Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1993, Page 7
LAUGARDAGUR 6. NÓVÉMBER 1993
7
Fréttir
Ungur maður dæmdur fyrir að stofha M fólks 1 hættu og líkamsárás:
Skaut úr haglabyssu
inn um rúðu á nágranna
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur
dæmt 22 ára ReykvíMng í 6 mánaða
skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa
stofnað lífi fólks í hættu þegar hann
hleypti af haglabyssu inn um stofu-
glugga hjá nágrönnum sínum í fjöl-
býlishúsi að Seilugranda aðfaranótt
síðastliðins nýársdags. Hann er jafn-
framt dæmdur fyrir líkamsárás
sömu nótt og fyrir að hafa skotið úr
byssunni á íbúðarhurð í húsinu og á
mannlausan jeppa fyrir utan.
Maðurinn, sem var ölvaður, tók
fyrst konu kverkataki fyrir framan
íbúð hans og hélt henni lengi þannig
en hrinti henni síðan meö þeim af-
leiðingum að konan lenti á báðum
olnbogum og hlaut við það meiðsl,
m.a. á hálsi.
í framhaldi af þessu tók maðurinn
haglabyssu og skaut úr henni beint
inn um stofuglugga í næstu íbúð viö
hans íbúð. Glugginn er þrískiptur og
fóru höglin inn um miðhlutann en
fyrir innan til hliðar stóð maður.
Annað fólk sem var innandyra hafði
beygt sig niður og slapp þannig við
höglin þegar glerbrotunum rigndi
yfir. Með þessu stofnaði ákærði lífi
fólks í augljósan háska.
Eftir þetta skaut maðurinn úr byss-
unni út úr íbúð sinni eftir ganginum
á hurð að annarri íbúð fyrir hinum
enda gangsins. Hurðin varð fyrir
höglimum og skemmdist þannig. Því
næst skaut maðurinn á framan-
greindan jeppa fyrir utan húsið sem
skemmdist nokkuð, aðallega á fram-
hurð og hliðarspegli.
Héraðsdómur tók mið af því við
refsiákvörðun að konan sem kærði
framangreinda líkamsárás dró hana
til baka og greiddi maðurinn henni
65 þúsund krónur í skaðabætur.
+<5TU&fyZy, V *
V * meðdagfn*** ★
★ * ***** p
Borði í
veisluna
6 metrar
ÚTGEFANDI SÍMI 629166
Hann greiddi einnig 275 þúsund
krónur í skaðabætur til eiganda jepp-
ans vegna skemmdanna á bílnum.
Dómurinn tók auk þessa mið af því
að maðurinn, sem er ungur að aldri,
gekkst greiðlega við brotum sínum -
hann hefði bætt fyrir þau eftir mætti
og því þóttu skilyrði vera til að skil-
orðsbinda refsinguna. Vopn og skot-
færi sem maðurinn hafði undir
höndum eru hins vegar dæmd til
upptökutilríkissjóðs. -Ótt
„Lengi býr að fyrsta banka"
Gjafabref
er gott veganesti!
Nú gefst œttingjum og öörum
velunnurum kostur á oð
leggja grunn
aö sparnaöi
barna og ung-
menna á mjög
I viöeigandi hátt,
/ meö gjafabréfi frá
íslandsbanka.
Þau geta ýmist veriö skírnargjafabréf eöa gjafabréf sem
tengjast einhverju ööru tilefni s.s. afmœlis-, brúökaups- eöa útskriftargjöf.
Gjafabréf frá íslandsbanka er skemmtilegur möguleiki ef þú vilt gefa gjöf
meö vöxtum.
_ L AG A R
______jS|