Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1993, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1993, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 1. SEPTEMBER 1993 11 UÚönd Aðalsarnningamaður Palestínumanna efíns um samkomulagið við ísrael: Erum ekki í aðstöðu til að undirrita það Haidar Abdel-Shafi, aðalsamninga- maður Palestínumanna í friðarvið- ræðunum við ísrael í Washington, sagði í gær að lið hans væri ekki tíl- búið að skrifa undir friðarsamkomu- lagið sem ísraelsk stjórnvöld og Frelsissamtök Palestínu, PLO, sömdu um sín í milh. „Við erum að skoða samkomulagið vandlega. Ég get ekki sagt að við sé- um í aðstöðu til að undirrita það,“ sagði Abdel-Shafi eftir fyrsta fund í elleftu umferð viðræðnanna. „Við verðum að vera vissir um að það komi til móts við grundvahar- kröfur okkar,“ bætti hann við. Abdel-Shafi hefur lýst áhyggjum sínum yfir því að Palestínumenn megi ekki gefa of mikið eftír í viðræð- um viö ísraelsmenn. Embættísmenn úr búðum bæði ísraelsmanna og PLO sögðu í gær að menn væru þegar búnir að setja fangamark sitt undir grundvallar- samkomulag um sjálfstjóm Palest- ínumanna á Vesturbakkanum og Gaza eftir leynilegar viðræður í Ósló. Háttsettur ísraelskur embættis- maður sagði að skjahð væri „klappað og klárt“ og aðeins væri eftir að ákveða hver undirritaði það. Heimildarmaður úr röðum Palest- ínumanna sagði að frekari viðræður færu nú fram í Ósló fil að reyna að Leyniviðræður Palestínumanna og Israelsmanna I Osló fóru fram í þessu húsi, aðalstöðvum iðnfyrirtækisins Borregaard. Simamynd Reuter Israelsmenn: Andvígir sjálfstæðu ríki Palestínumanna Stjórn ísraels sér fram á að Vestur- bakkinn og Gazasvæðið undir stjórn Palestínumanna muni um síðir mynda sambandsríki með Jórdaníu. Þetta kom fram í París í gær þar sem ísraelska sendiráðið þar varð fyrst til að skýra frá smáatriðum samkomulags ísraelsmanna og Pal- estínumanna um sjálfstjóm. í yfirlýsingu sendiráðsins þar sem tilögur Israels voru kynntar sagöi að ísraelska stjórnin væri áfram andvíg stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínu- manna og hún mundi halda yfirráð- um sínum í Jerúsalem. Warren Christopher, utanríkisráð- herra Bandaríkjanna, sagði í gær að bandarísk stjómvöld styddu sam- komulagið eindregið og mundu hjálpa til að útvega fé til að hrinda því í framkvæmd. Benjamili Netanyahu, leiðtogi ísra- elsku stjómarandstöðunnar, fór fyr- ir hópi hægrisinnaðra stjómmála- Benjamin Netanyahu. Símamynd Reuter manna inn í Jeríkó og kom ísraelska fánanum fyrir á húsi í bænum sem íbúar segja að Yasser Arafat, leiðtogi PLO, muni gera að heimiU sínu. Net- anyahu sagði að samkomulagið mundileiðatilstríðs. Reuter ná samkomulagi um tilkynningu á viðurkenningu ísraels á PLO. Yossi BeiUn, aðstoðamtanríkisráð- herra ísraels, sagði að Símon Peres utanríkisráðherra færi hugsanlega til Washington ásamt háttsettum manni PLO til að undirrita sam- komulagið ef deiluaðilar féUust á við- urkenningu hvor á öðrum. Almennt er taUð að það verði einhvern tíma á næstu tveimur vikum. Reuter Bandamenn Jeitsinsáenda- Alexander Rutskoj, vara- forseti Rúss- lands og erki- fjandi Borís :;|éltsjis|iiká|i!| :;:ÍÖð®Lúp:;l;:|j| menn forsetans j um að eyði- ' leggja Rússland með því að vera á endalausu fylhru. Rutskoj, sem eitt sinn var dygg- ur fylgismaöur Jeltsíns, hafði orð á drykkjuskap manna forsolans í viðtah viö ihaldssamt bænda- blaðígær. Reuter Meiriháttar STOR-CTSAU Bjóðum ný HANKOOK sumardekk fyrir fólksbíla með 40% afslætti. Frábærir hjólbaröar - einstakt tækifæri Fjölmargar aðrar stærðir 145R12 145R13 155R13 165R13 175/70R13 185/70R13 Kr. -326©- Kr. 1960 Kr. -3486- Kr. 1990 Kr. -3?70- Kr. 2260 Kr.-S959- Kr. 2370 Kr. 4299- Kr. 2570 Kr. 4600 Kr. 2790 175R14 185/70R14 205/70R14 165R15 185/65R15 185/60R14 Kr.-4969-- Kr. 2970 Kr -6+99- Kr. 2990 Kr."83S9— Kr. 3790 Kr. 4699- Kr. 2690 Kr.-6299-Kr. 3770 Kr. "5969- Kr. 3490 Barðinn hf. Skútuvogi 2 - sími 683080 viltip m isu? Við kennum alla samkvæmisdansana: Suðurameríska, standard og gömlu dansana. Svo kennum við líka barnadansa. Einkatímar fyrir þá sem vilja. Fjölskyldu- og systkinaafslattur. Innritun og upplýsingar 1. -10. september kl. 10-22 í síma 64 1111. Kennsla hefst mánudaginn 13. september. Kennsluönn lýkur með jólaballi í desember. "Opib hús" öll laugardagskvöld. Supadance skór á dömur og herra. DANSSKÓLI , SIGURÐAR HAK0NARS0NAR AUÐBREKKU 17, KÓPAV0GI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.