Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1993, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 06.11.1993, Side 31
LAUGARDAGU 43 Baldvin J. og Glódís, sambýliskona hans, áttu peninga, ágæta bíla, ibúð, troðfulla skápa af tískuvarningi og voru tíöir gestir á Bíóbarnum, þar sem fallega fólkið átti heima um helgar. Rútsíbani tilfinn- inganna Baldvin J. hafði starfað við sölu- mennsku um nokkurra ára skeið. Hann hafði selt bíla, alfræði- orðabækur, snyrtivörur og eld- húsáhöld með misgóðum árangri. Sambýliskona hans, Glódís, vann við hjúkrunarstörf og flest virtist leika í lyndi. Þauáttu peninga, ágæta bíla, íbúð, troðfulla skápa af tískuvamingi og voru tíðir gestir á Bíóbamum, þar sem fallega fólkið átti heima um helgar. Einn mið- vikudag um haust leitaði Baldvin læknis að áeggjan Glódísar. Henni fundust geðsveiflur Baldvins allt ofkrapparog brattar. „Hann minnir mig stundum á rútsíbana í erlendum tívólíum,“ sagði hún við vinnufélagasína. Miklar og örar sveiflur Baldvin var kæruleysislega klæddur í viðtalinu í Armani-galla- buxur, Harley Davidson stígvél, stuttan jakka og bol. Um hálsinn hékk digur gullkeðja. Á úlnliðnum tikkaði ekta Cartier úr. Hárið var Ijóst og stuttklippt. „ Já, það er satt,“ sagði Baldvin, „ég hef alltaf veriö sveiflóttur og talað um góð og slæm tímabil i lífi mínu. Slæmu tímabilin standa í eina til tvær vik- ur; þá sef ég 12-14 tíma á sólarhring og vantar alla orku og kraft. Allt í einu er eins og ég komi til sjálfs mín. Ég verð hressari og fyllist sjálfstrausti og get farið að vinna eins og berserkur. í 2-3 vikur er ég fullur af orku og vinnugleði en síðan sigli ég niður á við aftm:. Svona hefur þetta verið lengi. Ég er annaðhvort hátt uppi eða langt niðri." Hann þagnaði og burstaði ósýnilegt kusk afjakkanum. „Ertu aldrei í jafnvægi á milli?" spurði læknirinnþreytulega. „Jú,“ sagði Baldvin. „Stundum koma slík tímabil en þau standa sjaldnast lengi sem betur fer, enda eru þau hundleiðinleg. Þegar ég er hátt uppi eru mér allir vegir færir. Ég Á læknavaktírmi Óttar Guðmundsson læknir vinn mikið, boröa lítiö og sef eigin- lega ekkert. Þessa daga er ég á bör- unum, drekk mikið og stunda kvennafar. Sölumennskuna valdi ég vegna þessara sveiflna. Ég stjórna vinnutímanum sjálfúr, vinn í skorpum en sef þess á milli.“ „Hvernig gekk þér í skóla?" sagði læknirinn. „Það réðst alveg af sveiflunum. Oft gekk mér allt í haginn og var með 9 og 10 í öllum greinum en stundum var allt í skötulíki og einkunnimar féllu nið- ur í ekki neitt." Læknirinn talaði næst við Glódísi um ástandið á Baldvin. Hún sagði aö sveiflumar stjórnuðu lífi þeirra. Þegar Baldvin fyndi fyrir vondu dögunum frestaði hann öllu og vandamálin hlæðust upp. Hann talaði þá ekki við neinn og mætti ekki í vinnu. Á öðrum tímum væri hann mjög virkur og gæti unnið sólarhrignum saman. En skapið væri oft mjög sveiflótt og oft hefði hann misst ágæta við- skiptavini vegna óþolinmæði og skapofsa. Sveiflusjúkdómur Það er greinilegt að Baldvin er haldinn vægum sveiflusjúkdómi. Hann sekkur niður í skammvinnt þunglyndi meö aukinni svefnþörf og miklum kvíöa og orkuleysi en þess á milli er hann ofvirkur og ákaflega spenntur. Sveiflurnar eru þó ekki nægilega miklar til að kall- ast maníó-depressífur sjúkdómur. Ákveðið var að gefa honum efni sem heitir litíum og virkar mjög vel á sveiflur sem þessar. Litíum er eitt af steinefnum líkamans sem virðist hafa þau áhrif að koma í veg fyrir geðsveiflur hjá fólki sem á vanda til að