Dagblaðið Vísir - DV - 08.01.1994, Qupperneq 35
LAUGARDAGUR 8. JANÚAR 1994
43
+
Nökkvi læknir fór til framhalds-
náms til Bandaríkjanna á sjöunda
áratugnum. í landi allsnægta og
tækifæra starfaði hann við nokkur
merkilegustu sjúkrahús heims þar
sem allar lækningar voru stundað-
ar af yfirlætislausri snilld og þekk-
ingu. Nökkva lækni leið vel í
Bandaríkjunum enda skildist hon-
um nú loks að ísland og Evrópa
væru ekki mennskum mönnum
bjóðandi. „Ameríka er land víðsýn-
is, menntimar og frjálsræðis en Is-
land ekkert nema rokrass við ystu
höf þar sem fólk drabbast niður í
öfundsýki og kotungsskap," sagði
hann stundum drukkinn við vini
sína. Hann eignaðist marga ágæta
kunningja á sjúkrahúsinu og ná-
grannamir reyndust honum vel.
Einhverju sinni hélt hann mikla
garðveislu á 17da júní undir ís-
lenskum og bandarískum fána og
söng: Ríðum og ríðum og rekum
yfir sandinn, við mikinn fognuð
viðstaddra. „Nökkvi is a great guy“
sögðu feitlagin nágrannahjón á
stutterma skræpóttum skyrtum
einum rómi og brostu breitt.
Nökkvi færðist þá allur í aukana
og söng, „yfir kaldan eyðisand" af
mikilh innlifun. Allt samkvæmið
flautaði, hló og æpti svo að undir-
tók í fylkinu, „Nökkvi is a great
entertainer," æpti annar granni og
hló skerandi holum hlátri.
Flutt á skerið
Eftir nokkurra ára dvöl í Banda-
ríkjunum ákvað Nökkvi læknir að
fiytja heim til íslands og fá sér
vinnu á stóra spítalanum. Öllu dót-
inu var pakkað í gám og stefnan
tekin á Reykjavík, Iceland. Nökkvi
fann til mikils trega þegar hann
steigupp í einhverja Vigdísina,
Freydísina eða Valdísina frá Flug-
leiðum á Kennedy-flugvelli. Hon-
mn leiö illa á leiðinni heim. „Sætin
eru mikiö betri hjá amerísku flug-
félögunum," hugsaði hann með
sjálfum sér og dæsti þungan. Norð-
angarrinn tók á móti honum í
Keflavík. „Veðrið var alltaf gott í
Bandaríkjunum," stundi hann. Á
leiðinni til Reykjavíkur sat hann
„Draumurinn um Ameríku var eins og þoka sem eyðilagði alla sólarsýn
og lífið var orðið beiskt eins og súrasta edik.“
Fortíðar-
þráhyggja
Nökkva læknis
við gluggann og starði hugsandi
fram á veginn. Vegimir eru svo
miklu betri í Bandaríkjunum og
umferðin manneskjulegri. Hann
skildi nú loks hvíhk reginfirra
þetta var að flytja heim til þessa
kalda lands. Þegar Nökkvi kom til
starfa á stóra sjúkrahúsinu varð
hann fyrir enn frekari vonbrigð-
um. Enginn kunni að meta hann
fyllilega. Menn létust ekki þekkja
öll sjúkrahúsin sem hann hafði
starfað við. Margir samstarfsmenn
hans höfðu lært í Svíþjóð, Dan-
mörku, Þýskalandi eða einhverjum
öðrum kotlöndum og þóttust
kunna jafn mikið og hann. Fólk
skildi ekki að hann hafði dvahst
meðal goðanna á Ólympsfjalh
læknisfræðinnar. Hann hafði lært
það besta og starfað með meistara-
flokkshði lækna. Hann hafði meira
að segja borðað hádegisverð með
mönnum sem vissu meira í læknis-
fræði en öh sænsku læknasamtök-
intilsamans.
Öfundarmenn í leyni
Nökkvi reyndi aht hvað hann
gat th aö fá umheiminn th að skilja
að hann væri bestur, kynni mest
og hefði bestu reynsluna. Stundum
virtist honum vera að takast þetta
en öfundarmenn hans virtust ahs
staðar hggja í leyni, thbúnir að
bregða fyrir hann fæti, bera hann
út og gera gys að þekkingu hans
og enskuskotnu tungutaki. Nökkvi
fylltist beiskju og trega. Honum
varð hugsað vestur um haf. „Þar
eru menn að leysa þyngstu gátur
thverunnar en ég geng um á þess-
um skíta-sveita-spítala, mæli blóð-
þrýsting og róa móðursjúkt fólk.
Ég gæti verið að vinna til nóbels-
verðlauna en grotna þess í stað nið-
ur í íslenska meðalmennsku."
Hann tók að vinna á stofu th að
Álæknavaktmni
m? í Óttar
i Guðmundsson
læknir
afla meira fjár og beiskjan óx. Fé-
lagi hans í Bandaríkjunum tíund-
aði í bréfi tekjur sínar og Nökkvi
fyhtist óumræðanlegum sársauka.
