Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1993, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1993, Síða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 19. MAÍ 1993 Opna endurvinnslumótið í golfi verður haldið á Strandarvelli laugardaginn 22. maí. Leikinn verður 18 hola höggleikur, með og án forgjafar. Ræst verður út frá kl. 8. Skráning rástíma hjá Golfklúbbi Hellu í síma 98’78208, alla daga kl. 14-20. 1 rivoií lÍS ] 0 3piö alla daga, einnig uppstigningardag i ikólahljómsveit Kópavogs spilar ásamt danshópi E umarið er komið hjá okkur. [t 1 okkar er styttra en þú heldur. ] [g lens og gaman fyrir alla fjölskylduna. ] | Tívolí, Hverageröi | tJtskriftarmen 14 k gullhálsmen með perlu. Fallegur skartgrip- ur í útskriftina. ^ulí Verð 4.500 kr. án festar. (fýf/illin Laugavegi 49, sími 17742 SPENNMDIKVOLD IRVYllVDM? Ekki nema í góðum félagsskap. Hringdu fyrst í SímastefnumótiS þar sem fjöldi fólks hefur fundið góðan félaga. Einföld og skemmtileg leiö til að kynnast nýju og spennandi fólki. A Símastefnumóti bíður þín fjöldi skilaboða sem þú getur svarað. Þú getur einnig skilið eftir þín eigin skilaboð. Þetta er spennandi, þetta er rómantískt, þetta er öruggt. Mínútan kostar 39,90 kr. SÍMASTEFNIJMÓT 99/18/95 Teleworld Merming___________________________________________dv Togaö á norðurslóðum í Þjóðleikhúsinu: Byggt á viðtölum við togarasjómenn - sem sigldu á íslandsmið Þjóðleikhúsið á von á leikhópnum The Remould Theatre Company frá Hull í Englandi sem flytja mun leik- ritið, Togað á norðurslóðum, á smíðaverkstæði Þjóðleikhússins. Hópurinn mun sýna verkið íjórum sinnum í Þjóðleikhúsinu en þaðan fer hann til Dalvíkur, Húsavíkur og Seyðisfjarðar. Togað á norðurslóðum var frum- flutt 1985 og hlaut þá þegar góðar viðtökur. Hefur leikrltiö verið sýnt víðs vegar um Bretland síðan. Re- mould Theatre Company kemur frá Noregi og heldur héðan til Færeyja en þar verða þijár sýningar. Höfundar verksins, Rupert Creed og Jim Hawkins, byggðu leikritið á upptökum á viðtölum við fyrrver- andi togarasjómenn sem sigldu frá Hull og Grimsby til veiða á Norður- Atlantshafsmiðum við Grænland, ís- land og Noreg. Taugin við ísland og Noreg er löng og sterk. Hún tengist jafnt fylliríi, gleðskap og kvennafari í landi og svörtustu atburðum út- gerðarsögunnar í Hull þegar togar- amir St. Romanus, Kingston Peridot og Ross Cleveland fórust við Noregs- og íslandsstrendur í janúar og febrú- ar og meö þeim 58 menn. Sá eini sem komst af var Harry Bíódagar Friðriks Þórs: Upptökur hefjast í júlí Bíódagar gerist i Reykjavík og Skagafirði sumariö 1964 og fjallar um líf tíu ára drengs sem á þessu tíma- bili er að átta sig á lífinu og ómeðvit- að stígur hann skref sem eiga eftir að móta allt hans líf. Nú stendur sem hæst leit að dreng í aðalhlutverkið en sá sem vahnn verður að lokum verður að búa yfir miklum leikhæfi- leikum. Fyrir fáeinum dögum lauk fjár- mögmm myndarinnar en meðal fjár- magns er styrkur frá Kvikmynda- sjóði upp á 26 milljónir króna. Einnig hefur Friðrik fengið styrk úr evr- ópska kvikmyndasjóðnum. Nú er veriö að undirbúa sjálfa kvikmynda- tökuna sem fer öll fram hérlendis á tímabilinu 15. júlí til 15. september. í undirbúningi felst ráðning leikara, búningasaumur, leikmyndasmíð og leikmunasöfnun. Þar sem myndin gerist á öðru tímaskeiði en nú er eru þessir hlutir ákaflega þungir í vöfum og dýrir. Breyta þarf heilu götunum, endurskapa heimih í sveit og börg með húsmunum frá og um 1960 og klæða tugi leikara og hundrað stat- ista í föt frá þessu sama tímabih. -HK Arnór sýndií St. Louis Listmálarinn Amór Guðmundur Bieltvedt tók þátt í samsýningu í Pi- erce Arrow gaherunu í St. Louis í apríl. Amór var með átta olíumál- verk og þrjú keramikverk. Sýningin var skipulögð í samvinnu viö hsta- deildina í Washington-háskólanum í St. Louis þar sem Amór stundar framhaldsnám í málarahst. Listadeildin við Waslúngton- háskólann er hátt skrifuð á meðal bandarískra háskóla, ekki síst vegna þess aö þar hafa útskrifast þekktir málarar á borð við Max Backmann og Phihp Guston, sem einnig kenndu viö skólann. Amór hefur tekið þátt í fleiri samsýningum í Bandaríkjun- um. -HK Eins og kunnugt er heitir næsta kvikmynd Friðriks Þórs Friðriks- sonar Bíódagar. Er það fyrsta kvik- myndin sem hann gerir eftir hina miklu sigurgöngu Bama náttúrunn- ar en ekkert lát hefur verið á góðum viðtökum meðal almennings og gagnrýnenda úti í heimi eftir að myndin var tilnefnd til óskarsverð- launa 1992. Friðrik Þór Friðriksson er hér í hópi starfsmanna við Biódaga. Talið frá vinstri: Karl Pétur Jónsson, kynningarstjóri, Árni Páll Jóhannsson, leik- mynd, Friðrik Þór, Hilmar örn Hilmarsson, tónlist, Ari Kristinsson, kvikmynd- un, og Steingrimur Þorvaldsson, leikmunir. Fyrir aftan eru Sigríöur Sigur- jónsdóttir sem aðstoðar við leikmyndina og María Ólafsdóttir sem aöstoð- ar Karl Aspelund við gerð búninga. DV-mynd ÞÖK Tönn dregin úr háseta í Togað á norðurslóðum. Leikararnir á myndinni eru, talið frá vinstri, Neville Hutton, Chuck Foley, Simeon Truby og Gerard McDermott. Eddom á Ross Cleveland. það var sextán ára unghngur sem fann hann út af nórðvesturströnd íslands. Þess- ari miklu lífsreynslu er lýst í einum af áhrifamestu söngvum leikritsins. The Remould Theatre Company var stofnað fyrir tólf árum. Markmið leikhópsins er að semja og ferðast um með ný leikrit, jafnt fyrir böm og fuhorðna. Hópurinn hefur sett á sviö sautján ný leikrit og leikið á 400 stöðum. Þessi leikferð á norðurslóðir er fyrsta ferð leikhópsins utan Bret- lands. Arnór viö verk sín á sýningunni i St. Louis.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.