Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1993, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 28.05.1993, Side 13
FÖSTUDAGUR 28. MAÍ 1993 Neytendur Ýmsir kaupmenn úti á landi geta nú boðið viðskiptavinum sínum upp á ódýrari matar- og hreinlætisvörur eftir að þeir byrjuðu að flytja inn sjálfir. Kaupmenn á Austurlandi: Flytja vörur beint inn frá Danmörku - þýðir 15-20% heildarlækkun Kaupmenn á Austurlandi hafa nú brugðið á það ráð að flytja inn sjálfir ýmsar vörur beint frá Danmörku. Með þessu móti geta þeir boðið upp á lægra vöruverð en hefðu þeir keypt vörumar af heildsölum hér á landi. „Við fórum út í þennan innflutning á þeirri forsendu að við þyrftum að rífa hér upp verslun og landsbyggð- arfólkið kallar á sama verð og er í bænum,“ sagði Guðjón Sigmunds- son, framkvæmdastjóri Verslunarfé- lags Austurlands. „Eg sé ekkert rétt- læti í því að eitt horn á landinu sé með allt annað verð en hin.“ Guðjón sagði það tíðkast að vissir heildsöluaðilar væru ekki með sama verð fyrir kaupmenn í Reykjavík og úti á landi. Þannig væri púðursykur t.d. ódýrari í Bónusi en hann er í heildsölu fyrir kaupmenn úti á landi. Mikill verðmunur Það er mjög mismunandi hversu mikið magn hver verslun pantar inn en Verslunarfélag Austurlands er eitt af þeim aðilum sem pantar mjög mikið. Hér er um að ræða 600-700 vörutegundir og þá aðallega matar- og hreinlætisvörur. Sem dæmi um verðmun má nefna Pampers bleiur sem áður voru seldar á 1.545 krónur en eru nú á 1.184 krón- ur. Þar er verðmunurinn 30%. Þrjú kíló af Prik þvottaefni voru á 520 krónur en er nú á 329 krónur. Þar er verðmunurinn 58%. Fleiri verslanir bætast við Verslunarfélag Austurlands byijaði að flytja inn vörur í febrúar sl. og á nú von á sínum fjórða gámi frá Dan- mörku. Flutningurinn, sem er meö skipi, tekur um tvo daga. Guðjón sagði æ fleiri verslanir bættust við sem sýndu þessum inn- flutningi áhuga og viðskiptavinir væru auðvitað mjög ánægðir með að verðið á íjölmörgum vörum hefði lækkað. Guðjón sagði ennfremur að það hefði verið sárt fyrir kaupmenn að horfa upp á fólk láta versla fyrir sig heilu pallana af matvörum að sunn- an á meðan kaupmenn úti á landi væru að reyna að halda uppi þjón- ustu. Það hefði því ekki verið um annað að ræða en að gera eitthvað í máhnu eða bara loka verslununum og láta fólk halda áfram að panta allt fyrir sig að sunnan. -KMH Sviðsljós Nemendur Söngsmiðjunnar fluttu lög úr söngleiknum Cats og voru að sjálf- sögðu i viðeigandi búningum. DV-myndir ÞÖK Söngskemmtun Söngsmiðjnnnar Nemendur Söngsmiðjunnar luku starfsárinu með sérstakri söng- skemmtun á Hótel íslandi fyrir skömmu. Auk þeirra kom fram kór íslandsbanka og tveir gestasöngvar- ar en á skemmtuninni voru flutt lög úr söngleikjunum Cats og West Side Story auk laga frá sjötta áratugnum. Stjórn- og uppsetning var í höndum Estherar Helgu Guðmundsdóttur en kjmnir var Þorgeir Ástvaldsson. 13 Dawson David Laing NÝ ÚRVALSBÓK Tvíblinda eftir David Laing Dawson - höfund Urvalsbókarinnar A elleftu stund Þegar Snow læknir og vinkona hans verða fyrir ruddalegri árás er Snow ekki lengur í vafa um að eitthvað mikilvægt er á seyði sem hann verð- ur að leysa. Eða - er hann kominn með ofsóknarkennd eins og sjúkling- arnir hans? Höfundurinn er klínískur geðlæknir í Ontario og gjörþekkir það svið sem hann velur sögum sínum. Enda eru þær dramatískar spennusögur með þungum undirtóni sem gefur þeim sérstakt gildi. A næsta sölustað eða í áskrift í síma (91) 63 27 Aðeins kr. 790,-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.