Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1993, Síða 50
62
LAUGARDAGUR 27. FEBRÚAR 1993.
Laugardagur 27. febrúar
SJÓNVARPIÐ
9.00 Morgunsjónvarp barnanna.
Kynnir er Rannveig Jóhannsdóttir.
Fimleikar. Stúlkur úr Gerplu sýna.
Frá 1985. Heimilistæki í hús-
bóndaleit. Bandarísk teiknimynd.
Þýðandi: Nanna Gunnarsdóttir.
Leikraddir: Alda Arnardóttir, Bjarni
Ingvarsson, Pétur Eggerz og Stef-
án Sturla Sigurjónsson. Áður sýnt
á jólum 1992. Úllen dúllen doff.
Nemendur úr Snælandsskóla í
Kópavogi flytja leikþátt. Frá 1985.
Dans trúðanna. Nemendur úr
Hvassaleitisskóla í Reykjavík sýna
skrykkdans. Frá 1985. Ræningj-
arnir og Soffía frænka. Nemendur
úr Árbæjarskóla í Reykjavík flytja
atriði úr Kardimommubænum eftir
Thorbjörn Egner. Frá -,985. Það
búa litlir dvergar. Sex ára nemend-
ur úr Dansskóla Heiðars Ástvalds-
sonar dansa. Frá 1985. Segðu a!
Nemendur úr Hólabrekkuskóla í
Reykjavík leika atriði úr Litlu hryll-
ingsbúðinni við söng tannlæknis-
ins. Frá 1985.
11.00 Hlé.
14.25 Kastljós Endursýndur þáttur frá
föstudegi.
14.55 Enska knattspyrnan Bein út-
sending frá leik Manchester Un-
ited og Middlesborough í ensku
úrvalsdeildinni. Lýsing: Bjarni Fel-
ixson.
16.45 íþróttaþátturinn Umsjón: Arnar
Björnsson.
18.00 Bangsl besta skinn (4:20) (The
Adventures of Teddy Ruxpin).
Breskur teiknimyndaflokkur um
Bangsa og vini hans. Þýðandi:
Guðni Kolbeinsson. Leikraddir:
Örn Árnason.
18.30 Töfragarðurinn (3:6) (Tom's
Midnight Garden). Breskur fram-
haldsmyndaflokkur byggður á
sögu eftir Philippu Pearce. Ungur
drengur er sendur til barnlausra
ættingja þegar bróðir hans fær
mislinga. Honum leiðist vistin og
getur ekki sofið en þá slær gamla
klukkan hans afa þrettán högg.
Drengurinn heldur að hann hafi
talið rangt og fer að athuga málið
en þá bíður hans undarlegt ævin-
týri. Þýðandi: Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
18.55 Táknmálsfréttir.
19.00 Strandverðir (5:22) (Baywatch).
Bandarískur myndaflokkur um
ævintýri strandvarða í Kaliforníu.
Aðalhlutverk: David Hasselhof.
Þýðandi: Ólafur B. Guðnason.
20.00 Fréttlr og veöur.
20.35 Lottó.
20.40 Æskuár Indiana Jones (6:15)
(The Young Indiana Jones
Chronicles). Hér segir frá æsku-
árum ævintýrahetjunnar Indiana
Jones, ótrúlegum ferðum hans um
víöa veröld og æsilegum ævintýr-
um. Aðalhlutverk: Corey Carrier,
Sean Patrick Flanery, George Hall,
Margaret Tyzak og fleiri. Þýðandi:
Reynir Harðarson.
21.30 Limbó. Leikinn gamanþáttur um
tvo seinheppna náunga sem hafa
umsjón með nýjum skemmtiþætti
í Sjónvarpinu. Þátturinn gerist að
mestu leyti baksviðs meðan bein
útsending fer fram og þar er oft
heitt í kolunum og mikill taugatitr-
ingur. Umsjónarmennina leika þeir
Davíð Þór Jónsson og Steinn Ár-
mann Magnússon sem jafnframt
eru handritshöfundar ásamt Óskari
Jónassyni leikstjóra. Aðrir leikarar
eru Helga Braga Jónsdóttir, Sigur-
jón Kjartansson og Steinunn Ól-
afsdóttir.
22.05 Englabörn (Inspector Morse -
Cherubim and Seraphim). Bresk
sakamálamynd frá 1992 með
Morse lögreglufulltrúa I Oxford.
