Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1993, Qupperneq 31
ú
LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR1993
„Við ætlum okkur að skilja," sagði hann dapurlega. „Það er svo mikið að hjá okkur. Við getum ekki talað
saman. Kynlífið er í molum. Það er eins og múr eða veggur hafi verið reistur á milli okkar.“
Múrar
milli
manna
Þau sátu hjá lækninum sínum
þennan morgun á miðjum þorra.
„Við ætlum okkur að skilja," sagði
hann dapurlega. „Það er svo mikið
að hjá okkur. Við getum ekki talað
saman. Kynlífið er í molum. Það
er eins og múr eða veggur hafi ver-
ið reistur á milli okkar.“ Hún sam-
sinnti með þögninni og dustaði
ósýnilegt kusk af annarri öxlinni
og hnykkti til höfðinu. Læknirinn
horfði á þau til skiptis og velti því
fyrir sér úr hverj u þessi veggur á
milli þeirra hefði verið steyptur.
Samkvæmt íslenskri byggingar-
hefð eru múrar gerðir úr sementi,
vatni og sandi í ákveðnum hlutfoÚ-
um. Sama blanda er notuð til að
byggja brýr svo að enginn munur
er á því byggingarefni sem annars
vegar Scuneinar fólk og hins vegar
heldur því aðskildu. í manniegum
samskiptum er þögn eða orð notuð
til að byggja og rífa niður brýr og
múra. Með orðum er hægt að halda
öðrum fjarri eigin ranni en orðin
má líka nota til aö sætta, hugga og
bræða frosin hjörtu. Orð geta brú-
að gjár og skilið fólk í sundur.
Ekki einnveggur
heldurtveir
í fjölmörgum hjónaviðtölum
hafði læknirinn heyrt fólk tala um
vegg á milli sín eða djúpa gjá sem
skildi það í sundur. „Konan mín
skilur mig ekki.“ „Það er veggur á
milii okkar.“ „Maðurinn minn er
bæði mállaus og heymarlaus!"
Norskur fjölskylduráðgjafi skrifaði
eitt sinn um þetta. Hann sagði þó
að múrinn rniili fólks stæði aldrei
einn saman; þeir væru tveir. Slíkir
múrar eru eins og ákveðin tegund
spegla; hægt er að horfa í gegnum
þá úr annarri áttinni en ekki hinni.
Fólk sérekki sinn eigin múr en
rekur augun í þann vegg sem mót-
aðilinn hefur reist í kringum sig. í
hjónaerjum hafa báðir aðilar reist
sér hallarmúra í kringum kastal-
ann sinn enda ólíklegt að fólk berj-
ist innan sömu víggirðinga. Oft er
Álaeknavaktinrd
gott að átta sig á þessum múrum
áður en lagt er til atlögu við þau
vandamál sem við er að etja. Stund-
um hefur konan byggt sinn múr
úr endalausum vonbrigðum, ótta,
kvíða og beiskju. Hann hefur ein-
angrað sig hak við þögn, þumbara-
gang, hégómleika, sært stolt, sár-
indi og reiði. Á þennan hátt tekst
þeim að einangra sig hvort frá öðru
og eigin tilfinningum. Hún sér
múrana hans, hann sér múrinn
sem umlykur hana en hvorugt ger-
ir sér grein fyrir eigin mannvirkj-
um. Allir múrbyggjendur verða
einhvem tíma að ákveða hvort þeir
vilja uppgötva það sem falið er bak
við eigin virkisveggi. Era menn til-
búnir að takast á viö vandamál sem
standa djúpum rótum í sálartötr-
inu? Era menn tilbúnir að taka til
í eigin hallargarði?
Rífum niður múra
Múrar eiga að gera manninn
ósæranlegan. Ekkert getur unnið
honum mein. Orð, grátur, sorg,
rifrildi og deilur komast ekki yfir
múrinn. En veggurinn gerir meira.
Hann múrar eiganda sinn inni í
eigin heimi. Hann verður einangr-
aður, þögull, einmana, fullur af
sjálfsvorkunn og beiskju. Þegar
rætt er um veggi sem rífa þarf nið-
ur í samskiptum fólks verður hver
og einn að átta sig á eigin múr og
ákveða framtíð hans. Hægt er að
rífa hann niður og fjarlægja eða
láta hann standa um alla framtíð
og bæta stöðugt í hann byggingar-
efni. Meðan eigandinn sér ekki
sinn eigin múr getur hann einungis
beint athygh sinni að múrnum sem
umlykur hinn aðilann. Hann getur
talað um hann, bölvað honum,
njósnað um hann og lýst honum í
smáatriðum. En það hrekkur
skammt því aö mótaðilinn sér ekki
múrinn sinn en fylgist af athygli
með þeim veggjum sem umlykja
hinn. Best er að byija á því aðrífa
niður eigin múr. Við það verða
menn auðsæranlegir og opnir fyrir
árásum og atlögum. En á sama
tíma minnkar einangranin og
frelsisþrá vaknar. Menn koma
auga á lífið og þær tilfinningar sem
bæði eru utan og innan múranna.
