Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1993, Page 3
LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1993
fc> ó k a b ú ð u m
3
Fréttir
MLsnotaði stúlkubam kynferðislega:
Afrýjaði tvisvar
og refsing þyngd
í bæði skiptin
- 12 mánaða fangelsi niðurstaða Hæstaréttar
Hæstiréttur dæmdi í fyrradág
Hafnfirðing í 12 mánaða fangelsi fyr-
ir að hafa misnotað frænku sína kyn-
ferðislega í nokkur skipti á árunum
1989 og 1990 en þá var stúlkan 5 og 6
ára. Dómurinn þyngdi verulega
dæmda refsingu Héraðsdóms
Reykjaness frá því í vor en þar var
níu og hálfur mánuður refsingarinn-
ar skilorðsbundinn.
Héraðsdómur var upphaflega
kveðinn upp í september 1992. Þá
fékk maðurinn 8 mánaöa fangelsi en
6'A mánuður var skilorðsbundinn.
Sakborningurinn áfrýjaði þeim
dómi. Hæstiréttur felldi héraðsdóm-
inn síðan úr gildi í janúar og vísaði
aftur heim í hérað. Þörf þótti á því
að félagsmálastjóri Kópavogs og
tveir læknar kæmu fyrir héraðsdóm
en það hafði ekki verið gert í fyrstu
dómsmeðferðinni í héraði.
Framburður þremenninganna
hafði síðan þau áhrif að maðurinn
var sakfelldur í maí fyrir fleiri brot
en hann hafði verið dæmdur fyrir í
héraði í september og fékk 12 mánaða
fangelsi en 9A mánuður var skil-
orðsbundinn eins og fyrr segir. Sak-
bomingurinn áfrýjaði máli sínu öðru
sinni í sumar. Hæstiréttur hefur nú
komist að þeirri niðurstöðu að refs-
ing sé hæfileg 12 mánaða fangelsi -
allt óskilorðsbundið.
Maðurinn er skyldur umræddri
stúlku og leitaði hann á hana jafnt
utan klæöa sem innan í nokkur
skipti á nær tveggja ára tímabili.
Afleiðingar brotanna urðu alvarleg-
araðálitihéraðsdóms. -Ótt
Ureldingartogarar Skagstrendings.
DV-mynd Þórhallur
Skagstrendingur:
Togarar seldir og Nami-
bíu-ráðherra í heimsókn
Þórhalhir Asmundsson, DV, Sauðárkróki:
Góðar líkur 'eru á að Skagstrend-
ingi á Skagaströnd takist að koma
báðum úreldingartogurum sínum í
verð. Hjörleifur hefur verið seldur
og góðir möguleikar eru taldir á að
gamh Arnar fái kvóta í Namibíu.
Verður hann þá seldur til útgerðarfé-
lags sem Skagstrendingur stofnaði
með Namibíumönnum með sam-
vinnu um fiskvinnslu og útgerð í
huga.
Sveinn Ingólfsson, framkvæmda-
stjóri Skagstrendings, vildi ekki gefa
upp kaupanda Hjörleifs en sá aðili
hefur þegar greitt upp í kaupin.
Sjávarútvegsráðherra Namibíu
kemur til Skagastrandar á sunnu-
dag. Hann er í fylgdarliði forseta
Namibíu sem er í opinberri heim-
sókn hér á landi. Ráðherrann endur-
geldur þar með heimsókn fulltrúa
Skagstrendings til Namibíu á síðasta
hausti. Sveinn sagði að menn vonuð-
ust til að ráðherrann tryggði kvóta á
Amar og að verðlagning á skipinu
yrði þannig að menn gætu sætt sig
við hana. Hugmyndin er að verð
skipsins renni sem hlutafé í ráðgjaf-
ar- og útgerðarfyrirtækið Nísi.
Tveggja mánaða fangelsi fyrir árás á opinberan starfsmann:
Kýldi lögreglumann
inn um hliðarrúðu
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt 25 ára Reykvíking í tveggja
mánaða fangelsi fyrir að hafa slegið
lögreglumann hnefahöggi inn um
opna hliðarrúðu lögreglubifreiðar á
Lækjartorgi þann 27. júlí síðastlið-
inn. Lögreglumaðurinn hlaut heila-
hristing og bólgu yfir kinnbeini við
höggið.
Hér er um að ræða líkamsárás á
opinberan starfsmann. Sakboming-
urinn hafði tvisvar áður verið dæmd-
ur fyrir líkamsárás og fékk hann þá
sektir í bæði skiptin. Þá haíði ákær-
um á hendur honum verið frestað
tvisvar vegna auðgunarbrota.
Héraðsdómur taldi árás mannsins
á lögreglumanninn tilefnislausa og
ófyrirleitna. Allan Vagn Magnússon
kvað upp dóminn.
-Ótt
t í S b o ð
Snilldarleg
verð frá og meö
1. desember:
2.850-
skáldsaga eflr Gunerg
Bergsson
st í næstu
bókabúó
I í kjallaraherbergi úti í bæ kúrir miðaldra maður og bíður þess
að ástin berji að dyrum. Þar leitar hann nautnar sem er ósýni-
| leg heiminum, rammflæktur í íslenskum hnút innst í völundar-
húsi ástarinnar.
Hvert nýtt skáldverk frá hendi Guðbergs Bergssonar sætir
tíðindum í íslenskum bókmenntaheimi. í þessari meistaralegu
skáldsögu leiðir hann okkur um völundarhús ástríðnanna, og
þar fáum við að gægjast í hugskot mannsins sem ráfar einn í
rökkrinu og leitar að Ijósinu.
En rökkrið er eldfimt og kveikir sterkar tilfinningar hjá
lesandanum.
F O R L /V G I
M Á L OG M E N N I N G