Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1994, Side 25
LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 1994
25
Ameríski draumurinn er
orðinn íslenskur veruleiki
Anna Bjamason, DV, nórída;
Er ameríski draumurinn oröinn aö
íslenskum veruieika? Það mætti
halda það því svo margir íslendingar
hafa á undanfómum einum til tveim-
ur árum keypt sér hús eða íbúðir í
Orlando á Flórída. Ekki á víð og dreif
heldur langsamlega flestir í sama
bæjarhlutanum, í hverfi í Orlando-
borg er nefnist Ventura.
íslensku húseigendurnir í Ventura
eru nú orðnir 23 talsins og fer alltaf
fjölgandi. Hvað er það sem fólk sæk-
ist eftir? Fyrir svörum varð Sigríður
Guðmundsdóttir fasteignasaii sem
hefur átt drjúgan þátt í þessum bú-
ferlaflutningum íslendinga með því
að hafa milligöngu um að selja fast-
eignir á Flórída.
„Ætii það séu ekki nokkrir sam-
verkandi þættir sem þarna eru að
verki. Gott veður og lágt verð á fast-
eignum miðaö við íslenskt verðlag
er áreiðanlega þungt á vogarskálun-
um. Hér hefur fólk getað fengið ein-
býhshús á um 7,7 milljónir kr. Ekki
þarf að greiða út nema 1/3 af verð-
inu, hitt er lánað með lágum vöxtum
th langs tíma. Þess eru dæmi að fólk
staðgreiði íbúðirnar. Þegar skrifað
er undir fær kaupandinn greidda 3-5
þúsund dohara sem hann getur not-
að th þess að kaupa sér húsgögn!
Þá er hægt að fá íbúðir í litlum fjöl-
býhshúsum á innan við 3 mhljónir
kr. Tveggja th þriggja svefnherbergja
raðhús, fullbúin húsgögnum, kosta
62 þúsund dohara eða tæplega 4,5
mihjónir kr. Ef fleiri en einn eru um
kaupin kemur þetta ákaflega vel út
fjárhagslega. Enginn vandi er að
koma sér saman um notkun á húsum
hér því veðrið er hér gott nánast ah-
an ársins hring.
Góða veðrið
og golfið trekkja
Fólk sækist auðvitað eftir góða
veðrinu. Margir húseigendur eru
komnir á eftirlaun eða eru að kom-
ast það og eru byrjaðir að leika golf
sem er auðvelt hér á Flórída. Aðrir
kjósa að slappa af og hafa það ró-
legt,“ sagði Sigríður.
- Eru engir erfiðleikar fyrir fólk að
fá bankalán á Flórída?
„Það hafa ekki verið neinir erfið-
leikar fyrir íslendinga að fá banka-
lán. Þeir þurfa aðeins að leggja fram
bréf frá bankanum sínum heima á
íslandi um að þeir séu heiðarlegir
viðskiptavinir bankans, bréf frá
vinnuveitanda sínum heima eða
þeim sem greiðir þeim vinnulaun eða
eftirlaun og sýna viðurkennt
greiðslukort. Þá fá þeir þau lán sem
þeir þurfa. Vextirnir þykja lágir hér,
ekki nema 7%. Það eru fastir vextir
sem hækka ekki. Hér er sáralíth
verðbólga og þar af leiðandi engin
verðtrygging, allt heldur í við annað.
Daginn sem þú færð lánið þitt sam-
þykkt færðu að vita hvað þú átt að
greiða mikið í afborganir alveg til
síðasta greiðsludags. Þannig kemur
ekkert á óvart í fjármálunum," sagði
Sigríður.
En auðvitað er rekstrarkostnaður
á þessum íslensku amerísku heimil-
um. Fasteignagjöld af einbýhshúsum
eru um 13-1500 doharar á ári og raf-
magn og annar fastur kostnaður á
mánuði um 150 doharar því nauðsyn-
legt er að kæla húsin þótt enginn sé
í þeim. Trygging gæti verið um 500
doharar á ári. Hægt er að lifa spart í
mat og þann fatnað sem notaður er í
hitanum er hægt að fá við vægu verði.
23 íslenskir húseigendur í einu hverfi í Orlando
Sigriður Guðmundsdóttir, fasteignasali á Flórída, hefur i nógu að snúast.
Þetta hús eiga Valfellssystkinin, Sigríður og Sveinn
Ágúst.
