Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1993, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1993, Blaðsíða 22
22 MÁNUDAGUR 3. MAÍ 1993 Menning Jazzkvartett Reykjavikur. Wayne Shorter sagði einhverntíma í viðtali: „Með Miles (Davis) fannst mér ég vera selló eöa víóla, mér fannst ég vera að leysast upp... og svo komu allir þessir htir.“ Shorter, eða Shortarinn eins og hann er stundum nefndur á þvi ylhýra, er gott djasstónskáld. Það var vel til fundið að taka saman og flytja sýnishorn frá einu frjóasta tímabih hans. Miles Davis kallaði það smásagnatímabilið sem var undanfari epískatímabiis- ins með Weather Report en þar réð Joe Zawinul mest ferðinni og útsetningar voru oft viðamiklar. í leik Jazzkvartetts Reykjavíkur í Listasafni Sigur- jóns Ólafssonar síðastliðið miðvikudagskvöld mátti með góðum vilja greina umrædda litadýrð í verkum Shorters. Ekki síst þeim rólegri og hugljúfari svo sem „Albatross", „Virgo“ og „Infant Eyes“. Flutningur kvartettsins á síðastnefnda laginu, þessu einstaklega Djass Ingvi Þór Kormáksson fallega lagi, var mjög smekklegur, svo maöur segi ekki litríkur og hin voru fín líka. „Armageddon" er ekki skemmtilegasta lag í heimi og ekki tókst að gera neitt fyrir það. Fremur leiðin- legt. En næsta lag, „Adams Apple" var skemmtilegt, sem segir kannski meira um smekk pistlahöfunar en músíkina sjálfa. Þetta lag var dálítið á skjön við hin og sennilega hið elsta á efnisskránni. Þar er Shorter í svipuðum hugleiðingum og Zawinul er sá síöast- nefndi lék með Cannonball Adderley. Gamla eða fyrsta fónkið við lýði, eða sálardjassinn og andi Horace Sil- vers yfir vötnunum. Einfalt og gott. Þekktustu lögin voru trúlega „Ju-Ju“, „Speak no Evil“, „Yes or No“ og „Footprints" og tókst flutn- ingur þeirra vel ásamt síðasta lagi fyrir uppklapp, „Witchhunt", þar sem allir meðhmir kvartettsins mögnuðu mikinn nomaseið í snar- stefjunum sínum. Gestur kvöldsins var Veigar Margeirsson trompet- leikari og átti hann góða spretti. Sóló hans einkenndust raunar meira af sprettum en samfellu, nema kannsi í „Footprints" sem er líka spunavænt lag með tilliti til hljóma. í laginu því voru greinilega alhr komnir í stuð og orðnir heitir og losnaði þá einhver kraftur úr læðingi sem maður hafði kannski saknaö framan af þótt vel væri leik- ið og fagmannlega að verki staðiö. Litir í Listasaf ni Ingvar Helgason hf. Sævarhöföi 2.112Reykjavík P.O. Box 8036, Simi 674000 INIISSAIM Sendibfll ársins 1993 Enn og aftur hlýtur Nissan viðurkenningu. I þetta sinn var Sunny Van kosinn „sendibíll ársins 1993“. Sunny Van er lipur og einstaklega rúmgóður, sendibíll með vökva og veltistýri og 1600 rúmsentimetra vél Farmrými 2,68 m3 Burðargeta 520 kg Hurðaroþ aftan br: l,20m h: 1,12 m. á ótrulega hagstæðu verði 877.000.