Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1993, Page 30
42
LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1993
Iþróttir
Titillinn loksins
á Old Trafford?
-möguleikar ManchesterUnited á aö vinna enska meistaratitilinn sjaldan betri
Fjölmargir fylgismenn Manchest-
er United hér á landi sem annars
staðar eru nú bjartsýnni en oftast
áður á að liðinu takist loksins að
vinna Englandsmeistaratitilinn í
knattspymu. Sem stendur er liðið í
toppbaráttu ensku úrvalsdeildarinn-
ar og hefur verið í efstu sætum deild-
arinnar síðustu vikurnar. Rúmur
aldarfjórðungur, 26 ár, er liðinn síð-
an Manchester United varð síðast
meistari í Englandi og titilsins er
beðið á Old Trafford með mikilli
eftirvæntingu. Er þá vægt til orða
tekið.
Þeir menn sem gegnt hafa starfi
framkvæmdastjóra hjá United síð-
ustu áratugina, frá því að Sir Matt
Busby hætti með hðið árið 1969, hafa
haft rýmri fjárráð en margir kollegar
þeirra í ensku knattspyrnunni. Mikl-
um peningum hefur verið varið til
kaupa á leikmönnum síðustu 26 árin,
samtals rúmum þremur milljörðum
króna fyrir 81 leikmann. Síðustu
fimm framkvæmdastjórar hafa verið
iðnir við að kaupa leikmenn en orðið
misjafníega vel ágengt.
Síðasta tækifærið
hjá Alex Ferguson?
Eins og fram kemur annars staðar
á síðunni hefur enginn fram-
kvæmdastjóri hjá Man Utd eytt meiri
peningum til kaupa á leikmönnum
en Alex Ferguson. Margir eru þeirr-
ar skoðunar að Ferguson fái ekki
annað tækifæri til að vinna enska
meistaratitilinn ef hann gengur Man
Utd úr greipum í vor, Ef liðið vinnur
hins vegar titilinn hefur Ferguson
fest sig rækilega í sessi sem fram-
kvæmdastjóri liðsins mörg næstu
árin, enda hefur Ferguson náð við-
unandi árangri með liðið ef deildar-
keppnin er undanskilin.
Möguleikamir
sjaldan verið betri
Margir eru þeirrar skoðunar að
möguleikar Man Utd á meistaratitli
hafi sjaldan eða aldrei verið betri.
Liðiö á að vísu nokkuð erfiða leiki
fyrir höndum en bent er á að ekkert
hinna stóru liöanna sé í alvarlegri
toppbaráttu nú og eigi reyndar frek-
ar í alvarlegum vandræðum. Nægir
þar að nefna Liverpool, Arsenal og
meistarana frá í fyrra, Leeds United.
Leikirnir sem eftir eru hjá Man Utd
í úrvalsdeildinni eftir þessa helgi eru
eftirfarandi: Liverpool (úti), Oldham
(úti), Aston Villa (heima), Man City
(úti), Arsenal (heima), Norwich (úti),
Sheffield Wednesday (heima), Co-
ventry (úti), Chelsea (heima), Black-
burn (heima) og Wimbledon (liti).
-SK
í
3.
RON ATKINSON
19 leikmenn fyrir
717,220 millj.
1981-1986
DAVE
SEXTON
10 leikmenn
fyrir 343,194
millj.
1979-1981
ALEX FERGUSON
25 leikmenn fyrir
1.798,220 millj.
frá 1986-1993
TOMMY
DOCHERTY
20 leikmenn
FRANK
O'FARRELL
5 leikmenn
f. 113,740 millj. f. 59,690 millj.
1972-1977 1971-1972
o
o
■o
1971-1972:
Frank
OFarrell
Frank O’FarrelI keypti fimm
leikraenn og þeir kostuðu tæpar
60 milljónir króna.
