Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1993, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 03.05.1993, Blaðsíða 4
4 MÁNUDAGUR 3. MAl 1993 Fréttir Hlunnindi metin í peningum: Laxveiðiferð sam- svarar 27 þús- undum á mánuði -lifeyrisréttindi þingmanna 87 þús. kr. kaupauki á mánuði Meta má lífeyrisréttindi alþingis- manna sem 87 þusund krona kaup- auka í hverjum mánuði og lífeyris- réttindi ráðherra sem 176 þúsund króna viðbót við kaup á mánuði. Þetta eru niðurstöður Benedikts Jó- hannessonar framkvæmdastjóra samkvæmt grein í tímaritinu Vís- bendingu. Þessir útreikningar byggjast að sjálfsögðu á meðaltölum og líkum, þar sem allt þetta er misjafnt eftir mönnum, lengd starfs og fleira. En upplýsingamar eru mjög forvitnileg- ar. . í greininni kemur fram, að í síð- ustu úttekt á lífeyrissjóði starfs- manna ríkisins segir, aö lífeyrisrétt- indum þeirra mætti jafna við, að rúmlega 26 prósent af launum væru greidd í iðgjöld. Þá er launaígildi greiðslu atvinnuveitandans ekki 6 prósent heldur 22 prósent. Jafnframt kom fram, að hjá þingmönnum væru lifeyrisréttindin jafngildi 46 prósenta launa og hjá ráöherrum samsvara þau rúmlega 80 prósentum ofan á laun. Lífeyrisréttindi BSRB-fólks eru í greininni metin sem 16 þúsund krón- ur ofan á laun. Hlunnindi forseta mikil Forseti íslands heldur 60-80 pró- sentum launa, eftir að hann lætur af störfum. Ef forseti situr í 12 ár, lætur nærri, að réttindin jafngildi 100 prósenta launaauka að mati Bene- dikts. Skattfríöindi forseta eru í greininni metin á 230 þúsund krónur á mánuði. Skattfríðindi sjómanna eru metin á 37.500 krónur á mánuði ofan á kaup. Sjómaður sem er með 2,5 milljónir króna í tekjur á árinu hefur jafnmik- ið til ráðstöfunar eftir skatta og land- verkamaður sem heföi 18 prósenta hærri laun. Hér sést, hvernig hugsa má sér verðmæti ýmissa hlunninda, reiknað i krón- um á mánuði sem viðbót við kaup. Lítum á kaupaukann, sem meta má, að felist í einni laxveiðiferð stjórnarmanns í félagi. Algengt er, að stjómarmenn í fremur stórum fyrirtækjum fái um 40 þúsund krón- ur á mánuði í stjórnarlaun fyrir störf sín. Ef miöað er við, að laxveiðitúr fyrir stjórnarmann og maka kosti 175 þúsund krónur, þá er peningaígildi feröarinnar fyrir stjórnarmanninn um 325 þúsund krónur. Þá er reiknað með, að stjórnarmennn séu með yfir 200 þúsund krónur í mánaðartekjur og greiði því hátekjuskatt af viðbót- artekjum. Þetta samsvarar því tæp- lega 70 prósenta kauphækkun. -HH Eigendur Samherja hf. í brúnni á Baldvini Þorsteinssyni eftir mettúrinn. F.v. eru Þorsteinn Vilhelmsson skipstjóri, Þorsteinn Már Baldvinsson fram- kvæmdastjóri og Kristján Vílhelmsson útgerðarstjóri. DV-simamynd gk, Akureyri Baldvin Þorsteinsson, flaggskip Samherja hf.: 92,5 mil|jóna mettúr lauk á 10 ára afmælinu Gyifi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Auðvitað er ég ánægður en um leið er mannskapurinn þreyttur eftir langan og erfiðan túr,“ sagði aflakló- in Þorsteinn Vilhelmsson, skipstjóri á Baldvini Þorsteinssyni EA-10, flaggskipi Samherja hf. á Akureyri, er hann kom til hafnar aðfaranótt 1. maí. Þorsteinn og áhöfh hans höfðu ástæðu til að vera ánægöir því um borð í skipinu var metafli íslensks veiöiskips úr einni ferð, aflaverð- mæti 92,5 milljónir króna. Og það fór vel á því að skipið skyldi koma til hafnar á 10. afmæhsdegi Samherja sem hefur á þeim tíma orðið eitt alö- flugasta útgerðarfyrirtæki landsins. Þegar Þorsteinn hafði tilkynnt „verklok" í hátalarakerfi skipsins sagöi hann við DV að hann hefði ekki átt von á slíkum uppgripum þegar lagt var úr höfn. Skipiö var 34 daga í veiðiferöinni og var að veiðum á Látragrunni, Grindavíkurdýpi og í 3 vikur á „Hampiðjutorginu" þar sem skipið lenti í mikilh grálúðuveiði. Skipið var með fullfermi og alls veiddust 655 tonn upp úr sjó í ferð- inni og afraksturinn var 435 tonn þegar búið var að vinna aflann og frysta. Uppistaðan í aflanum var grálúða en einnig þorskur og karfi. Fyrra aflamet íslensks skips var rétt tæpar 80 mihjónir króna svo metið var bætt hresshega. Háseta- hluturinn þessa 34 daga sem veiði- ferðin stóð yfir var líka ekki slorleg- ur eða ein mihjón og 70 þús. kr. I dag mælir Dagfari „Góðan daginn, þetta er Gunnar Helgi hjá Landsbréfum. Er Sverrir við?