Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1993, Blaðsíða 10
10
MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 1993
Norðmenn hefla hvalveiðar í júní:
Holst krefst
breyttrar hval-
veiðistefnu EB
Útlönd
Bandarískar
konurhlynntar
Bandarlskar konur eru hlynnt-
ar þeirri afstöðu sem Hillary
Clinton hefur tekið, þ,e.a.s. að
taka vh*kan þótt í störfum í Hvíta
húsinu.
Það voru túnaritið McCall’s og
kapalsjónvarpsstöðin Lifetime
sem stóðu fyrir skoðanakönnun
meðal bandarískra kvenna og þar
kom íram að 69 prósent voru
ánægðar með frammistöðu Hill-
arys og þar af sögðu 46 prósent
að hún væri mjög góð fyrirmynd
nútímakonunnar.
Sökkominnar
Dómari í Ástraliu heiúr komist
að þeirri niðurstöðu að kona, sem
var nauðgað, hefði getað sjálfri
sér um kennt þar sem hún féllst
á að fa far með þremur ókunnug-
um mönnum.
i dómnum segir að konan hafi
ekki orðiö fyrir alvarlegu áfalli
og aö hún stundi enn kynlif.
Hafhaðl því dómarinn kröfu kon-
unnar um skaðabætur.
Morðingi látinn
laus
Ungur portúgalskur maður hef-
ur verið látinn laus úr fangelsi
þó að hann hafi drepiö bróður
sinn, ömmu og frænda. Rétturinn
taldi að hann hefði verið sjúklega
drukkinn þegar morðin voru
framin og því ekki vitað hvað
hann var að gera. Geðlæknir
sagði að maöurinn hefði þjáðst
af áfengiseitrun.
Reuter
Noregur krefst þess að hrefnan
verði strikuð út af lista Evrópu-
bandalagsins, EB, yfir þær dýrateg-
undir sem eru í útrýmingarhættu.
Johan Jörgen Holst, utanríkisráð-
herra Noregs, lýsti því yfir í gær við
Hans van den Broek, talsmann Evr-
ópubandalagsins í samningaviðræð-
um við möguleg aðildarríki, að nauð-
syn væri á að taka tillit til vísinda-
legrar niðurstöðu.
Holst vísaði á bug hótunum land-
búnaðarráðherra Breta um að Nor-
egur gæti þurft aö velja á milli aöild-
ar að Evrópubandalaginu og hval-
veiða. „Þetta eru ummæli sem ekki
eiga að koma frá ráðherra. Ef hann
er upptekinn af dýravemdunarmál-
um ætti hann að huga að málum sér
nær eins og til dæmis refaveiðum,”
sagði Holst.
Norsk yfirvöld ákváðu í gær að
leyft yrði að veiða 296 hrefnur á
þessu ári, þar af 160 í ábataskyni.
Tilkynnt var að veiðamar hæfust í
fyrsta lagi í maílok og í síðasta lagi
í júníbyrjun. Eftir er að veita hval-
veiðibátunum leýfi en alls uppfylla
Johan Jörgen Holst, utanríkisráð-
herra Noregs. DV-mynd BG
35 bátar þau skilyrði sem þarf.
Hvalveiðimenn í Noregi em
ánægðir yfir því að hvalveiðar skuli
vera að hefjast að nýju en þeir hafa
lýst yfir óánægju sinni með kvótann
sem þeir segja of lítinn. Formaður
hvalveiðimanna, Steinar Bastesen,
kveðst hafa átt von á að kvótinn yrði
um 500 hvalir. „Mótmæli hvalavina
verða jafnmikil, hvort sem við veið-
um 300 eða 800 hrefnur. Þar sem vit-
að er með vissu að stofninn þolir aö
veiddar séu 800 hrefnur hafði ég að
minnsta kosti reiknað með kvóta upp
á 550.“
Stjómmálaleiðtogar í Noregi lýstu
í gær yfir fullum stuðningi við hval-
veiðistefnu stjórnarinnar. Menn
tóku það þó fram að þeir gerðu sér
grein fyrir að stefnan gæti kostaö
Norðmenn talsvert. Leiðtogi hægri
manna, Kaci Kullmann Five, fór
fram á umfangsmeiri upplýsingaher-
ferð af hálfu Norðmanna en Carl I.
Hagen lýsti eftir aðgerðum til aðstoö-
ar útflutningsgreinum sem geta orð-
ið fyrir barðinu á mögulegum refsi-
aðgerðum.
Talsmenn fyrirtækisins Norske
Mejerier gera ráð fyrir minnkandi
sölu á Jarlsberg-osti. Fyrirtækinu
hafa borist um 20 þúsund bréf frá
einkaaðilum og hópum sem hóta her-
ferð gegn Jarlsberg-ostinum hefji
Norðmenn hvalveiöar í ágóðaskyni.
Hingað til hefur fyrirtækið ekki orð-
ið vart við minnkandi sölu á ostinum
áBandaríkjamarkaði. ntb
Síðasti þátturinn
afStaupasteini
Síðasti þátturinn af Staupasteini,
eða Cheers, verður sýndur í Banda-
ríkjunum á morgun. Gert er ráð fyr-
ir að fleiri muni horfa á þáttinn en
nokkurn annan sjónvarpsþátt fyrr
eða síðar.
Sjónvarpsstöðin NBC, sem sýnir
þættina, hefur auglýst þáttinn alveg
gífurlega mikið, bæði með útvarps-
og sjónvarpsauglýsingum og get-
raunum. Þegar síðasti þátturinn af
MASH var sýndur fyrir rúmlega tíu
árum sat 77 prósent bandarísku þjóð-
arinnar við tækin. Er ætlunin að slá
það met annað kvöld þó að viður-
kennt sé að það geti reynst erfitt.
Bob Meyers, talsmaður NBC, sagði
að sjónvarpsstöðin geröi ráö fyrir að
um 47 milljónir heimila munu horfa
á lokaþáttinn.
Meðal áhorfenda verða gestir krá-
arinnar Bull and Finch í Boston sem
er fyrirmynd Staupasteins. Reuter
Loksins er hún koniin stórmyndin „Malcolm Xfcfc,
sannkallað þrekvirki og meistarastykki frá
leikstjóranum Spike Lee. Denzel Washington var
tilnefndur til óskarsverðlauna fyrir túlkun sína
á Malcolm X. „Malcolm X“ einfaldlega
stórkostleg mynd!
Aðalhlutverk: Denzel Washington,
Angela Bassett, Spike Lee og Albert Hall.
Framleiðendur: Marvin Worth og Spike Lee.
Leikstjóri: Spike Lee.