Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1994, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1994, Blaðsíða 11
LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 1994 11 Enginn listamaður án hljóðfæris „Mér hafði gengið mjög vel og skapað mér þokkalegt nafn í lista- heiminnm erlendis en ég gat ekki haldið áfram án hljóðfæris, það var ekki hægt. Ég hafði verið með láns- fiðlur frá árinu 1990 en það var mjög mikið álag, bæði að kynnast hljóð- færinu og síðan að láta það frá sér. Oft leið mér mjög illa vegna þess. Það er mjög mikitvægt að geta æft og spilað á sama hljóðfærið og ekki síst að fá að þroskast með því.“ Sigrún fann hina frægu fiðlu í Lon- don og taldi sig mjög heppna þar sem hún var á góðu verði miðað við það sem gengur og gerist. Hún hefur nú haft fiðluna í rétt tæp tvö ár. Sigrún nefnir sem dæmi að fiðla sem smíðuð er eftir son þess manns sem smíðaði fiðlu hennar kosti um sjötíu milljón- ir. „Fólk gerir sér auðvitað ekki grein fyrir hversu dýr slik hljóðfæri eru. Mín fiðla kostaði níu milljónir en svipaðar fiðlur kosta um átján millj- ónir. Ég var sérstaklega heppin. Fiðl- an er smíðuð árið 1720 og er sannar- lega dýrgripur enda vík ég aldrei frá henni eitt andartak. Það er eftir því tekið hvað fiðlan er fost við mig,“ segir Sigrún og hlær. „Hún fer meira að segja með mér á klóið.“ Sigrún segir að vegna þess hversu dýr hljóðfæri séu eiga ungir lista- menn, sem eru nýkomnir úr námi, enga möguleika á að eignast þau. „Japanir gera mikið af því að kaupa gömul hljóðfæri og geyma þau í gler- skápum því þeir vita hversu góð fjár- festing þetta er. Það gerir tónlistar- fólki enn efiðara með að eignast góð hljóðfæri því þau fást ekki.“ Hneykslast í flugvél „Þegar ég er búin að borga fiðl- una verð ég miklu frjálsari í sam- bandi við feril minn. Þá get ég byijað að taka fjárhagslegar áhættur í því skyni að koma mér áfram, t.d. að leigja sali til að halda tónleika. Ég vonast til að greiðslur klárist á þessu ári. Ég er ofboðslega viðkvæm og tók umtalið nærri mér á tímabiii. Þegar þetta verður yfirstaðið ætla ég bara að muna þetta jákvæða og góða.“ Sigrún undrast að það hafi aldrei verið talað við hana á þeim tíma sem umtalið um fiðluna var sem mest. Hún minnist atviks er átti sér stað í flugi frá Keflavík til Bandaríkjanna en þar hneykslaðist ungt háskólafólk á fiðlusöfnuninni og taldi það fárán- legt að safna fyrir fiðlu meðan fólk væri atvinnulaust á íslandi og ætti ekki fyrir mat. „Þegar ég heyrði sam- tal þessa fólks fékk ég í fyrsta skipti tækifæri til að svara fyrir mig. Þau sátu fyrir aftan mig í véhnni en vissu ekkert af mér og varð því heldur hverft við er ég stóð upp, kynnti mig og sagði að enginn væri skyldugur til að leggja fé í söfnunina. Þetta væri frjáls söfnun," útskýrir Sigrún. „Þetta var hálfneyðarlegt atvik sem best er að gleyma," bætir hún við, „enda finn ég alltaf hlýhug frá fólki." Stór keppni í júní - Hvað er að gerast hjá þér í fram- tíðinni? „Það er margt skemmtilegt að ger- ast hjá mér á næstunni. í vor ætla ég að halda tónleika. í júní mun ég taka þátt í Tsjajkovskí-keppni í Moskvu. Það er mjög mikið mál því hún er bara haldin á fjögurra ára fresti. Það er mikill áfangi að fá að taka þátt í keppninni því fáir eru teknir inn. Ég er núna að verða 27 ára og sé það ekki fyrir mér að ég taki þátt í keppni eftir fjögur ár. Þetta er eins og að fara á ólympíuleika fyr- ir íþróttafólk. Ég þarf að æfa mig átta tíma á dag fyrir þessa keppni,“ segir Sigrún. „Ég mun spila á skemmtiferðaskipi í júlí sem siglir frá Englandi til Nor- egs og þaðan til íslands. Það verður mjög gaman. í september mun ég spila Síbelíus fiðlukonsertinn með dönsku konunglegu fílharmóníunni eða finnsku útvarpshljómsveitinni en það hefur ekki enn verið ákveðið. Það er mjög flottur áfangi. Þeir tón- leikar verða í Skotlandi. Síðan langar mig að leigja sali í London og New York og halda tónleika en það verður að veruleika þegar fiðlan verður greidd. Ég er mjög bjartsýn með framtíðina. Mér finnst ég núna nægi- lega þroskuð til að gera stóra hluti.“ -ELA ÞEIRSEMÆTLA AD ÁVAXTA 27 MILLJARDA TAKA AUÐVITAÐ ENGA ÁHÆTTU YFIR 80.000 EIGENDUR KJÖRBÓKA NUTU VERDTRYGGINGAR- UPPBÓTAR NÚ UM ÁRAMÓTIN Kjörbókin er enn sem fyrr langstærsta sparnaöarformið í íslenska bankakerfinu. Ástæöan er einföld: Kjörbókin er traust, óbundin og áhættulaus og tryggir eigendum sínum háa og örugga ávöxtun. Ársávöxtun 1993 var 5,1-7,1 %. Raunávöxtun á grunnþrepi var því 2,02%, á 16 mánaða innstæðu var hún 3,92% og á 24 mánaða innstæðu var raunávöxtunin 4,02%. Kjörbókin er einn margra kosta sem bjóöast í RS, Reglubundnum sparnaði Landsbankans. Vakin er athygli á aö samkvæmt reglum Seölabanka íslands veröur tímabil verðtryggingarviömiöunar aö vera fullir 12 mánuðir. Breyting þessi tók gildi nú um áramótin. Verötryggingartímabil Kjörbókar verður því frá 1. janúar til 31. desemberár hvert. Landsbankinn óskar landsmönnum gæfu og góðs gengis á árinu 1994. Landsbanki íslands kaBLÆ Banki allra landsmanna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.