Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1993, Qupperneq 12
12
. FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 1993
Spumingin
Hvað ætlar þú að gera
um hvítasunnuhelgina?
Kristjana Sveinsdóttir: Það er ekkert
ákveðið.
Bogi Hjálmtýsson: Grilla í garðinum.
Ólafur Hauksson: Það er alveg óvíst
en það er einna helst að maður fari
út á land.
Sylvia Pólsdóttir: Ég ætla að vera
heima með fjölskyldunni og gera eitt-
hvað skemmtilegt.
Gunnhildur Pálsdóttir: Ég hef ekki
planað neitt ennþá.
Ómar Freyr: Ég veit það ekki. Ætli
ég verði ekki bara að leika mér.
Lesendur
Bréf frá Herzegóvínu
Janko Andrijasevic skrifar:
Eftir að hafa verið þögull svo lengi
finnst mér endilega að ég þurfi að
láta í mér heyra um þá veröld sem
ég lifi og hrærist í. Ég er fæddur í
Króatíu og eyddi bemskuárum mín-
um á mörgum stöðum innan fyrrum
Júgóslavíu en er nú búsettur i
Montenegro, heimalandi föður míns.
Á öllu þessu flandri í lífi mínu hef-
ur ákveðinn andi skotið rótum í sálu
minni. Sá andi var aðeins lítill visir
í fyrstu, en hellist yfir mig nú og á
hug minn allan. Það er andi ykkar
fagra lands, íslands. Ég finn hann
innra með mér og skynja hann eins
og sambland af litadýrð Breiðafjarð-
arins og aldins andardráttar Þing-
valla og landið kemur ávallt upp í
huga mér þegar grimmilegar aðstæð-
ur mínar verða yfirþyrmandi.
Það er ekki auðvelt að hlusta á
hverjum morgni á fréttir af morðum,
eyðileggingu og hryliingi stríðsins.
Þó að þeir atburðir hafi hingað til
haldist frá minni heimabyggð er ekki
hægt að komast hjá því aö verða fyr-
ir sterkum áhrifum af þeim. Stund-
mn finnst mér að sársaukinn og
þjáningamar verði nánast yfirþyrm-
andi. Brunnir veggir og leiði bama
em hvarvetna um landið sem við
áður kölluðum ættjörðina.
Núna sendi ég bréf frá mér og ætt-
ingjum mínum í Króatíu til Reykja-
vikur og pennavinur minn þar, Katr-
ín, sér um að koma þeim á áfanga-
stað. í hvert sinn sem ég kemst í
snertingu við ísland með þessum
hætti næ ég að leiða hugann frá
hörmungunum og mér finnst sem
svalandi jöklavindar leiki um ásjónu
mína. Mér hlýnar um hjartarætur
við þessa tilfinningu og þessi tengsl
halda í mér lífinu.
Mig langar til að segja íslendingum
að land þeirra er gersemi. Þeir ættu
að vera hamingjusamir og hreyknir
yfir því að fá að búa í því og ættu
að gæta þess eins og sjáldurs auga
síns. Náttúra, saga og menning þessa
fagra lands, samtvinnuð einstakri
þjóðarsál, hafa heltekið mína sál og
sest þar að. Mig langar til að þakka
kærum pennavinum minum á ís-
landi, Katrínu, Kristínu, Hólmfríði,
Unnari og öllum þeim sem hafa skrif-
að mér. Kærar þakkir til þeirra fyrir
að kynna mig landinu og ég veit að
hjarta mitt verður ávailt þar.
Með kveðju og ást.
Janko Andrijasevic.
■m;
Það er ekki auðvelt að hlusta á fréttir ó hverjum morgni sem segja frá morðum, eyðileggingu og hryilingi striðsins
í fyrrum Júgóslavíu.
Frábærir þættir Baldurs
Elín Bjarnadóttir hringdi:
Ég má til með að koma á framfæri
þökkum til Ríkissjónvarpsins og
Baldurs Hermannssonar fyrir þá
stórkostlegu þætti, „Þjóð í hlekkjum
hugarfarsins“ sem sýndir hafa verið
undanfama sunnudaga. Þessir þætt-
ir eru besta sjónvarpsefni sem ég
man eftir síðan Dallas rann sitt skeið.
Ég var svo heppin að ná því að sjá
fyrsta þáttinn og var sem límd fyrir
framan tækið næstu þrjú sunnu-
dagskvöld, enda mátti ég ekki til þess
hugsa að missa af neinum þætti. Ég
veit að sama gildir um flesta aðra,
hvort sem þeir voru hrifnir af inni-
haldi þáttanna eður ei. Allir höföu
þættimir sérstök áhrif á mig, en þó
var lokaþátturinn sérlega áhrifamik-
m.
Þegar Baldur Hermannsson kom
sjálfur fram í enda hans, grátklökkur
af samúð með svívirtum löndum
okkar, nánast grét ég með honum.
Baldur vekur mann svo sannarlega
til umhugsunar um þau kjör sem
almúgi landsins þurfti aö búa við á
öldum áður, en því miður virðist svo
sem sá skilningur hafi farið fyrir of-
an garð og neðan í þeirri fátæklegu
sögukennslu sem maður fékk notið
í skóla.
Ekki má heldur gleyma skilaboð-
um hans til kvenna því þá rifjast upp
hið fornkveðna, „Hver dáð sem mað-
urinn drýgir, er draumur um konu-
ást.“ Maður hefði haldið að einhver
sannleikur fæhst í þeim orðum en
það er öðru nær. Baldur færði okkur
heim sanninn um það að þessi ást
beindist í átt til blessaðrar sauökind-
arinnar en ekki til okkar kvennanna.
