Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1993, Qupperneq 21
FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1993
Hrammur frá Akureyri stóö efstur eldri stóðhestanna. Hér sést hann i sýningu á Melgerðismelum. Matthías Eiðs-
son sýnir hestinn. DV-mynd EJ
íslands-fæddir
stóðhestar efstir
íSvíþjóð
21
YFIR 4000 LÁG VERÐ
Búsáhöld, skartgripir,
garðáhöld, leikföng,
gjafavara o.fl. o.fl.
Vönduð vörumerki
Verð kr. 190 án bgj.
Pöntunarsími 52866
BM b- magnússon hf.
Hólshrauni 2 - slml 52866 - Hafnarfirðl
Umboðsmenn um iand allt: A.G. Guðmundsson sf., Húsavik • Asbyrgi hf„ Akureyri
• Asgeir Björnsson, Siglufirði • Guðrún sf„ Vopnafirði • Hafsteinn Vilhjáimsson,
isafirði • Reynir sf„ Blönduósi • Sigbjöm Brynjólfsson, Egilsstöðum • Svanberg
hf„ Vestmannaeyjum • Umboðssala Rósu Bachmann, Patreksfirði •
Stóðhestar í Svíþjóð og Noregi
voru dæmdir nýlega. Sænskir hesta-
menn hafa ekki þurft að vaða élja-
gang í keng undanfarið eins og ís-
lenskir félagar þeirra því að 25 stiga
hiti var á meðan stóðhestamir voru
dæmdir í Grevegárden. 26 hestar
voru leiddir í dóm; 11 fulldæmdir en
15 folar byggingadæmdir.
Dómarar voru Jón Vilmundarson
frá íslandi, Þorvaldur Ámason frá
Svíþjóð, Ante Eklund frá Svíþjóð og
Bo Hansson frá Danmörku.
Hestar fæddir á íslandi röðuðu sér
í efstu sæti þeirra eldri.
Hrammur ffá Akureyri undan
Feyki frá Hafsteinsstöðum fékk 8,06
fyrir byggingu, 8,15 fyrir hæfileika
og 8,12 í aðaleinkunn.
Bjartur frá Egilsstöðum undan
Hrafni frá Holtsmúla fékk 7,65 fyrir
byggingu, 8,12 fyrir hæfileika og 7,93
í aðaleinkunn.
Landi frá Syðra-Skörðugili undan
Hervari frá Sauðárkróki fékk 7,78
fyrir hyggingu, 8,02 fyrir hæfileika
og 7,92 í aðaleinkunn.
Soldán frá Storhagen stóð efstur
stóðhesta fæddum í Sviþjóð og kepp-
ir á HM í Hollandi í ágúst. Hann er
klárhestur og fékk 8,03 fyrir bygg-
ingu, 7,82 fyrir hæfileika og 7,90 í
aðaleinkunn.
Ungir folar og efnilegir
Nokkrir ungir folar fæddir í Sví-
þjóð lofa góðu. Svíar hafa keypt
nokkra irýög góða íslenska stóðhesta
sem eiga eftir að gefa vel af sér næsta
áratuginn.
Flipi frá Österáker undan Hrafni
frá Holtsmúla fékk hæstu hyggingar-
einkunn folanna; 7,98 fyrir byggingu,
Ægir frá Olstorp undan Sval frá
Glæsibæ fékk 7,95 fyrir hyggingu,
Kolfaxi frá Skafsta undan Hrafnkatli
frá Sauðárkróki fékk 7,78 fyrir hygg-
ingu og Gassi frá Norrö undan Gjaf-
ari frá Reykjavík fékk 7,73 fyrir bygg-
ingu.
3ja ára og eldri dæmdir í
Noregi
í Noregi voru dæmdir 23 stóðhestar
3ja ára og eldri, flestir fæddir í Nor-
egi. Tveir þeirra fengu yfir 7,75 í aðal-
einkunn en níu yfir 7,50.
Dómarar vom Jón Finnur Hansson
frá íslandi, Jon Siiger Hansen frá
Danmörku og Reidar Johnsson frá
Noregi.
Ringo frá Ringervike stóð efstur
stóðhestanna. Hann er 5 vetra undan
Borgfjörð frá Sigmundarstöðum,
fékk 7,81 fyrir byggingu, 7,85 fyrir
hæfileika og 7,84 í aðaleinkunn.
Siggi frá Aase, fjögurra ára undan
Spæni frá Efri-brú fékk 7,55 fyrir
byggingu, 7,90 fyrir hæfileika og 7,76
í aðaleinkunn.
-EJ
Rúsínur Vi Kg.
Dökkar
Umboðsmenn um land allt: A.G. Guðmundsson sf„ Húsavik • Asbyrgi hf. Akureyri • Asgeir Björnsson, Siglufirði • Guðrún sf„
Vopnafirði • Hafsteinn Vilhjálmsson, Isafirði • Reynir sf„ Blönduósi • Sigbjöm Brynjólfsson, Egilsstöðum • Svanberg hf„ Vest-
mannaeyjum • Umboðssala Rósu Bachmann, Patreksfirði •
Yámið nýtist öllum þeim sem vilja skapa:
atvinnutækifæri og víkka starfssvið sitt.
ókólinn hefst 14. júm og stendur yfir í þrjá mánuði,
alls 72 kennslustundir.
X'tímsefnið felst bæði í verklegri og bóklegri kennslu
allra grunnatriða dáleiðslutæknimiar.
Kennslan
(lím kennsluna sér Friðrik Páll Ágústsson
RPH., C.Ht., sem getið hefur sér gott orð
undanfarin ár fyrir brautryðjendastarf á
sviði dáleiðslu jafnt innanlands sem utan.
Skráning
c5kráning hefst 3. maí,
CJ
S krifstofa skólans er opin alla virka daga kl. 16.00-18.00.
DÁiEIÐSLUSKÓiI ÍSLANDS
Vesturgata 16 • 101 Reykjavík • ® 91 - 625717 • Fax 91- 626103
Viðurkenndur af International Medical and Dental Hj’pnotherapy Association