Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1993, Síða 18
18
Uppboð á óskilamunum
Eftir beiðni lögreglustjórans í Reykjavík fer fram uppboð á ýmsum óskila-
munum, m.a. reiðhjólum, úrum, fatnaði o.fl., laugardaginn 8. maí nk. og
hefst það kl. 13.30 á athafnasvæði sýslumannsins í Reykjavík, að sunnan-
verðu við Skógarhlíð 6 (baka til), næg bílastæði fyrir ofan húsið.
Greiðsla við hamarshögg.
SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK
Félag járniðnaðarmanna
Umsókn um orlofshús
sumariö 1993
Umsóknarfrestur um orlofshús hjá Félagi járniönað-
armanna rennur út 7. maí nk.
Upplýsingar á skrifstofu félagsins í síma 91 -813011.
Stjórnin
Málmiðnaðarmenn
Munið útihátíðarhöldin 1. maí.
Tökum þátt í göngunni og útifundinum á Lækjar-
torgi.
Að loknum útifundinum er boðið upp á kaffiveiting-
ar að Suðurlandsbraut 30, 4. hæð.
Málmiðnaðarmenn
FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1993
Jeltsín forseti ávarpar rikisstjórnina i Kreml á fimmtudag og skorar á þingið að virða stjórnarstefnuna, „ella
er fólkinu beint að mæta“. Símamynd Reuter
Jeltsín lætur
sverfa til stáls
Úrslitahrinan er hafin í viður-
eign Borís Jeltsín, fyrsta þjóð-
kjöma þjóðhöfðingja í sögu Rúss-
lands, viö þingið sem hann tók í
arf frá valdaskeiði kommúnista-
flokksins. Forsetinn og menn hans
hafa ákveðið að sniðganga þing
þetta en efna til stjómlagaþings á
grundvehi héraða og sjálfstjómar-
svæða Rússlands til að setja land-
inu nýja stjómarskrá og efna til
kosningar nýs þings að því loknu.
Með þessu hyggst Jeltsín fylgja
eftir sigri sínum í þjóðaratkvæða-
greiðslunni á sunnudag. Þar var
lýst stuðningi við forsetann með
ríflega því atkvæðahlutfahi sem
hann fékk í forsetakosningunum
1991. Meira kom á óvart aö htlu
rýrari meirihluti lýsti samþykki
við efnahagsstefnu hans og stjóm-
ar hans, þrátt fyrir almenna kjara-
rýmun og þrengingar undanfarin
misseri.
Fomsta þingsins setti spuming-
una um afstöðu til efnahagsstefn-
unnar á atkvæðaseðilinn í því
skyni að reyna að virkja almenna
óánægju með ástandið gegn per-
sónulegum vinsældum Jeltsíns.
Niðurstaðan varð þveröfug, meiri-
hlutafylgi bæði við forsetann sjálf-
Góðgætifrá Góu...
Umboösmenn um land allt: A.G. Guömundsson sf., Húsavik • Asbyrgi hf. Akureyri • Asgeir Björnsson, Siglufirði • Guðrún sf„
Vopnafirði • Hafsteinn Vilhjélmsson, tsafirði • Reynir sf„ Blönduðsi • Sigbjöm Brynjúlfsson, Egilsstöðum • Svanberg hf„ Vest-
mannaeyjum • Umboðssala Rðsu Bachmann, Patreksfirði •
1 ni773 Frí
10 DIZ2d heim-
®með tveimur áleggstegundum i.„ nnn sending
S. 64-36-44
* PIZZUR ,'1 1 S. 77066
Eddufelli & Hamraborg
Opið til kl. 05 um helgar
LfTTH
Vinningstölur 00
miövikudaqinn: 28. apríl 1993)
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING
El 68,6 0 17.363.000
12.111 0 366.512
R1 5 af 6 8 35.996
Q 4af6 262 1.748
jra 3 af 6 C£+bónus 902 218
BÓNUSTÖLUR
Heildampphæó þessa viku
18.672.092
áísi: 1.309.092
UPPLVSINGAR, SlMSVARI 91- 68 15 11
LUKKULINA 99 10 00 - TEXTAVARP 451
BIRT MEO PVRIRVARA UM PRENTVILLUR
Erlend tíðindi
Magnús Torfi Oiafsson
an og stefnu hans. Þar að auki lýsti
meirihluti fylgi við nýjar þingkosn-
ingar þótt þátttaka nægöi ekki til
aö þau úrsht yrðu bindandi.
