Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1993, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1993, Blaðsíða 26
26 LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR1993 Meiming Margrét Harðardóttir og Steve Christer: Anægð með vandað verk „Okkur þykir mjög vænt um þessi verðlaun, sérstaklega þar sem við höfum mikið álit á dóm- nefndinni," segja Margrét Harðar- dóttir og Steve Christer arktitektar sem hlutu menningarverðiaun DV fyrir hönnun hins umdeilda Ráð- húss Reykjavíkur. „Það kom okkur ekkert á óvart að gerðar voru athugasemdir. Er- lendis er það eiginlega orðin venja að mótmæla þegar gera á eitthvað nýtt. Við tókum þátt í samkeppn- inni af því að við trúðum á staðinn. Á meðan við unnum hafði fólk tækifæri til að kynna sér verkið og hvemig við hugðumst útfæra það en það voru fáir af þeim sem mót- mæltu sem höfðu áhuga.“ Tískuverslanir og háhýsi Steve og Margrét vora starfandi á arkitektastofum í London þegar þau sendu inn tillögur í samkeppn- ina um ráðhúsið. Steve fékkst aðal- lega við innréttingar í tískuversl- unum auk þess sem hann gerði upp gömul hús. Margrét tók meðal ann- ars þátt í hönnun háhýsis og skrif- stofuhúsnæðis. „Úrslitin í keppninni voru til- kynnt í júní 1987 og við hófum verk- ið í ágúst sama ár. Tæpum fimm árum síðar var verkinu lokið,“ segja þau en leggja áherslu á að það hafi ekki bara verið þau sem unnu verkið heldur einnig samstarfs- menn þeirra. Gotthandverk „Það var alveg sérstakt hvað það tókst góð samvinna milh allra hlut- aðeigandi sem að þessu stóðu. Viö erum einnig mjög ánægð með hversu vel var vandað til verksins. Það þurfti aldrei að biðja menn um að gera betur. Þeir gerðu það sjálf- viljugir ef þeir voru ekki ánægðir. „Það er sjaldan sem handverksmenn fá tækifæri til að sýna jafn vönduð vinnubrögð og i ráðhúsinu. Yfirleitt mega hlutirnir ekki kosta neitt,“ segja Margrét Harðardóttir og Steve Christer. DV-mynd GVA Það var greinilegt að allir voru. komnir til að gera sitt besta,“ segir Margrét pg Steve tekur undir það. „Hér á íslandi fá menn sjaldan tækifæri til að sýna svona vinnu- brögð því hlutimir mega yfirleitt ekki kosta neitt,“ bendir Margrét á. „Fólk leitar til dæmis oftar til annarra en arkitekta til að láta teikna fyrir sig einbýlishús því það heldur að arkitektar séu svo dýrir. Þegar upp er staðið er það kannski dýrara að láta smiðinn útfæra eitt- hvað sem arkitekt hefði átt að gera.“ Margréti og Steve líst ágætlega á tillögurnar um gerð svokahaðs Ing- ólfstorgs í Kvosinni. Þau segja nauðsynlegt að spinna í kringum gamla miðbæinn, leyfa góðum byggingum að halda sér en „taka vel til í kringum þær“, eins og Margrét orðar það. Sigruðu í keppni um einbýlishús Keppnin um Ráðhúsið er ekki sú eina sem Margrét og Steve hafa sigrað í. Þau unnq til fyrstu verð- launa í samkeppni um einbýhshús í Þýskalandi á meðan þau unnu viö ráðhúsiö. „Þetta var lokuð sam- keppni sem áhugamaður um bygg- ingarlist ákvað að efna til meðal ungra arkitekta. Hann bað vel þekkta arkitekta í mörgum löndum að útnefna fólk og gamU kennarinn okkar í London útnefndi okkur. í rauninni höfðum við ekki tíma til að sinna þessari keppni en geröum það þó og það var þess virði,“ segir Margrét. Þau segjast hafa augun opin fyrir samkeppnum sem þeim þykir vert að taka þátt í. „Það eru engin önn- ur verkefni framundan. Við erum eiginlega á byrjunarreit aftur en höfum engar áhyggjur af því held- ur lítum björtum augum á framtíö- ina.