Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1993, Qupperneq 8
8
MÁNUDAGUR 3. MAÍ 1993
Utlönd
Tamílar
Forseti þings Bosníu-Serba lítt hrifinn af friðaráætluninni:
Ekki hægt að f allast
á hana eins og hún er
inuáforseta
Sri Lanka
Ríkisstjóm Sri Lanka skýröi frá
því i gœr að hún teldi aðskilnaö-
arsinna tamíla bera ábyrgð á
morðinu á Ranasinghe Premad-
asa forseta.
Forsetinn var sprengdur í loft
upp í kröfugöngu 1. maí af íjórtán
ára unglingspilti sem var með
sprengjuna á sér. Lögreglan sagði
að tilraeðismaðurinn heíöi brotið
blásýruhylki sem hann var með
um hálsinn.
Uppreisnarmenn tamíia eru
gjaman með blásýru til að kom-
ast hjá handtöku.
Alls létu 24 lííið í sprengjutil-
ræðinuog38særðust. Reuter
Stuttar fréttir
Harðlínumenn á þingi Bosníu-
Serba vöruðu við því í gær að það
væri langt frá því ömggt að þeir
mundu staðfesta friðarsamningana
fyrir Bosníu sem leiðtogi þeirra,
Radovan Karadzic, samþykkti.
Karadzic sagði sjálfur að hann
hefði sett stafi sína undir áætlun
sáttasemjaranna Vance og Owens í
friðarviðræðunum í Aþenu í gær eft-
ir að hann hefði fengið fullvissu um
að hægt væri að semja um land-
svæði. Hann lagði áherslu á að hann
hefði ekki undirritað friðaráætlun-
ina heldur yrði þing Bosníu-Serba
að samþykkja hana á fundi sínum á
miðvikudag.
„Ég tel að þaö verði að vinna hana
upp á nýtt og að ekki sé hægt að fall-
ast á hana í núverandi mynd,“ sagði
Momcilo Krajisnik, forseti þingsins,
sem þegar hefur hafnað því að sam-
þykkja friðaráætlunina sem skiptir
Bosníu upp í tíu sýslur.
Karadzic sagðist mundu segja af
sér ef þingið neitaði aö staðfesta frið-
aráætlunina.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
sagði að undirritun friðaráætlunar-
innar af hálfu leiðtoga Bosníu-Serba
væri .jákvætt skref' en Bandaríkin
myndu þrýsta á um hertar aðgeröir
gegn Serbum ef þeir kæmu ekki heið-
arlega fram.
Warren Christopher, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, aflaði sér
stuðnings bresku ríkisstjórnarinnar
í gær um að halda áfram að beita
Serba þrýstingi til að samþykkja frið-
aráætlunina ella eiga yfir höfði sér
hugsanlegar hernaðaraögerðir.
Vopnaglamur heyrðist í Sarajevo,
höfuðborg Bosníu, í morgun og að
sögn fréttamanna í borginni kvikn-
aði í íbúðarblokk.
Reuter
Tambojardsetiur
Oliver Tambo, sem kallaður
hefur verið faöir blökkumanna-
hreyfmgarinnar í Suður-Afriku,
var jarðsettur í skugga moröa
blakkra á hvítum íbúum lands-
ins.
Verfcföil í Þýskalandi
Verkamenn í stáhðnaði í aust-
urhluta Þýskaiands, nálægt Ber-
lín, hófu verkfall sitt í nótt er
þeir gengu út eftir næturvaktina.
Þetta er fyrsta verkfallið í þessum
hluta Þýskaiands í 60 ár.
Flóð í Ekvador
Gífurlegt vatnsflóð ruddi sér
leið niður Paute dalinn í suður-
hluta Ekvador. Flóðið átti þau
upptök aö stlfla brast. Meira en
1500 heímili eyðilögðust en engir
mannskaðar urðu þar sem allir
íbuar svæðisins höföu verið flutt-
ir í burtu.
Dvölin í geimnum lengd
Geimferðastofhun Bandarikj-
anna hefur ákveðið að lengja dvöi
geimfaranna mn borð í Coiumbiu
um einn dag.
FlelríDanhrsegjajá
Samkvæmt glænýrri könnun
Gallups í Danmörku munu 63
prósent þeirra sem tekið hafa af-
stöðu til Mastricht-samningsins
greiöa atkvæði með honum. 37
prósent eru enn á móti samn-
ingnum. Kosið verður 18. maí.
Reuter og Ritzau
Lítill drengur hvílir sig við gröf bróður síns, króatísks hermanns frá Bosníu, sem lét lífið i bardögum við íslamstrú-
armenn. Simamynd Reuter
LíkKoresh
fundið
Bandarísk yflrvöld tilkynntu í
gær að þau hefðu fundið jarð-
neskar leifar ofsatrúarleiðtogans
David Koresh. Hægt var að
þekkja iík Koresh á tönnunum
og skotsárum sem hann fékk er
alríkislögreglan gerði árás á bú-
garö hans náiægt Waco i Texas
þann 28. febrúar.
Tilkynning þessi var gerð á
blaðamannafundi í Waco. Einnig
var sagt frá því að fundist hefði
skotsár á höfði Koresh en ekki
er vitað hvort það batt enda á líf
hans.
Lík Koresh mun hafa fundist
nálægt eldhúsi hússins en þaðan
var söfnuðurinn í sambandi við
alrikislögregluna. Alis hafa 72 lík
fundist í rústum búgarðarins.
Tværvikurog
enginn hvalur
Eftir tvær vikur á sjó hefur
engum af fjórum norskum hval-
veiðibátum tekist að veiða hval í
rannsóknarskyni. Lengi vel gátu
bátarnir ekki leyst landfestamar
vegna veðurs en síöustu tvær
vikur hefur verið þurrt í veðri.
Hvalveiðibátamir fjórir hafa
leyfi tii að veiða 49 hvali en tíma-
bihð rennur út eftir aðeins eina
og hálfu viku. Áhafnir bátanna
hafa séð hvali en veðrið hefur
gert þeim ókleift að skjóta þá.
Reuter og NTB
-
Sumartíminn
hjá okkur er frá
átta til fjögur
Vorið er komið og sumarið nálgast óðum.
Hjá SJÓVÁ-ALMENNUM og
Tjónaskoðunarstöðinni skiptum við yfir í
sumarafgreiðslutíma, sem er frá
klukkan átta til fjögur. Surnartíminn gildir
frá 1. maí til 15. september.
SJOVADlDALIVIENNAR
Kringlunni 5
Draghálsi 14-16
<
I
<
í
<
í
Í
i
i
i
i