Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1993, Blaðsíða 37
MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 1993
45
My Fair Lady.
My Fair
Lady
Sýningum er nú að ljúka á
söngleiknum My Fair Lady.
Verkið íjallar um óheílaða og
illa talandi alþýöustúlku, Elísu
Doolittle, sem málvísindaprófess-
orinn Henry Higgins hirðir upp
af götunni. Hann veðjar við
kunningja sinn um að hann geti
gert úr henni hefðarkonu á ör-
skömmum tíma. Að sjálfsögðu
trúir Higgins því að hann geti
kennt Elísu heldri manna siöi en
Elísa er ekki öll þar sem hún er
Leikhús
séð og innan skamms hefur hún
rótað heldur betur upp í tilveru
þessa forherta piparsveins.
Söngleikurinn er byggður á
leikritinu Pygmalion eftir Bem-
ard Shaw. Hann var áður sýndur
í Þjóðleikhúsinu fyrir þremur
áratugum við fádæma vinsældir
og einnig á Akureyri á síðasta
áratug.
Leikstjóri er Stefán Baldursson,
tónhstarhöfundur er Jóhann G.
Jóhannsson en með aðalhlutverk
fara Jóhann Sigurðarson og
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir.
Sýningar í kvöld:
Leðurblakan. Akureyri
Pelíkaninn. Nemendaleikhúsið
George Washington.
ítaktvið
tímann!
George Washington ferðaðist
ávallt með færanlegt sólúr til þess
að geta fylgst með tímanum!
Kynlífsklúbburinn!
20.000 Club er félagskapm- fólks
sem á það sameiginlegt að hafa
haft samfarir' í flugvél í að
minnsta kosti 20.000 feta hæð!
Blessuð veröldin
Franskir ostar
Frakkar borða allra þjóða mest
af ostum.
Hreinlæti!
Rómverjar til foma vom ævin-
týralega uppteknir af baðferðum
hvers konar og baðhús voru
þeirra tíma félagsmiðstöðvar. Á
hátindi Rómaveldis notaði hver
Rómverji 1350 Utra af vatni á dag!
Frímerkjasafnarar
Kínverjar em heimsins áköf-
ustu frímerkjasafnarar.
OO
Færð á
vegum
Flestir helstu vegir landsins em
greiðfærir. í morgun vom þó nokkr-
ar leiðið ófærar. Má þar nefna Eyrar-
Umferðin
fjall, veginn milli Kollafjarðar og
Flókalundar, Dynjandisheiði,
Hrafnseyrarheiði, Lágheiði, Öxar-
fjarðarheiði og Helhsheiði eystri.
Víða um landið era öxulþungatak-
markanir sem í flestum tilfellum
miðast við 7 tonn.
isaljörður
Reykjavík
CT Öxulþunga-
SHálka og ___takmarkanir
skafrenningur |x| Ófært
Stykkisholmur
Höfn
CC
Ófært
Öll sund lokuð.
Öll sund
lokuð
Hljómsveitin Óðfluga er ung og
efhileg reykvisk rokkhljómsveit
sem hefur látið á sér kræla að und-
aníornu.
í kvöld ætlar þessi fluga að fljúga
Skemmtanalífið
á Dansbarinn á Grensásvegi og
spila fyrir dansi til klukkan þrjú
eför miðnætti.
Hljómsveitin Óðfluga er skipuð
þeim Þóri Jónssyni sem sér um
sönginn, Haraldi Jóhannessyni gít-
arleikara, Rafni Marteinssyni
trommuleikara og Einari Tönsberg
sem sér um bassaleikinn.
Þórir Jónsson, Haraldur Jóhannesson, Ratn Marleinsson og Einar Töns-
berg í hljómsveitinni Óðfluga.
Veiði í Þingvallavatni
Veiðileyfi í Þingvallavatn hefur
verið veitt á fimm bæjum í Þingvalla-
sveit og gilda þau aðeins á afmörkuð-
um svæðum út frá hverjum bæ. Á
kortinu hér til hhðar má sjá helming-
inn af Þingvallavatni. Á þessu svæði
Umhverfi
eru veiðileyfi seld á þremur stöðum.
Á Kárastöðum er hægt að fá veiði-
leyfi sem gildir á Rauðukusunesi og
í Hálfdánarvík.
