vinnuhljóðfæraleikurum eru
mörg.“
Petri Sakari bíða nú fjölmörg
verkefni víösvegar um Evrópu.
-IBS