Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1993, Page 10
10
LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1993
Bjargvætturinn breytir um lífsstíl eftir veikindi:
Var orðinn þreyttur
á þrekleysinu
- segir Einar Oddur Kristjánsson sem verið hefur í endurhæfíngu á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði
„Ég er búinn að vera hér í fjórar
vikur og er að útskrifast. Ástæða
þess að ég kom hingað er sú að ég
veiktist í vor, fékk blóðtappa í höfuð-
ið, sem ruglaði mikið jafnvægið hjá
mér. Ég var heilan mánuð á Grensás-
deildinni að byggja mig upp en var
ansi lengi á fætur,“ segir Einar Odd-
ur Kristjánsson, bjargvætturinn svo-
kallaði, sem hefur undanfarnar vik-
ur verið að vinna upp fyrra þrek og
orku á Heilsustofnun Náttúrulækn-
ingafélagsins í Hveragerði eftir mikil
veikiiídi.
Einar Oddur rekur útgerðarfyrir-
tækið Hjálm á Flateyri og var um
tíma formaður Vinnuveitendasam-
bands íslands. Þá var hann í for-
stjóranefndinni sem fyrri ríkisstjórn
setti á laggirnar til að bjarga þjóöar-
skútunni. Upp frá því varð til þjóðar-
sáttin fræga.
Einar Oddur telúr ekki að hann
hafi veikst vegna mikils álags eða
stress. „Þeir sögðu að ég væri of feit-
ur og reykti of mikið. Hins vegar
væri þetta fyrst og fremst arfgengt,"
segir hann. „Ég var margbúinn að
fara í Hjartavernd og alls kyns próf
en aldrei fannst neitt að mér enda
hafði ég aldrei fundiö til. Þetta gerð-
ist bara allt í einu án nokkurs fyrir-
vara.“ Einar Oddur var á annan
mánuð á sjúkrahúsi áður en hann fór
á Grensásdeildina.
„Þaö var eins og hleypt væri vindi
úr blöðru. Mér fannst ég algjörlega
þreklaus eftir veikindin. Eg var
heima á Flateyri í sumar og reyndi
að þjálfa mig en fannst mér ganga
mjög seint að ná mér. Ég vildi því
gera átak í mínum málum og fara á
Heilsustofnunina í Hveragerði. Ég lét
strákana heima um fyrirtækið,
ákvað að fara frá öllu og nota tímann
til að byggja mig upp. Eg er hvort eð
er búinn að reka fyrirtækið í tuttugu
og fimm ár og orðinn leiður á þvi,“
segir Einar Oddur hress að vanda.
Staðurinn
kom á óvart
„Ég vissi lítið um þennan stað en
sagði lækninum heima að ég væri
orðinn pirraður á sjálfum mér og
vildi því komast í Hveragerði. Hann
tók því vel og hafði samband hingað.
Ég ákvað að vera í mánuð. í fyrst-
unni var ég þolprófaður og síðan
byrjaði uppbyggingin sem felst í leik-
fimi, göngutúrum, sundi og annarri
líkamrækt en hér eru öll fullkomn-
ustu tæki. Ég er mjög hrifmn af þrek-
hjólinu og finnst notalegt að vera
héma vegna þess hversu umhverfið
er rólegt og afslappað. Hér er ekki
til stress," segir Einar Oddur.
„Ég fer í langan göngutúr á hverj-
um degi en hægt er að velja um lengd
því nokkrir hópar eru í gangi. Við
höfum verið mjög heppin með veður
hér undanfarinn mánuð þannig að
það hefur verið gaman að ganga hér
um.“
Einar Oddur segir að fyrst þegar
hann kom til Hveragerðis hafi hon-
um fundist allt mjög „gamalt'‘ í um-
hverfinu en síðan hafi hann séð að
svo var alls ekki. „Hér er fólk á öllum
aldri. Það eru aliir mjög afslappaðir
og maður getur ráðið því sjálfur við
hverja maður á samneyti. Menn spila
biiliard hér og gert ýmislegt sér til
dægrastyttingar."
Finnur mikinn mun
Einar Oddur segist finna mikinn
mun á sér eftir þessar fjórar vikur.
Einar Oddur Kristjánsson, bjargvætturinn frá Flateyri,
hefur byggt sig upp andlega og líkamlega á Heilsustofn-
un NLFÍ í Hveragerði undanfarnar fjórar vikur eftir veik-
indi. Hann prófaði meðal annars hið fræga leirbað og
líkaði vel. Með honum á myndinni er Elísabet Svein-
björnsdóttir, eiginkona Þorsteins Steingrímssonar, en
hún prófaði einnig leirbaðið.
Þorsteinn Steingrimsson fasteignasali fékk kransæða-
stíflu og er nú að byggja sig upp. Hér er Guðmundur
Björnsson yfirlæknir að þolprófa hann. Þorsteinn sýndi
gífurlega framför eftir þriggja vikna dvöi á stofnuninni.
Einar Oddur nýtur hér stuðnings sjúkraþjálfara við æfingatækin.
„Ég hef styrkst heilmikið. Mér fannst
líka mataræðið mjög spennandi. Ég
hef fengiö tilsögn í mataræði alla ævi
og ekki viljaö fara eftir viðvörunum
í þeim efnum. Hins vegar fékk ég
strax áhuga á því fæði sem hér er
og finn mun á mér, er léttari og far-
inn að borða miklu minna en ég
gerði. Maður verður fljótt saddur af
heilsufæðinu og líður vel af því,“ seg-
ir Einar Oddur og segir af og frá að
hann sæki í mat annars staðar.