Bestu kaup: Án nokkurs efa
varnarmaðurinn Martin Buchan
sem var fyrsti leikmaðurinn sem
O’Farrell keypti. Buchan kostaöi
um 12 milljónir króna og var
keyptur frá skoska liöinu
Aberdeen. Buchan lék mjög vel
fyrir Man. Utd í áratug og lengst
af sem fyrirliði. Þrívegis stýrði
Buchan liöi United í úrslitaieik
ensku bikarkeppninnar á Wemb-
iey og árið 1977 hampaði hann
bikamum. Martin Buchan er eini
fyrirhöinn sem hampað hefur
sigurlaunum í bikarkeppni, bæði
i Englandi og Skotiandi.
Verstu kaup: Þar nefna sér-
fræðingar Ted MacDaugall sem
keyptur var frá Bournemouth
fyrir metfé, 220 þúsund pund.
Hann haföi skorað 103 mörk fyrir
Boumemouth í 146 leikjum með
Boumemouth en skoraði aöeins
5 mörk í 18 leikjum með United
og var að sex mánuðum liönum
seldurtilWestHam. -SK
1972-1977:
Tommy
Docherty
Tommy Docherty keypti 20
leikmenn og borgaði um 114 millj-
ónir króna fyrir þá.
Bestu kaup: Lou Macari keypti
Docherty frá Celtic og borgaði fyr-
ir um 19 millj. kr. Docherty þótti
einkar lánsamur er hann keypti
nýja leikmenn og nægir þar að
nefna leikmenn eins og Stuart
Pearson, Steve Coppell, Gordon
Hill og Jimmy Greenhoff. Lou
Macari stóð sig mjög vel í mörg
ár með United og stendur fyllilega
undir því þegar menn tala um
hann sem bestu kaup Dochertys.
Verstu kaup: Núverandi fram-
kvæmdastjóri Arsenal, George
Graham, er þar efstur á listanum.
Graham hafði skömmu áður en
hann var keyptur til United, verið
ein aðal drifljöðrin í tvöfóldum
sigri Arsenal í ensku knattspyrn-
unni 1971. Menn vonuöust eftir
því að Graham myndi hressa
verulega upp á miðjuna hjá Un-
ited en Graham stóð ekki undir
nafni og var seldur til Ports-
mouth eftir tvö ár hjá United og
aðeins411eik. -SK
1977-1981:
Dave Sexton var frekar lítil
eyðslukló og keypti 10 leikmenn
fyrir um 343 milljónir króna á
þremur og hálfu ári sem fram-
kvæmdastjóri
Bestu kaup: Sexton keypti
varnarjaxlinn Kevin Moran árið
1978 frá írska liöinu Pegasus og
kaupverðið var aðeins um 560
þúsund krónur. Ótrúlega góö
kaup og kaupverð Morans var
fljótt að raargfaldast. Moran lék
í 9 ár með United og lék alls 231
deildarleik með liöinu og var
lengstum með betri leikmönnum
liðsins. Leikimir hefðu orðið
mun fleiri ef Moran heföi ekki
verið mjög óheppinn hvað
meiðsli varðar.
Verstu kaup: Þar er Gary Birtl-
es nefndur til sögunnar en Sexton
keypti hann frá Nottingham For-
est fyrir um 118 mUljónir króna.
Eftir aö hafa skoraö 11 mörk í 57
leikjum íýár United var Bitles
seldur aftur til Forest á um 26
milljónir króna og tapaði United
því um 92 milljónum króna á
kaupunum. -SK
1981-1986:
Ron
Atkinson
Hinn umdeildi Ron Atkinson,
sem í dag stýrir liði Aston Villa
í úrvalsdeildinni og berst harðri
baráttu við United um meistara-
titilinn, eyddi um 717 milljónum
króna í kaup á 19 leikmönnum á
fjórum og hálfu ári sem fram-
kvæmdastjóri Man Utd.