Ung frænka Morse fyrirfer sér og
hann tekur sér frí til að grennslast
fyrir um ástæðurnar fyrir dauða
hennar. Á meðan rannsakar Lewis
hvarf ungs námsmanns en hvorug-
ur þeirra er sérlega vel að sér um
unglingamenninguna og þá vímu-
gjafa sem henni fylgja. Leikstjóri:
Danny Boyle. Aðalhlutverk: John
Thaw og Kevin Whately. Þýðandi:
Gunnar Þorsteinsson.
23.55 Á ystu nöf (Out on the Edge).
Bandarísk sjónvarpsmynd frá
1991. I myndinni segir frá ungum
manni, sem á erfitt með að finna
fótfestu í lífinu, og lendir fyrir vikið
á vafasamri braut. Leikstjóri: John
Pasquin. Aðalhlutverk: Ricky
Schroder og Mary Kay Place. Þýð-
andi: Reynir Harðarson.
1.25 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
09.00 Meö Afa.
10.30 Lísa í Undralandi.
10.55 Súper Maríó bræöur.
11.15 Maggý (Maxie's World).
11.35 í tölvuveröld (Finder).
12.00 Óbyggöir Ástralíu (Australia
Wild). Fróðlegurmyndaflokkurum
dýralíf í Ástralíu. (1 +2:8)
12.55 Ópera mánaöarins. La Boheme.
Þaö er San Francisco Óperan sem
flytur okkur þessa vinsælu óperu
eftir Puccini og það er enginn ann-
ar en Luciano Pavarotti sem syng-
ur hlutverk skáldsins Rodolfo og
hlutverk Mimi syngur Mirella
Freni. Stjórnandi: Tiziano Severini.
15.00 Þrjúbíó. Aftur til framtíóar III.
17.00 Leyndarmál (Secrets). Sápuóp-
era eftir metsöluhöfundinn Judith
Krantz.
18.00 Popp og kók.
18.55 Fjármál fjölskyldunnar. Endur-
tekinn þáttur frá síöstliðnu miö-
vikudagskvöldi.
19.05 Réttur þlnn. Endurtekinn þáttur
frá slðastliðnu þriöjudagskvöldi.
19.19 19:19.
20.00 Drenglrnir í Twilight (Boys of
Twilight). Bandarískur sakamála-
flokkur um löggæslumennina í
smábænum Twilight. (3:5)
20.50 Imbakassinn.
21.10 Falin myndavél (Candid Ca-
mera). Brostu! Þú ert í falinni
myndavél. (13:26)
21.35 Meö öllum mjalla (Perfectly Nor-
mal). Aðalsöguhetjan, Renzo, er
ísknattleiksmaður sem hættir til að
verða dálítið undir í baráttunni inn-
an og utan vallarins. Líf Renzos
tekur stakkaskiptum þegar hann
hittir matreiðslumeistarann Turner.
23.20 Stál í stál (Blue Steel). Jamie Lee
Curtis er í hlutverki Megan Turner,
nýliða í lögregluliði New York-
borgar, í þessari spennandi saka-
málamynd.
01.00 Leitin aö Rauða október (The
Huntfor Red October). Spennandi
stórmynd byggð á samnefndri
metsölubók Tom Clancy.
Lokasýning. Bönnuð börnum.
03.10 Talnabandsmoröinginn (The
Rosary Murders). Myndin greinir
frá kaþólskum presti sem reynir að
finna morðingja sem drepur ka-
þólska presta og nunnur og skilur
ávallt eftir sig svart talnaband.
Aðalhlutverk: Donald Sutherland,
Belinda Bauer, Charles Durning
og Jesef Sommer. Leikstjóri: Fred
Walton. 1988. Lokasýning.
Stranglega bönnuð börnum.
04.50 Dagskrárlok. Við tekur næturdag-
skrá Bylgjunnar.
SÝN
17.00 Hverfandi heimur (Disappearing
World). Þáttaröð sem fjallar um
þjóðflokka um allan heim sem á
einn eóa annan hátt stafar ógn af
kröfum nútímans. Hver þáttur tek-
ur fyrir einn þjóðflokk og er unninn
í samvinnu við mannfræðinga sem
hafa kynnt sér hátterni þessara
þjóðflokka og búið meðal þeirra.
(15:26).
