Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1993, Blaðsíða 52
Frjálst,óháð dagblað
Veðrið á sunnudag og mánudag:
Suðvestan stinningskaldi
Á sunnudag verður suðvestankaldi eða stinningskaldi og þokusúld um sunnan og vestanvert landið en annars heldur hægari og þurrt að mestu.
Á mánudaginn verður suövestan stinningskaldi eða allhvasst og slydduél um vestanvert landið en annars heldur hægari og þurrt að mestu.
Veðrið í dag er á bls. 61
LOKI
Ætli þeir séu að undirbúa
verðið á bifreiða-
tryggingunum?
Eignatjónið er metið
á fjórða tug milljóna
A flmm dögum eða frá sunnudegi
til fimmtudags skemmdust á fiórða
hundrað bila í umferðaróhöppum
á landinu öliu og er fión á þessum
bílum metið á fiórða tug milijóna.
Þetta kemur fram í tölum sem
Samband íslenskra tryggingafé-
laga hefur tekið saman en það hef-
ur í sainvinnu við Umferðarráð
tekið upp þá nýbreytni að birta
daglega tölur um alla skemmda
bila í umferðinni og það áætlaða
fión sem tryggingafélögin þurfa að
bera sökum þessa.
„Þetta eru auðvitað háar tölur,
sérstaklega þegar miðað er við töl-
ur sem Umferöarráð hefur hingað
til birt yfir umferðaróhöpp. Þær
tölur hafa fyrst og fremst byggst á
afskiptum lögreglunnar af umferð-
ai-óhöppum en þaö segir ekki alla
söguna vegna þess aö lögregla hef-
ur ekki afskipti af nema broti af
árekstrum í umferðinni. Margir
gera fiónin upp sín á milli með því
að útfylla fiónstilkynningar sem
eiga aö vera í öllum bílum.
I raun hafa því tölur Umferðar-
ráðs sagt ákaflega lítið um þann
stórfellda vanda sem við er að efia.
Þær tölur, sem við birtum núna frá
degi til dags, eru hins vegar raun-
veruleg speglun á ástandinu í um-
ferðarmálum ísiendinga,“ segir
Sigmar Ármannsson, fram-
kvæmdasfióri Sambands íslenskra
tryggingaíélaga.
Algengast er aö tveir bilar lendi
saman í árekstri og því lætur nærri
að á þessum fimm dögum liafi orð-
ið um 150 árekstrar eða um 30
árekstrar á dag. Þrátt fyrir að þessi
tala sé há segir Sigmar að svipaðar
tölur og hærri þekkist hjá trygg-
ingafélögunum i gegnum tíðina.
„Janúarmánuður var mun verri
í ár en í fyrra sökum umhleypinga.
Það má líka segja að óhöpp síðustu
viku hafi verið svona mörg sökum
veðurs og hálku enda hafa svona
hveliir alltaf áhrif," segir Sigmar.
Tryggingafélögin hafa í huga að
halda áfram að birta tölur um
umferðaróhöpp og fión en aö sögn
Sigmars er síðan stefnt að því að
Umferöarráð taki við því hlutverki
að koma þessum upplýsingum á
framfæri.
-ból
Hallgrímskirkja:
Mál verki stolið
Stórri vatnslitamynd eftir Karó-
línu Lárusdóttur var stolið úr Hall-
grímskirkju í morgun. Myndin er
metin á 80-100 þúsund krónur.
Að sögn Karls Sigurbjömssonar,
sóknarprests í Haligrímskirkju,
hékk myndin eftir Karólínu í and-
dyri kirkjunnar. Myndin sýnir Krist
og lærisveinana í grasagarðinum
Getsemane.
„Þetta er ákaflega faileg mynd og
mikill missir fyrir kirkjuna. Það er
ömurlegt að vita til þess að svona
geti gerst. Maður finnur þó fyrst og
fremst til með þeim sem verknaðinn
vann,“ sagði Karl. -ból
LAUGARDAGUR 27. FEBRUAR 1993.
Fátt er börnum kærkomnara en skaplegt veður til leikja úti við. Krakkarnir í Hlíðaskóla nýttu sér því góða veðrið í
gær til útiveru. DV-mynd Brynjar Gauti
Gæsluvarð- 4
haldvegna
ofsókna #
Héraðsdómur Reykjavíkur úr-
skurðaði 35 ára karlmann í tveggja
vikna gæsluvarðhald í gær.að kröfu
RLR vegna margvíslegs ónæðis sem
hann hefur valdið fiölskyldu einni í
langan tíma. Manninum var einnig
gert að sæta geðrannsókn. Maður-
inn, sem var handtekinn síöasta
fimmtudagskvöld, hefur áreitt tvær
konur úr fiölskyldunni í alls 18 ár.
Hann þekkir konumar ekkert en
hefur aöallega ónáðað þær með síma-
hótunum. Ónæðið hefur færst í auk-
ana undanfamar vikur.
Steininn tók úr fyrir skömmu þeg-
ar maðurinn réðst inn á heimili full-
oröinna hjóna í fiölskyldunni og
lagði hendur á þau. í kjölfarið var
hann handtekinn og vistaður á geð-
deild. Honum var sleppt á fimmtu-
daginn og hélt þá áfram uppteknum
hætti sem leiddi til handtöku hans á
nýjan leik. RLR hefur undir höndum
aÚs fimm kæmr frá fiölskyldunni
vegna ónæðis sem hún hefur orðið
fyrirvegnamannsins. -ból
FR ETTA S K O
T I
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um
frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir
hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað
í DV, greiðast 3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku
greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafn-
leyndar er gætt. Við tökum við frétta-
skotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 63 27 00
Flexello
Vagn- og húsgagnahjól
Sudurlandsbraut 10. S. 086499.