Bestu kaup: Atkinson keypti
vamarmanninn Paul McGrath
frá St. Patrick í apríl 1982 á aðeins
2,8 milljónir króna. Undir stjórn
Atkinsons varð McGrath einn
besti varnarleikmaður Englands.
í dag nýtur Atkinson krafta hans
hjá Aston Villa.
Verstu kaup: Ron Atkinson
keypti Alan Brazil frá Tottenham
fyrir 66 millj. kr. árið 1984. Hann
hafði áður gert góða hluti hjá
Ipswich en náöi sér aldrei á strik
hjá Tottenham. Brazil átti jafnvel
enn dapurlegri daga á Old Trafford
og var langt frá því að vera milljón-
anna virði. Atkinson gerði nokkrar
örvæntingafullar tilraunir til að
kaupa leikmenn til United þegar
hann fann lykt af meistaratitlinum
enþærmistókustflestar. -SK
1986-????:
Alex
Ferguson
Alex Ferguson tók við stjórn-
inni hjá Man Utd árið 1986 og
hefur vægast sagt verið umdeild-
ur yfirmaður á Old Trafford. Eng-
inn framkvæmdastjóri hefur haft
úr meiri aurum að moða og enn
vantar meistaratitilinn á Old
Trafford. Ferguson hefur keypt
25 leikmenn frá 1986 og fjárútlátin
nálgast tvo milljarða.
Bestu kaup: Enginn vafi er á
því að Ferguson og United duttu
í lukkupottinn er danski niark-
vöröurinn Peter Schmeichel var
keyptur til félagsins í júlí frá
danska hðínu Bröndby á aðeins
52 milljónir króna. Betri kaup er
vart hægt að gera í ensku knatt-
spyrnunni.
Verstu kaup: Alex Ferguson
hefur lika_ fest kaup á köttum í
sekkjum. í júní 1989 snaraðihann
141 milljón króna á borðið fyrir
Neil Webb frá Nottingham For-
est. Webb meíddist illa fljÓtlega
eftír kaupin og náði aldrei að
sýna sitt rétta andht og var ný-
verið seldur aftur til ForesL
-Sk
Framarar hafa ekki efni á að leika í 1. deild
Erfið fjárhagsleg staða íþróttafé-
laga er alþekkt hér á landi en hitt
er sjaldgæfara að peningaskortur-
inn sé svo mikill að félag megi helst
ekki vinna góða sigra og ná góðum
árangri. Þessi staða kann að blasa
við leikmönnum í 2. deildarhði
Fram í blaki karla þegar nær dreg-
ur vori.
„Við erum nokkurn veginn ör-
uggir með að komast í úrshta-
keppnina í 2. deild en alls ekki ör-
yggir með að komast upp í 1. deild.
Sú staðreynd blasir hins vegar við
okkur að ef við komumst í 1. deild
höfum við ahs ekki efni á að taka
sæti þar,“ sagöi Kristján Már Unn-
arsson, einn leikmanna í blakhði
Fram, í samtali við DV í gær.
„Við höfum ekki verið með þjálf-
ara á launum í mörg ár, búningam-
ir em orðnir sjö eöa átta ára gaml-
ir og sömu sögu er að segja um
boltana. Ef við förum upp þá þurf-
um við að ráða þjálfara á launum,
verða okkur úti um fleiri æfinga-
tíma í íþróttahúsum og margt
fleira. Við höfum einfaldlega ekki
efni á þessu. Það hefur ahtaf verið
stefnan hjá okkur að gera ekki
meira en við ráðum við og því yrði
það mjög óábyrgt fjárhagslega að
taka sæti í 1. dehd ef árangur okkar
býður upp á það í vor,“ sagði Krist-
ján Már.
Forráðamenn blakdeildar Fram
gera ráð fyrir því að þátttaka í 1.
dehd muni kosta um 100-200 þús-
und krónur á hvem leikmann hðs-
ins og að sögn Kristjáns Más er
víðs fjarri að leikmenn ráði við slík
útgjöld.
-SK