Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1993, Blaðsíða 38
50
MÁNUDAGUR 3. MAÍ 1993
Fólk í fréttum
Eyjólfur Sveinsson
Eyjólfur Sveinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÓ Rekstrarráð-
gjafar hf„ hefur verið ráðinn aðstoð-
armaður forsætisráðherra.
Starfsferill
Eyjólfur fæddist í Reykjavík 4.1.
1964. Hann lauk stúdentsprófi frá
VI1983, stundaði nám í vélaverk-
fræði við HÍ og verkfræðinám við
Columbia-háskóla í New York, lauk
þaðan B.Sc.-prófi og síðar M.Sc.-
prófi í iðnaöar- og rekstrarverk-
fræði og hlaut verðlaun fyrir fram-
úrskarandi námsárangur.
Eyjólfur starfaði á námsárunum
hjá Eimskip og var blaðamaður á
DV, stundaði sjálfstæð ráðgjafar-
störf með námi 1988-90, var ráðgjafi
og meðeigandi Quality Management
Enterprise í Bandaríkjunum
1990-93 sem annast stjórnunarráö-
gjöf fyrir alþjóðleg stórfyrirtæki,
hefur verið rekstrarráðgjafi hjá ís-
landsbanka undanfarin ár, stofnaði
VSÓ Rekstarráðgjöf hf. ásamt Verk-
fræðistofu Stefáns Ólafssonar hf. og
hefur verið framkvæmdastjóri þar
frá upphafi en fyrirtækið annast
alhliöa rekstrarráðgjöf.
Eyjólfur var formaður Málfunda-
félags VÍ1980-81, forseti Nemenda-
félags VÍ1982-83, sat í háskólaráði
1985-87, í vísindanefnd háskólaráðs
og í stjórn Rannsóknarsjóðs HÍ
1985- 88, í stjóm Félagsstofnunar
stúdenta 1986-87, í stjóm Háskóla-
bókasafns 1987-88, var varaformaö-
ur Vöku, 1985-86, og formaður
Vöku, 1986-87, formaöur ogfram-
kvæmdastjóri Stúdentaráðs HÍ
1986- 87, og er virkur félagi í ýmsum
alþjóðlegum samtökum á sviði
stjórnunar, rekstrar og stjórnmála,
auk þess sem hann hefur gegnt
trúnaðarstörfum á þeim vettvangi.
Þá hefur hann setið í stjórnum
nokkurra íslenskra og erlendra fyr-
irtækja.
Fjölskylda
Systkini Eyjólfs eru Hrafnhildur,
f. 18.10.1958, tölvufræðingur, sem
er að ljúka M.Sc.-prófi í rekstrar-
hagfræði í Ósló; Hlédís, f. 2.5.1965,
er að ljúka M.A.-prófi í arkitektúr í
Los Angeles; Sveinn Friðrik, f. 31.10.
1974, verslunarskólanemi; Halldór
Vésteinn, f. 28.8.1978, nemi.
Foreldrar Eyjólfs eru Sveinn R.
Eyjólfsson, f. 4.5.1938, stjómarfor-
maður og útgáfustjóri DV, og kona
hans, Auður Eydal, f. 31.1.1938, leik-
listargagnrýnandi og forstöðumað-
ur Kvikmyndaeftirlits ríkisins.
Ætt
Sveinn er sonur Eyjólfs, verslun-
armanns í Reykjavík, Sveinssonar,
járn- og trésmiðs í Hafnarfirði, Sig-
urðssonar. Móðir Eyjólfs var Sigríð-
ur Eyjólfsdóttir, b. í Móakoti í
Garðahverfi, Eyjólfssonar, b. í Móa-
koti, Hinrikssonar, b. í Seli í Gríms-
nesi, Ólafssonar, bróður Bjarna,
langafa Jóhannesar, afa Guðmund-
ar Einarssonar verkfræðings. Móöir
Eyjólfs yngri í Móakoti var Þórey
Eyjólfsdóttir, b. á Þóroddsstöðum í
Grímsnesi, Narfasonar.
Móðir Sveins stjómarformanns er
Kristín Bjamadóttir, sjómanns í
Reykjavík, Bjarnasonar, b. á Björg-
um á Skagaströnd, bróður Önnu,
móður Guðmundar J. Hlíðdals, póst-
ogsímamálastjóra.
Auður er dóttir dr. Ástvalds Ey-
dal, prófessors í San Francisco,
Kristinssonar, b. á Steinsstöðum,
Tómasson, b. í Stóragerði, Guð-
mundssonar. Móðir Ástvalds var
Sigríður Jóna Óladóttir Þorbjarnar,
b. á Selá á Skaga, Sveinssonar.