18.00 Dulrannsóknarmaöurinn James
Randi (James Randi: Psychic In-
vestigator). Kanadíski töframaður-
inn James Randi hefur mikið rann-
sakað yfirnáttúrleg fyrirbrigði og í
þessum þáttum ræðir hann viö
miðla, heilara, stjörnufræðinga og
fleiri „andlega” aðila sem reyna að
aðstoöa fólk meö óhefðbundnum
aðferðum.
18.30 List Indónesíu (Art of Indonesia:
Tales from the Shadow World). i
þessari nýju heimildarmynd, sem
tekin var á eyjunum Java og Bali,
fáum við aö Kynnast hinum fornu
fjársjóðum Indónesíu. Gömlum
javönskum skáldskap, skúlptúr,
undurfagurri náttúru, -oíónlist og
listflutningi innfæddra listamanna
er ofiö saman í eina stórkostlega
heild, sém hjálpar okkur að skilja
þær goðsagnir og ímyndir sem
hafa gagntekið indóneaska menn-
ingu í yfir þúsund ár.
19.00 Dagskrárlok
©Rásl
FM 9Z4/93.5
HELGARÚTVARPIÐ
6.55 Bæn.
7.00 Fréttlr. Söngvaþing Eiður Ágúst
Gunnarsson, Árneskórinn, Ólafur
Jóhannsson, Gestur Jónsson,
Rósa Ingólfsdóttir, Ævar Kjartans-
son, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Karla-
kórinn Goði, Heimir, Jónas, Vil-
borg og fleiri syngja.
7.30 Veöurfregnlr. - Söngvaþing held-
ur áfram.
8.00 Fréttlr.
8.07 Músík aö morgnl dags. Umsjón:
Svanhildur Jakobsdóttir.
9.00 Fréttlr.
9.03 Frost og funl. Helgarþáttur barna.
10.00 Fréttlr.
10.03 Þingmál.
10.25 Úr Jónsbók. Jón Örn Marinós-
son. (Endurtekinn pistill frá í gær.)
10.30 Tónllst. Golden Gate kvartettinn
syngur.
10.45 Veöurfregnir.
11.00 í vikulokin. Umsjón: Bjarni Sig-
tryggsson.
12.00 Útvarpsdagbókin og dagskrá
laugardagsins.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veöurfregnir. Auglýsingar.
13.05 Fréttaauki á laugardegi.
14.00 Leslampinn. Umsjón: Friðrik
Rafnsson. (Einnig útvarpað
sunnudagskvöld kl. 21.05.)
15.00 Ismús '93. Beint útvarp frá setn-
ingur hátföarinnar í Hallgríms-
kirkju. Sálmforleikur eftir Jón
Nordal og Forleikur eftir Johann
Sebastian Bach. Ich ruf zu Dir
Herr Jesu Christ. Hörður Áskels-
son leikur á orgel kirkjunnar. Þjóð-
leg íslensk tónlist við trúarlega
texta. Hamrahlíðarkórinn syngur.
Þorgeröur Ingólfsdóttir stjórnar.
Sinfóníuhljómsveit Islands flytur
tónverk eftir Alvaro Monzano frá
Ecuador höfundur stjórnar.
Tónmenntadagar Ríkisútvarpsins
• 1993 hefjast formlega með tón-
leikum í beinni útsendingu frá
Hallgrímskirku.
16.00 Fréttir.
16.05 íslenakt mál. Umsjón: Gunnlaug-
ur Ingólfsson. (Einnig útvarpaö
mánudag kl. 19.50.)
16.15 Af tónskáldum. Jón Leifs.
16.30 Veöurfregnlr.
16.35 Útvarpsleikhús barnanna,
„Sesselja Agnes eftir Marlu
Gripe Áttundi þáttur.
17.05 Söngvar um stríö og friö. Heims-
styrjöldin síðari.
18.00 „Hús eru hættuleg“, smásaga
eftir Ellsabetu Jökulsdóttur. Höf-
undur les.
18.48 Dánarfregnir. Auglýsingar.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Auglýsingar. Veðurfregnir.
19.35 Djassþáttur. Umsjón: Jón Múli
Árnason. (Áður útvarpað þriðju-
dagskvöld.)
20.20 Laufskálinn. Umsjón: Finnbogi
Hermannsson. (Frá ísafirði. Áður
útvarpað sl. miðvikudag.)