fá sveiflukenndan þunglyndissjúkdóm. Geðheilsan varð mun betri á þessari lyfiameð- ferö. Hann kvæntist Glódísi og allt virtist leika í lyndi. Eftir 3 ár hætti hann þó að taka lyfið og sveiflurnar tóku að stjóma lífi hans á nýjan leik. Hann hélt ítrekað framhjá Glódisi og þau skildu eftir nokk- urra mánaða stríð. Baldvin missti vinnuna og leitaöi þá hjálpar á nýjan leik. Hann fór að taka litíum aftur og geðhöfnin varð stöðugri og betri. Þau Glódís og Baldvin gift- ust á nýjan leik við hátíðlega at- höfn og opnuðu eigin bílasölu eftir nokkra mánuði sem þau kölluöu Litíumvagna. Fyrirtæki til sölu, t.d. sérhæfður skyndibitastaður. Um er aö ræöa fyrirtæki á fjölförnum stað. Upplýsingar á skrifstofunni. Fyrirtækjasalan Varsla, Síðumúla 15, Rvík, sími 812262. Leikskólar Reykjavíkurborgar Fóstrur eða fólk með uppeldismenntun óskast til starfa á neðangreinda leikskóla: Leikgarð v/Eggertsgötu, s. 19619 Ægisborg v/Ægisíðu, s. 14810 Eingöngu í 50% starf e.h. á leikskólana: Álftaborg v/Safamýri, s. 812488 Grandaborg v/Boðagranda, s. 621855 Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leikskólastjórar Dagvist barna, Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277. Greiðsluáskorun Sýslumaðurinn í Kópavogi skorar hér með á gjaldendur, sem ekki hafa staðið skil á gjöldum, sem voru álögð 1990, 1991, 1992 og 1993 og féllu í gjalddaga til og með 1. nóvember 1993 og eru tíl innheimtu hjá ofangreindum inn- heimtumanni, aö greiða þau nú þegar og ekki síðar en innan 15 daga frá birtingu áskorunar þessarar. Gjöldin eru þessi: tekjuskattur, sérstakur tekju- skattur, útsvar, aóstöðugjald, eignarskattur, sér- stakur eignarskattur, slysatryggingagjald vegna heimilisstarfa, tryggingagjald, iönlánasjóðs- og iönaðarmálagjald, lífeyristryggingagjald skv. 20. gr. I. nr. 67/1971, slysatryggingagjald atvinnurek- enda skv. 36. gr. I. 67/1971, atvinnuleysistrygg- ingagjald, kirkjugarðsgjald, gjald í fram- kvæmdasjóö aldraðra, skattur af verslunar- og skrifstofuhúsnæöi, launaskattur, bifreiðaskattur, slysatryggingagjald ökumanna, þungaskattur skv. ökumælum, viðþótar- og aukaálagning söluskatts vegna fyrri tímabila, skemmtana- skattur og miðagjald, virðisaukaskattur af ,skemmtunum, skipaskoðunargjald, lestagjald og vitagjald, vinnueftirlitsgjald, vörugjald af innl. framleiðslu, aóflutningsgjöld og útflutningsgjöld og útflutningsráðsgjald, verðbætur á ógreiddan tekjuskatt og verðbætur á ógreitt útsvar. Einnig virðisaukaskattur, ásamt gjaldföllnum virðis- aukaskattshækkunum, staögreiðsla opinberra gjalda og staðgreiösla tryggingagjalds, ásamt vanskilafé, álagi og sektum. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna aö liðnum 15 dögum frá birtingu áskorunar þessarar, sam- kvæmt heimild í 9. tl. 1. mgr. 1. gr„ sbr. og 8. gr. laga nr. 90/1989 um aóför. Athygli er vakin á því að auk óþæginda hefur fjárnámsgerð í för með sér verulegan kostnaó fyrir gjaldanda. Fjárnámsgjald í ríkissjóð er allt að kr. 10.000,- fyrir hverja gerð. Þinglýsingar-- gjald er kr. 1.000,- og stimpilgjald 1,5% af heild- arskuldinni, auk útlagðs kostnaðar eftir atvikum. Eru gjaldendur hvattir til að gera full skil sem fyrst til aö foröast óþægindi og kostnað. Jafnframt tilkynnist aö gjaldendur viröisauka- skatts, staögreiðslu og tryggingagjalds mega búast við því að atvinnurekstur þeirra veröi stöðvaður af lögreglu án frekari fyrirvara. Kópavogi, 5. nóvember 1993, Sýslumaðurinn í Kópavogi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.