“ „Er það áríðandi?" spurði síma- daman. „Já, þetta eru viðskiptahagsmun- ir, bæði Landsbréfa og Landsbank- ans. Mér hggur á að fá að tala við bankastjórann." „Augnablik,“ sagði stúlkan og gaf samband við Sverri. „Sæll vertu, Gunnar," sagði Sverrir, „hvað er títt?“ „Sosum ekki mikið. Eitthvað títt hjá ykkur?“ spurði Gunnar. „Nei, ekki nema þetta djöfuls ves- en með afskriftimar og þessar ei- lífu reddingar meö skuldarana. Það borgar enginn neitt. Svo hamast þeir í póhtíkinni á vöxtunum og heimta þá niður og svo erum við að segja upp hundrað og fimmtíu manns í bankanum. Það gengur ekki lengur að reka bankann með tapi. Þaö sem er einna verst í augnablikinu er þetta þras í þessari kvennalistakerhngu um laxveiðit- úrana. Hún er að ergja okkur með því að gera tíllögur um að þeir verði lagðir af, rétt eins og það skipti ein- hverju máh fyrir rekstur bankans, hvort við bjóðum okkur sjálfum og helstu viðskiptavinum bankans í Laxílax tíu starfsmönnum þegar þar að kemur og þar að auki lokum við nokkrum útibúum i vor og svo máttu ekki gleyma þvi að þaö er ódýrara fyrir bankann að bjóða okkur í laxveiði, heldur en viö höldum höldum hvor öðrum veislu og þú skalt ekki hafa neinar áhyggjur af þessu fjárhagslega, því þaö er miklum mun ódýrara fyrir bankann að hafa okkur í laxveiði, heldur en að halda okkur uppi í veisluhöldum. Það sjá alhr og þær hjá Kvennahstanum líka, svo það er spamaður í Þveránni, sannaðu til,“ sagði Sverrir. „Þetta er líka sami potturinn því Landsbankinn borgar hvort sem er brúsann meðan hann rekur Landsbréfin, ekki satt?“ sagði Gunnar. „Biddu fyrir þér,“ sagði Sverrir. „Þetta er ekkert mál. Við bjóðum kvennahstakerlingunni með og þá verður ekkert röfl. Steingrímur kemur með í Þverána og Lúðvík í Laxá og svo bjóöum viö annað- hvort forsætisráðherra eða fjár- málaráðherra og enginn segir neitt. Enda mönnunum Ijóst að hér eru miklir viðskiptahagsmunir í húfi. Það sjá allir." Dagfari veiði við og við. Það er alveg dæma- laust hvað fólk getur gengið langt.“ Já, ég var einmitt að hafa áhyggj- ur af þessu, Sverrir. Ef þið getið ekki boðið okkur, getum við ekki boðið ykkur og ég lendi í mesta klúðri með þetta vegna þess að ég er búinn að panta í nokkrum ám og við töpum stórfé á því að hætta við að fara í laxveiðina í sumar. Hér eru miklir viðskiptahagsmunir í húfi, Sverrir. Við erum búnir að panta í Þverá og svo aftur í Laxá og við getum líka fengið að veiða í Víðidalsá. Hvemig líst þér á þetta, Sverrir?" „Þetta eru góöar ár og ég hef ver- ið að stúdera veiðina þama í fyrra og hún var bara nokkuð góö en viö verðum að velja réttan tíma, þegar gengur í ána.“ „Ja, við vorum að hugsa um að bjóða ykkur í júlí í Þverá. Hvemig hst þér á það?“ „Mér hst vel á júh. Ég verö að vísu í sumarfríi í júlí en þetta er áríðandi og Landsbréf eru okkar fyrirtæki og við verðum að sinna viðskiptahagsmunum okkar og það er ekkert spursmál. Ég fæ mig laus- an. Ég fresta sumarfríinu, Gunn- ar.“ „Það er fínt, Sverrir," sagði Gunnar hjá Landsbréfum, „og svo verö ég að vita hvenær þið ætlið að bjóða okkur því ég þarf sjálfur að taka sumarfrí og vil síöur taka það á meðan ég er upptekinn í lax- veiöi.“ „ Já, bíddu nú við,“ svaraði Sverr- ir. „Seðlabankinn býður okkur í byrjun júlí og við bjóðum Seðla- bankanum um miðjan ágúst. Svo veröum við í boði eins af viðskipta- vinum bankans seinni partinn í júlí og þurfum að bjóða þeim á móti um mánaðamótin júní, júh og hvað er þá eftir?" „Viö hjá Landsbréfum gætum í sjálfu sér þegið boð ykkar í júní, ef þaö passar viðskiptahagsmunum ykkar en þá er Þveráin dýrust og ég veit ekki hvað þið hafið mikla peninga í þetta, Sverrir." „Hafðu ekki áhyggjur af kostnaö- inum, Gunnar minn. Við verðum búnir að segja upp tuttugu til þrjá-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.