21.00 Saumastofugleði. Umsjón og
dansstjórn: Hermann Ragnar Stef-
ánsson.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins.
22.07 Nóvellettur eftir Wilhelm Sten-
hammar. Mats Widlund leikur á
píanó. Lestur Passíusálma. Helga
Bachmann les 18. sálm.
22.30 Veöurfregnir.
22.36 Einn maóur; & mörg, mörg tungl.
Eftir: Þorstein J. (Áður útvarpað
sl. miðvikudag.)
23.05 Laugardagsflétta. Svanhildur
Jakobsdóttir fær gest í létt spjall
með Ijúfum tónum, að þessu sinni
Nínu BjörkÁrnadótturskáldkonu.
24.00 Fréttir.
0.10 Sveiflur. Létt lög í dagskrárlok.
1.00 Næturútvarp á samtengdum
rásum til morguns.
17.00 Siödegisfréttir.
17.15 Guömundur Sigurðsson.
19.30 Kvöldfréttir.
20.00 Ólafur Schram.
22.00 Davíö Guðmundsson.
03.00 Dagskrárlok.
Bænalínan er opin á laugardögum frá
kl. 09.00-01.00 s. 675320.
FMf909
AÐALSTOÐIN
9.00 Hrafnhildur Björnsdóttir vekur
hlustendur með Ijúfum morgun-
tónum.
13.00 Smúllinn.Davíð Þór Jónsson á
léttu nótunum.
16.00 1x2 Getraunaþáttur Aöalstööv-
arinnar.Gestir koma í hljóðstofu
og spjallað verður um getrauna-
seðil vikunnar.
19.00 Jóhannes Kristjánsson.
22.00 Næturvaktin.Óskalög og kveðjur.
Óskalagasíminn er 626060.
3.00 Voice of America.
FM 90,1
8.05 Stúdíó 33. Örn Petersen flytur létta
norræna dægurtónlist úr stúdíói
33 í Kaupmannahöfn. (Áður út-
varpað sl. sunnudag.)
9.03 Þetta líf. Þetta líf. - Þorsteinn J.
Vilhjálmsson. - Veðurspá kl. 10.45.
11.00 Helgarútgáfan. Helgarútvarp rás-
ar 2 fyrir þá sem vilja vita og vera
meó. - Kaffigestir. Umsjón: Lísa
Pálsdóttir og Magnús R. Einars-
son.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Helgarútgáfan. - Dagbókin.
Hvað er að gerast um helgina? itar-
leg dagbók um skemmtanir, leik-
hús og alls konar uppákomur.
Helgarútgáfan á ferð og flugi hvar
sem fólk er að finna.
14.00 Ekkifréttaauki á laugardegi.
Ekkifréttir vikunnar rifjaðar upp og
nýjum bætt við. Umsjón: Haukur
Hauks.
14.40 Tilkynningaskyldan.
15.00 Heiðursgestur Helgarútgáf-
unnar lítur inn.
16.30 Landsleikur í handknattleik: is-
land-Danmörk. Bein lýsing frá
Akureyri.
17.00 Meö grátt í vöngum. Gestur Ein-
ar Jónasson sér um þáttinn. (Einn-
ig útvarpað aðfaranótt laugardags
kl. 02.05.)
19.00 Kvöldfréttir.
19.32 Rokktiöindi. Skúli Helgason segir
rokkfréttir af erlendum vettvangi.
20.30 Ekkifréttaauki á laugardegi.
Umsjón: Haukur Hauksson yfir-
fréttastjóri. (Endurtekinn þáttur úr
Helgarútgáfunni fyrr um daginn.)
21.00 Vinsældalisti götunnar. Hlust-
endur velja og kynna uppáhalds-
lögin sín. (Áður útvarpaö miðviku-
dagskvöld.)
22.10 Stungiö af. Guðni Hreinsson. (Frá
Akureyri.) - Veðurspá kl. 22.30.
24.00 Fréttlr.
0.10 Næturvakt rásar 2. Umsjón: Arn-
ar S. Helgason. Næturútvarp á
samtengdum rásum til morguns.
NÆTURÚTVARPIÐ
1.30 Veöurfregnir. Nætun/akt rásar 2
- heldur áfram.
2.00 Fréttir.
2.05 Vinsældalisti rásar 2. Andrea
Jónsdóttir kynnir. (Endurtekinnfrá
föstudagskvöldi.)
