Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1993, Síða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1993, Síða 15
LAUGARDAGUR 6. NÖVEMBER 1993 15 Föndrað við lífið Vísindamenn, og kaupsýslumenn, sem hafa hæfileikann tíl að finna eða búa til markað fyrir nýjungar, eru sífellt að breyta daglegu um- hverfi mannkynsins - til góðs og ills. Árangur þeirra er sjáanlegur um alla jörðina en þó einkum í ríkari hluta heimsins þar sem íbúamir hafa peninga til að kaupa annað en brýnustu lífsnauðsynjar. ÁIls kyns hjálpartæki daglegs lífs eru almenningseign í okkar heims- hluta. Neftia má nokkur dæmi sem allir þekkja: bíla, tölvrn-, sjónvörp, myndbandstæki, geislaspilara, ör- bylgjuofna, frystikistur. Fyrir fá- einum áratugum var þetta annað- hvort ekki til eða þá á fárra manna höndum, eins og reyndin er enn í ýmsum fátækustu ríkjum jarðar- innar. Neikvæðar afleiðingar Jákvæð áhrif tækniframfara eru ekki síður augljós í margvislegri þjónustu við almenning. Nægir þar að nefna sjúkrahúsin sem hafa gjörbreyst síðustu árin vegna tölvu- og tæknibyltingar. Tækniöldin hefur vissulega bætt efnaleg lífskjör manna og auðveld- að dagleg störf við framleiðslu og þjónustu. En margir fylgifiskar tæknibylt- ingarinnar eru til skaða. Vísindin hafa ekki aðeins fætt af sér mörg gagnleg tæki og tól heldur einnig ógnvekjandi drápsvopn sem valda ómældri óhamingju. Gífurleg bíla- eign og stóraukin iðnaðarfram- leiðsla hefur ekki aðeins gert ein- staklinga og þjóðir ríkari heldur einnig stórlega mengað umhverfi mannsins. Nýjar vörur, sem reynd- ust nytsamlegar og vinsælar, sköp- uðu um leið margvíslegar hættur, til dæmis vegna áhrifa á ósonlagið sem ver manninn gegn hættuleg- um geislum. Þannig er það því miður oft að gagnlegar nýjungar siyallra vís- indamanna eru nýttar með þeim hætti að til tjóns er fyrir lífið á jörð- inni. Lokuð sýn Oft er það svo að vísindamenn- imir sjálfir átta sig ekkert á hugs- anlegum áhrifum þess sem þeir eru að fást við. Þeir sjá rannsóknir sín- ar í afar þröngu Ijósi. Þeir virðast sjaldan leiða hugann að þeim víð- tæku breytingum sem rannsóknir þeirra kunna að hafa í för með sér. Ráðstefna sem haldin var í Mon- treal í Kanada fyrir skömmu á veg- um American Fertihty Society er táknræn fyrir þessa lokuðu sýn sumra vísindamanna. Þar flutti bandarískur vísinda- maður, Jerry Hall, erindi um til- raunir sem hann hafði stundað að undanfomu ásamt yfirmanni sín- um, Robert Stillmann, við George Washington-háskólann. Áheyrend- ur tóku erindinu vel, hvöttu hann til frekari dáða og verðlaunuðu rit- gerð hans. Engum vísindamann- anna datt hins vegar í hug að ræða þessar tilraunir út frá siðfræðileg- um forsendum eða líta á þær í víð- ara samhengi, hvað þá aö mótmæla þeim sem siðlausum. Slík mótmæli komu ekki fram fyrr en fjölmiðlar í Bandaríkjunum og víðar fluttu fréttir af rannsókn- um Halls og Stillmanns. Þá fyrst hófst umræða um tilraunimar frá öðm sjónarhorni en hinu þrönga faglega viðhorfi vísindamannsins. Fjölfjöldun mannsins Það var auðvitað full ástæða fyrir vísindamenn að horfa upp úr til- raunaglösunum að þessu sinni og staldra við vegna þess að fondur þeirra félaga snerist um ekkert minna en fjölfóldun mannsins. Hall og Stifimann höfðu sum sé verið að þróa aðferð til þess að taka egg úr konu og fjölfalda það líkt og náttúran gerir sjálf þegar eineggja tvíburar verða til. Á máli sérfræð- innar heitir þetta einræktun. Laugardags- pistill Elías Snæland Jónsson aðsioðarritstjóri Þeir höfðu til ráðstöfunar sautján egg og tókst með tilraunum sínum að fjölga þeim í fjömtíu og átta. Þeir sýndu þar með fram á að hægt væri að taka slík egg, fijóvga þau og fjölfalda. Næsta skref, sem enn hefur ekki verið stigið, er að koma slíkum „af- riturn" eggja fyrir í móðurlífi kvenna og búa þannig til einstakl- inga sem em erfðalega séð