Móðir Auðar er Fríða, systir
Steinunnar, móður Friðjóns Þórð-
arsonar sýslumanns, föður Þórðar,
forstjóra Þjóðhagsstofnunar. Bróöir
Steinunnar var Þórhallur, faðir Ól-
afs Gauks. Fríða er dóttir Þorgils,
oddvita í Knarrarhöfn, Friðriksson-
ar, b. á Ormsstöðum, Þorgilssonar.
Móðir Þorgils var Helga Jónsdóttir,
snikkara á Hrauni, Þórðarsonar,
prests í Hvammi í Norðurárdal, Þor-
steinssonar.
Móðir Fríðu var Halldóra Sig-
mundsdóttir, b. á Skarfsstöðum,
Grímssonar, systir Jóns, gullsmiðs
í Reykjavík. Móðir Sigmundar var
Ingibjörg Ormsdóttir, ættföður
Ormsættariimar, Sigurðssonar.
Móðir Halldóru var Steinunn Jóns-
dóttir, b. á Breiðabólsstað á Fells-
strönd, Jónssonar, föður Þórðar á
Breiðabólsstað, langafa Gests, fóður
Svavars alþingismanns. Jón á
Breiðabólsstað er faðir Katrínar,
langömmu Jóhannesar Gunnars-
sonar, formanns Neytendasamtak-
anna.
Afmæli
Ásgeir Sigurðsson
Ásgeir Sigurðsson, Islandsmeistari
í rallakstri, Austurtúni 9, Álftanesi,
erfertugurídag.
Starfsferill
Ásgeir er fæddur að Reyðará í
Lóni í Austur-Skaftafellssýslu. Þar
bjó hann til tíu ára aldurs en flutti
þá meö foreldrum sínum til Hafnar
í Homafirði. Árið 1975 flutti Ásgeir
í Kópavoginn og ári síðar festi hann
ráð sitt. Arið 1983 fluttu þau hjónin
svo að Austurtúni 9 á Álftanesi og
þarbúa þauenn.
Ásgeir var við gagnfræðanám í
Héraðsskólanum á Laugarvatni og
í Hagaskólanum en fór síðan í nám
að Bifröst og lauk prófi þaðan 1975.
Hann hefur starfað í tjónadeild bif-
reiða hjá Tryggingu hf. frá 1976.
Árið 1978 hóf Ásgeir rallakstur og
síðastliðin þrjú ár hefur hann sigrað
tíu sinnum í rallkeppni. Hann er nú
íslandsmeistari annaö árið í röð
ásamt Braga Guðmundssyni.
Fjölskylda
Ásgeir kvæntist 29.11.1975 Þor-
gerði Gunnarsdóttur, f. 7.6.1955,
geðhjúkrunarfræðingi. Foreldrar
hennar em Gunnar Árnason fram-
kvæmdastjóri og Stefania Stefáns-
dóttir húsmóðir. Þau búa í Kópa-
vogi.
Börn Ásgeirs og Þorgerðar em:
Gunnar Jörvi, f. 7.5.1977, nemi; Atli
Þór, f. 15.1.1985; og Ásta Rún, f. 28.9.
1988.
Systkini Ásgeirs eru þrjú: Gunn-
laugur, f. 12.12.1954, kennari,
kvæntur Gunni Ágústsdóttur
fóstm, búsettur á Höfn í Hornafiröi;
Anna Dóra, f. 1.7.1960, félagsfull-
trúi, búsett í Reykjavík; og Þrándur,
f. 21.7.1968, íþróttakennari í Hafnar-
firði, búsettur í Reykjavík.
Foreldrar Ásgeirs eru Sigurður
Geirsson, f. 5.2.1924, húsvörður í
íþróttamiðstöðinni á Höfn, og Ásta
Guðlaugsdóttir, f. 24.11.1928, hús-
móðir og húsvörður á Höfn.
Ætt
Ásta er dóttir Guölaugs, b. í Virk-
ishólaseli í Álftafirði, Sigurðssonar.
Móðir Ástu var Guðrún frá Holta-
| hólum í Mýrahreppi, f. 1888, Einars-
dóttir, en þau voru bræðrabörn, hún
og Guðbrandur Magnússon, fyrsti
ritstjóri Tímans og forstjóri ÁTVR.
Ásta á þijá bræður: Snorra, f. 1924,
Óskar, f. 1925, og Gunnar, f. 1927.
Faðir Ásgeirs er Sigurður, fyrrv.
b. á Reyðará, f. 1924, bróðir Þor-
steins, f. 1926, sem nú býr á Reyð-
ará, og Baldurs, forstjóra Kórals í
Reykjavík. Systir þeirra bræðra er
Aðalheiður, f. 1923, kona Sigurðar
Hjartarsonar, frkvst. Sambands
austfirskra sveitarfélaga.
