Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1993, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1993, Blaðsíða 28
40 LAUGARDAGUR 6. NÓVEMBER 1993 Deilt um afleiðingar slyss í Mosfellsbæ fyrir 4 árum: Bærinn ábyrgur og á að borga bætur „Þetta hefur veriö afar erfiöur tími og stundum höfum við ekki séð fram úr hlutunum. Á tímabili var allur sólarhringurinn undir- lagður en ástandið er betra núna, þótt enn sé langt í land með að drengurinn hafi náð fullum bata.“ Þetta segja hjónin Frímann Lúð- víksson og Kristín Margrét Jónas- dóttir sem búa í Mosfellsbæ. Sonur þeirra, Lúðvík, varð fyrir miklu slysi þegar hann var tveggja ára og hefur ekki gengiö heill til skógar síðan, að þeirra sögn. Álagið á heimilinu hefur verið mikið þau fjögur ár sem liðin eru síöan slysið átti sér stað. Foreldramir telja Mosfellsbæ ábyrgan fyrir atburð- inum og viljaað bæjarfélagið greiði þeim bætur. Er málið nú í höndum lögfræðings. Að sögn foreldranna er forsaga þessa máls sú að fyrir fjórum árum var Lúðvík að leik ásamt fleiri börnum á umræddum leikvelli. Drengurinn var þá 2 ára. Nokkur eldri böm tóku upp á því að velta skúr sem hafði ekki verið festur niður þrátt fyrir ítrekuð tilmæli um að það yrði gert svo ekki staf- aði af honum hætta. En þarna gerð- ist það aö Lúðvík varð undir skúrn- um. Hann var samstundis fluttur á slysadeild Borgarspítalans og það- an á Landspítalann. Rannsókn leiddi í ljós að um innvortis meiðsl var að ræða og dvaldi Lúðvík á spítalanum í hálfan mánuð. Lúðvík með foreldrum sínum, Frímanni Luðvikssyni og Kristínu Mar- gréti Jónasdóttur. Lúðvik við sams konar skúr og hann varð undir fyrir fjórum árum. DV-myndir Sigrún Lovisa Þá hófust erfiðleikamir „Upp úr þessu byrjuðu erfiðleik- arnir,“ sagði Kristín. „Ég hef vott- orð um það frá heilsugæslunni hér að drengurinn hafði verið alheil- brigður frá fæðingu. En eftir slysið var hann með stöðugan hita. Auk þess hélt hann hvorki þvagi né saur. Hann var lagður inn á Landa- kot til rannsókna en engar skýring- ar fundust." Fljótlega eftir slysið varð Kristín að hætta að vinna utan heimilis. Það var fullt starf allan sólarhring- inn að annast drenginn. Hann var með hita næstu tvö árin eftir slys- ið, auk fyrrgreindra einkenna. Níu sinnum var Lúðvík lagður inn á spítala eftir að slysið átti sér stað. Þar þurfti hann að gangast undir rannsóknir af ýmsu tagi og svæf- ingar. „Það setti strik í reikninginn þeg- ar ég varð að hætta að vinna úti,“ sagði Kristín. „Þá fóru allar fjár- hagsáætlanir úr skorðum. Læknis- kostnaður var mikill, svo og kostn- aður vegna lyfjakaupa. Þá þurfti Lúðvík aö vera á sérfæði og nota sérstaklega hannaðan fatnað." Foreldramir telja að þeim beri bætur frá Mosfellsbæ, eins og áður sagði. Bærinn hafi verið ábyrgur fyrir leiksvæðinu og frágangi tækja þar. Mosfellsbær sé tryggður fyrir slysum sem verði á yfirráðasvæði hans. En máhð er ekki svona ein- falt. Ekkertvottorð „Það hefur enginn læknir fengist til að gefa vottorð um að ástand Lúðvíks eigi rætur að rekja til slyssins. Við erum hins vegar viss um að svo er því það urðu algjör umskipti á lífi hans eftir að hann varð undir kofanum. Enn gengur hann til læknis og þarf að vera á lyfjum. Án þeirra hefur hann enga stjórn á úrgangsefnum líkamans. Viö höfum fengið greiddan umönn- unarstyrk sem nemur 12.000 krón- um á mánuöi en okkur finnst drengurinn eiga rétt á bótum frá bænum. Lögfræðingur okkar