Á Heiðarbæjunum er hægt að fá
veiðileyfi sem gildir á fimm km
strandlengju, frá Svörtuklettum að
noröan og Miðbungumelum að sunn-
an.
Veiðivon er misjöfn eftir stöðum í
Þingvallavatni og veðriö hefur mikil
áhrif. Murtan bítur yfirleitt best en
einnig er möguleild á að veiða
bleikju. Urriða má finna í vatninu
en lítil von er að veiða hann. Bleikjan
er oftast 400 g og urtan 100 g. Besta
beitan er fluga, spúnn og maðkur.
Veiðitímabilið er frá 1. júní til 1. sept-
ember en júlí er talinn besti mánuð-
urinn.
Sólarlag í Reykjavik: 22.51. Árdegisflóð á morgun: 5.34.
Sólarupprás á morgun: 3.57. Lágflaraer6-6Ví stundu eftir háflóð.
Síðdegisflóð í Reykjavík: 17.17. Heimild: Almanak Háskólans.
Stjömubíó sýnir nú myndina
Öll sund lokuð eða Nowhere to
Run með Jean-Claude Van
Damme í aöalhlutverki. Hann
Bíóíkvöld
leikur strokufanga sem kemur
sér fyrir á landareign ekkju sem
berst fyrir jarðareign sinni. Gegn
henni standa spilltir aðilar bygg-
ingafyrirtækis sem vilja sölsa
eignina undir sig. Þeir beita kon-
una ofbeldi en strokufanginn
kemur henni til hjálpar. Hún
leyfir honum að búa hjá sér, ástir
takast með þeim hjónaleysum og
börn hennar hrífast af honum
einnig en vita ekkert um vafa-
sama fortíð hans. Skúrkarnir
grafa hins vegar fortíð hans upp
og uppgjör verður óumflýjanlegt.
Nýjar myndir
Háskólabíó: Lifandi
Laugarásbíó: Feilspor
Sfjömubíó: ÖU sund lokuð
Regnboginn: Ólíkir heimar
Bíóborgin: Sommersby
Bíóhölhn: Banvænt bit
Saga-bíó: Stuttur Frakki
Gengið
Gengisskráning nr. 93. - 19. mai 1993 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 63,540 63,680 62,970
Pund 98.010 98,226 98,957
Kan. dollar 50,215 50,326 49.321
Dönsk kr. 10,2391 10,2617 10,2609
Norsk kr. 9,2746 9,2950 9,3545
Sænsk kr. 8,6638 8,6828 8,6269
Fi. mark 11,5145 11,5399 11.584S
Fra. franki 11,6395 11,6651 11,7061
Belg. franki 1,9090 1,9132 1,9198
Sviss. franki 43,1980 43,2932 43,8250
Holl. gyllini 35,0112 35,0883 35,1444
Þýskt mark 39,2671 39,3536 39.4982
It. líra 0,04322 0,04332 0,04245
Aust. sch. 5,5764 5,5887 5,6136
Port. escudo 0,4122 0,4131 0,4274
Spá. peseti 0,5148 0,5159 0,5409
Jap. yen 0,57076 0.57202 0.5629S
Irskt pund 95,729 95,940 96,332
SDR 89,5533 89,7506 89,2153
ECU 76,7404 76,9095 77,2453
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
Krossgátan
Lárétt: 1 dramb, 6 spil, 8 draugur, 9 tfjou,
10 mjókurmat, 11 ferill, 13 glöggur, 15
skekkir, 17 ber, 18 flökta, 20 fyrstir, 21
stúlkan.
Lóðrétt: 1 þannig, 2 baksa, 3 þrásinnis,.
4 skemmir, 5 málgefnir, 6 tími, 7 lenska,
12 grunaði, 14 vond, 16 undirfórul, 17 átt,
19 gönuhlaup.
Lausn á siðustu krossgátu.
Lárétt: 1 fylli, 5 rá, 7 er, 8 örlög, 10 iðn,
11 Emma, 12 mauk, 14 agn, 16 angar, 18
og, 19 þý, 20 glæpi, 22 áta, 23 drit.
Lóðrétt: 1 feima, 2 yrða, 3 lön, 4 ilmar, 5
röm, 6 ágangi, 9 rekald, 13 ugga, 15 gopi,
17 nýt, 19 þá, 21 ær.