Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1993, Síða 40
56
FÖSTUDAGUR 30. APRÍL1993
Ríkisstjómin er tveggja ára í dag:
Hrunadans
í skugga
kreppu
og ósættis
í dag eru tvö ár liðin frá þvi ríkis-
stjórn Davíðs Oddsonar tók við
völdum. Aðdragandinn var stuttur
og kom fyrrum samstarfsflokkum
Alþýðuflokksins í ríkisstjóm Stein-
gríms Hermannssonar á óvart.
'Stjórnarmyndunarviðræðumar
voru aðaUega í höndum Jóns Bald-
vins Hannibalssonar og Davíðs.
í Viðey handsöluðu formennimir
með sér heiðursmannasamkomulag
sem fyrirbyggja átti sundurlyndi og
ósætti í stjórnarsamstarfinu. Raun-
in hefur hins vegar orðið önnur.
Rikisstjórnarsamstarfið hefur verið
sem einn samfelldur hrunadans í
skugga efnahagslegrar kreppu og
ósættis milli stjórnarliða.
Stjórn með
harðan svip
Þegar við myndun stjórnarinnar
lýsti Karl Steinar Guðnason því yfir
að stjórnin hefði á sér harðan svip.
, Átök vom um ráðherrastólana og
var haft eftir Karh Steinari að ólýð-
ræðislega hefði verið staðið að ráð-
herravah. Mikil átök urðu í Sjálf-
stæðisflokknum viö val á ráðherr-
um, einkum milli Davíðs og Þor-
steins Pálssonar, fyirum formanns
flokksins. Lyktir urðu þær að Þor-
steinn fékk tvo nána samstarfs-
menn með sér inn í ríkisstjómina,
þá Hahdór Blöndai og Ólaf G. Ein-
arsson.
Jón Baldvin réttlæti stjómar-
myndunina með því að ekki væri
hægt að tryggja nauðsynlega við-
reisn efnahagslífsins í samstarfi við
Alþýðubándalag og Framsóknar-
flokk. í því sambandi visaði hann
meðal annars th EES-málsins og
nauðsypj ar þess að móta framtíðar-
stefnu á sviði sjávarútvegs- og land-
búnaðarmála.
Kvótaleigan söltuð
Þegar í upphafi stjómarsam-
starfsins varð ljóst að kratar gætu
ekki vænst þess að ríkisstjómin
samþykktifiskveiðagjald. Þorsteinn
setti það sem skhyrði fyrir ríkis-
stjómarþátttöku að við því máh yrði
ekki hreyft. Lýsti hann því yfir í
DV að kvótaleigu myndu kratar
aldrei fá framgengt. Öh endurskoð-
un löggj afarinnar hefur borið þess
merki að ágreiningur er um fisk-
veiöistefnuna. Tvíhöfðanefndin er
skýrt dæmi þar um en innan hennar
náðist ekki einu sinni samstaða um
formann.
Innan ríkisstjómarinnar hefur
einnig verið tekist á um landbúnað-
armál, einkum á milli Hahdórs
Blöndals og krata. í upphafi stjóm-
arsamstarfsins lýsti Hahdór því yfir
að hann þekkti ekki landbúnaðar-
stefnu krata. í tengslum við endan-
lega gerð nýs búvörusamnings varð
ágreiningurinn svo harkalegur að
Hahdór orðaði afsögn. Ekkert varð
þó af því og síðastiiðið haust tók
ghdi búvörusamningur sem kosta
mun skattgreiðendur á fjórða tug
mihjarða.
EES reynir á þolrifin
Mikið hefur reynt á ríkisstjómina
í EES-málinu og sér ekki enn fyrir
endann á því. Um tíma virtist Jón
Baldvin missa trúna á samninga-
gerðina. „Orðið bjartsýni er ekki til
í mínum huga,“ sagði hann í júh
1991. Samkomulag náðist þó mhh
EB og EFTA en um niðurstöðuna
varð bullandi ágreiningur á Al-
þingi.
Ljóst varð síðastliðið sumar að
nokkrir af þingmönnum Sjálfstæð-
isflokks væru með efasemdir um
EES-samninginn og vhdu vísa hon-
um í þjóðaratkvæðagreiðslu. Veru-
legs taugatitrings varð vart í kjölfar-
ið sem endaði með því að Eyjóífi
Konráð Jónssyni var bolað út úr
utanríkismálanefnd. í sæti hans
settist Björn Bjarnason. Efir málþóf
hlaut EES-samningurinn staðfest-
ingu Alþingis og með semingi undir-
ritaði síðan forseti íslands hann.
Naprirvindar
í kreppunni
Á sviði efnahagsmála hafa leikið
naprir vindar sem kahað hafa fram
hroll, hjá jafnt ráðherrum sem öðr-
um landsmönnum. Aflasamdráttur,
lækkandi verð sjávarafuröa og ár-
angurslausar tilraunir Jóns Sig-
urðssonar til reisa álver hér á landi
hafa ekki dregið úr kreppunni. Fyr-
ir vikið hefur atvinnuleysið orðiö
meira en elstu menn muna. Enn-
fremur hafa einkavæðingaráform
stjómarinnar ekki tekist sem
skyldi.