5.00 Fréttir.
5.05 Næturtónar.
6.00 Fréttir af veðri, færö og flug-
samgöngum. (Veðurfregnir kl.
6.45 og 7.30.) - Næturtónar halda
áfram.
07:00 Morguntónar.
09:00 Morgunútvarp á laugardegi.
Fréttir kl. 10.00 og 11.00.
12.00 Hádegisfréttir frá fréttastofu
Stöövar 2 og Bylgjunnar.
12:15 Viö erum viö. Þorsteinn Ásgeirs-
son og Ágúst Héðinsson eru
hressir að vanda og leika létt og
vinsæl lög, ný og gömul. Aðrir
góðir dagskrárgerðarmenn Bylgj-
unnar eru staddir á Akureyri og
verða með innskot annað slagið,
fréttir af íþróttum, atburðum helg-
arinnar og hlustað er eftir hjarts-
lætti mannlífsins. Fréttir kl.
13:00, 14.00, 15.00 og 16.00.
17:00 Síödegisfréttir frá fréttastofu
Stöövar 2 og Bylgjunnar. Vand-
aður fréttaþáttur frá fréttbstofu
Stöðvar 2 og Bylgjunnar.
17:05 Ingibjörg Gréta Gisladóttir. Ingi-
björg Gréta veit hvað hlustendur
vilja heyra.
19:30 19:19. Samtengd útsending frá
fréttastofu Stöðvar 2 og Bylgjunn-
ar.
20:00 Pálmi Guðmundsson. Pálmi er
með dagskrá sem hentar öllum,
hvort sem menn eru heima, í sam-
kvæmi eða á leiðinni út á llfið.
23:00 Hafþór Freyr Sigmundsson.
Hressilegt rokk fyrir þá sem eru að
skemmta sér og öðrum.
03:00 Næturvaktin.
09.00 Natan Harðarsson leikur létta
tónlist og óskalög hlustenda.
12.00 Hádegisfréttir.
13.00 Jóhannes Ágúst.
13.05 20 The Countdown Magazine.
15.00 Stjörnulistinn20 vinsælustu lögin
á Stjörnunni.
FM#957
9.00 Loksins laugardagurJóhann Jó-
hannsson, Helga Sigrún og Ragn-
ar Már.
10.15 Fréttaritari FM i Bandaríkjun-
um.
11.15 Undarlegt starfsheiti.
12.15 Fréttaritari FM i Þýskalandi.
13.00 íþróttafréttir.
14.00 Getraunahornió 1x2.
14.30 Matreiðslumeistarinn.Úlfar á
Þrem frökkum.
14.50 Afmælisbarn víkunnar.
15.00 Slegiö á strengi.
15.30 Anna og útlitiö.
15.45 Næturlífiö.
16.00 Hallgrímur Kristinsson.
16.30 Brugöiö á leik í léttri getraun.
18.00 íþróttafréttir.
19.00 Halldór Backman hitar upp fyrir
laugardagskvöldiö.
20.00 Partýleikur.
22.00 Sigvaldi Kaldalóns hefur laugar-
dagskvöldvökuna. Partíleikur.
3.00 Laugardagsnæturvaktin heldur
áfram.
6.00 Ókynnt þægileg tónlist.
SóCiti
frn 100.6
9.00 Bjarni.
13.00 Burt Bergmann og Jessíca Sigf-
ara með aðalhlutverk í þessum
magnaða framhaldsþætti.
17.00 Maggi Magg.
19.00 Party Zone.
21.00 Haraldur Daði og Þór BæringS-
amkvæmisljónaleikur
22.00 Næturvaktin i umsjón Hans
Steinars.
3.00 Næturtónlist.
9.00 Á Ijúfum laugardagsmorgni
með Jóni Gröndal við hljóðnemann.
13.00 Böövar Jónsson og Páll Sævar
Guðjónsson.
16.00 Rúnar Róbertsson.
18.00 Daöi Magnússon.
20.00 Upphitun. Sigurþór Þórarinsson
við hljóðnemann.
23.00 Næturvakt. Síminn fyrir óskalög
og kveðjur er 92-11150.