Faöir þeirra systkina og afi Ás-
geirs var Geir, b. á Reyðará, f. 1898,
d. 1974, en hann var sonur þeirra
merkishjóna, Sigurðar á Reyðará,
f. 1868, d. 1917, og Önnu Hlöðvers-
dóttur kennara, f. 1876, d. 1953. Geir
var elstur sex sona þeirra hjóna en
hinir em Stefán, skólastjóri í Reyk-
holti í Biskupstungum, f. 1901, Ás-
mundur, kennari og alþingismaður,
f. 1903, Hlöðver, skólastjóri á Siglu-
firði, f. 1906, d. 1982, Þórhallur smið-
ur, f. 1907, d. 1933, og Hróðmar,
kennari í Austur-Skaftafellssýslu og
Ámundi Jóhannsson
Ámundi Jóhannsson tæknifræöing-
ur, Drekavogi 12, Reykjavík, er sjö-
tiu og fimm ára í dag.
Starfsferill
Ámundi fæddist að Iðu í Biskups-
tungum og ólst þar upp í foreldra-
húsum. Hann fór fyrst til sjós
fimmtán ára og var síðan þijár ver-
tíðir í Vestmannaeyjum og eina ver-
tíðátogara.
Ámundi var í íþróttaskólanum í
Haukadal árin 1935 og 1936 fram að
vertíð en sumrin 1939 og 1940 var
hann á síld fyrir Noröurlandi. Þá
var hann í eldri deild Alþýðuskólans
á Laugarvatni veturinn 1941—42.
Ámundi lauk sveinsprófi í plötu-
og ketilsmíði frá Iðnskólanum í
Reykjavík 1945 og vann við þá iðn í
Stálsmiðjunni í Reykjavík næsta ár.
Hann fór síðan til Svíþjóðar í fram-
haldsnám 1946 og lauk þaöan prófi
í véltæknifræði frá Tekniska Insti-
tutet í Stokkhólmi 1948.
Ámundi vann svo við ýmis vél-
fræði- og vélsmíðastörf næstu fimm
árin, m.a. við hönnun Síldarverk-
smiðjunnar í Örfirisey í Reykjavík
og eitt ár sem verkstjóri á renni-
verkstæði Vélsmiðjunnar Keihs í
Reykjavík.
Ámundi fékk meistarabréf í plötu-
og ketilsmíði 1953 en vann á teikni-
stofu hjá Vélsmiðjunni Héðni í
Reykjavík frá 1953-56. Árið 1956
réðst hann til Fálkans hf. í Reykja-
vík og hefur starfað þar síðan sem
tæknifræðingur Véladeildar.
Fjölskylda
Kona Ámunda var Kristjana, f.
17.11.1917, d. 17.5.1979, dóttir Önnu
Eggertsdóttur og Sigmunds Sigurðs-
sonar, læknis í Laugarási. Anna var
dóttir Eggerts Jochumssonar, bróð-
ur Matthíasar skálds.
Ámundi og Kristjana eiga fjögur
böm. Þau eru: Anna María, f. 17.6.
1944, húsmóðir í Reykjavík, gift
Birgi Sumarliðasyni fíugmanni, en
þaueigaþijúböm; Jóhann.f. 11.4.
1946, tæknifræðingur, sem starfar
við borpallasmíði í Noregi, kvæntur
Auöi Elísdóttur húsmóður, en þau
eiga tvö böm; Steinunn, f. 16.5.1950,
húsmóðir, gift Sveini Árnasyni, b. á
Víðimel í Skagafirði, en þau eiga
fjóra syni; og Sigmundur, f. 7.4.1956,
tölvufræðingur Kaupfélags Skag-
firðinga á Sauðárkróki, kvæntur
Björgu Brynhildi Jónsdóttur, en
þau eiga þijá syni. Ámundi á nú tvö
bamabarnabörn.
Systkini Ámunda eru: Ingólfur, b.
á Iðu; Gunnar, húsasmiður í Kefla-
vík; Sigurlaug, húsmóðir í Reykja-
vik, móöir Jóhanns Hjartarsonar
stórmeistara; og Unnur, húsmóðir á
Reykjum á Skeiöum.
Foreldrar Ámunda: Jóhann Krist-
inn Guðmundsson, b. í Iðu, og kona
hans Bríet Þórólfsdóttir.
Ætt
Faðir Jóhanns var Guðmundur,
b. á Sandlæk, Ámundason, b. á
Sandlæk, forfoöur Sandlækjarætt-
arinnar, Guðmundssonar. Móðir
Ámunda var Guðrún, dóttir
Ámunda, smiðs og málara í Syöra-
Langholti og vefara hjá Innrétting-
unumíReykjavík.