Hafi Baldur þökk fyrir framleiðslu
þessara þátta og ég vona að ég eigi
eftir að sjá meira efni frá honum í
þessum dúr.
Brottför vamarliðsins:
Aðild að EB bjargvætturinn?
Kristinn Sigurðsson skrifar:
Nú hafa Danir samþykkt Maas-
tricht-samninginn og áhtið er að í dag
séu lífskjör í Danmörku þau bestu á
Norðurlöndunum. Einnig mætti
benda á lönd eins og Holland og Belg-
íu, líklega eru lífskjör í þessum lönd-
um svipuð og í Danmörku eða fast
aö því.
Enginn efast heldur um að Danir
Hringið í síma
632700
milli kl. 14 og 16
-eða skrifíð
ATH.: Nafn og símanr. verður
að fylgja brcfum
og Hohendingar halda fuhu sjálf-
stæði. Spurning dagsins hlýtur að
vera, hver verður staða okkar þegar
öh hin Norðurlöndin verða orðin
aðilar að EB, líklega árið 1995? Mun-
um við einangrast? Ef vamarhðið fer
væri það hlutverk okkar að reka
flugvölhnn og það kostar marga
milljarða. Einnig myndum við missa
af öðrum tekjum er skipta milljörð-
um ef herinn færi.
Ef við værum í EB má telja öruggt
mál að EB myndi styrkja þann rekst-
ur ríflega. Fráleitt er að halda að við
náum hagstæðum fríverslunar-
samningi við Bandaríkin, sem nýlega
hótuðu okkur einangrun og refsiað-
gerðum ef við nýttiun hafsvæðið við
Island. Því tel ég nú í dag að við ætt-
um að sækja um aðhd að EB, því ef
EES er góður kostur þá ætti aðUd að
EB aö vera enn betri kostur.
„Fráleitt er að halda að viö náum
hagstæðum fríversiunarsamningi
við Bandaríkin," segir í grein bréf-
ritara.
Ofmikiðafhakki
Birna hringdi:
Nautakjötsframleiðendur hafa
verið að auglýsa „frábært" og
níðursett verð á úrvals nauta-
kjöti undanfarna daga. Boðið er
upp á 6 kílóa pakkningar á rúm-
lega sex hundruð krónur kflóið.
Eflaust verða einhverjir spenntir
yfirþví að geta fengið nautakjötiö
á svo lágu verði.
En hætt er við að spenningur-
inn núnnki þegar umbúðimar
eru opnaðar og innihaldið kemur
í Ijós. Það er eitthvert magn sem
nota má í gúllas en afgangurinn
er hakk. Það er ekki nema von
að Jón Ásbergsson í Hagkaupi og
Jóhannes í Bónusi snúist önd-
verðir gegn sölu á þessum pökk-
um á „gjafverði".
Leiðinátoppinn?
Ingvar hringdi:
Það hefur vakið athygh mína
við að horfa á sjónvarpsþættina
nmdeUdu „Þjóð i hiekkjum hug-
arfarsins“ hve margir af fyrir-
mömium þjóðarinnar koma við
sögu í skelfilegum lýsingum á því
hvemig húsbændur komu fram
við hjú sín í vistaránauð fyrri
alda. Nefiid eru þekkt nöfn eins
og th dæmis Skúla Magnússonar
fógeta og fleiri merkra manna.
Vom þessir menn, sem við höf-
um hingað til dáðst að sem stór-
mennum, helber iUmemn? Eða
ætti maöur kannski frekar að
spyrja: Var það nauðsynlegt að
koma fram eins og skepna við
smælingja þjóðarinnar til aö
koraast th áhrifa í íslensku þjóð-
félagi? Ekki veit ég hvað satt er
í þessu máli.
Sinubruni undir
eftirliti
Kjartan skrifar:
Á hverju ári að vorlagi les mað-
ur um það í blöðunum að
slökkvilið og lögregla berst hart
fyrir því að slökkva sinuelda, oft
með litlum árangri. Oft eru þetta
krakkar og unglingar sem eru að
leika sér og það skapar eðhlega
vissa hættu.
En það má ekki gieyma þeirri
staðreynd að sinubruni gerir tún-
um afskaplega gott því gömul
sina heftir mjög heUbrigðan gras-
vöxt. Væri nú ekki ráö að slást
frekar í lið með sinubranamönn-
um og láta löggæsluna hjálpa til
við sinubrunann, undir eftirhti
og á réttum tíma árs, áður en
varp fugla byrjar, í stað þess að
vera aö hefta það sem gerir tún-
unum gott.
Helgi hringdi:
Misvitrar en valdamiklar þjóðir
liafa nú gripið til viðskiptaþving-
ana gegn þeim þjóðum sem
stunda hvalveiðar og er talað um
aðgerðir gagnvart Norðmönnum
óg Færeyingum. Til ahrar haro-
ingju hefur okkur hingaö tíl veriö
hótað en lítið verið gripið th að-
gerða (nema af hálfu samtaka
eins og Greenpeace).
Ætia mætti að þegar þjóðir
heims hætta að kaupafiskafurðir
af hvalveiðiþjóðunum vænkist
hagur íslendinga um leiö. Þó að
þaö sé Ijótt að segja það þá er eins
dauði annars brauð og því gætum
við íslendingar hagnast á því að
hefja ekki hvalveiðar á meðan
aðrar þjóðir taka ákvörðun um
slíkt.
Áskorun
tilsjónvarps
Haligrímur skrifar:
Ég vU beina þeirri áskorun til
annarrar hvorrar sjónvarpsrás-
arinnar að sýna bresku þættina
Spittmg Image. Þeir era úrvals
sjónvarpsefni sem margir hafa
áhuga á.