Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1993, Blaðsíða 29
ÞRIÐJUDAGUR 23. MARS 1993
Stræti.
Stræti
Þjóðleikhúsiö sýnir annað
kvöld leikritið Stxæti eftir Jim
Cartwright í leikstjóm Guðjóns
Pedersen. Leikarar eru þau Ingv-
ar E. Sigurðsson, Kristbjörg
Kjeld, Róbert Amfinnsson, Edda
Heiðrún Backman, Baltasar
Kormákur, Þór H. Tulinius og
Halldóra Björnsdóttir. Þess má
geta að leikarar taka sér ekki frí
í hléi heldur halda uppi stemn-
ingu á göngunum. Sýningin er
afar lífleg.
Sögusviö leikritsins er ein nótt
Leikhús
í stræti fátækrahverfis. Það er
drykkjusvolinn og gleðimaður-
inn Scullery sem leiðir okkur um
strætið og kynnir okkur fyrir íbú-
um þess. Leikritið er beinskeytt
en ljóðrænt og fyndið en jafn-
framt þiturt. Það lýsir á hrein-
skilinn hátt hinum harða heimi
fátækra borgarbúa. Það dregur
fram persónur, fyndnar, daprar,
auðmýktar en umfram allt mann-
legar, sem þrátt fyrir atvinnu-
leysi og ömurlegar aðstæður eru
fullar af lífsþrótti og von.
Sýningar annað kvöld
Stræti. Þjóðleikhúsið.
Coppelía. íslenski dansflokkur-
inn.
J.B. Lully.
Tónlistar-
innlifun!
J.B. Lully, eitt fremsta tónskáld
Frakka á sinni tíð, lést þennan
dag árið 1687. Hann var að stjóma
hljómsveit og í hita leiksins stakk
hann sig heiftarlega í fótinn meö
sprotanum og lést nokkrum dög-
um síðar eftir að illt hafði komið
í sárið.
Blessuð veröldin
Mál málanna
Færri en fjóröungur Indverja
geta talað Hindi sem þó er opin-
bert tungumál landsins.
Er það nú stríðshetja!
Napóleon var sjúklega hræddur
við ketti!
Svefnpurkur
Górillur sofa oft allt að 14 tíma
á dag.
Færð
ávegum
Flestir vegir em færir þó víða sé
snjór á vegum. Nokkrar leiðir vora
þó ófærar snemma í morgun. Það
Umferðin
vora meðal annars Steingrímsfjarð-
arheiði, Eyrarfjall, Mývatnsöræfi,
Möðradalsöræfi, Vopnafjarðarheiði,
Öxarfjarðarheiði, Mjóaíjarðarheiði,
Brattabrekka, Gjábjakkavegur, veg-
urinn milli Kollafjarðar og Flóka-
lundar, Dynjandisheiði, Hrafnseyr-
arheiði, Lágheiði og Fjarðarheiði.
Þungfært er sums staðar.
ísafjöröur
Stykkishólmur
Fteykjavík
[s] Hálka og snjórrn Þungfært
án fyristööu ^
rn Hálka og [^] ófært
— skafrenningur
Hofn
CC
Ófært
Al Pacino i Konuilmi.
Konuilmur
Sambíóin sýna nú Konuilm eða
Scent of a Woman sem tilnefnd
er til fjögurra óskarsverðlauna:
A1 Pacino sem besti leikari, Mart-
in Brest sem besti leikstjóri, Bo
Sólon íslandus í kvöld:
í kvöld verða afisérstæðir tón-
leikar á Sólon íslandus en þá munu
sönghóparnir Raddbandið og A-
capella fiytja tónlist án undirleiks.
Kapþkostað verður að hafa tón-
leikana sem allra líflegasta og alls
kyns tónlist verður flutt. Má til
dæmis nefna gospel og barbershop
en slík tónlist er oftast flutt marg-
rödduð og mjúkt Sönghópamir
munu líka,flytja íslensk þjóölög og
íslensk og erlend þjóðlög.
Raddbandið er kvartett sem
starfað hefur i fimm ár og komið
víða við á ferlinum. Hann syngur
létt dægurlög, gömul og ný, sem era
útsett fyrir fjórar raddir. Radd-
bandið skipa þeir Hafsteinn, Árni
Jón, Sigurður Grétar og Páll Ás-
geir.
Raddbandlð.
A cappella er kvintett frá Kefia-
vík sem syngur létt dægurlög en
leggur meira upp úr gospeltónlist
og þá sérstaklega negrasáimum.
Kvmtettinn skipa þeir Guðmund-
ur, Jann, Elfar, Þorsteinn og Davíö.
Kvenskassið og reiði Heru
Á kortinu má sjá stjömumerkið
Stórabjöm eins og menn gátu séð hann
fyrir sér. Fjölmargir bera kennsl á
Karlsvagninn sem sést á austurhimn-
inum klukkan tólf á miðnætti. Karls-
Stjömumar
vagninn er þó einungis hluti af stærra
stjörnumerki, Stórabimi.
