Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1993, Qupperneq 8
8
FÖSTUDAGUR 28. MAÍ1993
UtLönd
Mafíusprenging við listasafn 1 Flórens:
Fimm láta lífið
og 50 slasast
Fimm manns létu líflð og rúmlega
50 slösuðust er sprengja sprakk í
miðbæ Flórens á Ítalíu í gær. Þeir
sem rannsaka sprenginguna telja að
um 100 kílóa sprengju hafi verið
komið fyrir í stolinni Fíat-sendiferða-
bifreið sem lagt hafði verið í öng-
stræti bak við hið þekkta Uffizi hsta-
safn.
„Það' er mjög líklega mafían sem
stendur fyrir þessari hryðjuverkaá-
rás,“ sagði innanríkisráðherra Ítalíu,
Nicola Mancini, eftir neyðarfund yf-
irvalda. í sprengingunni gjöreyði-
lagðist tum frá miðöldum ogfj ögurra
manna fjölskylda, sem var sofandi
innandyra, lét lífið. Auk þess fannst
kolbrennt lík í næsta húsi. Lengi var
talið að sex hefðu farist þar sem veg-
farandi hélt því fram aö hann hefði
heyrt neyðaróp frá safninu en leit
að hinu hugsanlegu fórnarlambi hef-
ur verið hætt.
Að sögn borgaryfirvalda eyðilögð-
ust um 30 listaverk, þar á meðal
málverkið Madonna alla Costa frá
1300 eftir ítalska meistarann Giotto.
Tjónið hefur enn ekki verið metið.
Aðeins þrjú málverk gjöreyðilögðust
en þau eru öll eftir tiltölulega lítt
þekkta listamenn. Fjarlægja varð um
300 listaverk af efstu hæð safnsins
vegna hættu á vatnsskemmdum en
allir glergluggar í byggingunni
splundruðust. Reynt verður að opna
safnið aftur eins fljótt og auðið er.
ítalir óttast nú mjög að hryðju-
verkabylgja mafíunnar sé í aðsigi.
Stærstu verkalýðsfélög Ítalíu ætla að
efna til tveggja tíma verkfalls í dag
til að mótmæla sprengingunni en
ekki er liðinn hálfur mánður frá því
að svipuð sprenging varð í Róm.
„ítalskir verkamenn láta ekki slík-
ar morðhótanir hræða sig,“ sagði í
tilkynningu frá verkalýðsfélögun-
um.
Reuter
Slökkviliðsmenn að störfum við Uffizi-safnið í Flórens í gær.
Símamynd Reuter
TIL SOLU
BMW 633 CSi, árgerð 1977, Alpina fjöðrun, 5 gíra, beinskiptur,
læst drif, gott lakk. Skoðaður 1994.
Upplýsingar í síma 98-22224 eða 22024.
ISLAIUD - RUSSLAIUD
Starfandi dómarar og aðrir með gild aðgangskort fá afhenta
aðgöngumiða á leikinrí á Laugardalsvelli, þriðjudaginn
l.júníkl. 11:00- 18:00.
Ath! miðar verða ekki afhentir fyrir utan þennan tíma.
Aðilar utan af landi, með gild aðgangskort, geta hringt
á skrifstofu KSÍ þriðjudaginn 1. júní kl. 08:00 - 12:00 og
látið taka frá fyrir sig miða sem síðan verða afhentir
samkvæmt nánara samkomulagi.
Hljómsveitir
Verslunarmannahelgin 1993.
Við leitum að hljómsveit til að
leika á fjölskylduskemmtuninni
Vík '93.
■IU
Um er að ræða tvo dansleiki, unglingadansleik með
söngvarakeppni og undirleik við varðelda tvö kvöld.
r
Ahugasamir sendi tilboð fvrir 10. iúní 1993 til: \
Verslunarmannahelgin í Vík
Pósthólf93 Aflaarnum^i,
870 v,k
. ,
'•'j
Hvalveiðar Norðmanna
hafa áhrif á inngöngu í EB
Þing Evrópubandalagsins sam-
þykkti í gær ályktun þar sem segir
að hvalveiðar Norðmanna geti haft
slæm áhrif á umsókn þeirra um inn-
göngu í bandalagið. Þingið er þeirrar
skoðunar aö Norðmenn verði að
semja sig að stefnu EB í hvalamálum
og hætta hvalveiðum. Talið er að
Norðmenn séu nú komnir í mjög
slæma aöstöðu.
