Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1993, Síða 40

Dagblaðið Vísir - DV - 19.05.1993, Síða 40
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Augíýslngar - Áskrift - Dreifing: Sími Frjálst,óháð dagblað MIÐVIKUDAGUR 19. MAl 1993. BorgeyáHöfii: Mælt með greiðslu- stöðvun Fulltrúar stærstu lánardrottna Borgeyjar ráðlögðu forráðamönnum fyrirtækisins að fara fram á greiðslu- stöðvun á fundi í gær. Stærstu lánar- drottnar Borgeyjar eru Landsbanki íslands, Fiskveiðasjóður og atvinnu- tryggingadeild Byggðastofnunar. Skuldir fyrirtækisins eru nálægt 1240 milljónum og tapið á síðasta ári tæplega200milljónir. -Ari og f íknief ni Lögreglan handtók karl og konu í fjölbýlishúsi við Asparfell í gær- kvöldi. Fólkið hefur áður komið við sögu lögreglu og í íbúð þess fundust meðal annars tæki og tól til ííkniefnaneyslu auk einhverra fíkniefna. Þar fannst einnig töluvert af munum sem tahð er að séu illa fengnir. Frá því að fólkið flutti í íbúðina hafa íbúar í húsinu saknað ýmissa * 'muna, s.s. skíða, skauta, verkfæra og verkfærakassa. Máhð er til rannsóknar hjá RLR og verður fólkið tekið til yfírheyrslu ídag. -pp Lokaðvegna draugagangs „Það hefur eitthvað orðið eftir í húsinu, einhveijir andar sem gert hafa vart við sig síðustu daga. En ég vona að nú sé búið að koma öndun- um á réttar brautir og við getum opnað aftur,“ sagði Ólafur Halldórs- son, formaður Sálarrannsóknarfé- v lagsins í Keflavík, við DV. ■ Loka varð húsnæði Sálarrann- sóknafélagsins mánudag og þriðju- dag vegna draugagangs og meðan ferðir hinna „afvegaleiddu eða reiðu anda“ voru rannsakaðar. Ólafur seg- ir skyggnt fólk hafa séð til ferða anda í húsinu meðan ónot og ónefndar til- finningar iöru um aðra. -hlh DV kemur næst út fóstudaginn 21. maí. Smáauglýsingadeildin er opin í dag, miðvikudag, til kl. 22.00. Lokað á morgun, uppstigningar- ~"dag. Síminn er 632700. LOKI Nú hefði Bjartur í Sumarhús- um orðið kátur! Vill lecjgja Bunaðar- félaa Islands niður ■ w w w w 99 Gytfi EristjáusBon, DV, Akuieyw „Við bændur erum búnir að vera að ræða um félagsmálakerfí okkar í upp undir 20 ár, hvað kerfíð sé orðið stórt og mikið en það gerist ekki neitt." segir Pétur Helgason, formaður Búnaðarsambands Eyja- fjarðar, en þau samtök hafa lagt til við landbúnaðarráðherra að hann endurskoði lög um Búnaðarfélag íslands með það markmið í liuga að starfsemi þess verði flutt út í sveitirnar til búnaðarfélaganna þar. „Okkur þykir umfangið í höfuð- stöðvum Búnaðarfélagsins í höfuð- stöðvunum í Reykjavík vera orðið alltof mikið og mörgura bændum finnst þeir vera í litlum tengslum við það sem þar er að gerast. Um- fangiö í félagskerfi bænda er reyndar orðið allt of mikiö, sama hvar boriö er niður, og það er al- menn óánægja meðal bænda með það hversu illa gengur að skera niður í þessu félagglega kerfi. Það gildir um öll þessi félög sem viö bændur erum búnir að búa til í kringum okkur. Öll þessi starfsemi er mjög kostn- aðarsöm. Eins og allir vita hefur ríkisvaldið dregið úr fjárframlög- um til bænda og ég held aö við verð- um að búa okkur undir það að taka þetta meira á okkur sjálfa. Þá þarf auövitað að leita alh-a hugsanlegra leiöa til að fá sem mest út úr þeim samtökum sem þurfa nauðsynlega að vera til. Það teljum við okkur fá meðþví að hafá þéssa starfsemi meira heima í héruðunum," segir Pétur. Hann segir að samþykkt Búnað- arsambands Eyjafjarðar hafi verið einróma. Þar sem Búnaðarfélag íslands starfi samkvæmt lögum hafi crindinu verið beint til ráð- hen-a, að hann beiti sér fyrir breyt- ingu á lögunum sem leiði til þess að starfsemi Búnaðarfélagsins fiytjist út um landið. Illa lestaður heyflutningabíll á leið inn í borgina var stöðvaður af lögreglu i gær við borgarmörkin. Farmurinn var farinn að hallast ískyggilega mikið á bakborðshliðina og var óttast að hann félli af pallinum með slæmum afleið- ingum. DV-mynd Sveinn Samningar gætu tekistídag „Falli atvinnurekendur frá því skilyrði að allir séu með og standi ríkisstjómin við allt sem hún hefur sagt þá sé ég ekkert því til fyrirstöðu aö samkomulag náist þegar í dag,“ segir Björn Grétar Sveinsson, for- maður Verkamannasambandsins. Samninganefndir ASí og VSÍ hitt- ast hjá ríkissáttasemjara eftir hádegi í dag. Nokkur óvissa ríkir vegna þess að vinnuveitendur vilja að Sjó- mannasambandið taki þátt í gerð nýs samnings. Af hálfu ríkisstjórnarinn- ar liggrn- ekki fyrir afdráttarlaust loforð um lækkun matarskatts því lækkunin er skilyrt við að allir hafi gengið inn í nýjan samning fyrir haustið. Ekki liggur heldur fyrir með hvaða hætti ríkið ætlar að fjármagna aðgerðir sínar og koma í veg fyrir auknar álögur á hina tekjulægstu. Gæti þetta tafið samningagerðina. Litlar líkur eru taldar á að Dags- brún taki þátt í gerð nýs kjarasamn- ings á þeim nótum sem rætt hefur verið um. Að öðru leyti ríkir nokkuð góð sátt milli VSÍ og ASÍ varðandi gerð nýs kjarasamnings. Rætt er um að nýr samningur gildi út næsta ár en með opnunarmöguleika í haust. Ekki yrði um neinar kauphækkanir aö ræða en á hinn bóginn yrðu ein- greiðslur festar í sessi og launafólki tryggðar láglaunabætur, orlofsupp- bót og desemberuppbót þegar á þessu ári. * kaa Veðriðámorgun: Stinnings- kaldieða allhvasst Á morgun verður austlæg átt, stinningskaldi eða allhvasst víð- ast hvar. Sunnanlands og vestan verða skúrir eða rigning en skýj- að með köflum norðaustan til. Hiti verður á bilinu 3-10 stig. Veðrið í dag er á bls. 44 K I N G L#T¥# .. alltaf á niiðvikiidögtmi TVÖFALDUR1. vinningur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.