„Hér er ég að vinna fyrir lúsarlaun-
um meðan þeir aka um á Mercedes
Benzum og eiga sér rándýrar ást-
konur sem drekka kampavín úr
demantsskreyttum Diorskóm.“
Banvænt
sálarkrabbamein
Tíminn leið og Nökkvi varð
beiskari með hverju árinu. Hann
fann sárt th eigin niðurlægingar
og gerðist æleiðinlegri í matsaln-
um. Alhr höfðu margsinnis heyrt
ræður hans um gósenlandið í vestri
þar sem Mekka læknisfræðinnar
stendur. Enginn hafði farið var-
hluta af löngu eintali um skandin-
aviska kotspítala við nyrstu höf.
Ákvörðunin að flytjast frá Banda-
ríkjunum varð sá ás sem allt líf
Nökkva læknis snerist um. Tvær
eiginkonm-, þijár ástkonur og
þokkalegt einbýhshús á góðum
stað höfðu ekki minnkaö sárindin.
„Réttast væri að drepa sig frá þessu
öhu sarnan," hugsaði hann með sér
ágamlárskvöld. „Setja Leonard
Cohen á fóninn og hverfa á braut
með ameríska fánann í hendinni.
Hann horfði drukknum augum á
myndina af sér í hópi feitra en glað-
værra Ameríkana í ahtof litlum
bolum. „Mikið vildi ég að guð gæfi
aö einhver kastaði kjamorku-
sprengju á þetta bölvað sker,“ sagði
hann stundarhátt og sofnaði út af
í sófanum. Fortíðarþráhyggjan var
orðin að banvænu sálarkrabba-
meini sem rændi dagana ht og
ljóma. Draumurinn um Ameríku
var eins og þoka sem eyðhagði alla
sólarsýn og lífið var orðiö beiskt
einsogsúrastaedik.
Var julen alt for dyr?
- Sá forbedre Deres okonomi med dette nye system
fra England. Her sikres De en hurtig gevinst pá
162000 isl. kr. helt uden omkostninger og risiko.
Rekvirer mere information hos
MC-Computer Systems Itd.,
Scorpio House, 102 Sydney Street,
London SW3 6NJ, United Kingdom.
Byltingín
Sólbaðsstofur, heilsuræktarstöðvar
Dan-sun
Vinsælustu og mest seldu solarium bekkirnir í Evr-
ópu. Dan-sun seldi yfir 110.000 sólir á síðastliönu
ári. Nú líka á íslandi.
Umboðs- og heildverslunin
Sól og heilsa hf.,
s. 91-13278 einnig á kvöldin i sama síma
Kynningarverð á fyrstu 20 bekkjunum.
UPPBOÐ Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins, Austurvegi 4, Hvols- velli, fimmtudaginn 13. jan. 1994 kl. 15.00: Jaðar, Djúpárhreppi, þingl. eig. Jens Gíslason. Gerðarbeiðendur inn- heimtumaður ríkissjóðs og Stofhlána- deild landbúnaðarins.
Jörðin Bali I, Djúpárhreppi, þingl. eig. Jón Ámason. Gerðarbeiðandi Stofn- lánadeild landbúnaðarins.
Steinar A.-Eyjaíjallahr., þingl. eig. Kristján Guðmundsson og Guðmund- ur Kristjánsson. Gerðarbeiðendur Stofiilánadehd , landbúnaðarins og Búnaðarbanki íslands, Selfossi. SÝSLUMAÐUR RANGÁRVALLASÝSLU UPPBOÐ Framhald uppboðs á neðan- greindri eign verður háð á henni sjálfri miðvikudaginn 12. jan. 1994, sbr. nánari tímasetningu:
Hólavangur 18, Hellu, þingl. eig. Jóna L. Marteinsdóttir. Gerðarbeiðendur Kaupfélag Ámesinga, Selfossi, og Sig- urður Skarphéðinsson.
Holtsmúli, Holta- og Landsveit, þingl. eig. Jóna L. Marteinsdóttir. Gerðar- beiðendur Stofhlánadeild landbúnað- arins og Búnaðarbanki íslands, Hehu. Núpur B, Fljótshlíðarhreppi, þingl. eig. Guðmundur Páll Pétursson. Gerð- arbeiðendur Stofihánadeild landbún- aðarins og innheimtumaður ríkis- sjóðs. Núpur E, Vestur-Eyj afj allahreppi, þingl. eig. Guðjón Jónsson. Gerðar- beiðendur Olíuverslun íslands, Mjólk- urfélag Reykjavíkur, Landsbanki ís- lands, lögfrd., Höfh Þríhymingur og Vélar og þjónusta, kl. 15.00. SÝSLUMAÐUR RANGÁRVALLASÝSLU
VERSLUNAREIGENDUR ATHUGIÐ!
/ VAMDA'i
Ert þú tilbúinn fyrir tvö viröisaukaskattþrep?
MA305 SJÓÐSVÉLIN
FRÁ TEC ER LAUSNIN!
MA305 er fullkomin lausn fyrir rekstraraðila sem gera
kröfur um ódýran og einfaldan búnaö.
Verð aðeins kr. 41.900,- stgr m/Vsk.
MA305 ertil afgreiðslu nú þegar!
Tæknival
Skeifunni 17 - Sími (91) 681665
Hafió samband vió ráógjafa okkar nú þegar!
1