Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1993, Qupperneq 17

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1993, Qupperneq 17
FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1993 17 Fréttir Milljónakröfur á Akraneskaupstað: Orlof á yf irvinnu aftur í tímann Siguröur Sverrisson, DV, Akranesi: Svo kann aö fara aö Akraneskaup- staður verði að greiða milljónir króna í orlof á fasta yfirvinnu 20-30 starfsmanna, sem ekki hefur verið greitt í tæpan áratug. Bæjaryfirvöld- um hefur borist bréf frá Jóni Sveins- syni lögmanni, fyrir hönd skjólstæð- ings síns, þar sem Akraneskaupstað- ur er krafinn um orlofsgreiðslur á fasta yfirvinnu viðkomandi. Samkvæmt heimildum DV greiða ríki og flest sveitarfélög orlof á yfir- vinnu nema þar sem um sérstaka samninga við einstaka starfsmenn er að ræða. Akraneskaupstaður hætti þessum greiðslum 1984. Nokkr- ir starfsmenn Akraness, sem eru með samninga um fasta yfirvinnu, óskuðu eftir þvi að bærinn innti af hendi orlofsgreiðslur fyrir yfirvinnu, sem þeir töldu að þeim bæri sam- kvæmt lögum. Bæjarstjórn hafnaði. í kjölfar synjunarinnar hefur bæn- um nú borist bréf Jóns, þar sem hann krefur bæjarsjóð um orlofsgreiðslur á yfirvinnu skjólstæðings síns. Bæj- aryfirvöld hafa leitaö eftir lögfræði- legu áhti á réttarstöðu sinni. Erfitt er að meta hversu háa fjár- hæð hér um ræðir. Samkvæmt heim- ildum DV hleypur hún á milljónum. í sumum tilvikum er um að ræða orlof á yfirvinnugreiðslur allt aftur til ársins 1984 en í öðrum skemmra aftur í tímann eða til áranna 1988/89. Jón Pálmi Pálsson bæjarritari sagði að hér væri um prófmál að ræða. Yrði niðurstaðan sú að bærinn þyrfti að greiða viðkomandi aðfia orlof á yfirvinnu sagðist hann telja ólíklegt annað en máhð hefði for- dæmisgildi gagnvart öðrum starfs- mönnum bæjarins í sömu aðstööu. Albert Kemp, oddviti Búðahrepps, færði skipinu mynd af Fáskrúðsfirði. DV-mynd Ægir Kristinsson Fáskrúðsfi örður: Nýjum frystttogara fagnað Ægir Kristinsson, DV, Fáskrúðsfirði: Frystitogarinn Ottar Birting kom tíl heimahafnar á Fáskrúðsfirði um helgina. Mikih íjöldi fólks fagnaði skipinu þegar það lagðist að bryggju. Skipstjóri og áihöfn, sem sigldu skip- inu heim frá Danmörku, fengu stóra og mikla ijómatertu frá Verkalýðs- og sjómannafélagi Fáskrúðsíjarðar og Albert Kemp, oddviti Búðahrepps, færði skipinu mynd af Fáskrúðsfirði að gjöf frá bæjarbúum. Skipshöfn- inni barst einnig mikið af blómum með óskum um bjarta framtíð. Frystitogarinn Ottar Birting er um 800 tonn að stærð og í áhöfninni verða 24 menn. Skipstjóri verður Guðmundur Kr. Guðmundsson. Ekki er ákveðið hvenær skipið fer á veiðar en að óbreyttum lögum má það ekki veiða í íslenskri lögsögu. Blóma- og gjafavöruverslun í stóru íbúðarhverfi er til sölu. Verslunin hefur stöðug og trygg viðskipti. Verðið er hagstætt og bjartirfram- tíðarmöguleikar. Uppl. aðeins gefnar á skrifstofunni. Fyrirtækjasala Húsafells, Langholtsvegi 115, s. 681066. Halldór Svavarsson