Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1993, Side 27
FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1993 •
27
stúlknanna í fyrra. Hún tók viö starf-
inu af Gróu Asgeirsdóttur sem hafði
gegnt því um nokkurra ára skeið.
Esther hefur starfaö lengi með Mód-
elsamtökunum, bæöi sem sýningar-
stúlka og kennari. „Ég sé um skipu-
lagningu keppninnar, bæði aðal-
keppninnar og fegurðarsamkeppni
Reykjavíkur en einnig hef ég yfirum-
sjón með keppninni úti á landsbyggð-
inni,“ segir hún.
María Rún fjarri góðu
gamni
Esther segir að hún hafi ekkert
hikað við að taka þetta starf að sér
þegar henni bauðst það. „Ég hef mjög
gaman af skipulagsvinnu og sam-
starfinu við stúlkumar. Þetta er fullt
starf í tvo mánuöi á ári en það er
alitaf einhver vinna allt árið. Eg fylgi
stúlkunum eftir og kem þeim í
keppni erlendis. Einnig sé ég um allt
samstarf við þá aðila sem halda hin-
ar ýmsu fegurðarsamkeppnir í heim-
inum,“ segir Esther. Þess má geta að
María Rún Hafliðadóttir, fegurðar-
drottning íslands 1992, er nú stödd
erlendis þar sem hún tekur þátt í
keppninni Miss Universe. Hún getur
því ekki krýnt arftaka sinn í kvöld.
Þess í staö mun Heiðrún Anna
Björnsdóttir, sem varð í öðru sæti í
fyrra, krýna hina nýkjörnu fegurð-
ardrottningu. Heiðrún Anna vann
einmitt keppnina Miss Young Inter-
national sl. haust.
Esther segir að starfið geti verið
mjög erfitt. „Ég er stundum í móður-
hlutverkinu þó ég sé ekki mikið eldri
en stúlkumar sjálfar," segir hún.
„Auk þess er maður í vinnunni lang-
mestan hluta sólarhringsins þessa
síðustu daga. Það em mjög margir
styrktaraöilar sem koma nálægt
keppninni og margir sem gefa stúlk-
unum gjafir. Mikill tími fer í að safna
gjöfunum saman og gera alla þessa
aöila ánægða. Það er líklegast erfið-
asti hluti starfsins."
Dómnefndin hefur
fylgst með í mánuð
Dómnefnd Fegurðarsamkeppni ís-
lands á erfitt verk fyrir höndum í
kvöld er hún kynnir hverjar hinar
fimm útvöldu stúlkur em. Dóm-
nefndin hefur starfaö með stúlkun-
um allan mánuðinn og fylgt þeim
eftir á æfingum. Hanaskipa að þessu
sinni: Ólafur Laufdal, sem er formað-
ur nefndarinnar, Sigtryggur Sig-
tryggsson, Kristjana Geirsdóttir,
Rúnar Júlíusson, Bryndís Ólafsdótt-
ir, Gróa Ásgeirsdóttir og Ari Singh.
Stúlkumar hafa æft öll kvöld vik-
unnar að koma fram á sundbol en
þaö er eitt erfiðasta verk margra
þeirra. Þá em sumar hverjar að stíga
á háhælaða skó í fyrsta skipti. Allar
hafa þær lagt mikið upp úr síðkjólum
sem þær munu vera í við krýning-
una.
Það var ekki laust við að kvíða
væri farið að gæta meðal stúlknanna
þegar blaðamaður leit inn á æfingu
eitt kvöldið í vikunni enda styttist í
hið spennandi augnablik. Esther seg-
ist ekki hafa fundið út sigurvegara
úr þessum hópi enda séu margar hk-
legar til sigurs. „Þetta er mjög jafn
og góður hópur,“ segir hún.
Leitað í grísku goða-
fræðinni
Mikill áhugi virðist vera á fegurð-
arsamkeppninni að þessu sinni og
þeir em margir sem ætla aö fylgjast
með í kvöld. „Við ætlum að gera þetta
á svolítið grískan hátt, jafnt í matar-
gerðinni sem í sviðsmynd, og leitum
að hugmyndum í goðafræðinni enda
em grísku guðirnir tákn um fegurö-
ina,“ segir Esther.