Til að mæta vandanum hefur rík-
isstjómin, með Friðrik Sophusson í
broddi fylkingar, hækkað álögur á
almenning og skorið niður útgjöld
til velferðarmála. Með aðgerðum
sínum hefur íjármálaráðherrann í
tvígang sett íslandsmet í skattlagn-
ingu án þess þó að ráða við fjárlaga-
hallann.
Sighvatur Björgvinsson og Ólafur
G. Einarsson hafa dygghega stutt
við bakið á Friðrik og hefur mörgum
þótt nóg um. Jóhanna Sigurðardótt-
ir hefur hins vegar reynt að halda
í sinn hlut, jafnvel orðað að víkja
úr stjórninni fengi hún ekki sitt
fram. Enn beinast mörg spjót gegn
stjóminni á sviði efnahagsmálanna,
til dæmis af hálfu aðha vinnumark-
aðarins, og því óvissa um lífdaga
hennar. Á móti kemur aö kratar
mega ekki th þess hugsa að ganga
th kosninga vegna fylgishruns í
skoðanakönnunum.
Fáirhveiti-
brauðsdagar
í skoðanakönnunum hefur ítrekað
komið fram að ríkisstjóm Davíðs
Oddssonar á ekki miklum vinsæld-
um að fagna. Ýmislegt fleira en
óvinsælar efnahagsaðgerðir hefur
orðið th þess að draga úr vinsældun-
um. Nægir í því sambandi að nefna
Bermúdaskál Davíðs, björgunar-
ráðstafanir vegna Landsbankans,
Hrafnsmálið og harkalega ásýnd.
Þó hveitibrauðsdagar ríkisstjóm-
arinnar hafi reynst fáir og erfiðir
er þó ekki þar með sagt að th póli-
tískra hjúskaparshta komi á stjóm-
arheimhinu. Kunn era dæmi um
stormasöm hjónabönd sem endast,
öhumthblessunaroggæfu. -kaa
10 júlí 1991 Í|
Ríkisstjómin boðar auknar kröfiir til atvinnullfsins
Peningarnir eru búnir
og sjóðirnir galtómir
- ausum ekki almannafé glórulaust
| til atvinnulifsins, segir Davið Qddsson
13! júif 1991 M
Heilbrigðisráðherra
falið að spara hátt í fjóra milljarða
Fólk krafið um greiöslu
yfir búðarborðið
- segir ótækt að ríkisreka landbúnaðinn
og vill brjóta upp búvörusamninginn
29. júlí 1991
II
Djúpstæður og harkalegur ágreiningur
í ríkisstjórninni um sjávarútvegsstefnu:
Yfirlýsingar Þorsteins
eru böl stjórnarinnar
- segir Jón Baldvin - fæ ekkert nema
skítkast frá krötum, segir Þorsteinn Pálsson
13. janúar 1993
■, m '} Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, vill ríkisráðsfund í dag
Alger óvissa um hvort
_____1
II
4. október 1991
Fjárlagafrumvarpið fyrir árið 1992
Skattbyrði landsmanna
aldrei verið jafnmikil
- Friðrik Sophusson slær út fyrri íslandsmet
Ólafs Ragnars Grímssonar sem „skattmanns“
forseti staðfestir EES
- órói innan ríkisstjómarinnar vegna málsins
||
17. mars 1993
Heildaraðstoð ríkis og Seðlabanka
við Landsbankann nemur 4,2 milljörðum
Bankaeftirlitiö undrandi
á skelfingu stjórnvalda
- verða ráðnir tilsjónarmenn í Landsbankann?
3. febrúar 1992 ||
Skoðanakönnun DV um fylgi
ríkisstjómarinnar og stjómmálaflokkanna:
Fylgi við ríkisstjórnina
aldrei verið jafnlítið
- Alþýðubandalagið ennísókn_
12. maí 1992
Eldhúsdagsumræður á Alþingi í gærkvöldi
Félagsmálaráðherra ef-
ast um stjórnarstefnuna
- Svavar Gestsson segir Jóhönnu eiga
samheija í stjómarandstöðu vilji hún aöra stjóm
mttBt
Stjómarandstaðan gagnrýnir ráðningu Hrafhs Gunnlaugssonar
Hlegið, klappað og
, púað á þingpöllum
Halldór Blöndal segir þingflokksformann krata mæla ómagaorð
Markmið ríkisstjómarinnar að hallinn
á fiárlagafimmvarpi næsta árs verði innan við 9,5 milljarðar
Hyggst leggja niður og
sameina stofnanir
-dregið verði úr lánsfjárþörf með
_______sérstöku ábyrgðargjaldi á húsbréf
jznu