Móðir Jóhanns var Guðrún, dóttir
Ásgeir Sigurðsson
Hveragerði, f. 1912, d. 1957.
Móðir Önnu var Elín, dóttir Ein-
ars Hjörleifssonar, prests í Valla-
nesi, og þar með foðursystir Einars
Kvaran skálds. Séra Einar í Vallar-
nesi og Þóra, kona hans, voru
bræðraböm þeirra Hjörleifs prests
og Jóns vefara en frá foður þeirra
bræðra, Þorsteini, presti á Krossi,
er kominn fiöldi merkra manna af
Austurlandi. Má þar t.d. nefna
Kristján Eldjám forseta, Hjörleif
Guttormsson og Ragnar Halldórs-
soníálverinu.
Ásgeir dvelur nú ásamt eiginkonu
sinni á The Clifton-Ford hótelinu í
London. Faxnúmeriö þar er
014867492 og síminn er 014866600.
Ámundi Jóhannsson.
Bjarna, b. í Tungufelli, Jónssonar
og Katrínar Jónsdóttur, systur
Þóru, langömmu Sigríðar, móður
Friðriks ólafssonar.
Bríet var dóttir Þórólfs, b. í Gerð-
is-koti í Flóa, Jónssonar, b. á Kjal-
vararstöðum í Reykholtsdal, Krist-
jánssonar, en kona Jóns var Kristín,
dóttir Einars, b. í Kalmanstungu,
Þórólfssonar, langafa Ingibjargar,
móður Þorsteins O. Stephensen, og
langafa tónskáldanna Sigvalda
Kaldalóns og Bjama Þorsteinsson-
ar.
Ámundi verður að heiman á af-
mælisdaginn.
hamingju
með afmælið
3. maí
i ara
Guðný Th. Guðnadóttir,
Amtmannsstíg 4a, Reykjavík.
Ingibjörg Einarsdóttir,
Hrafnistu við Kleppsveg, Reykjavik.
80 ára
Guðmundur Sigmarsson,
Ólafsbraut 62, Ölafsvik.
75 ára
Siguröur Sigurðsson,
Stóra-Lambhaga la, Skilmanna-
hreppi.
70 ára
Asgeir Ein&rsson,
skrifstoíustjóri hjá Flugmálastjórn
á Reflavikurflugvelli,
Miðleiti 7, Reykjavik.
Ásgeir verður
sjötugur á morg-
un, 4. maí. Kigin-
kona hans er
Guðrún Ólafs-
dóttir. Þau taka á
móti gestum í
Krímúrarahús-
inu, Bakkastfg 6,
Njarðvik, eftir kl.
19 á afmælisúag-
irm.
60 ára
Guðrún Gunnarsdóttir,
Fögrukinn 23, Hafharflrði.
Sigríður Eggertsdóttir,
Bæjartúni 11, Ólafsvik.
Fjóla Guðjónsdóttir,
Birkimel 3, Seyluhreppi.
Matthías Guðjónsson,
Efstahjalla 19, Kópavogi.
Sveinn Marelsson,
Hólmgarði 10, Reykjavík.
Jón Birgir Jónssón,
Kirkjubraut 17, Seltjarnamesi.
Hildur Jóhannsdóttir,
Fögrubrekku 37, Kópavogi.
Þóra Helgadóttir,
Hafbiiki, BorgarQai’ðarhreppí.
Vigdis Ragnarsdóttir,
Skólabraut 14, Hólmavík.
Anna Maggý Pálsdóttir,
Hamraborg 34, KópavogL
GSsil Viggósson,
Sogavegi 200, Kópavogi.
Guömundur Ágúst Pétursson,
Stuðlaseli 23, Reykjavík.
Guðjón Tyrfingur ívarsson,
Klapparbraut 14, Garðl
Anna Aiexia Sigmundsdóttir,
Garðabraut 4, Akranesi.
Sigurður Sigursveinsson,
Hlaðavöflmn 10, Seifossi.
Vlðar Ernir Axelsson,
Dísarlandi 8, Bolungarvik.
Úlfar Pálmi Hillers,
Kirkiuteigi 27, Reykjavfk.
Guðmundur Guðmundsson,
Heiðarvegi 5, Vestraannaeyjum.
Daniel Jakob Pálsson,
Jöklafold 5, Reykjavík.
Elten Þórarinsdóttir,
Háaleitisbraut 32, Reykjavík.
Daníel Pétursson,
Lækjarhvammi 13, Hafnarfirði.
Kristin G. Árstelsdóttir,
Freyjugötu 1. Reykjavík.