Þetta hús gæti heitið prófessorshús. Fjórir aðilar eiga
það og þar af þrír prófessorar, Gunnar G. Schram,
Ásmundur Ásmundsson, Júlíus Sólnes og Úlfur Sigur-
mundsson.
Karl Guðmundsson flugvélvirki á þetta hús. Hann rekur Reynir Jóhannsson skipstjóri og eiginkona hans, Jenný,
fyrirtækið Nordair, bæði í Lúxemborg og Orlando, en eiga þetta hús. DV-myndir A.Bj.
fyrirtækið verslar með varahluti í flugvélar.
Fólk úr öllum stéttum
- Er þetta einhver ákveðinn hópur
manna sem keypt hafa húseignir í
Flórída, úr einhveijum sérstökum
starfstéttum?
„Það er að finna fólk úr öhum stétt-
um og starfsgreinum meðal húseig-
endanna. Nokkrir vinnufélagar hafa
tekið sig saman um húsakaup eins
og gamlir Loftleiðastarfsmenn, flug-
umsjónarmenn, svo eru þama flug-
freyjur, forstjórar, lögreglumenn,
byggingameistarar, skipstjórar og
háskólaprófessor, svo að eitthvað sé
nefnt,“ sagði Sigríður.
- Er einhver sameiginleg aðstaða í
Ventura fyrir íbúana?
„Það er ein stór sundlaug og einar
sex minni laugar. Verið er að setja
hita í stóru laugina sem hingað til
hefur ekki veriö upphituð eins og
algengast er með sundlaugar hér í
Flórída. Tennisvehir eru til afnota
fyrir íbúana og svo auðvitað golfið
en hverfið Ventura er eiginlega byggt
á eða við golfvöhinn. Verið er að
byggja veitingastað inni á svæðinu
en verslanir eru allar fyrir utan
svæðið. Það eru svona um tvær míl-
ur í búðirnar. Margir kjósa að ganga
þangað og taka sér svo leigubíl heim
aftur, ef fólk er ekki með bíl. Það er
ódýrt, kostar ekki nema um 4-500 kr.
ísl. Svo fer fólk um hverfið á hjólum
og gengur mikið og auðvitað eru ís-
lendingar duglegir að vera í sólbaði.
Það er sagt að ef fólk sést flatmaga í
sóhnni með alla anga út í loftið séu
99% líkur á að það séu íslendingar,"
sagði Sigríður.
En það er víðar en í Ventura hverf-
inu sem landinn hefur skotið rótum
í sólskinsparadísinni Flórída. Margir
hafa keypt sér hús í litlum bæjum
skammt fyrir norðan Orlando, Heat-
hrow, Mount Dóra og Deland og New
Smyrna Beach en allt eru þetta svo-
kölluö golfsamfélög, það er byggðin
í grennd við eða bókstaflega á golf-
völlum. Svo eiga íslendingar einnig
hús á ströndunum, bæði á Atlants-
hafsströndinni og vesturströndinni,
við Mexíkóflóann.
Lítið um höggorma
efheilsanergóð
- Eru þá engir höggormar í þessari
paradís á Flórída?
„Á meðan heilsan er í góðu lagi
þarf ekki að hafa áhyggjur af læknis-
kostnaði. Fyrsta heimsókn th lækn-
isins kostar tæpa 50 dohara en rúma
30 dohara eftir það. Sérfræðingar
kosta eitthvað aöeins meira en það
er sjúkrahúskostnaðurinn sem fer
upp úr öllu valdi, getur farið upp í
fleiri hundruð dqllara á dag. En lang-
samlega flestir íslendingar, sem hér
hafa keypt hús, nota þau aðeins hluta
úr árinu og hafa enn fasta búsetu og
lögheimili á íslandi og njóta því al-
mannatrygginga þar.
Fólk er hér yfirleitt ákaflega vin-
samlegt og vhl gjaman leysa hvers
manns vanda en auðvitað er eitt og
annaö sem ber að varast og þarf að
taka tihit th.
Mikið veður hefur verið gert út af
árásum á ferðamenn hér í Flórida.
Auðvitað er það hræðilegt en miðað
við ahan þann fjölda sem hér er jafn-
an eru þetta ekki háar tölur. Það
verður hver að passa sig, mér skhst
að menn þurfi líka að passa sig heima
á íslandi," sagöi Sigríður Guömunds-
dóttir.