“ Á næstunni halda þau til Bret- lands á námskeiö fyrir arkitekta. -IBS Petri Sakari: Fékk fýrstu eigin hljómsveit á íslandi Petri Sakari er nú aó hætta sem aöalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitar íslands. Vió tekur Osmo Vánská sem einnig er útskrifaóur frá hinni frægu Síbelíusarakademiu. „Það var alveg sérstök tilfmning að fá eigin hljómsveit í fyrsta sinn,“ segir handhafi menningarverð- launa DV í tónlist, Finninn Petri Sakari, um ráðningu sína sem aðal- stjómandi Sinfóníuhljómsveitar íslands 1988. Hann var þá eftirsótt- ur gestastjómandi og hafði komið sem slíkur til íslands í nokkur skipti. Árangur Petris Sakari í staríi með Sinfóníuhljómsveitinni þykir hafa verið mjög góður. Sjálfur er hann hálffeiminn þegar minnst er á það en nefnir þó að viðtökumar í hljómleikaferðinni í Skandinavíu haustiö 1990 hafi ver- ið frábærar. Upptökusamningur- inn við hið þekkta breska upptöku- fyrirtæki Chandos sé einnig sönn- un þess að hljómsveitin þyki góð. Petri segir gagnrýnina, sem hljóm- sveitin fékk á alþjóðavettvangi, hafa verið mjög jákvæða. Skiptar skoðanir vom þó hér heima um verkefnavalið á plötumar. „Það er augljóst aö það er ekki hægt að byrja á því aö leika Beetho- ven og Brahms. Samkeppnin er of mikil og auk þess heföi upptökufyr- irtækið ekki haft áhuga á því. Það er mest um vert að leika verk sem em merkileg tórúistarlega séð en sjaldan leikin. Það voru tekin upp norræn verk, íslenska sinfóníu- hljómsveitin er norræn og ég er norrænn stjómandi. Þetta var þvi ágæt markaðssetning,“ leggur Petri Sakari áherslu á. Smekkur íslendinga gamaldags Hann bendir á að á íslandi geti hljómsveitin hins vegar veriö með stórt verkefnaval. „Tónlistar- smekkur íslendinga almennt er samt frekar gamaldags. Þegar við leikum Tsjajkovskíj eða Brahms er fullt hús en ekki þegar við leikum nútímaverk eða óþekkt v.erk eftir fræg tónskáld. Það er auðveldara að vera með fjölbreytilegra verk- efnaval í Evrópu,“ segir Petri sem er tíður gestastjómandi í Svíþjóð, Hollandi, Ungveijalandi og Rúm- eníu. Petri telur mögulegt að smekkur íslendinga ráðist af fremur stuttri tónlistarhefð. „Svo er bara ein sin- fóníuhljómsveit á íslandi. Ef þær væru tvær gæti verið auðveldara að hafa fjölbreyttara verkefnaval. Ég tel hins vegar að ómögulegt sé að hafa tvær jafnstórar sinfóníu- hljómsveitír á íslandi. Þessi sem er fyrir hendi er ekki fullskipuð og í hvert sinn sem stærri tónlistar- verk em valin til flutnings þarf að fá aukahljóðfæraleikara. Það væri ódýrara fyrir ríkið þegar til lengdar lætur að hafa fullskipaöa hljóm- sveit.“ Hættviðtónleika- ferð til Englands Af fjárhagsástæðum þurfti Sinfó- níuhljómsveit íslands að hætta við tveggja vikna tónleikaferö til Eng- lands í sumar sem skipulögð hafði verið. Hljómsveitin var búin að fá inni í mörgum frægum tónlistar- húsum og átti meðal annars að opna tónlistarhátíð í London. Eng- inn styrkur fékkst frá ríkinu og þau íslensku fyrirtæki, sem haft var samband við, höfðu ekki áhuga á að styrkja hljómsveitina gegn aug- lýsingu. „Ég varð fyrir miklum vonbrigðum. Þetta var kannski að hluta til vegna ónógs upplýsinga- flæðis milli hlutaðeigandi aðila eins og stundum kemur fyrir á ís- landi," segir Petri Sakari. AnnarFinni tekurvið Hann er nú að hætta sem aðal- stjórnandi Sinfóníuhljómsveitar- innar. Við tekur annar Finni, Osmo Vánská, sem hefur útskrifast frá hinni frægu Sibíelíusarakademíu eins og Petri Sakari. Aðspurður hvers vegna það koma svo margir góðir hljómsveitarstjórar þaðan segir Petri: „Kennsla Jorma Panula prófess- ors er mjög góð. Þegar ég var í skól- anum voru nemendurnir frekar fáir þannig að hver og einn fékk nægan tíma hjá kennaranum og með hljómsveitinni. Það er ákaf- lega mikilvægt. í Finnlandi eru einnig margar hfjómsveitir þannig að tækifærin til að vinna með at- vinnuhljóðfæraleikurum eru mörg.“ Petri Sakari bíða nú fjölmörg verkefni víösvegar um Evrópu. -IBS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.