sölustjóri. J Uppboð Framhald uppboðs á eftirtöldum eignum á Akranesi verður háð á þeim sjálfum sem hér segir: Akurgerði 11, efri hæð, gerðarþoli Böðvar Björgvinsson, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Akranesi, mánudag- inn 15. nóvember 1993 kl. 11.00. Jörundarholt 12, gerðarþoli Sigríður Andrésdóttir, gerðarbeiðendur Húsa- smiðjan hf. og Húsnæðisstofnun ríkis- ins, mánudaginn 15. nóvember 1993 kl. 11.30._______________________ Garðabraut 45. 1. hæð nr. 4, gerðar- þoli Kristín Ósk Kristinsdóttir, gerð- arbeiðandi Tannlækningastofan hf., mánudaginn 15. nóvember 1993 kl. 13.00. Garðabraut 45, 03.06, gerðarþolar Magnús Sigurðsson og Svanhildiir Skarphéðinsdóttir, gerðarbeiðandi ís- landsbanki hf., mánudaginn 15. nóv- ember 1993 kl. 13.30. Suðurgata 103, efri hæð, gerðarþoli Valur Þór Guðjónsson, gerðarbeið- endur Búnaðarbanki Islands, Eftir- launasjóður SS, Lífeyrissjóður sjó- manna og sýslumaðurinn á Akranesi, mánudaginn 15. nóvember 1993 kl. 14.30. Sýslumaðurinn á Akranesi 10. nóvember 1993 Fyrirtæki - verslanir - heildsalar er kjörin leið til að koma afsláttartilboðum á framfæri við hagsýna neytendur. Kjaraseðill DV er öflug nýjung fyrir auglýsendur sem birtast mun í blaðinu þriðjudaga til föstudaga. Hafið samband við Sigríði Sigurðardóttur, auglýsingadeild DV. Sími: 63 27 00 Bréfasími: 63 27 27 Auglýsingadeild OlafsQörður: Verktaki mótmælir aðgerðum lögreglu Helgi Jónsson, DV, ÓlaMröi: Mikiö hitamál blossaði upp á dög- unum er Siglingamálastpfnun sendi bréf til sýslumannsins í Ólafsfirði og sagði að grunur léki á að lög um kafarastörf við höfnina væru brotin. Siglingamálastofnun krafðist þess að lögreglan stöðvaði framkvæmdir ef reglugerðir væru brotnar. Reyndar sagði í bréfinu að kafarar væru aö vinna við hafnarmannvirki í Ólafs- víkurhöfn. Upphaf þessa máls var að Tréver hf„ stærsti verktakinn hér í bænum, hefur verið að fjarlægja ker sem voru undir gömlu steinbryggjunni og fékk Einar Kristjánsson kafara sér til að- stoðar. Vigfús Skíðdal, framkvæmdastjóri Trévers, hefur harðlega gagnrýnt þessa aðgerð lögreglunnar og vinnu- brögð sýslumannsins þegar hann lét stöðva framkvæmdina. Segir Vigfús það hafa verið ólöglegt. Lögreglan eigi að kynna sér bréf Siglingamála- stofnunar betur, þar standi Ólafsvík- urhöfn en ekki Olafsfjarðarhöfn. Vigfús segir ennfremur að Sigl- ingamálastofnun banni fyrirtækjum úti á landi að gera það sem hún leyfi í Reykjavík. Tréver gerði hlé á verkinu eftir að lögreglan komst í máhð. Kjartan Þor- kelsson sýslumaður segir að viðkom- andi kafara hafi verið kynnt bréfið frá Siglingamálastofnun og kannast ekki við aö hafa stöðvað fram- kvæmdir. MISSISSIPPI MASALA Mississippi Masala fjallar um ástir og örlög ungs fólks. Óskarsverðlaunaleikarinn Denzel Washington er hér í stórgóðu hlutverki, en hann fékk mikið lof í erlendum blöðum fyrir leik sinn í myndinni Mississippi Masala. í ó

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.