kannar nú möguleikana á mál- sókn. Við ætlum ekki að gefast upp fyrr en í fulla hnefana." -JSS segja foreldrar drengs sem slasaðist á leikvelli UPPBOÐ Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins að Strandgötu 31, Hafnarfirði, 3. h., sem hér segir, á eftirfarandi eignum: Austurgata 5,101, Hafnarfirði, þingl. eig. Tómas V. Albertsson, gerðarbeið- andi Bæjarsjóður Hafiiarfjarðar, 10. nóvember 1993 kl. 14.00. Eyrarholt 12,0101, Hafiiarfirði, þingl. eig. Sigurgeir Sigmundsson, gerðar- beiðendur Lífeyrissjóður rafiðnaðar- manna, Valgarð Briem og íslands- banki hf., 10. nóvember 1993 kl. 14.00. Eyrarholt 12,0201, Hafnarfirði, þingl. eig. Sigurgeir Sigmundsson, gerðar- beiðendur Lífeyrissj. lækna, Lífeyris- sjóður rafiðnaðarmanna, Valgarð Briem og íslandsbanki hf., 10. nóv- ember 1993 kl. 14.00. Fluguvelhr 5, Garðabæ, þingl. eig. Hestar hf. og Snorri Sveinn Fnðriks- son, gerðarbeiðandi Kaupþing hf., 10. nóvember 1993 kl. 14.00. Gilsbúð 7, 0102, Garðabæ, ásamt vél- um, tækjum og áh., þingl. eig. Gils hf. vélsmiðja, gerðarbeiðandi Iðnþró- unarsjóður, 9. nóvember 1993 kl. 14.00. Hamarsbraut 9, 201, Hafnarfirði, þingl. eig. Eiríkur Herlufsen, gerðar- beiðendur Hitaveita Suðumesja og Húsnæðisstofiiun ríkisins, 9. nóvemb- er 1993 kl. 14.00._________________ Helguvík, Bessastaðahreppi, þingl. eig. Sigurður Magnússon, gerðarbeið- andi Guðmundur Arason, 9. nóvember 1993 kl. 14.00. Hjallabraut 33, 0105, Hafnarfirði, þingl. eig. Aðalheiður Jónsdóttir, gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður Hlífar og Framtíðarinnar, 9. nóvember 1993 kl. 14,00,_________________________ Hjallahraun 4, 0102, Hafharfirði, þingl. eig. Börkur hf., gerðarbeiðandi Islandsbanki hf., 10. nóvember 1993 kl. 14.00._________________________ Hverfisgata 39, Hafnarfirði, þingl. eig. Bjöm O. Þorleifeson, gerðarbeiðandi Kaupþing hf., 9. nóvember 1993 kl. 14.00._____________________________ Öldugata 46, 301, Hafharfirði, þingl. eig. Sjöfn Jónsdóttir, gerðarbeiðandi Bæjarsjóður Hafiiarflarðar, 10. nóv- ember 1993 kl. 14.00. Kaplahraun 10, II. eining, Halhar- firði, þingl. eig. Áðalmálun hf., gerðar- beiðandi Diskótekið Dísa hf., 9. nóv- ember 1993 kl. 14.00. Langamýri 20, 0102, Garðabæ, þingl. eig. Jón R. Mýrdal og Sigríður S. Mýrdal, gerðarbeiðandi Lífeyrissj. starfemanna ríkisins, 9. nóvember 1993 kl. 14.00.____________________ Litla-Hraun úr Hraunborg í landi Dysja, Garðabæ, þingl. eig. Ingvar Öm Karfeson, gerðarbeiðandi Búnað- arbanki íslands, 9. nóvember 1993 kl. 14.00._____________________________ Litlabæjarvör 4, Bessastaðahreppi, þingl. eig. Guðni Páfeson og Guðríður Tómasdóttir, gerðarbeiðandi Gjald- heimtan í Garðabæ, 9. nóvember 1993 kl. 14.00._________________________ Litlabæjaryör 7, Bessastaðahreppi, þingl. eig. Álfhildur Páfedóttir, gerðar- beiðandi Sparisjóður véfetjóra, 10. nóvember 1993 kl. 14.00. Ljósaberg 2, Hafiiarfirði, þingl. eig. Sigurrós Kristjánsdóttir, gerðarbeið- endur FVjáfei lifeyrissjóðurinn hf., Jón Páfeson, Landsbanki íslands, Tekju- sjóðurinn hf., Verðbréfesjóðurinn hf. og íslandsbanki hf., 10. nóvember 1993 kl. 14.00. Lyngás 11,0102, ásamt vélum og tækj- um, Garðabæ, þingl. eig. Grensásbak- arí hf., gerðarbeiðandi Iðnlánasjóður, 9. nóvember 1993 kl. 14.00. Marargrund 2, Garðabæ, þingl. eig. Vilhjálmur Ólafeson, gerðarbeiðendur Bedco hf. og Gjaldh. í Garðabæ, 9. nóvember 1993 kl. 14.00. Markarflöt 