„Bragi í Eden sagöi mér að hann
tæki iqjög eftir því að fólk kæmi
miklu minna til sín en áður var. Oft
kom hópur fólks til hans frá Heilsu-
stofnuninni og fékk sér að borða en
svo er ekki lengur. Tíðarandinn hef-
ur því breyst mikið varðandi heilsu-
fæði.“
Heilsustofnun NLFÍ hefur á und-
anfömum árum verið að þróast í
fullkomna endurhæfingarstöð, ekki
ósvipaða og Reykjalundur er. AIls
kyns meðferðarprógrömm eru í
gangi jafnt fyrir þá sem vilja fyrir-
byggja veikindi eða þá sem eru að
stíga upp úr veikindum. Þannig er
sérstök meðferð fyrir krabbameins-
sjúkhnga, önnur fyrir hjartveika,
bakveika eða þá sem eiga við offitu-
vandamál að etja. Einnig þá sem
þjást afofþreytu og álagi og vilja leita
sér lækninga. Stofnunin tekur 160
dvalargesti og kostar frá 1000-1800
krónur sólarhringurinn. Nokkur
DV-myndir GVA
rúm eru þó algjörlega greidd af
Tryggingastofnun ríkisins.
Gestirfrá
sextán ára aldri
Margir standa sjálfsagt í þeirri trú
að Heilsustofnunin sé fyrir aldraða
einstakUnga en svo er ekki. Dvalar-
gestir eru frá sextán ára aldri. Þor-
steinn Steingrímsson, fasteignasaU á
Fasteignaþjónustunni, fékk krans-
æðastíflu í vor og dvelur nú í Hvera-
gerði til að byggja upp þol og þrek.
„Mér finnst ég vera allt annar maður
síðan ég kom,“ sagði hann í samtaU
við DV. „Ég hef aUur styrkst, grennst
og líður eins og nýjum manni,“ sagði
hann ennfremur. „Ég var mikið fyrir
sælgæti og drakk minnst tvær kók á
dag en finn ekki fyrir því núna að
mig langi í sætindi. Ég hef líka lést
talsvert og húðin á mér er miklu
betri en hún var,“ sagði hann. Eigin-
kona Þorsteins er með honum og
notaði tækifærið til að stunda Uk-
amsrækt og fara í öll þau heilsuböð
sem boðið er upp á.
YokoOno vildi
prófa leirbaðið
Leirbaðið er sérstaða stofnunar-
innar og það var Einar Oddur að
prófa þegar helgarblaðið kom í heim-
sókn. Hann lét vel af því en þess má
geta að Yoko Ono og Nina Simon
gerðu sér báðar ferð í Hveragerði tU
að prófa leirbaðið þegar þær heim-
sóttu landið. Að sögn Gunnhildar
Valdimarsdóttur hj úkrunarforstj óra
er talsvert af fyrirspurnum erlendis
frá um leirbööin. Leirinn er tekinn í
nágrenni HeUsustofnunarinnar og
eftir UtiUega meðhöndlun er hann
settur í ker og hitaður upp í 35 gráð-
ur. Gestir Uggja síðan í leirnum í
fimmtán mínútur.
Sjálfsagt gera margir sérekki grein
fyrir því mikla starfi sem þarna fer
fram. Á HeUsustofnuninni starfa fyr-
ir utan lækna og hjúkrunarfólk fimm
sjúkraþjálfarar, tveir íþróttaþjálfar-
ar og sjö sjúkranuddarar. Nýr mat-
salur hefur nýlega verið tekinn í
notkun en þar er hinn frægi franski
matreiðslumeistari Francois L. Fons ”
viö völd en hann starfaði á Hótel
Sögu um langt árabil. Hann segir að
í framtíðinni muni 85% landsmanna
hafa breytt mataræði sínu þannig að
kjöt verði ekki á borðum.
Einar Oddur segist ekki hafa lést
nema um þrjú kíló þótt fótin hans
sýni allt annað því þau eru öll orðin
of víð. Yfirlæknirinn, Guðmundur
Björnsson, segir að það sé ekki að
marka hversu mörg kíló fjúka:
„Hann hefur brennt minnst fimm
kílóum af fitu á þessum tíma en
þyngst á móti í vöðvum," segir hann.
Held áfram þegar
heim kemur
Einar Oddur segist hafa heyrt það
hjá mörgum að þeir léttist ekki í sam-
ræmi við hversu fötin virðast mikið
of stór. „Það er allt annað að sjá þig
í útliti," sagði læknirinn við Einar
Odd og hann segist hafa fengið að
heyra það víðar undanfarið.
„Þótt ég fari heim á Flateyri núna
er ég ekkert hættur. Ég ætla mér að
léttast meira, að minnsta kosti um
sex kíló í viðbót. Ég er búinn að
breyta um mataræði en konan mín
hefur hamraö á því árum saman
þannig að þaö verður ekki vanda-
mál. Þaö er heldur ekkert mál að fá
heilsufæði og grænmeti á Flateyri
þótt einhverjir haldi það. Líkams-
ræktarstöð er líka heima þannig að
það er ekki mikiö mál,“ segir Einar
Oddur.
Bjargvætturinn þvertekur fyrir að
hann sé að byggja sig upp fyrir vænt-
anlegt framboð. „Það hefur aldrei
staðið til og í þeim efnum hefur ekk-
ert breyst," segir hann. „Ég er búinn
að ljúka herskyldu minni fyrir at-
vinnurekendur og nú eru vextimir
loksins komnir niður sem ég hef bar-
ist fyrir í mörg ár,“ segir hann.
-ELA