Gestir fegurðarsamkeppninnar fá í
forrétt sjávargull Póseidons, Ástríð-
usorbett kemur síðan á undan
lambahryggvöðva að hætta Díonýs-
osar í perlulauksósu og í eftirrétt er
ostaterta Afródítu.
Drengir úr fimleikafélaginu Ár-
manni eiga stóran þátt í kvöldinu en
þeir koma fram í dansinum Tilbrigði
við fegurð og einnig munu þeir leiða
fegurðardísirnar fram á sviðið. Þá
mun Sigrún Hjálmtýsdóttir syngja
nokkur lög og ungt par frá dansskóla
Hermanns Ragnars sýnir suður-
ameríska dansa. Rúsínan í pylsuend-
anum er tískusýning þar sem fegurð-
ardrottningar undanfarinna tíu ára
munu sýna fatnað. Kynnir kvöldsins
er Sigursteinn Másson.
Gjafir fyrir milljón
Valdar verða fimm stúlkur í úrslit
en auk þess verður í fyrsta skipti
vahn sú stúlka sem hefur fallegustu
fótleggina. Hún mun fá auglýsinga-
samning við sokkabuxnainnflytj-
anda. Einnig verður vahn besta ljós-
myndafyrirsætan og stúlkumar
velja sjálfar vinsælustu stúlkuna úr
sínum hópi. Stöð 2 verður með beina
útsendingu frá krýningunni sem
verður um miðnætti. Loks má geta
þess að fegurðardrottning íslands
fær margt fagurra gripa og má þar
nefna loðfeld, Majorica perluskart-
gripasett aö verömæti eitt hundrað
þúsund krónur, samkvæmiskjól frá
Maríu Lovisu, Dragt frá CM verslun-
inni, úrval hársnyrtivara frá Weha,
skó frá Skæði, Reymond Wehl úr,
Delsey ferðatöskusett frá Pennanum,
undirfatasett og sundbol frá verslun-
inni Konný og Oroblu sokkabuxur
út árið auk ýmiss konar boða á
snyrtistofum. -ELA
Dómnefndin á ekki auðvelt starf framundan að velja á milli allra þessara
glæsilegu stúlkna. Hún hefur fylgst með stúlkunum undanfarið á æfingum.
Ný og endurbætt formúla. 25% öflugri en sú fyrri. Bio-
spot-brúsanum fylgir úðadæla sem nota má aftur og aft-
ur. Áfyllingartutfnn er 30% ódýrari en brúsi með dælu
svo það ersjálfsájtað nota sömu dæluna mörgum sinnum.
Umboðsmenn um land allt: Á.G. Guðmundsson sf., Húsavik • Ásbyrgi hf., Akureyri • Asgeir Bjömsson, Siglufirði • Guðrún sf.,
Vopnafirði • Hafsteinn Vilhjálmsson, isafirði • Reynir sf., Blönduðsi • Sigbjörn Brynjólfsson, Egilsstöðum • Svanberg hf., Vest-
mannaeyjum • Umboðssala Rósu Bachmann, Patreksfirði •
3 Góðir saman
nmtilegs símaleiks sem hefst kl. 12 á
og lýkur kl. 12 á hádegi 7. maí. Þar átt þú
l að vinna fjögurra daga ferð fyrir tvo í
n/iriTI
1. Hringdu í síma 99 1993.
2. Þar velurðu 1 til að heyra upplýsingar um
DV, 2 til að heyra upplýsingar um Danska
vorið og 3 til að taka þátt í leiknum.
3. Þú heyrir þijár spurningar, sem tengjast
Danmörku, og við hverri þeirra eru gefnir þrír
svarmöguleikar. Spurningunum svarar þú með
því að ýta á 1, 2 eða 3 á símanum.
4. Svarir þú þremur spurningunum rétt lest þú
inn nafn, heimilisfang og símanúmer.
Nöfn þeirra sem svara spurningunum rétt
fara í sérstakan pott og í hverri viku er
dregið út nafn eins gáfumanns sem hlýtur
Danmerkurreisu fyrir tvo í verðlaun. Nafn
vinningshafa hverrar viku er birt í
Ferðablaði DV á mánudögum..
Verð aðeins 39,90 kr. mínútan.
Góða skemmtun!