Ekki fer milli mála að megin-
markmið Rúslans Khasbúlatofs
þingforseta og nánustu samstarfs-
manna hans hefur verið að tor-
velda framkvæmd efnahagsstefnu
ríkisstjórnarinnar með öhu móti,
svo öngþveitið sem af shku hlýst
grafi sem mest undan henni. Eftir
þjóðaratkvæðið lagði Khasbúlatof
th að þingið setti á laggimar sína
eigin ríkisstjóm sem tæki völdin
af Jeltsín og stjóm hans.
Jeltsín svaraði í fyrradag, að
rússneska þjóðin hefði lýst yfir
fylgi við forseta sinn og stefnu
hans. Enginn hefði rétt til að ganga
í berhögg við þjóðarviljann eftir að
hann lægi fyrir. Umbótastefnan
yrði að fá fram aö ganga.
Forsetinn kvaðst hafa sent
stjórnum héraða og sjálfstjómar-
svæði Rússneska sambandslýð-
veldisins drög að nýrri stjómar-
skrá. Reynslan hefði sýnt að á
henni væri brýn þörf. Þar væri
kveðið á um skihn milli fram-
kvæmdavalds og löggjafarvalds,
Tnilli verksviðs alríkisstjórnar og
ríkishlutanna, og gert ráö fyrir
kjöri nýs þings í tveim deildum.
Leiðtogar landshlutanna em
kvaddir saman til fundar í Kreml
20. maí til að bera fram athuga-
semdir sínar við stjórnarskrár-
drögin. Ætlast er til að þeir skipi
hver tvo fuhtrúa sína til að afgreiða
stjórnarskrána, svo hún hggi fyrir
um mánaðamótin maí-júní.
Ýmsir fylgismenn Jeltsíns hafa
legið honum á hálsi fyrir að leysa
ekki upp þing Rússlands og efna tíl
nýrra kosninga eftir valdaránstil-
raunina í hittifyrra, þegar Sovét-
ríkin leystust upp. Hann kaus að
reyna að vinna með gamla þinginu,
sem að miklum hluta hafði staðið
með honum gegn valdaránsmönn-
um. En nú er ljóst að engar mála-
miðlanir við meirihluta þess halda,
og þá lætur Rússlandsforseti ten-
ingunum kastaö.
Hann snýr sér beint til stjórna
landshlutanna, sem hafa orðið aö
taka sér aukin völd og verksvið í
ríkjandi stjórnarfarsöngþveiti.
Fyrst eftir að Jeltsín ákvað að efna
til þjóðaratkvæðis tóku margar
landshlutastjórnir því þunglega, en
snerust síðan flestallar á sveif með
honum. Helstu undantekningamar
eru Tatarstan, sem leitar sjálfstæö-
is, og Tsétsenía hefur lýst yfir sjálf-
stæði.
Héraösstjómirnar og sérstaklega
stjómir sjálfstjómarlýðveldanna,
hafa frekar illan bifur á meirihluta
núverandi þings. Hann skipa
áhrifamenn úr gamla miðstýring-
arkerfinu, sem em gmnaðir um að
sækjast eftir að taka aftur upp ef
færi gefst gamla hætti, stjórn út um
alla afkima hins víðlenda ríkis með
valdboði frá Moskvu. Þjóðirnar,
sem ekki em af rússnesku bergi
brotnar, líta þar aö auki svo á að í
þessum hópi séu ríkjandi sjónarm-
ið rússneskrar heimsveldisstefnu.
Borís Jeltsín hefur í kjölfar sigurs
við kjörborðið markað stefnu sína
og sett tímamörk. Viðbrögð Rúsl-
ans Khasbúlatofs og manna hans
eru ókomin. Fyrir skömmu reyndu
þeir aö setja forsetann af, en upp-
skám svo ósigur í þjóðaratkvæði
þar sem þeir fengu sjálfir að móta
spumingamar.
Magnús T. Ólafsson