ná- kvæmlega eins. Það sem gerir rannsóknir þeirra einstakar og ógnvekjandi er auðvit- að að hér er verið að föndra við líf mannsins. Vísindamenn hafa áður gert tilraunir af þessu tagi með jurtir og dýr og þróað þar aðferðir til að fjölfalda t.d. nautgripi. Enginn hafði hins vegar gert til- raunir af þessu tagi á mönnum fyrr, enda em slíkar rannsóknir stranglega bannaðar í mörgum ríkjum öðrum en Bandaríkjunum. Fagra nýja veröld Tilraunir þeirra félaga færðu nær raunveruleikanum hugmynd- ir um einræktun eða fjölfóldun manna sem lengi hafa verið við- fangsefni vísindaskáldsagna. Frægust shkra bóka er vafalaust Fagra nýja veröld sem enski höf- undurinn Aldous Huxley samdi á millistríðsárunum. Þar eru menn beinhnis framleiddir til að gegna ákveðnu hlutverki í þjóðfélaginu - til dæmis sem vinnudýr eða her- menn. Með þessum nýju tilraunum hef- ur martröðin um slíka veröld vissulega færst nær. Hall og Stih- mann hafa rofið ákveðna bann- helgi og haldið inn á braut sem öðrum mun fyrr en síðar þykja gimileg til ffóðleiks og gróða. Eftirlíkingar af sjálfri sér? Ef vísindamenn feta í fótspor þeirra félaga af fullri alvöru og stíga skrefið til fuhs gæti framtíðin boðið upp á marga satt best að segja óhugnanlega möguleika. Lítum á dæmi: Egg er tekið úr konu, það frjóvgað og síðan fjölfaldað. Upprunalega egginu er komið fyrir í konunni aftur eins og við glasafrjóvgun sem nú tíðkast og hún fæðir barn sitt. Einnig verður hægt að setja eitt „afritanna" í konuna og þá getur hún ahð tvíbura sem eru alveg eins. Eins mætti setja shkt afrit í aðra konu. Þá ala þær báðar börn sem eru spegilmynd hvort af öðru erfðalega séð. Loks geta vísindamenn geymt afrit af egginu í frysti, svipað og nú er gert í svoköhuðum sæðis- bönkum víða um heim. Ef móður- inni líkar vel við bamið sitt gæti hún því nokkrum árum seinna notað eitt afritanna til að búa til annað nákvæmlega eins bam. Segjum að barnið hennar þurfi af einhveijum ástæðum á líffæra- flutningi að halda. Þá væri hægt að nota afrit af upphaflega egginu th að búa th nýjan einstakling sem hefur líffæri sem passa því líkamar beggja barnanna eru erfðalega al- veg eins. Þannig yrði um eins kon- ar varahlutaframleiðslu að ræða. Þegar fram hða stundir yrðu möguleikarnir enn makalausari. Dæmi: Fijóvgað egg er fjölfaldað og afrit- in geymd í frysti. Upprunalega egg- ið verður að stúlkubami. Þegar hún vex úr grasi getur hún fengið eitt þessara frystu eggja og fætt eftirhkingu af sjálfri sér. Hvar liggja mörkin? Augljóst er að á þessu sviði, eins og reyndar ýmsum öðmm, er tæknin og thraunir vísindamanna komin langt á undan nauösynlegri umræðu um siðferðhegan rétt manna th slíkra athafna. Sú háværa gagnrýni sem fylgdi í kjölfar frétta fjölmiðla af rann- sóknum félaganna viö George Washington-háskólann hefur að visu orðið th þess að þeir hafa hætt frekari thraunum. En freist- ingin th að halda áfram er vafa- laust mikh, bæði fyrir þá og aðra vísindamenn. Áður en fleiri faha fyrir freisting- unni verður auðvitað að svara þeirri spurningu hvort maðurinn hafi siöferðhega nokkurn rétt th að grípa með þvíhkum hætti inn í líf mannsins. Samrýmist slíkt sið- ferðhegum viðhorfum okkar th mannlífsins? Og hvað með rétt einstaklingsins? Á hann ekki sitt erfðaefni sjálfur? Er hægt að fótumtroða mannréttindi einstaklingsins rækhegar en með því að fjölfalda hann eins og bh eða ein- hverja aðra fjöldaframleidda vöru? Ýmsar aðrar framfarir í læknavís- indum að undanfomu hljóta líka að vekja þá spumingu hvort þeir tímar séu hugsanlega skammt undan að htið veröi á manninn eins og hveija aðra skepnu sem sjálfsagt sé að „laga“, til dæmis með því að fóndra við erfðaefni hans. En er þá ekki orö- ið harla stutt í gamlar siðlausar hug- myndir nasista um kynbætur? Hvar liggja mörkin?

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.