Grænfriðungar hafa lýst yfir al-
þjóðlegu viðskiptabanni á norskar
vörur til að mótmæla þeirri ákvörð-
un Norðmanna að hefja aftur hval-
veiðar þrátt fyrir bann Alþjóðahval-
veiðiráðsins viö slíku,
„Við erum að gera þetta til að
breyta ákvörðun Norðmanna um að
veiða hvali í hagnaðarskyni og að
virða þar með að vettugi ákvörðun
meirihluta Alþjóðahvalveiðiráðs-
ins,“ sagðitalsmaður Grænfriðunga.
Norska stjómin leyfði veiðar á 296
hrefnum á þessu ári og er áætlað að
um 51 milljón norskra króna fáist
fyrir hrefnurnar. Alþjóðlegt við-
skiptabann getur reynst þeim mjög
dýrkeypt.
Mótshaldarar í Lillehammer eru
nú mjög farnir að óttast að hvalveið-
amar geti bókstaflega eyðilagt vetr-
arólympíuleikana sem eiga að fara
þar fram á næsta ári. Fá þeir hundr-
uö bréfa á hveijum degi, flest frá
Bandaríkjamönnum sem hóta að
sniðgangaleikana. NTBogReuter
Elskendur hvfla saman
í faðmi móður jarðar
Serbar heldu áfram arásum sínum
á borgina Maglaj í norðurhluta Bos-
níu í nótt Að sögn Sameinuðu þjóð-
anna eru um 30.000 manns innlyksa
í borginni og þarfnast íbúarnir mjög
bæði matvæla og lyfja. Heimildir
herma að Serbar herji nú grimmt á
Tesjani, Zavidovici, Olovo, Tuzla,
Brcko og Sarajevo.
Svo virðist sem Króatar og múslím-
ar hafi hætt bardögum sínum í Most-
ar. Stríðsaðilar hafa a.m.k. skipst á
nm 400 stríðsfóngum. Króatískur
embættismaður sagði að múslímar
virtu ekki skilmála friðarsamnings
sem gerður var í síðustu viku.
Lagt hefur veriö fram frumvarp til
laga í bandaríska þinginu þar sem
Bill Clinton Bandaríkjaforseta er
veitt heimild til að láta stjómina í
Bosníu fá allt að 1,2 milljarði í hem-
aðaraðstoð. í fmmvarpinu er tekið
fram að vopnabann Sameinuðu þjóð-
anna á fyrrum lýðveldi Júgóslavíu
geri íbúum Bosníu-Herzegóvínu
ókleift að verjast árásum Serba.
Elskendumir, Admira Ismic og
Bosko Brckic, vom borin til hinstu
hvílu í gær á hrjóstugri hæð. Þau
gerðu tilraun til að flýja frá Sarajevo
fyrir rúmlega viku en voru skotin
þrátt fyrir að þau teldu sig hafa feng-
ið leyfi stríðsaðila.
Móðir Boskos, sem flúði sjálf frá
Sarajevo á síðasta ári, fylgdi syni sín-
um til grafar. „Elsku börnin mín,
örlög ykkar eru að hvíla saman í
faðmi móöur jarðar," sagöi móðir
Boskos. Foreldrar Adimm þorðu
ekki að vera viðstödd jaröarfórina.
„Ég vildi að foreldrar hennar hefðu
verið héma og mér þótti vænt um
Admiru sem væri hún mín eigin dótt-
ir,“ sagði móðir Boskos Reuter
Radmila Brkic leggur peysu á kistu Admiru Ismic, unnustu sonar síns.
Peysuna prjónaði hún handa Admiru. Símamynd Reuter