Einungis dæmdir menn eiga að lifa
bak viö múra. En þeir eiga rétt á
að komast út eftir einhvem ákveð-
inn tíma. Þeir sem dæma sjálfa sig
til að lifa bak við eigin múra geta
orðið þar innlyksa allt sitt líf og
misst af öllu sem gerist utan þeirra.
43
Aðalfundur
Aðalfundur Verzlunarmannafélags Reykjavíkur verð-
ur haldinn mánudaginn 8. mars kl. 20.30 á Hótel
Holiday Inn.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
Verzlunarmannafélag Reykjavikur
Önfirðingar
Árshátíð Önfirðingafélagsins verður haldin laugardaginn 13. mars nk.
í Fóstbræðraheimilinu, Langholtsvegí 109-111, Reykjavík. Borðhald
- skemmtidagskrá - hljómsveitin Upplyfting leikur fyrir dansi.
Nánar í fréttabréfi.
Stjórnin
Reykjavík
Sumarstarfsmenn
óskast til starfa á slökkvistöðinni í Reykjavík.
Umsækjendur skulu vera á aldrinum 20-28 ára, hafa
meirapróf til aksturs og iðnmenntun eða sambærilega
menntun sem nýtist í starfi slökkviliðsmanna.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu slökkvistöðvar-
innar.
Umsóknir skulu hafa borist fyrir 12. mars nk. Nánari
upplýsingar á skrifstofu.
Fasteignir til sölu á Akranesi,
Vestmannaeyjum og lóð í Keflavík
Kauptilboð óskast í eftirtaldar eignir:
HAFNARGATA 91, KEFLAVÍK, 3200 m2 lóð með litlum vigtar-
skúr á lóðinni.
ÞJÓÐBRAUT 1, AKRANESI. Atvinnuhúsnæði, stærð húsnæðis-
ins er 187,1 m2. Brunabótamat er kr. 6.536.000. Húsnæðið verð-
ur til sýnis í samráði við Svein Garðarsson, sími 93-13244.
KIRKJUVEGUR 22, VESTMANNAEVJUM, (Samkomuhús Vest-
mannaeyja á mótum Kirkjuvegar og Vestmannabrautar), stærð
hússins er 9.275 m3. Brunabótamat er kr. 103.169.000. Húsið
verður til sýnis í samráði við Ingvar Sverrisson, fulltrúa sýslu-
manns, sími 98-11066.
Tilboðseyðublöð verða afhent hjá ofangreindum aðilum og á skrif-
stofu vorri að Borgartúni 7, Reykjavík.
Tilboð verða opnuð á sama stað kl. 11.00 f.h. 8. mars 1993 í viður-
vist viðstaddra bjóðenda.
IIUIMKAUPASTOFNUIM RÍKISINS
________BORGARTUNI 7. 105 REYKJAVIK
Fasteignir til sölu
á Stórólfsvöllum, Hvolhreppi
Kauptilboð óskast í eftirtaldar húseignir á Stórólfsvöllum í Hvol-
hreppi. Heimilt erað bjóða í hverja eign fyrir sig eða allar saman.
Birgðaskemma og verksmiðja, 1688,5 m2, brunabótamat
64.301.000.
Timbureiningahús, 130,2 m2, brunabótamat 10.579.000
Verkstæðishús, 306,3 m2, brunabótamat 9.514.000
Vélageymsla, 147,8 m2, brunabótamat 2.890.000
Vörugeymsla, 300,9 m2, brunabótamat 6.883.000
Eignirnar eru til sýnis í samráði við Bergþór Guðjónsson, Hvols-
velli, vinnusími 98-78392, heimasími kl. 19-20 98-78243.
Tilboðseyðublöð liggja frammi hjá ofangreindum aðila og á skrif-
stofu vorri. #
Tilboðum sé skilað á skrifstofu vorri að Borgartúni 7, Reykjavík,
fyrir kl. 11.00 þann 10. mars '93 þar sem þau verða opnuð í viður-
vist viðstaddra bjóðenda.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGARTUNI 7 1115 Rl YKJAVIK