Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1994, Page 27

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.1994, Page 27
FIMMTUDAGUR 20. JANÚAR 1994 39 Meiming Fréttir Verk Finnboga á Kjarvalsstööum. „Fljótt á litið eru þetta bara ósköp venjulegar skólplagnir en þegar nánar er að gáð kemur í Ijós að um eins konar hljóðfæri er að ræða.“ DV-mynd BG Frumstælt Helgí Jónsson, DV, Ólafefirði; Ilraðfrystihús Ólafsfjarðar varð reyklaust um áramótin og mun þaö vera fyrsta frystihúsiö á landinu sem verður algjörlega reyklaust. Ákvörðun ura að reykja ekki innan veggja fyrirtækisins var tekin fyrr í vetur og var nokkur aðdragandi að því, m.a. var Halldóra Bjarna* • dóttir frá Krabbameinsfélaginu fengin til að halda námskeið. Karl Guðmundsson, fram- kvæmdasijóri HÓ, segir þaö stefnu íyrirtækisins að breyta ímynd þess - hér sé um fy rirtæki í matvælaiðn- aði að ræða ogþað samræmist ekki starfseminni að starfsfóikið reykiá vinnustað. LÁTTU EKKI 0F MIKINN HRADA A VALDA ÞÉR SKAÐA! tfsr0" RSK RÍKISSKATTSTJÓRI seiðmagn - Finnbogi Pétursson á Kjarvalsstöðum Finnbogi Pétursson hefur á síðustu árum notið sérstöðu á innlendum myndlistarvettvangi vegna þess hvemig hann hefur tvinnað saman myndlist og tónlist og jafnframt listina og tæknina. í inngangi skrár sýningar Finnboga er nú hefur ver- ið opnuö á Kjarvalsstöðum, íjallar HaUdór Björn Runólfsson um sam- þáttun listgreina frá fomu fari og finnur samsvörun með list Finn- boga hjá þrakverska skáldinu og hljóðfæraleikaranum Orfeifi og rekur samþáttunarhugmyndir listamanna á borð við Shelley, Rimbaud, Kandinsky, Skrjabín, Wagner og Nam June Paik. Þar er í flestum tilvikum um að ræða hug- myndir um að litir eigi sér sam- svarandi tón og öfugt. Finnbogi hefur strangt til tekið ekki fjallað um slíka samsvörun í list sinni. Að mínu mati má allt eins tengja listiðkun hans við það uppgjör við módemismann sem átti sér stað fyrir u.þ.b. áratug en á rætur m.a. í dadaismanum og hugmyndalist- inni. Bæði í Evrópu og Bandaríkj- unum komu fram á sjónarsviðið vídeó- og gemingalistamenn sem byggðu að töluverðu leyti verk sín á tæknilegri þekkingu. Örtölvu- byltingin fyrir rúmum áratug átti þama aö sjálfsögðu nokkurn þátt, en einnig svonefnd „iðnaðarmenn- ing“ er spratt upp úr borgaralegri firringu pönksins. Viðleitnin var ekki einungis sú að tvinna saman listina og tæknina að hætti Leon- ardos, heldur einnig að senda skýr skilaboð til ómannlegs samfélags sem studdi listir og menningu á meðan það sópaði kjamaúrgangi undir mottuna. Bandaríski gem- ingalistamaðurinn Mark Pauline bjó þannig til vélmenni sem hann lét ráðast hvert á annað á víggirtu svæði. Eins konar hljóðfæri Finnbogi Pétursson hefur að sönnu ekki verið ýkja herskár í sinni list, en sagt er að allar tækni- framfarir byggist í raun á því hvort þær nýtist í hemaði. Allt um það hafa sum verka Finnboga verið býsna ágeng, s.s. rör er hann lét sveiflast í vegg fyrrum frystiklefa í hinu nýstofnaða Listasafni Akur- eyrar á opnunarsýningu þess. Önn- ur eftirminnileg verk Finnboga frá Myndlist Ólafur J. Engilbertsson síðustu árum, s.s. „Hringur" - verk sýnt í Nýlistasafninu 1991 er sam- anstóð af sínustóni úr hátalara sem gáraði vatn og gerði skuggamynd - og „Pendúlar", sýnt í Listasaftn ís- lands sl. sumar á sýningunni Bo- realis, er samanstóð af hátölurum sem festir vom á endann á járnrör- um og sveifluðust yfir hljóðnemum á gólfi - vekja fremur dulúð og hafa til aö bera óskilgreint frum- stætt seiðmagn sem maður tengir alls ekki tækni þó svo að vírar og tengingar séu áberandi og stór þáttur í útlitinu. Hið sama má segja um það verk sem Finnbogi hefur nú sett upp á 25 metra löngum vegg miðsalarins á Kjarvalsstöðum. Fljótt á litið eru þetta bara ósköp venjulegar skólplagnir, en þegar nánar er að gáð kemur í ljós að hér er um eins konar hljóðfæri að ræða. Finnbogi hefur hér raðað upp sjö mislöngum plaströrum sem eru rofin á mismunandi stöðum. Samkvæmt sýningarskrá varpa tveir forritar út átta púlsum tengd- um í hátalara aftast í hverju röri, en stuttbylgjuskali útvarpssendis er látinn mynda hljóðin sem kýld eru með áslætti gegnum rörin. Hér hefur Finnboga enn einu sinni tek- ist að virkja umhverfið á útsjónar- saman hátt. Efniviðurinn er hvers- dagsleg iðnaðarframleiðsla líkt og áður, en útkoman er seiðmagnað verk, knúið dularfullum krafti. Slæm villa slæddist inn í fyrirsögn greinar minnar um Geoffrey Hendricks. Rétt er fyrirsögnin þannig: „Lífsgaldur Geoffrey Hendricks". Launagreiðendur - Launþegar Staðgreiðsla af hlunnindum Kostnaður vegna ferða til og frá vinnustað Kostnað launþega við ferðir til og frá vinnustað ber að telja til persónulegra útgjalda. Greiði vinnuveitandi þennan kostnað að öllu leýti eða að hluta skal telja þau persónulegu útgjöld sem þannig sparast launþega til staðgreiðsluskyldra tékna hans. Greiði vinnuveitandi kostnað vegna ferða launamanns til og frá vinnustað ber að standa skil á staðgreiðslu af þeim greiðslum. Ókeypis flutning til og frá vinnustað ber að meta til staðgreiðsluskyldra hlunninda. Á svæðum þar sem almenningsvagnar ganga skal miða hina skattskyldu fjárhæð við vagn- fargjöldin á hverjum tíma (á Stór-Reykjavíkursvæði skal miða við kostnaðarverð mánaðarkorta).

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.