- án vsk. kr. Lögreglumaðurinn og vitnið. Andy Garcia og Uma Thurman í hlutverkum sínum. Háskólabíó - Jennifer 8: ★★ % Löggan, fórnarlamb- ið og vondi karlinn í þessari kvikmynd er að finna sniðugustu lausn sem ég hef séð á þvi vandamáU sem hrjáir allar lögguformúlumyndir sem þurfa að enda á því að löggan er í kapphlaupi við tímann að bjarga saklausa fórnarlamb- inu/vitninu/konunni sem er í hættu akkúrat núna vegna þess að enginn trúir löggunni að vondi karUnn sé svona vondur og fórnarlambið er ein- samalt í stóru dimmu húsi og það —^^— er þrumuveður: Hvernig á að T\ VÍkmVnHlT bjarga fórnarlambinu/drepa vonda 1 *■/ ■*■ L'“'U"L karUnn? Löggan er í tímahraki -----"— ---* vegnaþessaðalliraðrirímyndinm Gísli Einarsson eru ekki eins gáfaðir og löggan og --------------------- búnir að tefja hana frá upphafi, jafnvel loka hana inni vegna gruns um að hún sé vondi karlinn. Nú er klippt á milli löggunnar að brjóta umferð- arlögin og vonda karlsins sem er að brjóta hegningarlögin en fórnarlamb- ið reynir flóttaleiðina. Því hugmyndasnauðari sem handritshöfundurinn er því Uklegra er að löggan birtist á síðustu stundu og bjargi fórnarlamb- inu (sem reyndar aðeins trúgjörnustu áhorfendur áUta að sé í einhverri hættu). Ef höfundinum finnst það einum of léleg lausn getur hann látið fórnarlambið hætta að vera fórnarlamb í smátíma og bjarga sér sjálft út úr þessum vandræöum með því að kalla á hjálp (yfirleitt bara forréttur fyrir vonda karlinn) eða veita mótspyrnu. Ef það ber árangur og engin þörf reyndist á löggunni getur vondi karlinn síðan lifnað aftur við svo að löggan fái að sýna að ríkið kastaði ekki peningum sínum á glæ þegar það menntaði hana og þjálfaði. Jennifer 8 er lausnin á vandamálinu, svo sniðug og frumleg og óvænt að það skiptir engu máli þótt atriðin rétt á undan hafi fengið mann til að halda að höfundurinn hefði skyndilega sofnað við skriftirnar. Hann hafi staðið sig vel, fengiö margar góðar hugmyndir og unnið vel úr flest- um. T.d. fann hann lausn á því hvernig á að passa sig á því að sýna ekki óvart hver vondi karlinn er í raun og veru og láta ekki alla vera of grun- samlega. Hann felur reyndar vonda karhnn svo vel og lengi að ég var farinn að halda á tímabili að það væri bara enginn vondur karl. En þótt höfundurinn hafa vandað sig mikið þá hefur hann ekki lausn á öllum vandamálum formúlulöggumyndarinnar, t.d. hvernig á að fá áhorfendur til að þykja vænt um löggufélagann sem allir vita að er alltaf feigur. Hvernig á að gera lögguna að persónu án þess að tefja fyrir spennu- sögunni? Hvernig á að koma ástarsögunni fyrir í forinúlunni? Hann reyn- ir en eyðir of miklum tíma í það og skemmir svolítið fyrir öllu því góða í myndinni sem hann og aðrir gera. En hvað hefur þú séð margar formúlulöggumyndir sem nota Heims um ból undir ástarsenunni? Jennifer 8 (band. 1992). Handrit og leikstjórn: Bruce Robinson (Withnail & I, How to Get ahead in Advertising). Leikarar: Andy Garcia (löggan), Uma Thurman (lórnar- lambiö), Lance Hendriksen (löggufélaginn), Kathy Baker, Graham Beckel, Kevin Conway, John Malkovich (kvetaður). OKULJOS Fiat Uno '83-90 4.935 kr. Mazda 323 '87-90 7.560 kr. Ford Escort '80-'86 4.890 kr. Nissan Primera '90-'93 14.918 kr. Ford Escort '86-91 5.500 kr. Nissan Sunny '86-'90 7.560 kr. Ford Sierra '80-'86 9.980 kr. VWGolf '84- 2.480 kr. VW Polo '79-'90 3.155 kr. Blossi sf. Síðumúla 4 - Sími 681350

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.