EUROSPORT
★ . . ★
8.00 Ford Ski Report.
9.00 Nordic Skiing.
11.30 Live Nordic Skiing.
14.00 Tennis.
16.00 Alpine Skling.
17.00 Euroscores.
17.05 Nordic Skiing.
18.30 Handbolti.bein útsending frá
Frökkum og Kóreumönnum.
21.00 Tennis.
23.30 Euroscores.
24.00 Dagskrárlok.
12.00 Barnaby Jones.
13.00 Rich Man, Poor Man.
14.00 Greenacres.
14.45 Facts of Life
15.15 Teiknimyndir.
16.00 The Dukes of Hazzard.
17.00 WWF Superstars of Wrestling.
18.00 Beverly Hills 90210.
19.00 Knights and Warriors.
20.00 Unsolved Mysteries.
21.00 Cops I og II.
22.00 Wrestling.
23.00 Saturday Night Live.
SCREENSPORT
11.30 NBA Action.
12.00 Pro Kick.
13.00 Volvó Evróputúr.
15.30 Go.
16.50 Live World Cup Skiing 1992/93.
18.30 World Championshlp lceracing.
19.30 Grundig Global Adventure
Sport.
20.00 Live ATP/IBM Tennis Tour 1993.
22.00 World Cup Skiing 1992/93 .
23.00 Wolvó Evróputúr.
DV
Hengjum þvottinn
á Siegfried-límma
Þriöjj þáttur Unu
Margrétar Jónsdótí-
ur um söngva um
stríö og frið ber und-
irtitilinn Hengjum
þvottinn á Siegfried-
línuna. í þessum
þætti veröa leiknir
söngvar úr síöari
heimsstyrjöld. Mörg
dægurlög frá stríös-
árunum hafa oröiö
þekkt, til dæmis The
Washing on the Si- L^JMULIJML.
egfried-line og We’ll pilW^aM«HMMBIÍÍIáifea
Meet Again, svo ekki Á stríðsárunum urðu til margir
sé minnst á Liii baráttusöngvar gegn nasisman-
Marleen. En á þess- um.
um árum uröu líka
til margir áhrifamiklir baráttusöngvar gegn nasismanum,
bæöi í hernumdu löndunum og í Þýskaiandi sjálfu og þess-
um söngvum veröa einnig gerð skil í þættinum.
Steinn Armann og Davíð Þór hafa fært sig úr útvarpi yfir
í sjónvarp.
Sjónvarpið kl. 21.30:
limbó
Limbó nefnist nýr ís-
lenskur gamanþáttur sem
Sjónvarpið sýnir á fóstu-
dagskvöld. Þar segir frá
tveimur heldur seinheppn-
um kauöum sem fengnir
hafa verið til að hafa umsjón
með nýjum skemmtiþætti í
Sjónvarpinu. Þátturinn ger-
ist að mestu leyti baksviös
meðan á beinni útsendingu
stendur og þar er oft heitt í
Stöð 2 j
kolunum og mikill tauga-
titringur í mannskapnum.
Umsjónarmennina leika
þeir Davíö Þór Jónsson og
Steinn Ármann Magnússon
sem jafnframt eru handrits-
höfundar ásamt Óskari Jón-
assyni leikstjóra. Aörir leik-
arar í þættinum eru Helga
Braga Jónsdóttir, Sigurjón
Kjartansson og Steinunn
Ólafsdóttir.
23.20:
Það getur verið
verulega erfitt að
byrja í nýju starfi en
fáir mæta jafn miklu
andstreymi á fyrsta
vinnudeginurn og
lögreglukonan Meg-
an Tumer (Jamie
Lee Curtis) í þessari
hörkuspennandi
sakamálamynd.
Drauniur Megan um
merkið, búninginn
og byssuna á eftir að
reynast henni dý
keyptur. Strax
fyrstu vakt skýtur
hún þjóf í vcrslun.
Maöurinn var vopn-
aður en byssan hans
finnsthvergiogMeg-
an er vikiö úr starfi.
Ástandið virðist ekki
geta versnað en geð-
sjúkur fjöldamorðingi fer á stjá og skilur eftir muni setn
tengjast lögreglukonunni á morðstaö. Hver sem morðínginn
er þá tengist hann Megan á einhvern hátt og það er hætta
á að hún missi ekki aðeins starfið, mannoröið og frelsið
heldur einnig lífið sjálft.
Jamie Lee Curtis leikur lögreglu-
konu sem heldur betur kemsf i
hann krappan.