39, Garðabæ, þingl. eig. Guðbjörg Sveinsdóttir, gerðarbeið- andi Sparisjóður véfetjóra, 9. nóvemb- er 1993 kl. 14.00. Miðvangur 41, 0402, Hafnarfirði, þingl. eig. Garðar Finnbogason, gerð- arbeiðandi Lífeyrissjóður sjómanna, 9. nóvember 1993 kl. 14.00. Mávanes 7, Garðabæ, þingl. eig. Dav- íð Scheving Thorsteinsson, gerðar- beiðandi Gjaldheimtan í Garðabæ, 9. nóvember 1993 kl. 14.00. Norðurbraut 41, 201, Hafiiarfirði, þingl. eig. Hörður Helgason, gerðar- beiðandi Landsbanki íslands, 9. nóv- ember 1993 kl. 14.00. Reykjavíkurvegur 40, 0001, Hafnar- firði, þingl. eig. Sigurgeir Ólafeson og Oddný Hrafnsdóttir, gerðarbeiðendur Húsnæðisstofnun ríkisins, Ingvar Helgason hf. og Sparisjóður Hafnar- fjarðar, 9. nóvember 1993 kl. 14.00. Skúlaskeið 38,0201, Hafharfirði, þingl. eig. Elias Már Sigurbjömsson, gerðar- beiðendur Húsnæðisstofiiun nkisins, Sjóvá-Almennar hf. og sýslumaðurinn í Hafnarfirði, 9. nóvember 1993 kl. 14.00.______________________________ Smiðsbúð 1,0101, Garðabæ, þingl. eig. Edvard Lövdahl, gerðarbeiðendur Bmnabótafélag íslands, Gjaldheimtan í Garðabæ og Tryggingamiðstöðin hf., 9. nóvember 1993 kl. 14.00. Smyrlahraun 4, Hafiiarfirði, þingl. eig. Sverrir Sveinsson, gerðarbeiðandi LÍ- eyrissj. verksmiðjufólks, 10. nóvember 1993 kl. 14.00._____________________ Smárabarð 2, 020201, Hafnarfirði, þingl. eig. Rósbjörg S. Þorfinnsdóttir, gerðarbeiðendur Húsnæðisstofnun ríkisins og íslandsbanki hf., 10. nóv- ember 1993 kl. 14.00. Stapahraun 3,0101, Hafnarfirði, þingl. eig. Vatnsskarð hf., gerðarbeiðendur IJfeyrissjóður Hlífar og Framtíðar og sýslumaðurinn í Hafiiarfirði, 10. nóv- ember 1993 kl. 14.00. Stekkjarhvammur 10, 0101, Hafnar- firði, þingl. eig. Verkfræðiþjónusta Jóh. G. Bergþórssonar, gerðarbeið- andi sýslumaðurinn í Hafnarfirði, 10. nóvember 1993 kl. 14.00. Strandgata 30,101, Hafnarfirði, þingl. eig. Bæjarsjóður Hafnarfjarðar og Toppur sf., gerðarbeiðandi Kaupþing hf., 10. nóvember 1993 kl. 14.00. Stuðlaberg 28,0101, Hafiiarfirði, þingl. eig. Axel V. Gumilaugsson og Fríða Sigurðardóttir, gerðarbeiðendur Din- ers Club Danmark, Frjáfet framtak hfi, Lífeyrissjóður verslunarmanna og sýslumaðurinn í Hafnarfirði, 10. nóv- ember 1993 kl. 14.00. Suðurgata 85, e.h., Hafiiarfirði, þingl. eig. Húsnæðisnefiid Hafharfjarðar, gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður Hlíf- ar- og Framtíðar og Lífeyrissjóður sjó- manna, 10. nóvember 1993 kl. 14.00. Suðurhvammur 16, 0201, Hafiiarfirði, þingl. eig. Sverrir I. Ingólfeson, gerðar- beiðandi Lífeyrissjóður sjómanna, 10. nóvember 1993 kl. 14.00. Suðurvangur 15, 0301, Hafharfirði, þingl. eig. Kjartan Heiðberg og Ósk Arsælsdóttir, gerðarbeiðandi Sveinn Sveinsson hdl., 10. nóvember 1993 kl. 14.00. Vesturbraut 22, 0101, Hafnarfirði, þingl. eig. Verkfræðiþjónusta Jóh. G. Bergþórssonai', gerðarbeiðandi sýslu- maðurinn í Halharfirði, 10. nóvember 1993 kl. 14.00. Vitastígur 6A, Hafnarfirði, þingl. eig. Magnús Jón Pétursson, gerðarbeið- endur Lífeyrissj. Dagsbrúnar og Framsóknar og Sparisjóður Hafiiar- fjarðar, 10. nóvember 1993 kl. 14.00. Álfaskeið 82, 403, Hafnarfirði, þingl. eig. Guðný Baldursdóttir, gerðarbeið- endur Lífeyrissj. Hlífar og Framt., 10. nóvember 1993 kl. 14.00. Ásbúð 11, Garðabæ, þingl. eig. Daníel Daníelsson, gerðarbeiðendur Gjald- heimtan í Garðabæ og Kaupþing hf., 10. nóvember 1993 kl. 14.00. SÝSLUMAÐURINN í HAFNARFIRÐI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.