Stóribjörn var reynar bima hjá
Grikkjum og í raun hin akkedíska
prinsessa Kallisto í bjarndýrsham.
Samkvæmt goðsögnum var hún ást-
kona Seifs og þegar Hera, eiginkona
og sysir Seifs, komst að ástarsam-
bandinu varpaði hún Kallisto upp á
stjömuhimininn í bjarndýrslíkinu.
Arabar töldu hins vegar að Karls-
vagninn væri líkkista og nefndu stjöm-
umar umhverfis hann grátkonumar.
Ystu stjömuna, Alkar, nefndu Arabar
hins vegar kvenskassið.
Sólarlag í Reykjavík: 19.53.
Sólarupprás á morgun: 7.18.
Síðdegisflóð í Reykjavík: 18.50.
Árdegisflóð á morgun: 6.37.
Lágfjara er 6-6 'A stundu eftir háflóð.
77/ Pólstjörnu
Karlsvagnirtn
Merak
STÓRIBJÖRN*
Pólstjarnan
LITLALJONIÐ
Stóríbjörn
Þau Gerður Ríkharðsdóttir
Óskar Öm Jónsson eignuðusl
ÍÍ!
frumburöinn, stúlkubam, þann 16.
mars. sl. kl. 23.08 nákvæmlega.
Barnið var 16 merkur og 53 sm og
heilsast vel og foreldramir eru
verulega stoltir.
Bíóíkvöld
Goldman fyrir besta handrit og
sjálf myndin sem mynd ársins.
Þá fékk myndin þrjú Golden
Globe verðlaun, meðal annars
sem besta mynd ársins.
í myndinni leikur A1 Pacino
blindan herforingja sem meðal
annars þjónaði Lyndon Johnson.
Hann er harður á yfirborðinu en
undir niðri er mannleg sál. Her-
foringinn ákveður að eyða helgi
í New York og fær með sér ungan
aðstoðarmann. Helgin verður
honum ógleymanleg.
Leikstjórinn, Martin Brest, hef-
ur leikstýrt fimm myndum en
þekktastar eru Beverly Hills Cop
og Midnight Run.
Nýjar myndir
Háskólabíó: Á bannsvæði
Laugarásbíó: Svala veröld
Stjörnubíó: Bragðarefir
Regnboginn: Nótt í New York
Bíóborgin: Elskan, ég stækkaði
barnið
Bíóhölhn: Konuilmur
Saga-bíó: Olía Lorenzos
Gengið
Gengisskráning nr. 56. - 23. mars 1993 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 64,500 64,640 65,300
Pund 95,589 95,796 93,826
Kan. dollar 51,714 51,826 52,022
Dönsk kr. 10,2666 10,2889 10,3098
Norsk kr. 9,2859 9,3061 9,2874
Sænsk kr. 8,3493 8,3674 8,3701
Fi. mark 10,8923 10,9160 10,9066
Fra. franki 11,5971 11,6222 11,6529
Belg. franki 1,9165 1,9207 1,9214
Sviss. franki 42,6813 42,7740 42,7608
Holl. gyllini 35,1355 35,2118 35,1803
Þýskt mark 39,4894 39,5751 39,5458
It. líra 0,04080 0,04089 0,04129
Aust. sch. 5,6075 5,6196 5,6218
Port. escudo 0,4252 0,4261 0,4317
Spá. peseti 0,5536 0,5548 0,5528
Jap. yen 0,55997 0,56118 0,55122
Irskt pund 95,866 96,074 96,174
SDR 89,6292 89,8237 89,7353
ECU 76,5067 76,6727 76,7308
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
Krossgátan
T~ z 3“ T~ Lo T~
8 1 * ,
10 1 " IZ
"1 '5 J£-
uT n
i$ 1 p
XI J pr
Lárétt: 1 húmar, 8 þjálfa, 9 grandi, 1Ö.
hrotta, 11 hvildi, 13 jórturdýr, 16 rölti, 18
aflát, 20 varðandi, 21 sonur, 22 gætni.
Lóðrétt: 1 aumingi, 2 ranga, 3 ílát, 4
manns, 5 spil, 6 til, 7 bók, 12 tómur, 14
fæðir, 151andræma, 17þjóta, 19tvihljóði.
Lausn á síöustu krossgátu.
Lárétt: 1 klöpp, 5 bæ, 7 vottur, 9 ok, 10
urðar, 11 sal, 12 ýtti, 14 æðin, 15 úti, 17
limið, 19 að, 20 aka, 21 nara.
Lóðrétt: 1 kvos, 2 lokaði, 3 ötuli, 4 puð,
5 brattar, 6 æðri, 8 trýnin, 13 túða, 14 -
æla, 16 iða, 18 MA.